Morgunblaðið - 11.01.2020, Side 22

Morgunblaðið - 11.01.2020, Side 22
BAKSVIÐ Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Á miðvikudag tilkynnti kínverska flugfélagið Juneyao Air formlega að það myndi í marsmánuði hefja sölu til áfangastaða í Evrópu. Félagið sjálft mun hins vegar aðeins fljúga til Hels- inki á meðan samstarfsaðilar munu fljúga með farþega félagsins þaðan, segir í umfjöllun Reuters. Þá hafa fulltrúar Icelandair og Juneyao Air átt í viðræðum um mögulegt sam- starf sem myndi fela í sér flutning á farþegum, sem flogið hafa með Ju- neyao frá Sjanghæ til Helsinki, áfram til Keflavíkur. Engar ákvarð- anir hafa þó verið teknar að svo stöddu, samkvæmt svari Icelandair við fyrirspurn Morgunblaðsins. Sagt var frá því í Fréttablaðinu í október að Juneyao Air hygðist hefja beint flug til Íslands með viðkomu í Helsinki. Juneyao telur hins vegar ekki fært að sjá um þann hluta flugs- ins sjálft og leitar nú til flugfélaga innan Evrópu um samstarf, sérstak- lega innan þeirra landa sem félagið hyggst selja flug til. „Við vitum að við þurfum á samstarfi að halda. Við þurfum alþjóðlega samstarfsaðila,“ hefur Reuters eftir Zhao Hongliang, forstjóra Juneyao. Fjölgun farþega Icelandair hefur í áraraðir flogið í áætlunarflugi milli Helsinki og Kefla- víkur auk þess sem Finnair hefur þjónustað þessa leið. Í heild flugu 227 þúsund farþegar frá Helsinki til Keflavíkur í fyrra sem er 10,4% fjölg- un borið saman við árið 2018, sam- kvæmt tölum Finavia, sem rekur flugvöllinn í Helsinki. Frá árinu 2013 hefur farþegum frá höfuðborg Finn- lands fjölgað um tæplega 168 þúsund eða 281%. Ekki er ljóst hver hlut- deild Icelandair er og kveðst flug- félagið ekki gefa upp hver markaðs- hlutdeild þess sé á einstökum mörkuðum. Farþegar frá Helsinki til Kína voru um 659 þúsund á síðasta ári sem er 18,1% fjölgun frá 2018, en finnski flugvöllurinn hefur orðið miðstöð fyr- ir flug frá Evrópu til Asíu vegna hag- stæðra samninga Finnlands og Rúss- lands um flug um rússneska lofthelgi. Meðal annars flugu tæplega 837 þús- und farþegar frá Helsinki til Japans árið 2019 og 419 þúsund til Taílands. Aukin umsvif þrátt fyrir tap Juneyao hefur aukið umsvif sín frá árinu 2018 þegar félagið fékk fyrstu Boeing 787-þotuna afhenta. Félagið hóf í júní í fyrra flug milli Helsinki og Sjanghæ. Eru nýju fyrirætlanir fé- lagsins hluti af miklum stækkunará- formum í Asíu og Evrópu og er fyrsti áfanginn að selja flug frá Sjanghæ til Manchester, Dublin og Keflavíkur með millilendingu í Helsinki. Fyrirætlanir kínverska flugfélags- ins koma í skugga tapreksturs kín- verskra flugfélaga á lengri leggjum og nam tap þeirra 3,2 milljörðum bandaríkjadala, jafnvirði 395 millj- arða íslenskra króna, árið 2018. „Við myndum ekki hefja nýtt alþjóðlegt flug í blindni, frekar byggja á yfir- vegun og mati, og taka ákvarðanir á grundvelli getu okkar og markaðs- aðstæðna,“ segir Hongliang. Juneyao ræðir við Icelandair Ljósmynd/Tang Xiaozhang Samstarfsaðili Juneyao Air leitar nú samstarfsaðila svo félagið geti selt til evrópskra áfangastaða frá Helsinki.  Boðuðu flug til Íslands með viðkomu í Helsinki  Leita samstarfsaðila vegna flugs innan Evrópu  Farþegum frá Helsinki til Íslands heldur áfram að fjölga Fjöldi flugfarþega frá Helsinki til Keflavíkur 2013-2019 Heimild: Finavia 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 Þúsundir farþega og breyting milli ára 60 77 109 146 195 206 227 29% 42% 34% 33% 6% 10% 22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2020 Góð þjónusta í tæpa öld 10%afslátturfyrir 67 áraog eldri Flugvallarþjónusta BSR sér um að skutla þér út á flugvöll og aftur heim þegar þú ferð til útlanda. 