Ljósmæðrablaðið - aug. 2020, Síða 32
32 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ - ÁGÚST 2020
Föstudaginn 5. júní fór fram ánægjulegur atburður þegar Valgerður
Lísa Sigurðardóttir varði doktorsritgerð sína í ljósmóðurfræði sem á
íslensku nefnist Neikvæð upplifun fæðingar og ljósmóðurmeðferð:
Framtíðarsýn barneignarþjónustu.
Vörnin fór fram í Hátíðasal Háskóla Íslands og andmælendur voru
dr. Mirjam Lukasse, prófessor við Oslo Metropolitan University,
Deild hjúkrunar og heilsueflingar, Ósló, og dr. Inga Dóra Sigfús-
dóttir, prófessor við Sálfræðideild Háskólans í Reykjavík. Leiðbein-
andi Valgerðar Lísu var dr. Helga Gottfreðsdóttir, prófessor í ljós-
móðurfræði við Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands.
Aðalmarkmið rannsóknarinnar var að þróa ljósmóðurmeð-
ferð fyrir konur sem hafa þörf fyrir að fara yfir upplifun fæðingar.
Ritgerðin byggir á þremur rannsóknum. Rannsókn I var langtíma
þversniðsrannsókn þar sem gögnum var safnað á landsvísu með
þremur spurningalistum á meðgöngu og eftir fæðingu. Rannsókn II
var eigindleg innihaldsgreining á svörum kvenna sem höfðu leitað
í Ljáðu mér eyra og í rannsókn III var notuð blönduð aðferð til að
skoða innleiðingu tvíþættrar ljósmóðurmeðferðar fyrir konur með
áhættuþætti á meðgöngu. Konur svöruðu spurningalistum fyrir og
eftir meðferðina og ljósmæður tóku þátt í rýnihópaviðtali.
Niðurstöður rannsóknanna benda til að upplifun kvenna breyt-
ist lítið með tímanum og stuðningur ljósmæðra á meðgöngu og
í fæðingu hafi áhrif á upplifun þeirra. Konur vilja að fagfólk hafi
frumkvæði að samtali um upplifun fæðingar og bjóði þeim að fara
yfir hana á þeirra eigin forsendum. Ef væntingar eru uppfylltar virð-
ast konur geta náð stjórn og styrk til að horfa fram á við. Samtal um
upplifun fæðingar ætti að vera hluti af barneignarþjónustu. Konur í
áhættumeðgöngu eru viðkvæmur hópur sem þarf að huga sérstaklega
að. Þeim fannst gagnlegt að fara yfir fæðinguna með ljósmóður sem
þær þekkja. Bæði konur og ljósmæður telja slíka meðferð vera ákjós-
anlegan kost innan barneignarþjónustunnar.
DOKTORSVÖRN VALGERÐAR
LÍSU SIGURÐARDÓTTUR
Frá vinstri Helga Gottfreðsdóttir, leiðbeinandi, Inga Dóra Sigfúsdóttir, andmælandi, Valgerður Lísa, Ólöf Ásta Ólafsdóttir stjórnandi athafnar, úr doktorsnefnd: Herdís
Sveinsdóttir og Berglind Guðmundsdóttir. Ljósmynd: Gunnar Sverrisson.
Hátíðasalurinn gerði ráð fyrir 2 metra reglunni á tímum covid-19. Annar andmælandinn
Mirjam Lukasse var viðstödd í fjarfundi frá Osló. Ljósmynd: Gunnar Sverrisson.
F R É T T I R