Morgunblaðið - 11.01.2020, Page 25
25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2020
Baráttan um brauðið Lífsbaráttan getur verið hörð fyrir smáfuglana þegar vetrarríkið er sem mest. Hver brauðmoli sem gefst er því eftirsóttur og margir sækjast eftir að fá að narta í.
Kristinn Magnússon
Það væri öfugmæli
að segja að bjart sé yfir
heimsbyggðinni við
upphaf þessa árs sem
innleiðir nýjan áratug.
Óvænt hafa ófriðar-
blikur vaxið til mikilla
muna yfir Mið-Austur-
löndum með mann-
vígum að boði Banda-
ríkjaforseta þvert á
alþjóðalög og hefðir.
Margir fréttamenn og
sérfróðir eru á einu máli um að allt
frá innrásinni í Írak 2003 sé hér um
þáttaskil að ræða sem leitt geti til
ófriðarbáls af áður óþekktri gráðu í
heimshluta sem margt hefur mátt
reyna í hálfa öld. – Ljóst er að
Bandaríkin hafa ekki látið svo lítið að
upplýsa forystumenn Evrópuríkja
um morðáform sín og kvarta nú eftir
á undan litlum stuðningi úr þeirri
átt. Sama er upp á teningnum um
NATÓ sem birtist hér sem áhrifa-
laus áhorfandi eftir á. – Samhliða
þessum ógnum á hernaðarsviðinu
eru valdhafar í Bandaríkjunum í for-
ystu fyrir fámennri sveit hægrisinn-
aðra ríkisstjórna sem vinnur gegn al-
þjóðasamstöðu gegn loftslagsvánni.
Þar er með í för ríkisstjórn Ástralíu,
ótrúlegir svefngenglar á sama tíma
og eldstungur svíða aðalþéttbýli
þessarar heimsálfu og sumarhitinn
slær upp undir 50°C.
Bandaríkin sem
hrörnandi risaveldi
Þeir sem til skamms
tíma bundu vonir við að
Bandaríkin héldu
áfram sessi sínum sem
forysturíki Vesturlanda
hafa orðið fyrir miklum
vonbrigðum. Fram-
ganga Trumps sem for-
seta á sér æ færri for-
mælendur Evrópu-
megin hafsins og það
áður en dró til síðustu
tíðinda gagnvart Íran.
Margt leggst hér á sömu sveif: Við-
skiptastríð og hótanir í allar áttir út
frá þröngum hagsmunum Bandaríkj-
anna, einhliða uppsögn á kjarnorku-
samningi risaveldanna og gegnd-
arlaus hergagnaframleiðsla þar sem
Bandaríkin bera uppi um 60% af
vopnasölu á heimsvísu. Andstaðan
gegn Parísarsamkomulaginu í lofts-
lagsmálum bætir síðan ekki úr skák.
Spurninguna um horfur og úrslit for-
setakosninganna vestra 3. nóv. næst-
komandi mun eðlilega bera hátt í
umræðu næstu mánaða, ekki síður
fyrir þá sök að demókratar hafa enn
ekki gengið frá mótframbjóðanda sín
megin. Þar er valið enn opið milli
þingmannanna Elizabeth Warren
sem stendur á sjötugu, Bernies
Sanders 78 ára svo og Joes Bidens 77
ára og fyrrverandi varaforseta í tvö
kjörtímabil 2009-2017. Keppinaut-
urinn Trump verður 74 ára á kom-
andi sumri og því er það mikið öld-
ungalið sem hér mun leiða saman
hesta sína. – Mat fréttaritara Der
Spiegel vestra, Rolands Nelles (Vid-
eoanalyse 6. jan. 2020), er að með
vanhugsaðri fljótfærnisaðgerð sinni
hafi Trump náð að sameina Írana að
baki klerkastjórninni í Teheran og
birtist hann nú sem stríðshaukur á
sama tíma og kjósendur vestra sýni
styrjaldarrekstri engan áhuga.
