Fréttablaðið - 06.08.2020, Blaðsíða 36
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is
FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar
Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason
hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
MÉR HEFUR Í RAUN
ALDREI LIÐIÐ BETUR
OG VIÐ GRÍNUMST MIKIÐ MEÐ
AÐ VIÐ SÉUM EINS OG UNGLING-
AR SAMAN.Við erum bara búin að taka þetta eitt skref í einu, eins og f lestir í þessum sporum held ég. Maður reynir bara að vera jákvæð
ur og bjartsýnn, en þetta er auð
vitað búin að vera mikil óvissa og
lykilatriðið alltaf að tryggja öryggi
og fara eftir settum reglum. Við
frestuðum keppninni einu sinni.
Eins og staðan er núna höldum við
okkar striki og förum eftir öllu sem
þríeykið góða segir,“ segir Manuela
Ósk Harðardóttir, sem staðfestir þó
að nú sé fundað um möguleikann
á því að fresta keppninni fram í
október.
Enn er því stefnt að því að keppn
in fari fram 21. ágúst en þá yrði
áhorfendafjöldi mjög takmarkaður
og sætaskipan þannig að tveggja
metra reglan sé virt.
„Eins hefur Elísa, sem sér um
sýninguna, þurft að endurskoða
allar innkomur. Erlendis erum við
að sjá krýningar með grímur og það
er bara eitthvað sem við þurfum
að skoða þegar nær dregur,“ segir
Manúela.
Styrkja Kvennaathvarfið
Hún segir hópinn í ár fjölbreyttan
og frábæran að vanda.
„Það eru margar í hópnum núna
sem hafa keppt áður, sem mér finnst
alltaf svo gaman, því það segir mér
að við séum að gera góða hluti þegar
stelpur koma aftur og keppa. Þetta
hefur klárlega verið erfiðara ár og
skrítnar aðstæður, en í svona nánu
samstarfi myndast alltaf djúp vin
átta, sem okkur finnst svo dýrmæt.“
Manuela segir að hún og aðstand
endur keppninnar geri mikið í því
að hvetja keppendur til að láta gott
af sér leiða.
„Tuttugu kröftugar konur geta sko
gert mjög margt þegar þær koma
saman. Við eigum í góðu samstarfi
við Kringlubazaarinn, en stelp
urnar hafa safnað fötum sem þær
eru hættar að nota og verða með
bása opna til 29. ágúst. Allur ágóði
sölunnar fer óskiptur til Kvenna
athvarfsins. Sú umræða hefur oft
komið upp hjá okkur í keppninni að
maður þekkir eiginlega ekki konu
sem aldrei hefur upplifað einhvers
konar of beldi, hvort sem það er
óviðeigandi káf á skemmtistað eða
heimilisofbeldi. Það er mjög sorgleg
staðreynd og eitthvað sem ætti ekki
að viðgangast. Um leið og maður
opnar umræðuna þá opnar maður
líka fyrir breytingar, og það er það
sem við viljum gera,“ segir Manuela.
Rekið af konum
Manuela segist gera sér grein fyrir
þeim fordómum sem fylgi keppnum
sem þessum.
„Orðið fegurðarsamkeppni er
mjög villandi og býður einmitt upp
á misskilning eins og til dæmis að
keppnin snúist bara um útlit. Ég
er alltaf að reyna að finna betra
orð sem gefur rétta mynd af því
sem við gerum í keppni eins og
Miss Universe Iceland, en hef ekki
fundið neitt ennþá. Miss Universe
er rekið af konum, fyrir konur og
með það að markmiði að valdefla
ungar konur og gefa þeim tækifæri
og rödd,“ segir hún.
Manuela segist alltaf hafa nóg að
gera, en nýverið opnaði hún vellíð
unarstöðina Even Labs.
„Það er alltaf nóg að gera hjá mér
og stundum bara aðeins of. Þessir
skrítnu tímar sem við erum að upp
lifa hafa hins vegar snúið mér svo
lítið á hvolf og maður kemst ekki
hjá því að taka svolítið til hjá sér og
kíkja á lífið í aðeins öðru ljósi,“ segir
Manúela, sem nýverið opinberaði
nýjan kærasta á Instagram.
Aldrei liðið betur
„Ég skrifaði við fyrstu myndina sem
ég birti af okkur saman hvaða bjáni
hefði eiginlega sagt að góðir hlutir
gerist hægt? Kaldhæðnin er vissu
lega sú að hjá okkur hefur þetta
gerst á einhverjum ógnarhraða, en
samt er tilfinningin svo rétt. Mér
hefur í raun aldrei liðið betur og við
grínumst mikið með að við séum
eins og unglingar saman. Ég veit að
maður þarf að ganga í gegnum alls
konar sveiflur í lífinu til að átta sig
almennilega á því hvað maður vill
og þarf, og svo bara kemur það rétta
á hárréttum tíma.“
Manuela hefur verið í sviðsljós
inu meira en helming ævi sinnar
og segist því orðin frekar vön því
að fólk úti í bæ spái í það hvað hún
gerir og segir.
„Með tímanum þroskast maður
og hættir að láta það á sig fá, maður
sér hvaða fólk maður vill hafa í
kringum sig og hættir að læðast til
að þóknast öðrum. Það er mikið
frelsi fólgið í því að lifa lífinu án þess
að sveiflast með áliti annarra.“
steingerdur@frettabladid.is
Lærði að hætta að
hugsa um álit annarra
Manuela Ósk heldur utan um Miss Universe en hún segir það
rangnefni að kalla þetta fegurðarsamkeppni. Í dag hefja drottning-
arnar sölu á fötum í Kringlubazaar til styrktar Kvennaathvarfinu.
Manuela Ósk Harðardóttir vann sjálf keppnina Ungfrú Ísland árið 2002. MYND/STEFÁN JOHN TURNER
6 . Á G Ú S T 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R28 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð