Ljósmæðrablaðið - aug 2020, Qupperneq 12
12 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ - ÁGÚST 2020
R I T R Ý N D F R Æ Ð I G R E I N FYRIRSPURNIR: Emma Marie Swift
ÚTDRÁTTUR
Bakgrunnur: Vísbendingar eru um að bæta megi fræðslu í meðgöngu-
vernd. Hópmeðgönguvernd hefur verið innleidd um heim allan til að
koma til móts við fræðsluþarfir verðandi foreldra og stuðla að virkni
þeirra í meðgönguverndinni. Veturinn 2017-2018 var boðið upp á
hópmeðgönguvernd fyrir barnshafandi konur og maka þeirra á þremur
heilsugæslustöðvum á höfuðborgarsvæðinu.
Aðferð: Rannsóknin er eigindleg viðtalsrannsókn þar sem hálfstöðluð
viðtöl voru tekin við 18 þátttakendur í sex rýnihópum. Allir þátttakendur
höfðu eignast sitt fyrsta barn og tóku þátt í hópmeðgönguvernd. Notuð
var innihaldsgreining við úrvinnslu og viðtölin þemagreind.
Niðurstöður: Reynsla þátttakenda af því að taka þátt í hópmeðgöngu-
vernd var mjög jákvæð. Þrjú meginþemu voru greind: 1) saman í
þessu, 2) tilfinning um öryggi og 3) jákvæð breyting – gott jafnvægi.
Þátttakendum þótti mikilvægt að tilheyra hópnum og sameiginleg
upplifun veitti þeim hughreystingu og stuðning. Þátttakendur upplifðu
einnig að umræða og fræðsla í hópmeðgönguvernd væri með áherslu
á hið eðlilega barneignarferli og hefði það veitt þeim tilfinningu um
öryggi. Þriðja þemað varpar ljósi á þá sameiginlegu reynslu þeirra að
hópmeðgönguverndin kom þeim skemmtilega á óvart, hefði gagnast þeim
vel og jafnvægi hefði verið gott milli hefðbundinnar meðgönguverndar
og hópmeðgönguverndar.
Ályktun: Þátttakendur voru ánægðir með upplifun sína af hópmeðgöngu-
vernd og virtist fyrirkomulagið uppfylla vel þarfir þeirra hvað varðar fræðslu
og samtal um meðgöngu, fæðingu og foreldrahlutverkið. Hópmeðgöngu-
vernd gæti verið ákjósanlegur valkostur í meðgönguvernd hér á landi.
Lykilhugtök: Meðgönguvernd, hópmeðgönguvernd, foreldrahópar,
eðlilegt barneignarferli, stuðningur.
ABSTRACT
Background: Studies suggest that education within antenatal care
could be improved. Group antenatal care has been implemented
around the world to address the educational needs of expecting parents
and promote active participation within antenatal care. In 2017-2018,
a model of group antenatal care was designed and implemented at
three healthcare clinics in the Reykjavik capital area.
Method: The study is a qualitative study using six focus group
interviews with 18 participants. All participants had recently had
their first baby and had participated in group antenatal care. Content
analysis was used to analyse the data and detect themes.
Results: Participants’ experience of group antenatal care was
positive overall. Three main themes were identified: 1) Doing this
together, 2) a sense of safety, 3) a positive change - good balance.
Participants thought it was important to belong to the group and the
common experience provided reassurance and support. Participants
furthermore experienced that disucssion and education with an
emphasis on normal birth had provided them with a sense of safety.
The third theme highlights their experience of being pleasantly
surprised by group antenatal care, finding the model useful, and a that
there was a good balance between one-on-one and group antenatal
care visits.
Conclusion: The study suggests that this model of group antenatal
care was well received by expecting parents and beneficial in terms of
providing education and support. The model may be a suitable option
for antenatal care in Iceland.
Keywords: Antenatal care, group antenatal care, normal birth,
support.
„ÞETTA VAR FYRIR SÁLINA OG
HJARTAÐ, ÞETTA VAR MITT ÖRYGGI“
Reynsla íslenskra foreldra af hópmeðgönguvernd
Inga María Hlíðar Thorsteinson,
ljósmóðir á Landspítala
Helga Gottfreðsdóttir,
prófessor í ljósmóðurfræði H.Í.
og forstöðumaður fræðasviðs
á Landspítala
Emma Marie Swift, lektor í
ljósmóðurfræði við Háskóla Íslands
og ljósmóðir á Landspítala.
Una Kristín Guðmundsdóttir,
ljósmóðir á Landspítala
„IT WAS FOR MY HEART AND SOUL, WHERE I FELT SAFE“
ICELANDIC PARENTS‘ EXPERIENCE OF GROUP ANTENATAL CARE