Morgunblaðið - 11.01.2020, Page 18
Mjóddin Atvinnulóðirnar eru við Reykjanesbrautina, nálægt svæði ÍR-inga.
Á fundi borgarráðs í vikunni var
samþykkt að auglýsa fjórar atvinnu-
lóðir í Suður-Mjódd í Breiðholti til
sölu á föstu verði.
Umræddar lóðir eru Álfabakki
2A, 2B, 2C og 2D. Þær eru skammt
frá Reykjanesbrautinni. Lóðirnar
eru samtals 17.000 fermetrar. Þær
voru auglýstar lausar til umsóknar
haustið 2019 en þá barst ekkert til-
boð. Til stóð að bílaumboðið Hekla
hf. myndi byggja nýjar höfuðstöðvar
á lóðunum við Álfabakka en hætt var
við þau áform. Bílaumboðið verður
áfram við Laugaveginn.
Fyrir borgarráð var lagt mat
tveggja löggiltra fasteignasala á
markaðsverði fyrir byggingarrétt á
lóðunum. Kjartan Hallgeirsson hjá
Eignamiðlun mat byggingarrétt án
gatnagerðargjalds á krónur
495.270.000. Ólafur Jóhannsson hjá
Jöfri mat söluverðið 493 milljónir
samtals. sisi@mbl.is
Atvinnulóðir verða
seldar á föstu verði
Verðmat lóðanna hálfur milljarður
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2020
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Borgarráð hefur samþykkt drög að
samningi við Lifandi viðburði (LV) um
tónleikahald í Laugardal í júní 2020,
sólstöðuhátíðina Secret Solstice. LV
skal tryggja að gestafjöldi fari ekki
yfir 20 þúsund manns.
Þessi hátíð hefur verið haldin í
Laugardal nokkur undanfarin ár við
mismikla hrifningu íbúa í nágrenninu.
Það var almennt viðhorf að hún hefði
gengið með besta móti sumarið 2019.
Samkvæmt samningnum fær LV
aðstöðu í Laugardalnum dagana 26.-
28. júní í sumar að uppfylltum skil-
yrðum sem fram koma í samningnum.
Um er að ræða Þróttarvöllinn og ná-
grenni og svæði við Þvottalaugar fyrir
barnastarf og svið. Tónleikar hefjast
klukkan 15 á föstudeginum en klukkan
13 laugardag og sunnudag. Þeim skal
ljúka klukkan 23:30 öll kvöldin. Hljóð-
prufur mega ekki hefjast fyrr en
klukkan 10 dag hvern.
Samkvæmt samkomulaginu skal
reynt að takmarka sem mest umferð
um grassvæði í dalnum og lagður verði
dúkur þar sem ágangur tónleikagesta
verður mikill.
Aldurstakmark er 18 ár nema í
fylgd með forráðamanni. Vegna áfeng-
iskaupa þarf að framvísa skilríkjum og
kaupa armband sem veitir gestum
heimild til að kaupa áfengi.
Reykjavíkurborg mun styrkja há-
tíðina um átta milljónir króna. Er það
gert á þeim forsendum að hún höfði
meira til fjölskyldufólks en verið hefur.
Við afgreiðslu málsins í borgarráði á
fimmtudaginn lagði Kolbrún Baldurs-
dóttir, áheyrnarfulltrúi Flokks fólks-
ins, fram bókun þar sem hún vildi bíða
með afgreiðslu málsins þar til fyrir
lægi niðurstaða viðhorfskönnunar
meðal íbúa. „Allir voru sammála um að
betur gekk 2019 en 2018 enda mun
meiri fyrirbyggjandi vinna viðhöfð.
Engu að síður komu upp 40 fíkniefna-
mál og umsögn barst frá Þrótti að tón-
leikahald á grassvæðinu undanfarin ár
hefði skemmt völlinn og var sagt að
svæðið væri í raun ekki hæft undir
keppni í knattspyrnu í kjölfar hátíðar-
innar,“ bókaði Kolbrún m.a.
Fulltrúar meirihlutaflokkanna í
borgarráði bókuðu að verið væri að
vinna úr viðhorfskönnun sem fór fram
í nóvember sl. Samningsdrögin gerðu
ráð fyrir umfangsmiklu samstarfi tón-
leikahaldara og borgarinnar. „Solstice-
hátíðin gekk afar vel á síðasta ári og
mun ganga enn betur eftir því sem
samtal, upplýsingagjöf og samstarf
eykst.“
Talið er að um tólf þúsund manns
hafi verið á Secret Solstice-hátíðinni í
fyrrasumar. Í viðtölum við stjórnar-
menn í Íbúasamtökum Laugardals í
fjölmiðlum kom fram að fólk var frem-
ur ánægt með hátíðina það árið. Var
m.a. vísað í facebookhópinn „Lang-
holtshverfi – 104“ þar sem rúmlega
hundrað athugasemdir voru settar við
færslu þar sem spurt var um upplifun
íbúa. „Þar voru allir bara rosa kátir og
ánægðir nema einn,“ var haft eftir
stjórnarmanni í samtökunum.
