Morgunblaðið - 11.01.2020, Side 24

Morgunblaðið - 11.01.2020, Side 24
AFP Konungsfjölskyldan Meghan Markle, Harry prins, Vilhjálmur prins og Katrín, kona hans, á svölum Buckingham- hallar sumarið 2018. Sagt er að togstreita og allnokkrir samskiptaerfiðleikar séu innan fjölskyldunnar. FRÉTTASKÝRING Guðmundur Magnússon gudmundu@mbl.is Vart er um annað meira talað í Bret- landi þessa dagana en hina óvæntu tilkynningu hertogahjónanna af Sus- sex, Harry prins og Meghan Markle, fyrr í þessari viku, að þau hafi ákveðið að draga sig út úr opinberum embættisskyldum í þágu konungs- fjölskyldunnar og ætli sér að verða fjárhagslega sjálf- stæð. Jafnframt muni þau fram- vegis verja tíma sínum jafnt í Kan- ada sem Bret- landi. Harry prins er bróðir Vilhjálms prins, báðir synir Karls Bretaprins og Díönu heitinnar prinsessu, sonar- synir Elísabetar núverandi drottn- ingar Breta. Það er Karl sem tekur við konungstign þegar Elísabet fellur frá, nema annað verði ákveðið, og Vil- hjálmur er síðan fyrstur í röð arftaka hans. Harry er aftur á móti sjöundi í röðinni til að taka við konungsemb- ætti svo heita má óhugsandi að til þess muni nokkru sinni koma. Aftur á móti eru þau Harry og Meghan, hin bandaríska eiginkona hans, sem er ekki af aðalsættum, skilgreind sem „heldri meðlimir“ konungsfjölskyld- unnar. Þau hafa í samræmi við það gegnt margvíslegum opinberum skyldum í bresku þjóðlífi eins og hefðin býður. BBC segir að svo virðist sem hjón- in hafi tekið þessa ákvörðun án sam- ráðs við aðra í fjölskyldunni og til- kynningin komið jafnt Elísabetu drottningu, Karli Bretaprins sem Vil- hjálmi og Katrínu konu hans mjög á óvart. Örstuttu eftir að hún var birt á vefsíðu hertogahjónanna sendu emb- ættismenn drottningar í Bucking- hamhöll frá sér yfirlýsingu um að málið væri á byrjunarstigi og margt ætti eftir að ræða og fara yfir, sumt flókið, áður en það væri til lykta leitt. Málið hefur reynst breskum fjöl- miðlum, ekki síst götublöðunum, „gott fóður“ enda óhætt að segja að hér sé talsvert drama á ferð. Tala fjölmiðlar um ákvörðun hertoga- hjónanna sem „Megxit“ og líkja þannig ákvörðun þeirra við útgöngu Breta úr Evrópusambandinu, Brexit. Reyndar munu fjölmiðlar og umfjöll- un þeirra um hjónin allt frá því að þau gengu í hjónaband vorið 2018, vera ein meginástæðan fyrir ákvörðuninni. Munu þau Harry og Meghan telja að sumir fjölmiðlar hafi hreinlega lagt þau í einelti og fjallað með svo ágeng- um hætti um einkalíf þeirra að ekki sé við það búandi. Sérstaklega hefur Meghan Markle þótt kastljósið á sig úr öllu hófi og er hermt að hún telji sig gjalda fordóma vegna borgara- legs uppruna síns og litarháttar, en hún er dökk á hörund. Guðný Ósk Laxdal, sem er sérfróð um bresku konungsfjölskylduna og er með umfjöllun um konungleg mál á Instagram (@royalicelander), segir að með ákvörðun sinni séu Harry og Meghan að gera konunglega hlut- verkið að hlutastarfi. „Við munum enn þá sjá töluvert af þeim, en í allt öðruvísi hlutverki og minna í verk- efnum sem tengjast konungsfjöl- skyldunni,“ segir hún. Þau séu bæði mjög þekkt og muni ávallt vera í sviðsljósinu að einhverju leyti. Her- togahjónin séu með ýmis verkefni á prjónunu, t.d. sé Harry prins að undirbúa sjónvarpsþætti með Oprah Winfrey um andlega heilsu. Guðný telur að hjónin muni halda konunglegum titlum sínum og bendir á að fordæmi séu fyrir því að með- limir konungsfjölskyldunnar vinni fullt launað starf og haldi konung- legum titli, t.d. prinsessurnar Beat- rice og Eugenie. „Þessi