Ljósmæðrablaðið - Aug 2020, Page 4
4 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ - ÁGÚST 2020
Daginn sem þetta er ritað átti ég að vera í
steikjandi hita við sundlaugarbakka á Spáni.
Stórfjölskyldan ætlaði að fagna 70 ára afmæli
tengdaforeldra minna. En heimurinn var með
önnur plön. Í staðinn glími ég við ófyrirsjá-
anlegt veður Íslands á ferðalögum mínum
innanlands og kjarni fjölskyldunnar fer saman
á fótboltamót sona minna – sem hægt er
að kalla öðruvísi skemmtun. Það er ekkert
dýrmætara en að vera í kringum fólk sem
manni þykir vænt um, jafnvel í úrhellisrign-
ingu.
Hlutirnir hafa breyst rosalega hratt síðast-
liðna mánuði, en er þessi breyting kannski
til góðs? Það virðist sem þessi ósköp sem
COVID-19 er hafi neytt okkur til að taka
skref aftur á bak og virkilega hugsa út í hvað
er mikilvægast í lífinu, til að róa okkur og
læra að njóta þess sem er að gerast í kringum
okkur. Oft hef ég hugsað hversu mikið hefur
verið lagt á okkur ljósmæður og annað heil-
brigðisfagfólk á þessum tíma. Við höfum þurft að hlaupa hraðar og
finna tíma til að gera allt bæði í vinnunni og á heimilinu. Heimur-
inn snérist stöðugt hraðar. Við Íslendingar vorum orðnir vanir því
að yfirgefa landið reglulega og ferðast, fara í helgarferðir og vera í
fríi þar sem við vildum. Nú höfum við fengið tækifæri til að tengjast
aftur okkar fallega landi, fólki og þjóð. Að sjá undur Íslands án allra
erlendu túristanna á sama hátt og sumir muna eftir í æsku.
Ár hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra, sem svo var tilnefnt af
Alþjóðaheilbrigðismála-stofnunni, gekk í garð og í lok febrúar 2020
greindist fyrsta tilfellið af COVID-19 á Íslandi. Síðan þá hefur
faraldurinn sýnt fram á mikilvægi okkar starfa og við verið í svokall-
aðri framlínu. Þessir fordæmalausu tímar og breyttar aðstæður í
samfélaginu kölluðu á okkar frumkvæði, óhefðbundin viðbrögð og
hagkvæmar heildarlausnir.
Ráðleggingar og leiðbeiningar varðandi COVID-19 fyrir verð-
andi mæður og börn hafa haft þau áhrif að fleiri konur hafa íhugað
fæðingar utan spítala. Þær hafa fundið öryggi í því að vera heima,
en reglur spítalans takmörkuðu viðveru föðurs eða stuðningsaðila í
fæðingarferlinu til að bregðast við hættu á smiti. Alþjóðaráðstefnu
ljósmæðra sem átti að vera í Balí í júní var frestað um ár en fjöldi
ljósmæðra hafði áætlað að fara þangað til að fjalla um sínar rann-
sóknir og kynnast nýjustu þekkingu innan ljósmóðurfræða.
Ljósmæðrablaðið endurspeglar breytingar og fjölbreytileika í
barneignarþjónustu samtímans. Nýjar áskoranir í ljósmóðurstarfi
taka á, ekki síst á tímum COVID-19 heimsfaraldurs. Ritstjóri tók
saman efni úr fjölmiðlum og frá ljósmæðrum sem þær sendu til
blaðsins um áhrif og breytingar vegna COVID-19. Í fréttum er m.a.
sagt frá nýrri bráðaþjónustu kvennadeilda Landspítalans, yfirlit gefið
yfir rannsóknarstörf ljósmæðra og sagt frá Minningarsjóði Bjargar
Magnúsdóttur ljósmóður og Magnúsar Jónassonar bónda sem hefur
styrkt doktorsrannsóknir ljósmæðra myndarlega og veitt var úr í 5.
sinn á þessu ári. Björg starfaði sem ljósmóðir í Dalasýslu árabilið
1910-1951 við bágbornar aðstæður í sveitum landsins á þeim tíma
og við minnumst þess hvernig heimsfaraldur
spánsku veikinnar lagðist á barnshafandi
konur árið 1918 mun harðar en sá sem við
eigum við í dag.