Gestafjöldinn fari
ekki yfir 20 þúsund
Borgin semur um tónlistarhátíðina Secret Solstice 2020
Morgunblaði/Arnþór Birkisson
Secret Solstice Jafnan er mikil stemning á tónlistarhátíðinni í Laugardal.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Umboðsmaður skuldara fékk færri
umsóknir um aðstoð vegna fjárhags-
vanda á nýliðnu ári en á árunum á
undan. 1.127 umsóknir bárust á
árinu, sem er 270 umsóknum færra
en á árinu 2018. Kemur þetta fram á
minnisblaði sem birt er á vef um-
boðsmanns skuldara.
Sara Jasonardóttir, verkefnis-
stjóri fræðslu- og kynningarmála hjá
umboðsmanni skuldara, segir að um-
sóknum um greiðsluaðlögum hafi
aftur á móti lítið fækkað. Ekki er
hægt að sjá þróun einstakra verk-
þátta embættisins vegna þess að
flokkun umsókna var breytt síðast-
liðið haust. Fólk sækir nú um aðstoð
vegna fjárhagsvanda og metur síðan
í samráði við starfsfólk hvaða úrræði
henti best. Sara segir að þetta sé
gert til gera kerfið skilvirkara.
36% umsækjenda í yngsta hópi
Aldurshópur umsækjenda hefur
breyst mjög á undanförnum árum og
um leið ástæður fjárhagsörðugleika.
Þannig hefur fólki í yngsta hópnum,
18-29 ára, fjölgað mjög og var orðinn
36% allra umsækjenda í nóvember.
Á árinu 2018 voru rúmlega 27% um-
sókna frá fólki á þessum aldri.
„Við sjáum ennþá töluvert mikla
fjölgun í þessum aldursflokki.
Skyndilánin eru það eina sem við
getum skýrt það með,“ segir Sara.
Umboðsmaður skilgreinir lán sem
tekin eru á vefsíðum eða með notkun
forrita í farsímum sem skyndilán.
Þar á meðal eru lán smálánafyrir-
tækja, Netgíró, Pei og fleiri lána-
möguleikar.
Umboðsmaður skuldara hefur
getað aðstoðað marga úr þessum
hópi með ráðgjöf og samningum um
greiðslur. Stundum er eina ráðið að
fresta greiðslum og athuga hvort
ekki rætist úr hjá fólki.
Aftur á móti hefur umsóknum um
fjárhagsvanda vegna húsnæðis-
skulda fækkað mjög. Sara segir að
ekki séu mörg slík mál í gangi.
16 þurftu ekkert að borga
Um áramót voru 46 umsóknir um
greiðsluaðlögun í vinnslu hjá emb-
ættinu. Eftir var að taka afstöðu til
þess hvort samþykkja eigi umsókn
eða synja. Þá var um áramót 41 mál í
virkri vinnslu hjá umsjónarmönnum
embættisins.
Af þeim málum sem lokið var hjá
umsjónarmönnum á árinu náðust
samningar í 77 málum. Fimm lauk
með nauðasamningi. Að meðaltali
gáfu kröfuhafar eftir 70% krafna í
þessum samningum sem að meðal-
tali eru til rúmlega 16 mánaða. Sam-
ið var um eftirgjöf allra krafna í 16
málum.
Umsóknir til umboðsmanns skuldara
1.302
1.397
1.311
1.125
1.500
1.250
1.000
750
500
250
0
18-29 ára 30-39 ára
40-49 ára 50-59 ára2016 2017 2018 2019 He
im
ild
.u
m
s.
is
Fjöldi umsókna 2016-2019 Aldur umsækjenda
í nóvember 2019
Allls
53
umsóknir
28%
36%
21%
15%
270 færri sækja
til umboðsmanns
Fleiri ungir lenda í vandræðum
Sú nýlunda verður á hátíðinni
í ár að tónleikagestir fá að-
gang að endurgjaldslausu
vatni. Er það í samræmi við
samþykkt borgarráðs í fyrra-
haust. Ekki er búið að útfæra
með hvaða hætti þetta verður
gert.
Gott aðgengi að endur-
gjaldslausu vatni á tónlistar-
hátíðum er talið mikilvægt
vegna skaðaminnkunarsjónar-
miða. Það tryggi öryggi gesta,
standi vörð um þeirra líkam-
legu og andlegu heilsu og
stuðli að jákvæðri útkomu við-
burða fyrir gesti og umhverfi.
Fái ókeypis
vatnssopa
NÝJUNG Í SUMAR