Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - aug. 2020, Síða 10

Ljósmæðrablaðið - aug. 2020, Síða 10
10 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ - ÁGÚST 2020 Auk allrar faglegu þekkingarinnar hef ég þurft að tileinka mér óteljandi verkleg atriði, og við flest þeirra finnst mér ég þurfa að þróa með mér ný skynfæri. Má þar nefna að þreifa óléttubumbur og leghálsa og sauma spangarrifur. Þetta eru atriði sem ég bæti mig jafnt og þétt í þó það verði eflaust eilífðarverkefni. Ég hef þó komist að því að þetta eru ekki aðalatriðin heldur hugmyndafræðin, sem stýrir nálgun og störfum ljósmæðra. Allt frá fyrstu kennslustundunum fann ég að ég væri komin í alveg nýtt fag. Til að byrja með var mikið rætt um hugtök eins og valdeflingu, salutogenesis og feminisma sem og siðferðisleg mál sem tengjast sjálfsákvörðunarrétti o.fl. Þessi hugtök og pælingar lituðu allt námið og ég finn í dag að þau eru það greypt í mig og ég veit nákvæmlega hvað ég stend fyrir sem verðandi ljósmóðir. Þó að þetta hljómi í raun allt mjög “basic”, að bera virðingu fyrir konunni og standa vörð um eðlilegt ferli er það hægara sagt en gert í flóknum og tæknilegum heimi. Ljósmóðurstörfin eru margvísleg, tilfinningarík og ákveðin áhrifamikil reynsla á námstímanum stendur upp úr: Þegar ég lít yfir námstímann finnst mér hann bæði hafa liðið eins og korter og 100 ár, þar sem ég er búin að upplifa svo margt. Ég hef fundið mig í óteljandi nýjum aðstæðum, t.d. í sendiferð að kaupa DD batterí í fæðingar-vasaljós í Bónus með seðil frá Kristbjörgu ljósmóður í miðri heimafæðingu. Einnig ösla snjó upp að mitti á galtómum götum Akureyrar á leið í fæðingu þar sem konan var flutt innanbæjar á björgunarsveitar-trukk. Þegar ég mæti fólki eftir viðburðaríka vakt hugsa ég oft „ef þú bara vissir“ og finnst ég stundum stödd í bíómynd, hvort sem það er spennumynd þegar hlaupið er í bjöllukeisara, rómantísk gamanmynd þegar ég aðstoða nýbakaðan og tárvotan pabba við að skilja á milli eða falin myndavél þegar ég skófla storknuðu blóði uppá bökunarvigt. Já, - það er alltaf stutt í húmorinn, en hann hefur hjálpað mér í gegnum svo margt í náminu. Ég hef tekið á móti tvíburum í dásamlegri fæðingu þar sem allt gekk svo vel. Ég hef ekki verið við fyrirburafæðingu en ég hef fengið óvænt slappt barn þar sem þurfti að hafa hraðar hendur. Ég hef tekið á móti barni hjá hælisleitendum og ein stendur uppi sem eftirminnilegasta fæðingin. Ég var með þeim á næturvakt og vitað var að barnið væri vaxtarskert. Konan var í gangsetningu og krílið þoldi syntoið illa. Konan kláraði útvíkkun á vaktaskiptum og hún bað mig að fara ekki frá sér og ég gat það ekki. Ég tók á móti þessu litla kríli þar sem að var komin bradycardia í restina en allt endaði vel. Konan hringdi í mig nokkrum dögum seinna til að þakka mér og sagði mér að í öllu þessu fann hún aldrei fyrir að vanta fjölskyldu sína, ég hafði verið henni eins og móðir, systir og ljósmóðir. Mér þótti mjög vænt um þetta og verð að viðurkenna að þetta stendur upp úr af því að þetta táknar hvað við stöndum fyrir. Það er yfirsetan, umhyggjan og fagmennskan. Að lokum hef ég einnig lagt mikla áherslu á að veita heildræna umönnun og finnst mikilvægt að huga að mökum kvennanna þar sem þeir eru oftast helsta stuðningsnet þeirra. Ég sinnti pari á morgunvakt á fæðingarvaktinni í mars og ég man svo vel þegar ég var búin að kynna mig og aðstoða konuna á klósett að ég spurði manninn hennar hvernig hann hefði það. Þetta var búið að vera langt ferli hjá þeim og ég bauð honum kodda og teppi eða hvort hann vantaði eitthvað. Hann leit furðulega á mig. Og