Ljósmæðrablaðið

Årgang

Ljósmæðrablaðið - ágú. 2020, Side 13

Ljósmæðrablaðið - ágú. 2020, Side 13
13LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ - ÁGÚST 2020 INNGANGUR Hópmeðgönguvernd kom fyrst fram á sjónarsviðið í Bandaríkjunum á áttunda áratug síðustu aldar og hefur síðan verið í stöðugri þróun um allan heim (1-4). Hópmeðgönguvernd felst í að veita meðgönguvernd til ákveðins hóps barnshafandi kvenna sem eru með svipaða meðgöngulengd og er meðgönguverndin veitt af ljósmóður 8-10 sinnum á meðgöngu eða eins og leiðbeiningar á hverjum stað kveða á um (5). Erlendis hefur hópmeðgönguvernd verið útfærð með ýmsum hætti. Síðustu áratugi hefur þetta þjónustuform verið þróað og aðlagað að mismunandi aðstæðum að frumkvæði þeirra ljósmæðra sem sinna meðgönguvernd á hverjum stað (5-8). Yfirlit yfir hópmeðgönguvernd erlendis má finna í fræðslugrein í Ljósmæðrablaðinu (9) en það sem flestar erlendar útfærslur eiga sameiginlegt er að hver hópmeðgönguverndartími felur í sér heilsufarsmat, fræðslu og stuðning og hver hópur er samsettur af konum sem eiga von á barni á svipuðum tíma. Í erlendum útfærslum nær hópmeðgönguverndin yfir alla meðgönguna en finna má ýmsar útfærslur á því hversu lengi hver hóptími er, hvort konurnar sjái sjálfar um ákveðna þætti heilsufarsmatsins, hvort heilsufarsmatið fari fram í sama rými og hópsamtalið, hversu margar konur eru í hverjum hópi og hvort makar eru þátttakendur í hópsamtalinu (2, 10, 11). Meginmarkmið hópmeðgönguverndar er þó alltaf að bregðast við auknum kröfum kvenna um virka þátttöku í heilsuvernd, aukna fræðslu og samfellda þjónustu (12, 13). Í hópmeðgönguvernd er það stuðningurinn sem gjarnan er talinn vera mikilvægasti ávinningurinn. Barnshafandi konur sem hafa gott stuðningsnet eiga auðveldara með að takast á við vandamál sem kunna að koma upp og fá ráðleggingar (1, 11). Í hópmeðgönguvernd er það þátttaka í foreldrahópnum sem gefur barnshafandi konum tækifæri til að mynda tengsl við aðrar barnshafandi konur sem og ljósmæður í öruggu og styðjandi umhverfi þar sem allir geta tjáð sig. Í slíkum hópi margfaldast möguleikinn á lærdómi þar sem konur læra af ljósmæðrum og hvor af annarri. Konurnar koma með ráðleggingar, deila bjargráðum og læra þannig hver af annarri og veita stuðning (3, 10). Fræðsla og umræður eru aðallega í höndum ljósmæðra, en að auki geta aðrir fagaðilar komið að fræðslu til hópsins, svo sem næringarfræðingar, félagsráðgjafar eða fjölskylduráðgjafar. Umræðuefnin eru fjölbreytt og tengjast meðgöngu, fæðingu og tímanum eftir fæðingu. Dæmi um umræðuefni eru eðlilegur fósturþroski, breytingar á líkama konunnar á meðgöngu og undirbúningur fyrir fæðinguna en einnig sálfélagslegir þættir svo sem andleg líðan, samskipti og heimilisofbeldi (mynd 1). Rannsóknir sýna að verðandi feður vilja vera virkir þátttakendur í barneignarferlinu en niðurstöður rannsókna sem fjalla um reynslu þeirra af þátttöku í meðgönguvernd benda til að þeim finnist upplýsingagjöf og fræðsla beinast að verðandi mæðrum fyrst og fremst og að þeirra væntingar séu ekki uppfylltar (14). Fáar rannsóknir hafa verið birtar hér á landi um reynslu verðandi feðra af meðgönguvernd en í einni slíkri kom fram að verðandi feðrum fannst upplýsingagjöf um fósturskimun á fyrri hluta meðgöngu aðallega beinast að konunum og að þátttaka þeirra í ákvarðanatöku um skimun væri takmörkuð (15). Meðgönguvernd á Íslandi Á Íslandi var fyrst farið að veita meðgönguvernd 1928 og var það gert að frumkvæði hjúkrunarfélagsins Líknar (16). Hér á landi hefur meðgönguverndin verið með hefðbundnu sniði allar götur síðan, þ.e. hver og ein barnshafandi kona hittir ljósmóður á meðgöngu eins oft og leiðbeiningar hvers tíma kveða á um og leitast er við að byggja meðgönguverndina á bestu mögulegu þekkingu (17). Fáar rannsóknir eru til um reynslu kvenna af meðgönguvernd hér á landi en vísbendingar eru um að konur séu almennt jákvæðar gagnvart þátttöku í meðgönguvernd og nær allar þeirra vilja fara eins oft eða oftar í skoðun en mælt er með (18). Niðurstöður sömu rannsóknar bentu þó til að fjöldi skoðana hjá tæpum fjórðungi kvenna hafi verið færri en mælt er með í klínískum leiðbeiningum. Rannsóknir síðustu ára sýna að konur á Íslandi eru almennt