Fréttablaðið - 06.08.2020, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 06.08.2020, Blaðsíða 18
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@ frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Þegar Edda vill vera fín klæðist hún oft vintage- kjólum. Þessi er úr Gyllta kettinum. Framhald af forsíðu ➛ Edda Hulda Ólafardóttir lauk BA-gráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands í vor og mun setjast aftur á skólabekk í haust þegar mastersnámið tekur við. Hún var enn í barnaskóla þegar áhuginn á tísku tók að láta á sér kræla. „Ég man að mamma tók oftast til föt á mig áður en ég fór í skólann en ég var ekki há í loftinu þegar ég vildi fá að stjórna því sjálf, enda hafði ég ákveðnar skoðanir á því hverju ég vildi klæðast. Á unglingsárunum fór ég oft ein með strætó í Kringluna og skoðaði föt í öllum búðunum. Stundum mátaði ég það sem mér leist vel á. Þegar ég kom heim aftur skrifaði ég í sérstaka bók hvaða föt mér fannst falleg og langaði til að eignast og setti mér markmið til að spara fyrir þeim,“ segir Edda og bætir við að sér finnist tíska snúast um tjáningu. „Þú getur tjáð þig með klæðnaði án þess að segja neitt. Föt geta líka gefið manni sjálfstraust. Ég klæðist fötum sem mér sjálfri finnast f lott og fylgi ekki neinum sérstökum tískustraumum. Mér finnst mikil- vægt að pæla ekki í hvað öðrum finnst, eða láta það hafa áhrif á fatavalið,“ segir Edda, sem bjó í eitt ár í London. Þar var hún au-pair hjá íslenskri fjölskyldu. „Það var algjör draumur að búa í London. Mig langaði að prófa að búa annars staðar og upplifa eitthvað nýtt. Þar kynntist ég svo mikilli fjölbreytni, þar eru engar tískureglur og ég fékk enn meiri áhuga á fötum. Í London búa margir og þar er enginn að spá í hvernig aðrir klæða sig,“ bendir hún á. Sker sig úr í lagadeildinni Edda hóf nám í lögfræði þegar hún kom aftur heim en hún er stúdent af málabraut frá Menntaskól- anum í Reykjavík. „Það var góður grunnur fyrir laganámið, maður öðlast góðan lesskilning og síðan er mikilvægt að hafa góða mála- kunnáttu,“ segir hún. Edda brosir þegar hún er spurð hvort hún skeri sig úr hvað varðar klæðaburð í lagadeildinni. „Jú, ætli það sé ekki hægt að segja það. Ég er alveg þekkt fyrir það og finnst það bara skemmtilegt.“ En hvernig myndi Edda lýsa eigin fatastíl? „Hann er fjöl- breyttur, litríkur og djarfur og stundum svolítið „extreme“. Ég er ekki hrædd við að skera mig úr og er til í að vera öðruvísi. Ég hef verið stoppuð úti á götu og fengið hrós fyrir hvernig ég klæði mig. Fatastíllinn sveiflast líka eftir því hvernig mér líður. Stundum langar mig að vera skvísa í skærum kjól en næsta dag langar mig að vera töffari í leðurjakka og leður- buxum,“ segir Edda. Hún segir að dagsdaglega klæði hún sig eftir því í hvernig skapi hún er. „Oft vel ég fötin út frá einum jakka. Þá vel ég jakka sem mig langar að vera í og hvað mér finnst passa við hann. Ég er oft í förri, eða stórum gervipelsum. Ef ég er í bleikum pels poppa ég hann upp með tösku eða sólgleraugum. Til spari er ég oft í vintage kjólum, sem ég kaupi í Gyllta kettinum, og háum boots. Ef ég vil vera mjög fín fer ég í skærlitan kjól og boots.