Íþróttablaðið - 01.12.1970, Page 13
a. Alhliða þjálfun líkamans.
b. Að leikraunir séu iðkaðar
með stígandi erfiði.
c. Ákveðið form leikfiminnar,
sem upphefst - ákv. braut
hreyfinga - ákv. lokastaða.
Hjálmar Ling (1820-1886)
Hann var sonur Per Henrik
Lings. Hann byrjaði snemma að
aðstoða föður sinn við sjúkra-
þjálfunina. Hann lauk prófi frá
Iþróttakennaraskólanum, en um
tíma var hann við framhaldsnám
í lífeðlis- og líffærafræði.
Árið 1864 var hann yfirkenn-
ari skólans. Safnaði hann saman
æfingum Lings, flokkaði þær í
kerfi og gaf út til notkunar í
skólum.
Höfundur tímaseðilsins:
Victor Balch
Árið 1861 nam hann við G.C.I.
og síðar varð hann skólastjóri
vopnabirgða deildarinnar.
Hann gerði mikið til að kynna
leikfimi erlendis, fór með sýning-
arflokka, og hélt sýningar heima
fyrir.
Hann gaf út nokkrar bækur
um íþróttamál, mest þessara bóka
er: Idrettsbok, útkomin 1886-8,
í þrem bindum.
En einna frægastur er Balch
fyrir að hafa flutt frjálsu íþrótt-
irnar frá Englandi til Svíþjóðar.
NOREGUR
Fram til 1814 gætti í kennslu
mjög áhrifa frá Nachtegall, en
eftir það kom Ling til sögunnar,
bæði í hernum og skólunum.
Árið 1870 var stofnaður íþrótta-
kennaraskóli, Gymnastik Central
skole.
Um 19. öld ruddi sér nijög til
rúms félagsskapur, sem kominn
var með iðnaðarmönnum frá
Friedrich Ludwig Jahn
Þýzkalandi, er settust síðar að í Árið 1914 breyttist íþrótta-
Noregi: Turnforening. kennaraskólinn talsvert og hét
ALLT
fyrir
SPORT
og
VEIÐIMENN
FREYJUGATA 1 - REYKJAVÍK - ÍSLAND
EiGANDI: CHRISTIAN WILLATZEN
SÍMI: 1 90 80 • 2 40 41
245
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