Morgunblaðið - 11.01.2020, Side 1
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Rútuslys Hópbifreið með um 50 háskólanema fór út af skammt sunnan Blönduóss í gær. Þrír voru fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar til Reykjavíkur
en þyrlan lenti við Landspítalann í Fossvogi á níunda tímanum. Ekki var vitað um afdrif þeirra við úrvinnslu fréttarinnar seint í gærkvöldi.
Rósa Margrét Tryggvadóttir
Þorgerður Anna Gunnarsdóttir
Afleiðingar vonskuveðurs í gær voru
verulegar víða á landinu, en nokkuð
var um slys og vegum víða lokað.
Fjórar rútur lentu í slysum eða
óhöppum í gær, þar af var eitt alvar-
legt. Þyrla Landhelgisgæslunnar
var kölluð út vegna rútu sem fór út
af þjóðveginum skammt sunnan
Blönduóss síðdegis í gær. Voru tvær
rútur á samfloti þegar önnur þeirra
valt en í þeim voru háskólanemar á
leið í skíðaferð til Akureyrar. Voru á
50 nemar um borð í rútunni sem valt.
Samkvæmt upplýsingum mbl.is í
gærkvöldi leit ekki út fyrir að neinn
væri í lífshættu en farþegarnir voru
fluttir á Heilbrigðisstofnun Norður-
lands á Blönduósi og í fjölda-
hjálparstöð Rauða krossins í kjölfar
slyssins, auk þess sem þrír voru
fluttir með þyrlunni til Reykjavík-
ur.Var samhæfingarstöðin í Skógar-
hlíð virkjuð og allir viðbragðsaðilar
boðaðir á slysstað. Hilmar Hilmars-
son, varðstjóri lögreglunnar á
Norðurlandi vestra, sem var einn af
þeim fyrstu á vettvang í gærkvöldi,
segir í samtali við Morgunblaðið að
menn hafi gert ráð fyrir hinu versta
þegar komið var að rútunni. Það hafi
verið mikil mildi að ekki hafi farið
verr. Þau sem sluppu óslösuð eða
með minni háttar áverka frá rútu-
slysinu fengu næturskjól á Blöndu-
ósi.
Gámur losnaði af vörubíl
Annað rútuslys átti sér stað í mik-
illi hálku og roki á þjóðvegi eitt við
Blönduhlíð í Skagafirði, nærri Silfra-
stöðum, á fjórða tímanum í gær þeg-
ar rúta með 21 grunnskólabarni á
aldrinum 14 til 16 ára hafnaði utan
vegar. Engum varð meint af. Hópur-
inn var einnig á leið til Akureyrar
þegar slysið átti sér stað.
Engin meiðsl urðu á farþegum
þegar lítil rúta með 15 farþega fór út
af veginum í Þrengslum. Sama var
uppi á teningnum þegar önnur smá-
rúta lenti í vanda á Lyngdalsheiði.
Þetta staðfesti Davíð Már Bjarnason
hjá Landsbjörg í samtali við mbl.is í
gær en björgunarsveitafólki tókst að
koma rútunum til aðstoðar.
Þá varð alvarlegt slys á Vestur-
landsvegi fyrir hádegi í gær þegar
ruslagámur losnaði af flutningabif-
reið og lenti á tveimur bílum. Lenti
gámurinn á vörubíl og lítilli fólks-
flutningabifreið sem komu úr gagn-
stæðri átt við vöruflutningabifreið-
ina. Voru ökumenn bifreiðanna
tveggja fluttir á gjörgæslu og voru
þar enn þegar blaðið fór í prentun.
Ekki er vitað hvað olli því að gámur-
inn losnaði af flutningabifreiðinni, en
mjög hvasst var í Kollafirði í gær.
Appelsínugul viðvörun var í gildi
fyrri part dags á Suðurlandi í gær,
en Þrengslum, Mosfellsheiði og
Lyngdalsheiði og veginum um Kjós-
arskarð var lokað í gær vegna veð-
urs.
Samkvæmt athugasemd veður-
fræðings Veðurstofu Íslands er von
á batnandi veðri um helgina en veður
á að að skána upp úr hádegi í dag.
Á að draga úr vindi og úrkomu í
dag og kólna og er von á suðvestan
5-13 undir kvöld og éli en léttskýjað
á Norður- og Austurlandi.
Tugir lentu í umferðarslysum
Tvö rútuslys á Norðurlandi í gær, þar af annað alvarlegt Þrír fluttir með þyrlu til Reykjavíkur
Lögreglan bjóst við því versta Tveir voru á gjörgæslu eftir alvarlegt umferðarslys í Kollafirði
Rútuslys á Norðurlandi vestra
Grunnkort/Loftmyndir ehf.
