Morgunblaðið - 11.01.2020, Síða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2020
Már hefur átt geysigóða spretti á undan-
förnum mánuðum og er viðurkenning ÍRB bara ein
af fáum. Í upphafi þessa árs útnefndu Víkurfréttir
Má mann ársins á Suðurnesjum.
Már hefur þó ekki eingöngu verið áberandi
sem íþróttamaður heldur ekki síður sem tónlistar-
maður. Hann ætlar að halda tónleika í Hljómahöll
13. mars þar sem systir hans, Ísold Wilberg
Antonsdóttir, og Sigríður Thorlacius munu syngja
með við undirleik þekktra pólskra hljóðfæraleik-
ara.
Og það er sitthvað fleira fram undan hjá
íþróttafólki og stuðningsmönnum. Hin sívinsælu
þorrablót íþróttafélaganna Keflavík og UMFN eru
fram undan og að venju er uppselt langt fram í tím-
ann. Þorrablót Keflavíkur fer fram 18. janúar og
UMFN 1. febrúar.
Fram undan er einnig heimsviðburður í Hljóma-
höll þegar breska hljómsveitin Tindersticks heldur
tónleika þar 7. febrúar. Hljómsveitin hefur áður
haldið tónleika á Íslandi, á Nasa árið 2008, við mik-
inn fögnuð aðdáenda. Meðlimir sveitarinnar eru
því fyrir löngu orðnir Íslandsvinir og spenningur
yfir komu þeirra nú síst minni en fyrir rúmum 11
árum.
Allir sem ekið hafa Reykjanesbrautina í átt
að flugvellinum á undanförnum mánuðum hafa tek-
ið eftir tveimur stórum byggingum sem hafa risið
hratt á móti hvor annarri. Annað þeirra er Court-
yard by Marriott hótel sem Aðaltorg er að byggja
en hitt er ný slökkvistöð Brunavarna Suðurnesja.
ÚR BÆJARLÍFINU
Svanhildur Eiríksdóttir
Reykjanesbær
Ég vil byrja á því að óska lesendum gleðilegs
nýs árs í þessum fyrsta bæjarlífspistli ársins.
Það er engin nýlunda að áramót séu
uppskeruhátíð en jafnframt boðun um betri
tíma. Í rekstri bæjarins þótti undir árslok ljóst
að vel hafði tekist til árið 2019 í að rétta úr kútn-
um og fá íbúar m.a. að njóta þess. Tilkynning
barst frá eftirlitsnefnd með fjármálum sveitar-
félaga sl. mánudag um að aðlögunaráætlun, sem
bærinn hefur unnið eftir frá því í apríl 2017, væri
fallin úr gildi og að Reykjanesbær væri laus und-
an sérstöku eftirliti nefndarinnar. Það er tveim-
ur árum fyrr en áætlanir gerðu ráð fyrir.
Fasteignaskattur af heildar fasteignamati
íbúðarhúsa lækkaði úr 0,36% í 0,321% um ára-
mót. Hvatagreiðslur til niðurgreiðslu á skipu-
lögðu íþrótta- og tómstundastarfi voru hækkaðar
úr 28.000 krónum í 35.000 í upphafi nýs árs og
aukinn stuðningur verður við afreksíþróttafólk
og íþróttafélögin á þessu ári, svo eitthvað sé
nefnt.
Á gamlársdag var íþróttafólk úr Reykjanes-
bæ heiðrað í hófi sem fram fer í íþróttahúsinu í
Njarðvík ár hvert. Í ár var það sundfólkið Karen
Mist Arngeirsdóttir og Már Gunnarsson sem var
kjörið íþróttafólk Reykjanesbæjar árið 2019.
Alls fékk 31 íþróttamaður viðurkenningu frá
Íþróttabandalagi Reykjanesbæjar (ÍRB) í hóf-
inu.
Ris hótelsins hefur vakið töluverða athygli
fyrir hraða uppbyggingu. Skýringin er sú að
steyptar einingar þess komu til landsins frá Kína
með flutningaskipi sem lagðist að bryggju við
Helguvíkurhöfn 5. ágúst sl. Að sögn Einars Þórs
Guðmundssonar í viðskiptaþróun Aðaltorgs hafa
framkvæmdir gengið vel, en áætlað er að opna
hótelið á vormánuðum.
Í Courtyard by Marriott-flugvallarhótelinu
eru 150 herbergi, ásamt veitinga- og þjónustu-
rýmum. Áætlanir Aðaltorgs gera ráð fyrir að önn-
ur veitingar- og þjónusturými en þau sem tilheyra
hótelinu verði tilbúin í sumar. Einar Þór segir
einkar ánægjulegt að stærsti hluti verktaka við
framkvæmdina eru af Suðurnesjum og því sé um
sannkallað Suðurnesjaverkefni að ræða.
