Fréttablaðið - 06.08.2020, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 06.08.2020, Blaðsíða 10
Alvotech og alþjóð-legi lyfjarisinn Teva P h a r m a c e u t i c a l s hafa gert samstarfs-samning um þróun, f r a m l e i ð s l u o g markaðssetningu fimm líftækni- lyfja í Bandaríkjunum. Samning- urinn tryggir Alvotech tekjur upp á hundruð milljarða króna á næstu árum, að sögn Róberts Wessman, stofnanda fyrirtækisins, sem segir útlit fyrir að Alvotech ráði til sín 70 vísindamenn og sérfræðinga til við- bótar við þá 480 sem nú starfa hjá Alvotech. Þróun og framleiðsla líf- tæknilyfja geti orðið ein af burðar- stoðum íslensks útflutnings. „Við gerum ráð fyrir því að Bandaríkin skili okkur um 500 milljarða króna tekjum á næstu 10 árum. Þessi samningur er stór hluti af því,“ segir Róbert í samtali við Fréttablaðið. Með samkomulaginu hefur Teva tryggt sér markaðsleyfi fyrir lyf Alvotech þegar þau koma á markað á næstu árum og þau verða öll fram- leidd í hátæknisetri fyrirtækisins á Íslandi. Þau lyf sem Alvotech hefur í þróun eru meðal annars notuð til meðferðar á sjúkdómum eins og gigt og krabbameini og eru öll í hópi söluhæstu lyfja heims í dag. „Við erum þakklát fyrir það traust sem Teva sýnir okkur með svo stórum samstarfssamningi en þessi mikilvægi áfangi styður enn frekar við áframhaldandi vöxt og þróun fyrirtækisins. Undir samn- inginn falla fimm líftæknilyf, af þeim átta sem nú eru í þróun,“ segir Róbert. Aðspurður segir Róbert að samn- ingurinn við Teva sé sá stærsti sem Alvotech hefur gert til þessa, hann sé líklega sá stærsti sem hafi verið gerður í þeim geira sem fyrirtækið starfar í. Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst er umræddur viðskipta- samningur á meðal þeirra stærstu ef ekki sá stærsti sem íslenskt fyrir- tæki hefur gert. Samningurinn við Teva er einn af mörgum samstarfssamningum sem Alvotech hefur gert undan- farin misseri og má þar nefna sam- starf við Stada fyrir Evrópumark- aði, Jamp í Kanada og Fuji Pharma í Japan. Þá hefur fyrirtækið hafið byggingu á nýrri lyfjaverksmiðju í Kína sem mun þjónusta þann markað á næstu árum. Líftæknilyf, sem eru á meðal mest seldu lyfja heims, eru skil- greind þannig að þau eru lyf sem eru framleidd með hjálp lífvera. Þau eru f lóknari í þróun og fram- leiðslu en hefðbundin lyf og kosta því umtalsvert meira. Á næstu árum renna mörg einkaleyfi líftæknilyfja út, sem skapar tækifæri fyrir fyrir- tæki á borð við Alvotech til að setja sambærileg lyf á markað á sama tíma og heilbrigðisyfirvöld geta lækkað lyfjakostnað sinn umtals- vert og aukið aðgengi sjúklinga að nýjum lyfjum. Alvotech tilkynnti nýlega um góðan framgang á klínískum rann- sóknum á sínu fyrsta lyfi. Um er að ræða líftæknihliðstæðu lyfsins Humira, sem er í dag söluhæsta lyf heims og selst fyrir um 20 milljarða Bandaríkjadala á ári. Stefnt er að því að markaðssetja lyfið á heims- vísu á árinu 2023 og síðar, en sam- kvæmt heimildum Fréttablaðsins er lyfið hluti af samstarfssamningi Alvotech. Samningurinn felur í sér veglega upphafsgreiðslu og áfangagreiðslur til Alvotech, auk þess sem fyrir- tækin skipta með sér ágóða vegna sölu lyfsins í Bandaríkjunum. Frá stofnun Alvotech nemur heildarfjárfesting fyrirtækisins í uppbyggingu og þróunarstarfi í fjórum löndum um einum milljarði Bandaríkjadala, eða um 136 millj- örðum króna. Þar af nema fram- lög hluthafa fyrirtækisins um 700 milljónum Bandaríkjadala eða um 95 milljörðum króna. Meðal eigenda Alvotech eru tveir af stærstu f járfestingarsjóðum heims, CVC Capital Partners og Temasek, í gegnum eignarhlut Alvogen í fyrirtækinu, auk japanska lyfjafyrirtækisins Fuji Pharma og eins stærsta fjárfestingarsjóðs Mið- Austurlanda, Yas Holding. Stærsti einstaki hluthafi Alvotech, Aztiq Pharma, er f járfestingarsjóður undir forystu Róberts. Ráða til sín tugi sérfræðinga Samningurinn við Teva hefur mikla þýðingu fyrir starfsemi Alvotech á Íslandi en framleiðsla og útflutning- ur lyfjanna verður frá Íslandi. Auk þess stefnir fyrirtækið að frekari vexti hér á landi. Í dag starfa um 480 vísindamenn og sérfræðingar hjá Alvotech og gæti þeim fjölgað um 70 ef áætlanir fyrirtækisins ganga eftir. Þróun og framleiðsla líf- tæknilyfja