Á forsíðunni blaðsins er listaverk úr ljós-
myndaseríu sem heitir Attempting to Disappear
eftir myndlistarkonuna Ragnheiði Maísól
Sturludóttur. Myndin talar sterkt til móðurhlut-
verksins þar sem kona umbreytist í eitthvað
yfirnáttúrulegt á einu augnabliki. Í ljósmóður-
fræðináminu er lögð áhersla á eðlilegt barn-
eignarferliog mjög skemmtileg dagbókabrot
ljósmæðranema eru í þessu blaði sem lýsa
þeirri áherslu, yfirsetunni og sambandinu við
konur og fjölskyldur þeirra.
Rannsóknir í ljósmóðurfræði eru nauðsyn-
legar til að bæta við þekkingu í starfi og auka
gæði barneignarþjónustunnar á Íslandi sem og
víðar. Það var því ánægulegt að þann fallega
dag 5. júní varði Valgerður Lísa Sigurðardóttir
doktorsritgerð sína í ljósmóðurfræði en ritgerð
hennar ber heitið: Neikvæð upplifun fæðingar og ljósmóðurmeð-
ferð: Framtíðarsýn barneignarþjónustu. Á árinu 2020 útskrifast 11
ljósmæður og eru lokaverkefni þeirra eins og heiti þeirra bera með
sér mikilvæg og áhugaverð. Í vor luku auk þess fjórar ljósmæður
meistaragráðu í ljósmóðurfræði.
Ritrýndar greinar eru afar mikilvægar til að dreifa upplýsingum
og fræða okkur um nýjustu rannsóknir í ljósmóðurfræði í íslensku
samhengi, til að innleiða jákvæðar breytingar á klínískum vettvangi.
Í þessu blaði eru kynntar niðurstöður eigindlegrar rannsóknar um
reynslu foreldra af hópmeðgönguvernd sem byggir á doktorsverk-
efni Emmu Marie Swift sem hún og samstarfsfélagar skrifa. Vitnað
er til foreldris sem sagði: Þetta var fyrir sálina og hjartað, þetta var
mitt öryggi.
Að lokum skrifar Hólmfríður Garðarsdóttir (Hófí) dásamlega
hugleiðingu ljósmóður um starf ljósmóður í þróunarhjálp; með
konum heima og á flótta. Hún minnir okkur á; að samsetning á
hópi barnshafandi og fæðandi kvenna á Íslandi hefur tekið miklum
breytingum á stuttum tíma og að rannsóknir sýni hvernig aðfluttar
konur hafi minna að segja um eigin umönnun, finni fyrir óöryggi
og upplifi mismunun í heilbrigðisþjónustu m.a. í löndum þar sem
heilbrigðisþjónusta er á heimsmælikvarða.
Ljósmæðrablaðið tekur undir með Hófí þegar hún skrifar að
ljósmæður hafi ... þurft að finna lausnir á tímum og í aðstæðum
þar sem bjargir hafa verið litlar eða engar ... og að ... í hjarta
okkar vitum við að þótt hver móðir og hvert barn séu einstök og
engum öðrum lík er okkar verk hvar sem er ætíð það sama; að
veita móður og barni eins góða aðstoð og hægt er, á meðgöngu,
í fæðingu og sængurlegu, á eins traustan, öruggan og mannlegan
hátt og mögulegt er.
Ljósmæðrablaðið óskar ljósmæðrum gleðilegs sumars. Njótum
þess að ferðast innanlands og vera í kringum okkar fallegu og
endurnærandi náttúru.
BREYTTIR TÍMAR
- BREYTT SAMFÉLAG
R I T S T J Ó R N A R P I S T I L L
Edythe L. Mangindin,
ljósmóðir á Landspítala
og doktorsnemi í H.Í.