“ Edda byrjaði að sauma í samkomubanninu í vetur og saumaði þennan bol. Skæsleg stígvél sem Edda Hulda keypti í verslun Rauða krossins. Oft byrjar Edda á að velja sér flottan jakka eða pels, þessi er frá Topshop. Sigríður Inga Sigurðardóttir sigriduringa@frettabladid.is Ég nýti mér það sem ég lærði í textíl í grunnskóla, en ég var í tíu ár í textíl, og svo hef ég horft á nokkur mynd- bönd á YouTube, sem voru hjálpleg. Ég hef bæði breytt fötum sem ég á og saumað mér nýjar flíkur. Vogue og Instagram Edda fylgist vel með hvaða trend eru í gangi hverju sinni og þá helst í Vogue og á Instagram, sem er stór miðill í tísku. „Mér finnst gaman að vita hvað er í tísku hverju sinni, þótt ég fari ekki eftir því sjálf,“ segir Edda og minnir á að tískan fari sífellt í hringi. Hvað fylgihluti og skart varðar segist Edda oft vera með hoop- eyrnalokka, sólgleraugu og töskur í stíl við fötin. „Fylgihlutir setja oft punktinn yfir i-ið. Ef ég er í öllu appelsínugulu er ég líka með appelsínugula tösku og helst sól- gleraugu í svipuðum lit,“ segir hún. Finnur fjársjóð í búðum Uppáhaldsflíkurnar eru margar og Edda segist varla geta valið eina sérstaka úr fataskápnum. „Ég held mikið upp á seventís ljónakápu sem ég keypti á fatamarkaði og bol frá Hildi Yeoman, sem ég fékk í útskriftargjöf. Nokkrir jakkar sem ég á eru í sérlegu uppáhaldi en ég á meira en hundrað jakka. Þessi jakkasöfnun hófst þannig að ég keypti mér einhvern tímann nokkra jakka með stuttu millibili og áður en langt um leið átti ég endalaust af jökkum. Vinkonur mínar hafa gert létt grín að mér út af þessum jakkaáhuga, en bara í góðu. Í fyrra hélt ég partí í tilefni þess að ég eignaðist hundraðasta jakkann. Ég tók alla jakkana mína niður og gestirnir urðu að vera í jakka af mér og fara í þeim niður í bæ,“ rifjar Edda kímin upp. Hún kaupir mest af sínum fötum í second hand- og vintage- búðum, eins og Rauðakrossbúð- unum, Extraloppunni, Hertex og Spúútnik. „Mér finnst þetta langskemmtilegustu búðirnar. Það er eins og að fara í fjársjóðsleit að fara í slíkar búðir,“ segir Edda, sem er einstaklega hrifin af skærum litum, neon og pastel. „Núna held ég upp á pastelfjólubláan og eitur- grænan en það á örugglega eftir að breytast eftir nokkra mánuði.“ Fékk sér saumavél Nýlega fjárfesti Edda í saumavél, sem hefur komið að góðum notum. „Í fyrstu var ég dálítið smeyk við að nota hana en í samkomubanninu í vetur fór ég að prófa mig áfram og það endaði með að ég saumaði sjálf útskriftardressið mitt. Ég nýti mér það sem ég lærði í textíl í grunnskóla, en ég var í tíu ár í textíl, og svo hef ég horft á nokkur myndbönd á YouTube, sem voru hjálpleg. Ég hef bæði breytt fötum sem ég á og saumað mér nýjar f líkur. Þó ég segi sjálf frá, þá hefur saumaskapurinn gengið ótrúlega vel.“ Líkt og margir er Edda meðvituð um endurnýtingu á fötum og hún hendir aldrei f lík. „Ég byrja oft á að gefa systrum mínum föt sem ég er hætt að nota, en vil samt ekki gefa frá mér. Þá get ég tekið þau til baka ef ég sé eftir því,“ segir Edda kankvíslega en annars fara fötin til góðgerðasamtaka þar sem þau öðlast nýtt líf. LÍTTU VIÐ Á BELLADONNA.IS Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna NÝJAR HAUSTVÖRUR STREYMA INN 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 6 . ÁG Ú S T 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.