Tvær rútur lentu
einnig í vandræðum
í gær í Þrengslum og
á Lyngdalsheiði
Hóp bif reið með um 50
farþega fór út af veg in-
um við Öxl í Vatnsdal
Hóp bif reið með 21 farþega
fór út af veg in um við
Silfrastaði í Skagafi rði
MTveir á gjörgæslu »2
Sandra BjörgHelgadóttirkennir dans oglíkamsrækt semhún kallarAbso
Train
ing. 2
Hernám
hugarfarsins
Að ræktalíkama
og sál
Talað var um hernám hugarfarsins meðan tvær grunn-
fylkingar tókust harkalega á í orðræðu kalda stríðsins á
Íslandi. Fáir muna þessa tíma betur en Árni Bergmann
rithöfundur sem átti virka aðild að umræðunni. 10
12. JANÚAR 2020SUNNUDAGUR
Áhersla lögð áheildarmyndina
lute
-
0
Borgarleikhúsið frumsýnir
Vanja frænda um helgina.
ósmyndari fékk að skyggnast
bak við tjöldin og fá forskot á
æluna á rennsli í vikunni. 14 Í hönnun hótelsinsSkálakots er nostrað viðhvert smáatriði. 18
Lj
s
Gleðin
baksviðs
L A U G ARD A G UR 1 1. J ANÚ AR 2 0 2 0
Stofnað 1913 9. tölublað 108. árgangur
TRÍÓ ZIMSEN-
SYSTKINA
SLÆR Í GEGN
ÍSLAND HEFUR
LEIK Á EM Í
HANDBOLTA
ÍÞRÓTTIR 49BARNABLAÐIÐ
„Ég mun að sjálfsögðu taka málið
upp í borgarstjórn enda er þarna
verið að byrja á öfugum enda. Það er
ekki heil brú í svona vinnubrögðum,“
segir Marta Guðjónsdóttir, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins.
Marta er ósátt við úthlutun
tveggja lóða fyrir fjölbýlishús í
Skerjafirði en tilboð í lóðirnar voru
opnuð í vikunni hjá Reykjavíkur-
borg. Hún gagnrýnir að ekki hafi
farið fram umhverfismat á landfyll-
ingu í hverfinu og lóðirnar hafi verið
auglýstar áður en vinnu við deili-
skipulag sé lokið. Þá telur hún að
ekki hafi verið haft samráð við íbúa
en á sama tíma fái lóðarhafar að taka
þátt í vinnu við deiliskipulag.
Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, for-
maður skipulags- og samgönguráðs,
hafnar gagnrýni Mörtu. „Umrætt
umhverfismat á einungis við strand-
lengjuna en ekki þennan hluta skipu-
lagsins þannig að annaðhvort er ver-
ið að slá ryki í augun á fólki eða
Marta talar gegn betri vitund,“ segir
hún. Sigurborg segir jafnframt að
rammaskipulag hafi verið kynnt í
þaula og deiliskipulag svæðisins
verði það líka. »10
„Það er ekki heil brú í
svona vinnubrögðum“ Kínverska flugfélagið JuneyaoAir hefur boðað flug frá Sjanghæ
til Manchester, Dublin og Kefla-
víkur með viðkomu í Helsinki, en
hyggst ekki sinna fluginu milli
Finnlands og áfangastaða í Evrópu
sjálft heldur hefur félagið leitað að
samstarfsaðilum, þar á meðal Ice-
landair. Ekki hefur verið tekin
ákvörðun um samstarf Juneyao og
Icelandair en félögin hafa átt í við-
ræðum. Þetta staðfestir Icelandair í
skriflegu svari við fyrirspurn
Morgunblaðsins.
Flugfarþegum frá Helsinki til Ís-
lands hefur fjölgað mjög á síðustu
árum og hélt áfram að fjölga á síð-
asta ári, eða um 10 prósent. »22
Ræða við Icelandair
um flug frá Helsinki
„Auðvitað viljum við frekar leggja
upp seríu og sækja svo ráðstöfunar-
féð í stað þess að laga seríu að ráð-
stöfunarfénu,“ segir Davíð Óskar
Ólafsson hjá Mystery Productions í
samtali við Sunnudagsblað Morgun-
blaðsins, en hann er einn framleið-
enda og leikstjóra sjónvarpsþátt-
anna Brots.
„Þýskaland og Frakkland eru
stærstu markaðirnir en eðli málsins
samkvæmt kaupa þau lönd ekki
margar íslenskar seríur á ári. Þess
vegna þarf að leita annað og það
gengur alltaf betur og betur. Netflix
fjármagnar til dæmis 40% af Broti
og ný sería Baltasars Kormáks,
Katla, verður að óbreyttu fyrsta ís-
lenska serían sem Netflix fjár-
magnar að fullu. Það þýðir samt ekki
að einhver gullöld sé runnin upp
varðandi fjármögnun á íslensku
sjónvarpsefni erlendis. Þetta er enn
hark. Og verður. Möguleikarnir eru
hins vegar orðnir fleiri en áður. Það
hefur breyst. Annars má þetta auð-
vitað ekki verða of auðvelt; er það
ekki eðli okkar Íslendinga að vilja
hafa fyrir hlutunum?“ segir Davíð
Óskar.
Engin gullöld uppi
Enn hark að selja sjónvarpsefni út