sagði svo: Þú ert fyrsta ljósmóðirin sem hefur sinnt okkur í þessu langa ferli sem spyr mig hvernig ég hafi það. Takk kærlega fyrir það. Ég fékk kökk í hálsinn... Ljósmæðurnar sem útskrifuðust í júní 2020 voru tilbúnar. Þær tóku fram hvernig þær hafa orðið fyrir hugmyndafræðilegum áhrifum í náminu, farið í gegnum ákveðið breytingarferli og hlotið sterka leiðsögn og stuðning frá umsjónarljósmæðrum. Þær lýstu því einnig hvernig lærdómurinn muni halda áfram og að þær muni eflast í starfi með öðrum ljósmæðrum til framtíðar. Ég hef fengið að fylgja fullt af frábærum ljósmæðrum og tel mig hafa valið úr það besta frá hverri og einni til að setja í verkfæratöskuna mína en einnig sigtað frá það sem mér fannst ekki svo gott. Og nú er kominn tími til að fæðast [sjálf sem ljósmóðir]. Sem er óhugnarleg tilhugsun, en bara í smá stund. Því hvað gerum við við nýfædd börn? Ekki eru þau skilin eftir ein og óstudd. Ég hef á tilfinngunni að ljósmæðurnar eigi eftir að leiða mig í gegnum næstu ár í starfi, og eflaust um ókomna tíð. Eins og mæður gera við börnin sín, og aðrar ljósmæður hafa gert fyrir þær. Frá upphafi gerði ég mér grein fyrir því að mitt hlutverk væri að vera vakandi fyrir þáttum tengdum öryggi og heilbrigði móður og barns og þætti aðstandenda. Þekking á því hvað bendir til að ekki sé allt eins og það á að vera hefur aukist mjög á námstímanum en ég á þó eftir að læra margt betur með reynslunni. Ég tel mig vera tilbúna eftir þennan námstíma til að takast á við þær áskoranir að vera ein á vakt. Ég get einnig alveg hugsað mér að fara og leysa af annarsstaðar á landinu og treysti mér til þess. Já, það er smá kvíðahnútur að vera lengst úti á landi, að leysa af alein, en við ljósmæður þurfum að búa yfir sjálfsöryggi og það er mikilvægt að það sé lágmarks ljósmæðraþjónusta fyrir allar konur í heimabyggð. Nú sit ég í sófanum heima hjá mér og vinn svokallaða lokadagbók sem gerir það að verkum að ég fer á hraðspóli í huganum í gegnum síðustu 10 ár. Frá lítilli óöruggri stelpu sem vissi ekki hvað hún vildi í lífinu í sterka, sjálfsörugga konu sem veit nákvæmlega hvað hún vill gera í lífinu. Ljósmóðurfræðin hefur nefnilega verið ofboðslega valdeflandi nám fyrir mig. Frá því að vera hlédræg, passív og hafa ekki trú á eigin getu yfir í það að hoppa á öll námstækifæri, krefjast þess að fá að gera og vita að mér sé treystandi og að ég get. Það sem situr mér efst í huga nú í lokin er þakklæti - þakklæti fyrir að hafa leiðst á þessa braut, þakklæti fyrir að hlakka á hverjum degi til að mæta til vinnu og þakklæti fyrir að fá að læra eitthvað nýtt og verða betri með hverjum deginum. Takk fyrir mig! Fyrir daglega umhirðu húðarinnar Allar Decubal vörur eru öruggar, mildar og rakagefandi ásamt því að vinna gegn þurri húð. Decubal er alhliða húðvörulína og hentar öllum í fjölskyldunni. Decubal er algjörlega laust við ilmefni, litarefni og parabena og er eingöngu selt í apótekum. Decubal Face cream Dagleg umhirða húðarinnar getur komið í veg fyrir þurrk og haldið húðinni heilli og teygjanlegri. Nærið húðina með þessu milda andlitskremi. Það inniheldur E-vítamín sem mýkir húðina. Kremið smýgur fljótt inn í húðina og er ekki fitukennt – sem gerir það að góðum grunni undir farða. Decubal Face wash Hreinsifroða sem hreinsar húðina á mildan en jafnframt áhrifaríkan hátt. Froðan hefur létta og mjúka áferð og þurrkar ekki húðina en skilur hana eftir mjúka og hreina. Hún inniheldur rakagefandi glýserín og allantóín sem hreinsar burtu dauðar húðflögur og hvetur til frumuendurnýjunar.

x

Ljósmæðrablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.