breyting á hlutverki þeirra mun gefa hertoga- hjónunum meira vald og meira sjálf- stæði til að taka ákvarðanir og höllin mun hafa minna svigrúm til þess að stjórna því hvað þau gera,“ segir Guðný Ósk. Hjónin munu ekki hverfa úr sviðsljósinu Guðný Ósk Laxdal 24 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Á Íslandigetur ver-ið allra veðra von og það ber að taka bók- staflega. Undan- farið hefur verið sér- staklega umhleypingasamt og veðrið verið þannig að rétt er að fara að öllu með gát. Þótt sagt sé að veðrið sé óútreiknanlegt hafa vísindin dregið nokkuð úr óvissunni þannig að hægt er að segja fyrir um óveður með nokk- urri vissu. Fyrir kemur að veðrið er verra í spám en raunveruleikanum, en það gildir einu þegar taka þarf mark á næstu spá. Það er engin tilviljun að orðið mannskaðaveður er í málinu. Hér er veðrið stundum þannig að það get- ur beinlínis verið hættulegt að vera á ferli, ekki síst fjarri byggð, og er jafnvel ekki hættulaust um hávetur þótt ekkert sé að veðri. Á þetta ætti reyndar ekki að þurfa að minna, svo aug- ljóst er það. Dæmin sýna hins vegar að ekki ræður skynsemin alltaf för og það er full ástæða til þess að hamra á því að ekki sé ráð- legt að bjóða óblíðum nátt- úruöflunum byrginn þegar þau eru í ham. Í vikunni lenti hópur 39 ferðamanna í hrakningum við rætur Langjökuls og var hætt kominn. Ferðalang- arnir voru á vegum ferða- þjónustufyrirtækisins Mountaineers of Iceland og var lagt með þá í ferð að jöklinum þrátt fyrir að spáð væri illskuveðri. Í gær lentu fjórar rútur í hremmingum vegna óveðurs og illrar færðar. Alvarleg- asta slysið var við Blöndu- ós. Þar hvolfdi rútu með námsmönnum um borð. Verður að vona að þar hafi ekki farið illa. Ekki hefur verið farið of- an í saumana á því sem gerðist í ferðinni að Lang- jökli en ljóst er að teflt var á tæpasta vað. Fólkið í hópnum var skelfingu lostið og margir óttuðust hrein- lega um líf sitt. „Við teljum að fyrirtækið hafi sýnt af sér vanrækslu og að það hefði aldrei átt að fara í þessa ferð,“ sagði einn ferðamannanna í hópnum í samtali við mbl.is. Annar úr hópnum, Rich- ard Gonsalves, skrifaði mbl.is bréf þar sem hann sagði að hann hefði verið sá síðasti sem var bjargað og hann hefði þurft að bíða í meira en ellefu klukku- stundir úti í óveðrinu. Gonsalves gróf sig í fönn ásamt samferða- mönnum. Þegar björgunar- sveitirnar fundu hópinn þurfti fólkið að haldast í hendur og mynda keðju til að ganga 50 metra að farar- tækjum björgunarmanna. „Þetta var það líkamlega erfiðasta sem ég hef nokkru sinni upplifað,“ skrifaði Gonsalves. Fyrirtæki í ferðaþjónustu bera mikla ábyrgð. Margir þeirra erlendu ferðamanna, sem hingað koma, hafa aldr- ei verið úti í ósnortinni náttúru. Alla sína ævi hafa þeir verið í manngerðu um- hverfi. Þeir hafa engar for- sendur til að meta að- stæður. Þegar þeir kaupa ferð ætlast þeir til að séð sé um þá frá upphafi til loka. Það hvarflar ekki að þeim að þeir geti verið að leggja sig í hættu. Fyrirtæki í ferðaþjónustu þurfa ekki bara að gá til veðurs. Dauðsföll ferða- manna við köfun í Silfru í Þingvallavatni vöktu óhug og sýndu nauðsyn eftirlits og strangra reglna þegar boðið er upp á áhættuferðir. Öryggi er mikilvægara en aurar. Athyglisvert var að sjá í Morgunblaðinu á fimmtu- dag að hvorki Þórdís Kol- brún Reykfjörð Gylfadóttir ferðamálaráðherra né Jó- hannes Þór Skúlason, fram- kvæmdastjóri Samtakaferða þjónustunnar, eru þeirrar hyggju að herða þurfi kröf- ur til fyrirtækja í ferðaþjón- ustu um öryggi. Reglur