Morgunblaðið - 11.01.2020, Side 16

Morgunblaðið - 11.01.2020, Side 16
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Sú þekking á sviði orkumála, sjávarútvegs, landgræðslu og jafn- réttismála sem fulltrúar erlendra þjóða hafa fengið hér á Íslandi er mikilvæg og hefur aukið lífsgæði fólks í þróunarríkjum. Þetta hafa út- tektir staðfest og í starfi mínu hef ég svo oft upplifað þetta og séð sjálfur,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra. Fellur að íslenskum áherslum Á dögunum var undirritaður samningur milli íslenskra stjórn- valda og UNESCO, Menningar- málastofnunar Sameinuðu þjóðanna, um breytt fyrirkomulag á rekstri fjögurra skóla sem starfræktir eru hér á landi. Þeir verða héðan í frá reknir á vegum Gró – þekkingar- miðstöðvar þróunarsamvinnu – sem hafa mun eigin stjórn en verður sér- stök eining innan utanríkisráðu- neytisins. Allt fellur þetta, að sögn ráðherra, vel að áherslum í íslenskri þróunarsamvinnu og er jafnframt í samræmi við formkröfur UNESCO. Skólarnir eru Jafnréttisskólinn, Jarðhitaskólinn, Landgræðsluskól- inn og Sjávarútvegsskólinn. Á hverju ári taka þeir á móti hópum sérfræðinga frá þróunarríkjum til námsdvalar á Íslandi, en sérfræð- ingar hjá íslenskum stofunum sinna skólastarfinu sjálfu og halda nám- skeið ytra. Er Jafnréttisskólinn hýstur hjá Háskóla Íslands, Orku- stofnun sér um Jarðhitaskólann, Landgræðslan og Landbúnaðar- háskólinn fóstra Landgræðsluskól- ann og Sjávarútvegsskólinn er í um- sjón Hafrannsóknarstofnunar. Í áranna rás hafa rúmlega 1.300 sér- fræðingar frá fjölda ríkja sótt sína menntun hingað og reynslan er góð. „Breytingunum sem gerðar voru á dögunum er ætlað að styðja enn frekar við hlutverk skólanna en raska ekki grunnstarfsemi þeirra eða hlutverki. Þá vænti ég þess að með þessu móti megi auka samlegð, samþætta betur starf skólanna annarri þróunarsamvinnu Íslands, leita nýrra samstarfstækifæra á al- þjóðlegum vettvangi og nýta betur fé sem Íslendingar verja til þessa mála- flokks,“ segir Guðlaugur Þór. Úttektir staðfesta góðan árangur Á yfirstandandi ári verja Íslend- ingar um 750 milljónum króna til starfsemi skólanna fjögurra. Þetta segir utanríkisráðherra mikilvægan þátt í þróunarsamvinnu Íslands sem gert sé ráð fyrir að efla, skv. stjórn- arsáttmála núverandi ríkisstjórnar. Mikilvægt sé enn fremur að árangur af starfi þess sé mældur og það er gert á grundvelli fyrirmæla þróunar- samvinnunefndar Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD DAC) sem Íslendingar gerðust að- ilar að árið 2013. „Óháð úttekt stofnunarinnar frá 2017 leiddi í ljós að Ísland stendur framarlega á mörgum sviðum þróun- arsamvinnu. Þar er horft til þess að skýr sýn er á stuðning við þá allra fá- tækustu í heiminum með því að setja mannréttindi, kynjajafnrétti og frið- ar- og öryggismál í öndvegi. Árangur af starfi háskólanna fjögurra er góður, það hefur verið staðfest með ýmsu móti,“ segir Guðlaugur Þór. Í alþjóðlegu samstarfi hefur verið kallað eftir því að UNESCO horfi í ríkum mæli til þeirra verkefna sem skólarnir sinna. Þetta segir utan- ríkisráðherra mikils virði og haldist í hendur við áherslur í utanríkisstefnu Íslendinga, svo sem jafnrétti kynj- anna. Annað dæmi sé stórt verkefni UNESCO er varðar endurheimt og sjálfbæra nýtingu lands. Mikilvægt samstarf „Með þeim samningi sem Ísland hefur nú gert má segja að UNESCO sé orðin ein mikilvægasta samstarfs- stofnun okkar á sviði þróunarsam- vinnu