Morgunblaðið - 11.01.2020, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2020
40%
GABOR STÍGVÉL
20.997KR.
VERÐ ÁÐUR 34.994
ÚTSALA
ÖLL LEÐURSTÍGVÉL 40% AFSLÁTTUR
Styrkir til náms í
hafrétti
Hafréttarstofnun Íslands er rannsókna- og
fræðslustofnun á sviði hafréttar við Háskóla Íslands
og er meginmarkmið stofnunarinnar að treysta
þekkingu á réttarreglum á sviði hafréttar.
Að stofnuninni standa Háskóli Íslands, utanríkis-
ráðuneytið og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið.
Hafréttarstofnun auglýsir hér með til
umsóknar styrki til þátttöku í
sumarnámskeiði Ródos-akademíunnar í
hafrétti 28. júní - 17. júlí 2020.
Umsóknir sendist Tómasi H. Heiðar, forstöðumanni
stofnunarinnar, með tölvupósti,
tomas.heidar2016@gmail.com, fyrir 20. janúar 2020.
Nánari upplýsingar: www.hafrettarstofnun.hi.is.
Alls bárust sex tilboð vegna lóðar númer 4 í Skerjafirði. Hæsta tilboðið átti
Akrafell ehf. og hljóðaði það upp á 862.296.000 króna. Næst hæsta til-
boðið átti Reirverk ehf. upp á 723.216.000 krónur. Önnur tilboð voru um-
talsvert lægri; Fs Glaðheimar ehf. buðu ríflega 370 milljónir króna, Húsvirki
hf. bauð 301,5 milljón og Vesturvellir ehf. 251 milljón. Lægsta tilboðið átti
Sérverk ehf. upp á 188 milljónir króna.
Þessi mikli munur á tilboðum vekur óneitanlega athygli en hafa ber í
huga að útboðið gerði ekki ráð fyrir lágmarks- eða viðmiðunarfjárhæð.
Sjö tilboð bárust í lóð númer 10 í Skerjafirði. Akrafell ehf. átti einnig
hæsta tilboðið þar, 517.824.000 krónur. Næsthæsta tilboð átti Reirverk
ehf. upp á 434.304.000 krónur. Gunnar Bjarnason ehf. bauð 250 milljónir,
FS Glaðheimar ehf. buðu 222,7 milljónir, Húsvirki hf. bauð 201.5 milljónir,
Vesturvellir ehf. 161 milljón og Sérverk ehf. bauð 113 milljónir króna.
Afar mikill munur á tilboðum
TILBOÐ Í TVÆR LÓÐIR Í SKERJAFIRÐI OPNUÐ
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Það eru margir lausir endar í
þessu. Þarna á að fara að úthluta
lóðum án þess að umhverfismat hafi
farið fram, lóðirnar eru auglýstar
áður en vinnu við deiliskipulag er
lokið og það er ekkert samráð haft
við íbúa,“ segir Marta Guðjóns-
dóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins.
Marta vísar í máli sínu til út-
hlutun tveggja lóða fyrir íbúðarhús
í Skerjafirði. Sem kunnugt er hafa
verið lögð drög að uppbyggingu
1.200 íbúða á svæðinu og eru um-
ræddar lóðir hluti af þeim áform-
um. Tilboð í úthlutun lóðanna voru
opnuð á fimmtudag eins og rakið er
hér á síðunni. Um er að ræða tvær
lóðir fyrir fjölbýlishús. Á lóð nr. 4
er gert ráð fyrir 103 íbúðum í 3-5
hæða húsum og á lóð nr. 10 er gert
ráð fyrir 62 íbúðum í 2-4 hæða hús-
um.
„Ekkert samráð haft við íbúa“
Marta segir að íbúar í Skerjafirði
hafi í gegnum tíðina komið á fram-
færi mótmælum við allri uppbygg-
ingu á umræddu svæði. „Enda
verður þarna til einn stærsti botn-
langi landsins, það er bara ein leið
inn og út af svæðinu og bílaumferð
mun aukast mikið. Ekkert samráð
er haft við þessa íbúa en hins vegar
er tekið fram í auglýsingu að lóð-
arhafar muni geta haft aðkomu að
deiliskipulagsvinnunni. Það er ein-
kennilegt að lóðarhafar séu teknir
fram yfir íbúana hvað varðar sam-
ráð við deiliskipulagsvinnu.“
Hún bendir á að umhverfismat
hafi enn ekki farið fram, hvorki
vegna landfyllingar við Skerjafjörð,
eða vegna olíumengaðs jarðvegs
sem talið er að sé að finna á svæð-
inu.