Mikil bylting verður í starfsumhverfi Bruna-
varna Suðurnesja (BS) þegar ný slökkvistöð verð-
ur tekin í notkun í sumarbyrjun. Að sögn Jóns
Gunnlaugssonar slökkviliðsstjóra er áætluð verk-
lok í maí en svo getur tekið allt að mánuð að koma
sér fyrir. „Með þessari nýju slökkvistöð verður
staðsetning eins og best verður á kosið. Að auki
verður aðgerðarstjórnstöð Almannavarna Suður-
nesja í stöðinni og við munum koma öllum okkar
tækjum fyrir í húsinu.“
Gott aðgengi er frá hinni nýju slökkvistöð til
allra hinna sveitarfélaganna á Suðurnesjum sem
BS þjónar. Bæði verður auðvelt að komast innan-
bæjar í Reykjanesbæ og svo beint upp á Reykja-
nesbraut og þaðan til Suðurnesjabæjar, Grinda-
víkur og Voga.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Framkvæmdir Tvær stórar byggingar, ný slökkvistöð Brunavarna Suðurnesja og Marriott hótel, rísa nú við Reykjanesbraut og ganga framkvæmdir vel.
Byggingar rísa við Reykjanesbraut
Blindrafélagið leggur til að allir
rekstrarleyfishafar leigubíla verði
skráðir á leigubifreiðastöð sem hef-
ur starfsleyfi Samgöngustofu. Í um-
sögn til umhverfis- og samgöngu-
nefndar Alþingis ítrekar félagið
áhyggjur sínar af fyrirhuguðum
breytingum og leggur áherslu á að
þær megi ekki leiða til lakara þjón-
ustustigs.
Áhyggjurnar snúa að því að svo
margir leigubílar verði á háanna-
tímum að það leiði til mikillar fækk-
unar þeirra sem eru í fullu starfi sem
leigubílstjórar. Það geti bitnað
harkalega á framboði leigubíla á
virkum dögum.
ASÍ segir ekkert liggja á
Með frumvarpinu er fyrirhugað
að afnema fjöldatakmarkanir leigu-
bíla og stöðvarskyldu, vegna athuga-
semda Eftirlitsstofnunar EFTA
(ESA). Alþýðusamband Íslands tel-
ur í umsögn bæði rétt og skynsam-
legt að bíða niðurstöðu í lagabreyt-
ingum í Noregi og sjá þróunina
annars staðar á Norðurlöndum,
enda séu engir sérstakir hagsmunir,
kærur eða málshöfðanir sem reki á
eftir íslenska ríkinu í málinu.
Blindrafélagið hefur verið með
samning við Reykjavíkurborg og
leigubílastöðina Hreyfil um ferða-
þjónustu við lögblinda Reykvíkinga.
Þetta er þjónustuúrræði sem nýtir
leigubílaþjónustu sem fyrir er í sam-
félaginu. Fram kemur að nú eru 600
einstaklingar með þjónustusamning
hjá ferðaþjónustu Blindrafélagsins
og á nýliðnu ári voru farnar um 50
þúsund ferðir.
Blindrafélagið leggur í umsögn
sinni áherslu á mikilvægi þess að ný
lög um leigubifreiðir leiði ekki til
lakara þjónustustigs og bendir á að
markmið nýju laganna sé að tryggja
gott aðgengi að hagkvæmri, skil-
virkri og öruggri leigubílaþjónustu
fyrir neytendur á Íslandi.
helgi@mbl.is
Blindir leggjast
gegn breytingum
Nýtt leigubílafrumvarp er umdeilt
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Leigubíll Blindrafélagið óttast að
breytingar skerði þjónustu.
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 5175000 | stalogstansar.is
Gott úrval af reimum í
snjósleða, bíla og fjórhjól.
reimar
í snjósleða, bíla og fjórhjól
Vegna bilunar í vélbúnaði hefur
Nói Síríus ákveðið að innkalla
þrjú vörunúmer því ekki er hægt
að útiloka að plast hafi borist í
súkkulaðiplötur. Um er að ræða
tvær stærðir af hreinu Síríus
rjómasúkkulaði, annars vegar með
3x100 g plötum, sem merkt er
best fyrir dagsetningarnar 3.6.
2021 og 4.6. 2021, og hins vegar
150 g af hreinu Síríus rjómasúkk-
ulaði, með dagsetningunni 17.6.
2021. Þá er 300 g stærð af Síríus
suðusúkkulaði einnig innkölluð, og
eru umbúðir merktar best fyrir
9.6. 2021, 10.6. 2021, 11.6. 2021 og
12.6. 2021. Eru neytendur sem
keypt hafa þessar vörur beðnir
um að skila þeim inn í verslun eða
á skrifstofu Nóa Síríusar að Hest-
hálsi 2-4.
Í tilkynningu frá Nóa Síríusi
kemur fram að plastið sem kann
að hafa farið í súkkulaðið sé ýmist
blátt eða bleikt að lit og ætti því
að vera sjáanlegt neytendum þeg-
ar varan er opnuð. Þá er tekið
fram að umræddur vélbúnaður
hafi verið lagfærður og því sé um
einangrað tilvik að ræða. „Nói
Síríus fylgir ströngum gæðastöðl-
um og gerðar hafa verið ráðstaf-
anir til að útiloka að sambærilegt
tilvik komi upp aftur,“ segir í til-
kynningunni. Þá harmar Nói
Síríus þau óþægindi sem þetta
kunni að hafa valdið neytendum.
Innkalla
súkkulaði
Plast fór mögu-
lega í plöturnar
Innkallað Umbúðir súkkulaðisins
sem Nói Siríus hefur kallað inn.