gæti orðið ein af burðar- stoðum íslensks útf lutnings, að sögn Róberts. „Við sjáum fyrir okkur að bæði Alvotech og Ísland geti verið í leiðandi hlutverki á sviði líftækni á heimsvísu og samhliða því verði til ný atvinnugrein hér á landi. Það eru ekki mörg fyrirtæki í heiminum eins og Alvotech vegna þess að þekkingin, sem lyfjaþróun af þessu tagi krefst og við erum að byggja upp hér á landi, er vandfundin,“ segir Róbert og nefnir sem dæmi að hjá Alvotech starfi vísindamenn og sérfræðingar frá 45 löndum. Starfsemi fyrirtækisins í dag er auk Íslands, í Þýskalandi, Sviss og í Bandaríkjunum. „Ég vona að fjárfestar, og aðrir sem hafa metnað fyrir lyfjaþróun og auknu aðgengi sjúklinga að líf- tæknilyfjum, sjái tækifæri í því að fylgja í fótspor okkar og annarra þegar fram í sækir,“ bætir hann við. Hins vegar gekk erfiðlega að finna fjármagn hér á landi þegar fyrir- tækinu var komið á fót árið 2012. „Ef ég á að vera hreinskilinn gekk erfiðlega að fjármagna uppbygg- ingu fyrirtækisins til að byrja með. Hagkerfið var enn að jafna sig og fjármálamarkaðurinn var í ákveðn- um dvala. Við höfðum úr fleiri stað- setningum að velja og vorum komin langt með að fjárfesta á Möltu, sem hefur skapað lyfjaiðnaðinum hag- stætt umhverfi. En þetta hafðist allt að lokum og það fer vel um okkur innan Vísindagarða Háskóla Íslands,“ segir Róbert. thorsteinn@frettabladid.is Sömdu við Teva um hundruð milljarða Alvotech hefur skrifað undir risasamning við Teva Pharmaceuticals. Umfangið hleypur á hundruðum milljarða króna. Stofnandi Alvotech segir líftæknilyf geta orðið eina af burðarstoðum íslensks útflutnings. Ráða tugi sérfræðinga vegna aukinna umsvifa. Samningurinn við Teva er einn af mörgum samstarfssamningum sem lyfjafyrirtækið Alvotech hefur gert undanfarin misseri. Við sjáum fyrir okkur að bæði Alvotech og Ísland geti verið í leiðandi hlutverki á sviði líftækni á heimsvísu. Róbert Wessman, stofnandi Alvotech Ekki er um skilmálabreytingu að ræða, líkt og ranglega hefur komið fram, heldur er um að ræða aðgerð sem er heimil í gild- andi skilmálum og snýr að því að lágmarka áhættu, segir í tölvupósti kreditkortafyrirtækisins Borgunar vegna frétta af svokallaðri veltu- tryggingu sem fyrirtækið boðar frá 1. október. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í fyrradag hyggst Borgun halda 10 prósentum af kortafærslum sem tryggingu í sex mánuði. Borgun segir nú að póstur um þetta hafi aðeins verið sendur á um 3 prósent viðskiptavina fyrirtækisins og eigi eingöngu við um þá. „Allt eru þetta aðilar sem eru í þeirri stöðu að selja mestmegnis þjónustu áður en hún er veitt. Ekki er um skilmálabreytingu að ræða, líkt og ranglega hefur komið fram, heldur er um að ræða aðgerð sem er heimil í gildandi skilmálum og snýr að því að lágmarka áhættu,“ segir Borgun. Þá kveðst Borgun ekki hafa hert skilmála umfram keppinautana, nema síður sé. „Fyrir tilstilli sér- stakra aðgerða, sem Borgun greip til, hefur ferðaþjónustan notið meira en 90 daga vaxtalausrar fjármögnunar á skuldbindingum sínum gagnvart ferðamönnum sem keypt hafa ferðir, gistingu og af þreyingu fram í tímann. Þá skal skýrt tekið fram að hjá Borgun verður engum greiðslum haldið eftir vegna vöru eða þjónustu sem þegar hefur verið veitt. Þetta á við um alla viðskiptavini Borgunar, í ferðaþjónustu sem og í öðrum greinum. Jóhannes Þór Skúlason, fram- kvæmdastjóri Samtaka ferða- þjónustunnar, segir innihald fyrr- nefnds bréfs Borgunar í samræmi við samtöl sem hann hafi átt í gær við fulltrúa fyrirtækisins. „Það er ánægjulegt að sjá þessa skýringu. Þarna hefur fyrst og fremst verið um að ræða orðalag í tilkynningu sem var misvísandi eða ekki nægi- lega skýrt,“ segir hann. „Mér sýnist þeir sammála einmitt varðandi þann punkt sem við höfum sér- staklega bent á; að ekki sé haldið eftir greiðslum vegna þjónustu sem þegar hefur verið veitt.“ – gar Framkvæmdastjóri SAF kveðst ánægður með skýringar Borgunar Þarna hefur fyrst og fremst verið um að ræða orðalag í tilkynningu sem var misvísandi eða ekki nægilega skýrt. Jóhannes Þór Skúlason, fram- kvæmdastjóri Samtaka ferða- þjónustunnar MARKAÐURINN 6 . Á G Ú S T 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.