Ljósmæðrablaðið - aug 2020, Síða 18
18 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ - ÁGÚST 2020
F R É T T I R
Breyting varð á starfsemi á kvennadeildum Landspítala nú í haust.
Bráðaþjónusta sem veitt hefur verið utan dagvinnu á meðgöngu- og
sængurlegudeild, fæðingarvakt og kvenlækningadeild hefur verið
flutt á álagstímum á nýja starfseiningu.
Forsögu breytinganna má rekja til kortlagningar á álagi í fæðingar-
þjónustu og kvenlækningum fyrir nokkrum árum. Háværar raddir
voru um álag á legudeildum sem var ekki síst tilkomið vegna
símaálags frá skjólstæðingum og bráðakomum. Í kjölfarið fór af
stað verkefni þar sem áhersla var á að leita leiða til að létta álagi
af legudeildum. Verkefnið var stutt af framkvæmdastjórum og nú
forstöðumanni kvenna- og barnaþjónustu Landspítala og var Stefanía
Guðmundsdóttir ljósmóðir ráðin verkefnastjóri haustið 2017.
Fyrsti áfangi verkefnisins var forprófun á samræmdri símsvörun
kvennadeilda í upphafi árs 2018 til einnar viku. Forprófunin fór fram
milli kl. 08-23:30. Það er skemmst frá því að segja að samræmd
símsvörun sannaði ágæti sitt á þessari einu viku og sýndi innan-
hússkönnun að starfsfólk upplifði verulega minna áreiti í starfi á
þeim tíma sem forprófun fór fram. Samræmd símsvörun fór af stað
1. október 2018 og var ákveðið út frá mati á álagi að hafa þá þjón-
ustu frá kl. 15:30-23.30 virka daga og kl. 10-18 um helgar og helgi-
daga. Reynd ljósmóðir sem hefur fengið þjálfun í símsvörun sinnir
samræmdri símsvörun hverju sinni. Hlutverk ljósmóður á símavakt
er mats- og ráðgjafahlutverk og felst jafnframt í að stýra komum og
vísa í réttan farveg.
Næsta skref í þessu ferli var flutningur á móttöku bráðakoma á
einn stað á ofangreindum tíma. Bráðaþjónusta kvennadeilda hóf
starfsemi 1. október 2019 í húsnæði meðgönguverndar Landspítala.
Vaktina standa tvær ljósmæður og einn sjúkraliði auk fæðingar- og
kvensjúkdómalæknis og deildarlæknis sem er á vakt hverju sinni.
Við undirbúning opnunar deildarinnar og flutning verkefna frá
legudeildum var horft til samræmingar á vinnubrögðum og ferlar
straumlínulagaðir. Unnið var að skýru forgangsflokkunarkerfi til að
meta bráðleika hjá sjúklingum sem hefur verið staðfært fyrir barn-
eignaferlið og kvensjúkdóma. Verkferlar og önnur gæðavinna hefur
verið unnin og er enn í vinnslu til að styðja við faglega þróun starf-
semi á bráðaþjónustunni. Aðbúnaður á deildinni hefur verið endur-
bættur með styrk frá LÍF styrktarfélagi til að mæta breyttri þjónustu
og hefur umhverfi verið staðlað til að tryggja öryggi í hvívetna.
Ekki er um nýja starfsemi að ræða heldur flutning á þjónustu sem
veitt hefur verið á legudeildum og tengist öryggis- og gæðamálum
innan kvennadeilda og tilfærslu verkefna. Með tilkomu bráðaþjón-
ustu kvennadeilda skapast nýr starfsvettvangur fyrir reyndar ljós-
mæður með áhuga á bráðaþjónustu. Starfsemin er nú ein þriggja
eininga á meðgönguvernd, fósturgreiningu og bráðaþjónustu kvenna-
deilda á Landspítala.
Algengustu tilefni símtala:
• Minnkaðar fósturhreyfingar
• Blæðing og verkir í snemmþungun
• Byrjandi fæðing
• Spurning um farið legvatn
• Einkenni meðgöngueitrunar/vanlíðan
• Samdrættir
• Aukaverkanir í kjölfar aðgerða á kvenlíffærum
Algengustu verkefni bráðaþjónustu:
• Fóstursíritun og eftirlit með fóstri
• Mat á upphafi fæðingar
• Mat á legvatnsleka
• Mat á einkennum meðgöngueitrunar
• Eftirlit og skoðun vegna gruns um utanlegsþungun
• Eftirlit og skoðun vegna kviðverkja og blæðingar
Vert er að vekja athygli á að bráðaþjónusta kvennadeilda er áfram
tilvísanamóttaka. Barnshafandi konur og konur með einkenni frá
kvenlíffærum geta þó eftir sem áður haft samráð við ljósmóður sem
svarar í síma fyrir allar kvennadeildir sem metur þörf fyrir skoðun á
spítalanum og vísar í viðeigandi farveg.
Ingibjörg Th. Hreiðarsdóttir, yfirljósmóðir meðgönguvernd,
fósturgreining og bráðaþjónusta kvennadeilda
Stefanía Guðmundsdóttir, ljósmóðir/verkefnastjóri
bráðaþjónustu kvennadeilda
BRÁÐAÞJÓNUSTA KVENNADEILDA
„Hvernig get ég aðstoðað?“
Allt til staðar, líka súkkulaði!
Heilbrigðisfagfólk á bráðamóttökunni. Stefanía verkefnastjóri er önnur frá hægri.