Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - aug 2020, Síða 7

Ljósmæðrablaðið - aug 2020, Síða 7
7LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ - ÁGÚST 2020 F O R S Í Ð A Verkið á forsíðunni er úr ljósmyndaseríu frá 2013 sem heitir Attempting to Disappear. Í verkinu gerði ég atlögu að því að hverfa með því að taka ljósmynd þegar ég hreyfi mig um leið og ég þyrla upp hveitiskýi. Mig langaði til þess að fanga augnablik sem ekki er hægt að sjá með berum augum en við vitum þó að er til. Verkið var unnið áður en ég varð sjálf mamma. Þegar ég var að leita að verkum sem gætu hentað fyrir Ljósmæðrablaðið rakst ég aftur á þessa mynd og mér fannst hún allt í einu tala svo sterkt við móðurhlutverkið. Á myndinni er kona sem umbreytist á einu augnabliki í eitthvað yfirnáttúrulegt. Hún er ennþá hún sjálf, bæði fyrir og eftir þetta augnablik, en þó gjörbreytt. Ég á tvö börn, öðru hef ég fengið að fylgja frá fimm ára aldri og hitt fæddi ég sjálf. Þó að það hafi verið ólíkt að verða móðir þeirra þá upplifði ég samt þetta yfirnáttúrulega augnablik í báðum tilfellum. Að verða móðir gjörbreytir heiminum. Hann er enn sá sami en hann er allt annar. Og ég er enn sú sama en ég er þó allt önnur. Rétt eins og augnablikið á myndinni, við sjáum þetta augnablik ekki með berum augum en við vitum að það er til. Meðfylgjandi hér á síðunni eru einnig tvö önnur verk. Annars vegar er ljósmynd af textílverki eftir listahópinn minn IYFAC sem samanstendur af fimm listakonum. Hugmyndin að hópnum var að stofna einhvers konar myndlistarklúbb en fljótlega fórum við þó að sýna og skapa verk saman. IYFAC varð til þegar við vorum allar nýútskrifaðar og óreyndar í listheiminum, rétt eins og mömmu- hópar fyrir nýbakaðar mæður. Í raun má segja að IYFAC virki eins og mömmuhópur. Ég leita í brunn vinkvenna minna við uppeldi barnanna og leita ég í brunn vinkvenna minna við listsköpun. Verkið á myndinni er ljós- mynd af efnisbútum sem við unnum upp úr litum himinsins en þetta tiltekna textílverk líkist þó sköpum kvenna. Hitt verkið sem fylgir með er skissa sem unnin var í tengslum við dansverkið: Kæra manneskja og sýnir hringrás manneskjunnar eða konunnar. ATTEMPTING TO DISAPPEAR NÁMS- OG STARFSFERILL Ragnheiður Maísól Sturludóttir er myndlistarkona sem vinnur þvert á miðla, en síðustu ár hefur hún unnið að myndlist og sviðslist til jafns. Auk þess hefur hún starfað sem listrænn stjórnandi og framkvæmdarstjóri menningarviðburða. Inntak verka hennar er fagurfræði hversdagsleikans og samband mannsins við sjálfan sig og aðra. Hún lærði ljósmyndun og leiklist áður en hún lauk BA prófi í myndlist frá Listaháskóla Íslands. Hún stundar nú mastersnám í hagnýtri þjóðfræði við Háskóla Íslands. Ragnheiður Maísól er stofnmeðlimur í myndlistarhópnum IYFAC. Nánar má sjá um verk hennar á https://www.behance.net/maisol. Verk IYFAC má sjá á http://www.iyfac.com Ragnheiður Maísól Sturludóttir, myndlistarkona

x

Ljósmæðrablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.