ásamt öðrum alþjóðastofn- unum sem við höfum lengur starfað með, svo sem Alþjóðabankanum, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UN Women og Mannfjöldasjóði Sameinuðu þjóðanna,“ segir Guð- laugur Þór. Bætir við að eftir sem áður muni Íslendingar sinna þróun- arsamvinnu með því að fulltrúar að heiman standi vaktina og sinni ákveðnum verkefnum. Samstarfs- lönd Íslendinga eru nú Malaví og Úganda – auk þess sem sérstökum verkefnum er sinnt í Mósambík, Síerra Leóne, Líberíu, Afganistan og Palestínu. „Tvíhliða samvinna við skilgreind samstarfslönd verður áfram kjarni í íslenskri þróunarsamvinnu, enda hefur Ísland fundið leiðir til að ná góðum og sýnilegum árangri. Að sama skapi byggjum við á reynslu af starfi skólanna og af svæðaverk- efnum í jarðhita og fiskveiðum þar sem útflutningur íslenskrar þekk- ingar hefur verið í aðalhlutverki. Frá því ég tók við embætti utanríkis- ráðherra hefur það verið áherslumál mitt að nýta íslenska sérþekkingu í þróunarsamvinnu og á þeirri braut verður haldið áfram.“  Háskólar heimsins fá nýja umgjörð  Gró – þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu hefur verið sett á laggirnar  UNESCO á Íslandi  Sjávarútvegur, jarðhiti, landgræðsla og jafnréttismálin Eykur lífsgæði í þróunarríkjum Ljósmynd/UNESCO-Christelle ALIX Undirritun Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Audrey Azoulay, aðalframkvæmdastjóri UNESCO, sem er menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna í París, leiddu mál til lykta. Ljósmynd/Málfríður Ómarsdóttir Veröld Jarðhitaskóli Sameinuðu þjóðanna er á Íslandi. Myndin sýnir nemanda á góðri stund. 16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2020 Tíu af sautján heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna tengjast þró- unarsamvinnu Íslendinga beint. Hvert stefnt er með starfinu er því alveg skýrt. Samstarfssjóði við at- vinnulíf um heimsmarkmið Samein- uðu þjóðanna, sem utanríkisráð- herra hafði forgöngu um að setja á fót í samræmi við stefnu um aukna aðkomu atvinnulífs að þróunarsam- vinnu, er þarna ætlað að virkja þekkingu, fjárveitingar og frum- kvæði íslenskra fyrirtækja. „Með starfi Sjávarútvegsskólans leggjum við okkar af mörkum til að ná markmiðum okkar um verndun og sjálfbæra nýtingu hafs og vatna. Jarðhitaskólinn og vinnan þar er mikilvæg leið til sjálfbærrar orku- nýtingar og Jafnréttisskólinn styð- ur eflingu kynjajafnréttis, valdefl- ingu kvenna og frið. Þá leggjum við okkar af mörkum til að vinna að endurheimt vistkerfa, sjálfbærri landnýtingu og takmörkun land- hnignunar með starfi Landgræðslu- skólans. Skýr sýn og forgangs- röðun er algjör forsenda árangurs- ríks starfs og við erum komin vel á veg með að samþætta það allt heimsmarkmiðunum – enda skapar slíkt mörg tækifæri sem Íslend- ingar eiga að nýta sér,“ segir Guð- laugur Þór Þórðarson. Skapar Íslendingum tækifæri HEIMSMARKMIÐIN ERU LEIÐARLJÓS Í STARFINU Sölustaðir: Flest apótek, heilsuhús og heilsuhillur stórmarkaða Nánar á artasan.is Getur dregið úr skallamyndun • Stuðlar að eðlilegum hárvexti • Eplakjarni, elfting og hirsi • Tocotrienol, amínósýrur, bíótín og sink • Procyanidin B2 úr eplum Hair Gro inniheldur m.a Procyanidin B2 úr eplum en rannsóknir hafa sýnt fram á að þetta náttúrulega form af Promocyandin B2 gæti aukið hárvöxt. TAUBLEIUBÚÐIN ÞÍN Kíktu á netverslun okkar bambus.is Nýbýlavegi 8 – Portið, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.