ánægðar með heilsufarsmat í meðgönguvernd, en telja fræðslu um fæðinguna ábótavant (19). Til þess að mæta þessari þörf verðandi foreldra fyrir fræðslu hjá ljósmóður í meðgönguvernd var ákveðið að bjóða upp á hópmeðgönguvernd á þremur heilsugæslustöðvum á höfuðborgarsvæðinu. Þessi grein byggir á viðtölum við konur og maka kvenna sem tóku þátt í hópmeðgönguverndinni á árunum 2017-2018. Rannsóknin hafði að markmiði að fá innsýn inn í upplifun og reynslu þeirra af þátttöku í hópmeðgönguvernd. AÐFERÐAFRÆÐI Rannsóknin er eigindleg viðtalsrannsókn þar sem hálfstöðluð viðtöl voru tekin við þátttakendur í rýnihópum (20). Alhæfingagildi er ekki fyrir hendi í slíkum rannsóknum en þær gefa innsýn í reynsluheim fólks varðandi ákveðin fyrirbæri og eru oft mikilvæg viðbót við tölulegar upplýsingar. Rannsóknin var hluti af stærra verkefni og fékkst leyfi fyrir henni frá Vísindasiðanefnd (VSNb2017030007/03.01) og var tilkynning send til Persónuverndar. Leyfi fékkst frá yfirmönnum heilsugæslustöðva í kjölfarið þar sem rannsóknin fór fram. Öllum þátttakendum í hópmeðgönguvernd, 32 konum og mökum þeirra, voru send kynningarbréf í tölvupósti um tilgang rannsóknarinnar sem er forsenda fyrir þátttöku í rannsókn sem þessari (21). Hópmeðgönguvernd á þremur heilsugæslustöðvum á höfuðborgarsvæðinu Veturinn 2017-2018 var boðið upp á hópmeðgönguvernd fyrir barnshafandi konur og maka þeirra á þremur heilsugæslustöðvum í Reykjavík og nágrenni og tóku alls fimm ljósmæður þátt í að veita hópmeðgönguverndina. Ljósmóðir á viðkomandi heilsugæslustöð bauð frumbyrjum kynningu um hópmeðgönguvernd og rannsóknina sem fyrirhuguð var og í kjölfarið var þeim, ásamt mökum þeirra, boðið að hittast í hóp fjórum sinnum yfir meðgönguna. Konunum var sagt að þær gætu tekið þátt í hópmeðgönguvernd án þess að taka þátt í rannsókninni, og að þær gætu hætt í hópmeðgönguvernd og/eða þátttöku í rannsókninni hvenær sem þær vildu og að það myndi ekki hafa nein áhrif á áframhaldandi meðgönguvernd þeirra á heilsugæslustöðinni. Konurnar voru í hefðbundinni meðgönguvernd fram til 28. viku meðgöngu en þá hófst hópmeðgönguvernd. Þá hittu þær sína ljósmóður ásamt 3-5 öðrum konum og mökum sem áttu von á barni á svipuðum tíma. Einnig var önnur ljósmóðir viðstödd þegar hópurinn hittist og sá hún um að leiða umræður í hóp þegar hver kona fór afsíðis með ljósmóður fyrir heilsufarsmælingar í einrúmi. Hóparnir hittust því við 28., 31., 34. og 36. viku meðgöngu í 90 mínútur í senn. Eftir það tók hefðbundin meðgönguvernd við á ný þar til konurnar fæddu börn sín. Þetta fyrirkomulag er frábrugðið því sem þekkist erlendis, en þar eru konur annað hvort í hefðbundinni meðgönguvernd eða í hópmeðgönguvernd alla meðgönguna. Nýsköpunin í þessari íhlutun fólst því meðal annars í að blanda þessum aðferðum við að veita meðgönguvernd saman, en slíkt hefur ekki verið prófað áður. Með því móti er leitast við að nýta kosti úr hvorri aðferð við að veita meðgönguvernd, þ.e. kostina sem felast í því að klæðskerasníða meðgönguvernd að hverri konu í hefðbundinni meðgönguvernd í byrjun meðgöngu og auka svo við þátt fræðslu og stuðnings um miðja meðgöngu með hópmeðgönguvernd. Í hópnum fara fram umræður undir leiðsögn ljósmóður. Umræðuefnin eru fyrirframákveðin (sjá töflu 1) en áherslur ráðast af áhugasviði og þörfum hópsins. Fræðslan er því ekki stöðluð heldur í takt við þarfir hvers hóps (11, 22). Í hópmeðgönguvernd er gengið út frá því að konurnar viti best hvers þær þarfnast og hvaða upplýsingar þær vilja fá. Hlutverk ljósmóðurinnar er að kanna það, fylgja eftir og leyfa umræðum að þróast. Þannig er hlutverk ljósmóður ekki að halda einhliða fræðslu heldur komast að því hvað konurnar og makar þeirra vita, staðfesta það sem er rétt, leiðrétta misskilning og bæta við upplýsingum ef þörf krefur. Slík aðferð hentar vel þegar fullorðnu fólki er veitt fræðsla og þannig skapast andrúmsloft þar sem allir eru á jafningjagrundvelli en það stuðlar að valdeflingu (1, 11). Hornsteinn meðgönguverndar á Íslandi er samfelld þjónusta. Þar er átt við að lögð er áhersla á að konan hitti sömu ljósmóður á meðgöngunni. Í hópmeðgönguverndinni var samfelld þjónusta áfram

x

Ljósmæðrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.