Ljósmæðrablaðið

Årgang

Ljósmæðrablaðið - aug. 2020, Side 6

Ljósmæðrablaðið - aug. 2020, Side 6
6 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ - ÁGÚST 2020 Það er óhætt að segja að margt sé breytt síðan síðasta tölublað Ljósmæðrablaðsins kom út. Í byrjun árs lamaði covid-19 sjúk- dómurinn smám saman allt samfélagið og setti mark sitt á vinnu margra en þó sérstaklega heilbrigðisstétta sem enn einu sinni sýndu fram á mikilvægi sitt og nú á fordæmalausum tímum, þó að það endur- speglist engan veginn í launum fólks. Eins og vonandi flestir vita hefur WHO, alþjóðaheilbrigðismálastofnunin, tileinkað árið 2020 ljósmæðrum og hjúkrunar- fræðingum til að vekja athygli á þessum stéttum og mikilvægi þeirra. Þar sem vel menntaðar ljósmæður eru að störfum hefur dregið úr mæðra og nýburadauða og kven- heilsa er betri. Þetta hefur WHO dregið fram og undirstrikað. Þessar stéttir gegna lykilhlutverki bæði í umönnun veikra og forvörnum. Það er því svolítið umhugs- unarvert að á þessu ári ljósmæðra og hjúkrunarfræðinga skellur á heimsfaraldur sem alls ekki er séð fyrir endann á. Við hér á norðurslóðum búum þó betur en flestar aðrar þjóðir því að vel hefur gengið að eiga við covid-19 smitin og ekki hefur skort hlífðarfatnað. Þær fréttir hafa borist okkur úr alþjóðastarfinu að margar ljósmæður hafa veikst og sumar látið lífið þar sem þær hafa sinnt störfum sínum án viðeigandi búnaðar og þar af leiðandi veikst. Þetta eru daprar fréttir á ári sem er sérstaklega tileinkað okkur. En að innanlandsmálum, starf félagsins hefur verið mikið til í lágdeyðu vegna aðstæðnanna í þjóðfélaginu. Þeim viðburðum sem voru á áætlun eins og aðalfundi og ljósmæðradeginum í tengslum við 5. maí alþjóðadag ljósmæðra, höfum við þurft að fresta til haustsins. Eins hluta kynningarátaks sem var hugsað vegna ársins okkar 2020. Við horfum þó björtum augum til haustsins og áætlum að drífa starfið í gang af krafti þegar haustar. Það var lærdómsríkt að reyna að leysa þau mál sem ekki þoldu bið í gegnum fjarfundi, eins og kjarasamninga og hitta þá ekki viðsemjendur augliti til auglitis. Það tókst þó eftir eins árs samningaþóf að ganga frá og undirskrifa nýjan kjarasamn- ing þar sem aðalsóknarfærin liggja í breytingum á vinnutíma vaktavinnufólks. Því miður koma þær breytingar þó ekki til framkvæmda fyrr en 1. maí á næsta ári en stýri- og innleiðing- arhópar hafa nú þegar hafið störf. Það þarf að undirbúa þessar breytingar vel, að mörgu er að hyggja, ekki síst því að vinna að breytingum á kerfum sem halda utan um vinnutímann. Kjara- samningar að þessu sinni voru á margan hátt sögulegir þar sem unnið var þvert á bandalög um breytingu á vaktavinnunni og samið var við ríkið, sveitarfélög og borgina í einu lagi. Segja má að þarna hafi ákveðinn femínískur sigur unnist því að í fyrsta sinn er stórum kvennastéttum eins hjúkrunarfræðingum, sjúkraliðum og ljósmæðrum gert kleift að vera í fullu starfi og þær sem vinna mest íþyngjandi vaktir (næturvaktir) geta með nýju kerfi mögu- lega unnið það sem nú telst 80% starf eða 32 klst. og fengið 100% laun fyrir. Það verður spennandi að sjá hvernig þetta nýja kerfi kemur til með að virka – gamla kerfið var næstum orðið 50 ára og rík þörf var komin á breytingar. Leiðar- ljósið við breytinguna var að bæta jafn- vægi milli vinnu og einkalífs og stuðla að betri heilsu vaktavinnufólks. Vonandi tekst það vel og gerir vaktavinnuna bæri- legri og eftirsóknarverðari. Án efa verða hnökrar á þessu, bæði sem hugsanlega var búið að sjá fyrir og eins eitthvað sem enginn kom auga á fyrir fram. Varnagli var sleginn til að taka á því og munu innleiðingarhópar hafa vakandi auga með kerfinu og finna lausnir sem henta hverjum hópi fyrir sig þegar tímanum vindur fram. En víkjum aftur að árinu 2020, vonandi hafa einhverjar tekið sér far með ljósmæðravagninum frá Spönginni, óhætt er að segja að sá strætó hafi vakið mikla eftirtekt og að mestu leyti jákvæða og er þá tilganginum náð. Mig langar líka til að vekja athygli ykkar á Instagram- reikningnum Ljósmæðralíf 2020. Það væri gaman ef sem flestar ljósmæður væru til í að veita smá innsýn í sitt líf og starf og hafa samband við Ingu Maríu varaformann sem sér um þetta verkefni. Við erum sterkastar saman og með sameiginlegu átaki getum við vakið athygli á okkar litlu en mikilvægu og sterku stétt. Áslaug Valsdóttir formaður Áslaug Íris Valsdóttir, formaður Ljósmæðrafélags Íslands Á VA R P F O R M A N N S L M F Í LJÓSMÆÐRALÍF 2020 TWITTER/STRÆTÓ

x

Ljósmæðrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.