gagnast hins vegar lítið ef ekki er farið eftir þeim. Aukið eftirlit með þeim, sem veita ferðaþjónustu, gæti orðið þungt í vöfum og kostnaðarsamt. Vonandi er ástandið ekki þannig að grípa þurfi til úrræða vegna fárra sem eru íþyngjandi fyrir alla. Þess vegna þurfa viðurlög við því að fara ekki eftir reglum um öryggi að vera ströng og afdrátt- arlaus. Hér er orðspor ferðaþjón- ustu á Íslandi vitaskuld í húfi en mikilvægast er að tefla ekki mannslífum í hættu; lífi ferðamanna, lífi leiðsögumanna, lífi öku- manna og lífi björgunar- manna. Orðið mannskaða- veður er ekki í mál- inu að ástæðulausu} Óveður og öryggi A lþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) tileinkar árið 2020 hjúkr- unarfræðingum og ljósmæðrum. Ákvörðunin er meðal annars tekin til heiðurs minningu breska hjúkr- unarfræðingsins Florence Nightingale en þann 12. maí 2020 eru 200 ár liðin frá fæðingu hennar. Hún er þekkt fyrir að hafa stofnað fyrsta hjúkr- unarskólann og rutt brautina fyrir nútíma- hjúkrun. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin mun efna til viðburða sem þessu tengjast og hér á landi hafa Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og Ljósmæðrafélag Íslands efnt til samstarfs til að vekja athygli á framtakinu. Markmiðið með þessari ákvörðun Alþjóða- heilbrigðismálastofnunarinnar er að vekja at- hygli á störfum hjúkrunarfræðinga og ljós- mæðra og stuðla að því að störf þeirra séu metin að verðleikum. Með aukinni áherslu á þverfaglega nálgun en ekki síður með því að heilbrigðisþjónustan færist meira í áttina að heilsugæslunni og til umræðu um forvarnir, lýðheilsu og almenna heilsueflingu eykst gildi hjúkrunar enn frekar. Þekking á hjúkrun er grundvallaratriði í uppbyggingu heilbrigðisþjónustunnar á þessari öld. Ein stærsta áskorun sem heilbrigðiskerfi þjóða standa frammi fyrir nú er mönnunarvandi, t.d. í hjúkrunarfræði. Kjör skipta meginmáli við lausn á þessu máli og ljóst er að nauðsynlegt er að bæta kjör hjúkrunarfræðinga ljós- mæðra og annarra stétta heilbrigðisstarfsfólks. Þá á ég við kjör í víðu samhengi, þ.e. laun, vinnutíma og starfsumhverfi og fulla viðurkenningu á mennt- un og ábyrgð. Í fyrra samþykkti ríkisstjórnin að setja á fót þrjá starfshópa sem hafa það hlutverk að finna leiðir til að bæta mönnun í heilbrigðisþjónust- unni. Þar á meðal er starfshópur sem mun skoða leiðir til að bæta mönnun hjúkrunarfræð- inga og annarra heilbrigðisstétta og koma með tillögur sem miða að því að hjúkrunarfræðingar haldist í starfi. Í heilbrigðisstefnu til ársins 2030 er því lýst að mönnun í heilbrigðiskerfinu sé að- kallandi verkefni og leita þurfi leiða til að fjölga starfsfólki í mörgum heilbrigðisstéttum og snúa við atgervisflótta. Hlutverk ríkisins í því sam- hengi sé að stuðla að því að fyrir hendi séu hvat- ar sem stuðli að fullnægjandi mönnun. Stjórn- völd eru meðvituð um hve brýnt er að takast á við mönnunarvandann og finna lausnir og að því er unnið. Árið 2020 er vel til þess fallið að beina sjónum að mikil- vægi hjúkrunar í heilbrigðisþjónustunni, lyfta faginu í um- ræðunni og ekki síst að leiða hugann að þeim fjölmörgu hjúkrunarfræðingum sem hafa með sínu framlagi átt sinn þátt í því að byggja upp heilbrigðisþjónustu á Íslandi um margra áratuga skeið. Til hamingju, hjúkrunarfræðingar og ljósmæður! Ég hlakka til að vinna með ykkur áfram að hugsjóninni um enn betri þjónustu. Svandís Svavarsdóttir Pistill Ár hjúkrunar Höfundur er heilbrigðisráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.