5-8 manneskjur 19.500 kr. 1-4 manneskjur 15.500 kr. Verð aðra leið: 11. janúar 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 123.65 124.25 123.95 Sterlingspund 161.24 162.02 161.63 Kanadadalur 94.68 95.24 94.96 Dönsk króna 18.373 18.481 18.427 Norsk króna 13.908 13.99 13.949 Sænsk króna 13.047 13.123 13.085 Svissn. franki 126.91 127.61 127.26 Japanskt jen 1.1293 1.1359 1.1326 SDR 170.5 171.52 171.01 Evra 137.32 138.08 137.7 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 167.618 Hrávöruverð Gull 1547.85 ($/únsa) Ál 1771.0 ($/tonn) LME Hráolía 66.0 ($/fatið) Brent ● Hagfræðideild Landsbanka Íslands spáir því í fréttabréfi sínu, Hagsjá, að vísitala neysluverðs lækki í janúar um 0,4% milli mánaða. Gangi spáin eftir helst verðbólgan óbreytt í tveimur pró- sentum. Hagstofan birtir janúar- mælingu neysluverðs 30. janúar nk. Í Hagsjánni segir um helstu undirliði vísitölunnar að búist sé við því að jan- úarútsölur á fötum og skóm verði svip- aðar og síðustu ár. Þá á hagfræðideild bankans von á að janúarútsölur á hús- gögnum og heimilisbúnaði verði einnig svipaðar og síðustu ár. Þá segir að verðkönnun deildarinnar hafi sýnt að bensín og dísilolía hafi hækkað um tvö prósent milli mánaða. Landsbankinn spáir því að lokum að ársverðbólga í febrúar verði 2,2%. Spá lækkun vísitölu neysluverðs STUTT Brottförum erlendra ferðamanna frá Keflavíkurflugvelli fækkaði um tæp- lega 330 þúsund á síðasta ári frá því sem var árið á undan. Fór fjöldinn úr 2,32 milljónum í 1,99 milljónir, en það er um 14,2% samdráttur. Í desember fækkaði ferðamönnum um 8,6% eða úr 137 þúsund í 125 þúsund. Þetta sýna nýjar tölur Ferðamála- stofu og Isavia, en þetta er í fyrsta skiptið í níu ár sem fækkunar gætir í komum erlendra ferðamanna til landsins. Fækkun átti sér stað alla mánuði ársins, en hlutfallslega var fækkunin mest í maí og september þegar hún var meiri en 20%. Bandaríkjamenn voru eins og áð- ur fjölmennasti hópur farþega, eða um 464 þúsund talsins. Hins vegar var mest fækkun þaðan á árinu, eða um 230 þúsund, en það nemur um þriðjungsfækkun á árinu. Næstfjöl- mennasti hópurinn var Bretar, en samtals komu 262 þúsund þeirra til landsins á síðasta ári. Fækkaði þeim um 36 þúsund, eða um 12,1%. Ferðamönnum fækkaði frá öllum löndum, ef frá eru talin Austurríki, Eystrasaltslöndin, Frakkland, Ind- land, Ítalía, Kína, Pólland, Rússland, Singapúr og „annað“. Heildarfjölgun farþega frá þess- um löndum var hins vegar aðeins 20 þúsund farþegar, eða um 3,2% milli ára. Heildarfækkun farþega frá Kanada var til að mynda umtalsvert meiri en sem nam þessari fjölgun, en farþegum frá Kanada fækkaði um tæplega 30 þúsund. Þá fækkaði far- þegum frá Norðurlöndunum samtals um 16 þúsund, eða 9,8%. Morgunblaðið/Eggert 14,2% Fækkun varð í hópi ferða- manna sem komu til landsins. Fjöldinn aftur undir 2 milljónum  Ferðamönnum fækkar í fyrsta sinn í níu ár ● ÍSAGA, sem framleiðir og markaðs- setur iðnaðargas og sérhæfðar gasteg- undir, mun skipta um nafn í mánuð- inum. Verður fyrirtækið hér eftir undir nafninu Linde, eða því sama og móður- félag þess ber. Það félag er gas- og tæknifyrirtæki með um 80 þúsund starfsmenn og starfsemi í u.þ.b. 100 löndum. Erik Larsson er forstjóri Linde hér á landi. Samkvæmt nýjasta árs- reikningi voru 28 ársverk hjá félaginu 2018. ÍSAGA verður Linde

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.