Loftslagsglíman
á tímamótum
Skorturinn á vilja til samstöðu
ríkja á COP-25 í Madrid í desember
sl. reyndist afdrifaríkur. Samstaða
um leikreglur ríkja heims er úrslita-
atriði ætli menn að fylgja leiðsögn
Parísarsamkomulagsins frá 2015. Sú
glíma flyst nú yfir á COP-26, þ.e.
næsta ársfund aðildarríkja loftslags-
samningsins í Glasgow undir lok
2020. Enn eru það sömu ríkin og þau
sem síst skyldi sem rjúfa samstöð-
una með Bandaríkin í fararbroddi,
studd m.a. af stjórnvöldum í Ástralíu
og Brasilíu. Ríki heims eiga sam-
kvæmt samningsdrögum að skila inn
fyrir COP-26-fundinn bindandi
markmiðum um samdrátt í losun.
Hvert ár sem skilar ónógum sam-
drætti veldur afar dýrkeyptri töf.
Þannig áætlar Umhverfisstofnun SÞ
að til að stöðva sig af við 1,5°C hlýn-
un þurfi árlega að draga sem svarar
7,6% úr losun gróðurhúsalofts.
Hvert ár án uppfylltra slíkra mark-
miða hækkar þröskuldinn sem fram
undan er og vísar á allsherjar óförn-
uð mannkyns. Ástandið í Ástralíu
þessa dagana er aðeins vísbending
um það sem gerast mun á heimsvísu
í tíð núlifandi kynslóða verði ekki við
brugðist nú þegar.
Innlendar raddir
í ársbyrjun
Það er góð regla að ætla forystu-
mönnum stjórnmálaflokka að gera
grein fyrir sér og stefnu flokka sinna
við hver áramót. Talsmenn ríkis-
stjórnarflokkanna halda því eðlilega
til haga sem áunnist hefur, nú þegar
kjörtímabil er vel hálfnað. Í aðal-
atriðum hefur stjórninni tekist að
fylgja eftir fyrirheitum í stjórnar-
sáttmála sínum og stuðla að samn-
ingum á vinnumarkaði þótt ekki sé
þar allt í höfn. Einbeitt forysta og
lagni Katrínar Jakobsdóttur sem
forsætisráðherra hefur skipt miklu
jafnt inn á við og út á við og þrátt fyr-
ir tímabundna ágjöf hefur flokkur
Vinstri-grænna styrkst með Guð-
mund Inga Guðbrandsson sem um-
hverfisráðherra og nú varaformann.
Eindregnar áherslur formanns
Framsóknarflokksins um loftslags-
málin sem stærsta verkefni samtím-
ans eru jafnframt á réttum stað og
að stjórnmálin þurfi að varða leiðina
að settu marki. Við allt annan tón
kveður hjá formanni Miðflokksins í
áramótagrein (Mbl. 31. des. 2019, s.
25) þar sem hann hafnar í senn
niðurstöðum alþjóðavísindasam-
félagsins og Sameinuðu þjóðanna um
loftslagsmál og brýna þörf aðgerða,
og veitist jafnframt með grófum
hætti að Grétu Thunberg fyrir þá
vakningaröldu meðal ungs fólks sem
hún hefur átt þátt í að leysa úr læð-
ingi. Ólíklegt er að málflutningur af
þessu tagi eigi hljómgrunn hér-
lendis.
Maður og náttúra
órofa heild
Úr grafalvarlegri stöðu sem
mannkynið hefur komið sér í verður
ekki leyst nema með gerbreyttri
nálgun gagnvart móður náttúru.
Forsendan er að viðurkenna augljós
takmörk okkar sem hluta af heild og
breyta búskaparháttum til samræm-
is við það. Þessi staða hefur blasað
við sjáendum í heilan mannsaldur án
þess við væri brugðist. Tækniþróun
ein og sér breytir ekki þessari stöðu.
Því þarf umhverfisvernd ásamt bar-
áttu fyrir jöfnuði og heimsfriði nú og
á næstu árum að verða mál mála hér-
lendis sem og á heimsvísu.
Eftir Hjörleif
Guttormsson »Úr grafalvarlegri
stöðu sem mann-
kynið hefur komið sér í
verður ekki leyst nema
með gerbreyttri nálgun
okkar gagnvart móður
náttúru.
Hjörleifur
Guttormsson
Höfundur er náttúrufræðingur.
Örlagaglíma mannkyns á nýbyrjuðum áratug