Marta segir jafnframt einkenni-
legt að ráðist sé í þessa uppbygg-
ingu á sama tíma og gerður sé
samningur við ríkið um rannsókn á
Hvassahrauni fyrir mögulegan flug-
völl. Ljóst virðist að flugvöllurinn
sé ekki að fara úr Vatnsmýri næstu
10-15 ár hið minnsta. „Þessar bygg-
ingar eru alveg ofan í flugvellinum.
Það er einkennilegt að þrengja að
flugvellinum meðan ekki liggur fyr-
ir niðurstaða um hvort Hvassa-
hraun sé raunhæfur kostur,“ segir
borgarfulltrúinn, sem kveðst munu
gera athugasemdir við þetta. „Ég
mun að sjálfsögðu taka málið upp í
borgarstjórn enda er þarna verið að
byrja á öfugum enda. Það er ekki
heil brú í svona vinnubrögðum.“
Segir uppbyggingu vel kynnta
Sigurborg Ósk Haraldsdóttir,
formaður skipulags- og samgöngu-
ráðs Reykjavíkurborgar, segir að
gagnrýni Mörtu um umhverfismat
eigi ekki við í þessu tilviki.
„Umrætt umhverfismat á einung-
is við um strandlengjuna en ekki
þennan hluta skipulagsins þannig
að annaðhvort er verið að slá ryki í
augun á fólki eða Marta talar gegn
betri vitund,“ segir hún.
„Varðandi jarðvegsmengun á
þessu efra svæði þá er hún ekki
hluti af umhverfismatinu enda hef-
ur hún þegar verið rannsökuð og
verður hreinsuð burt áður en upp-
bygging fer af stað.“
Hún hafnar því jafnframt að ekk-
ert samráð hafi verið haft við íbúa í
Skerjafirði um uppbyggingu þar.
„Rammaskipulagið hefur verið
kynnt í þaula, bæði í fjölmiðlum og
á opnum fundi fyrir íbúa í Ráðhús-
inu. Allt deiliskipulagið er unnið
lögum samkvæmt. Gert er ráð fyrir
opnum kynningarfundum og mögu-
leikum íbúa til að senda inn at-
hugasemdir en fjalla þarf um og
svara hverri einustu athugasemd
sem berst. Ég get því ekki tekið
undir þessar áhyggjur.“
Aðspurð segir Sigurborg að hug-
myndir um að hæstbjóðendur geti
komið að minniháttar deiliskipu-
lagsbreytingum á lóðunum tveimur
vera viðleitni til að koma til móts
við þá réttmætu gagnrýni að form-
legur skipulagsferill hjá borginni
geti tekið of langan tíma.
„Þegar deiliskipulag er loksins
samþykkt endanlega geta þar verið
bindandi þættir sem uppbygging-
araðili getur ekki komið til móts við
eða vill leysa með öðrum hætti. Það
getur verið allt frá þakhalla yfir í
efnisval. Með þessu viljum við koma
í veg fyrir slíkar uppákomur og
tryggja að húsnæðisuppbygging
geti gengið hraðar fyrir sig.“
Gagnrýnir lóðaúthlutun í 102
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir einkennilegt að lóðarhafar fái að taka þátt í vinnu við deili-
skipulag í Skerjafirði en ekkert samráð sé haft við íbúa þar Formaður skipulagsráðs hafnar gagnrýni
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Skerjafjörður Þarna verður gerð landfylling sem verður hluti af uppbyggingu hins nýja Skerjafjarðar. Alls verða
byggðar 1.200 nýjar íbúðir þar. Bráðlega verður úthlutað tveimur fjölbýlishúsalóðum í norðurhluta hverfisins.
Marta
Guðjónsdóttir
Sigurborg Ósk
Haraldsdóttir