Morgunblaðið - 11.01.2020, Side 25

Morgunblaðið - 11.01.2020, Side 25
25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2020 Baráttan um brauðið Lífsbaráttan getur verið hörð fyrir smáfuglana þegar vetrarríkið er sem mest. Hver brauðmoli sem gefst er því eftirsóttur og margir sækjast eftir að fá að narta í. Kristinn Magnússon Það væri öfugmæli að segja að bjart sé yfir heimsbyggðinni við upphaf þessa árs sem innleiðir nýjan áratug. Óvænt hafa ófriðar- blikur vaxið til mikilla muna yfir Mið-Austur- löndum með mann- vígum að boði Banda- ríkjaforseta þvert á alþjóðalög og hefðir. Margir fréttamenn og sérfróðir eru á einu máli um að allt frá innrásinni í Írak 2003 sé hér um þáttaskil að ræða sem leitt geti til ófriðarbáls af áður óþekktri gráðu í heimshluta sem margt hefur mátt reyna í hálfa öld. – Ljóst er að Bandaríkin hafa ekki látið svo lítið að upplýsa forystumenn Evrópuríkja um morðáform sín og kvarta nú eftir á undan litlum stuðningi úr þeirri átt. Sama er upp á teningnum um NATÓ sem birtist hér sem áhrifa- laus áhorfandi eftir á. – Samhliða þessum ógnum á hernaðarsviðinu eru valdhafar í Bandaríkjunum í for- ystu fyrir fámennri sveit hægrisinn- aðra ríkisstjórna sem vinnur gegn al- þjóðasamstöðu gegn loftslagsvánni. Þar er með í för ríkisstjórn Ástralíu, ótrúlegir svefngenglar á sama tíma og eldstungur svíða aðalþéttbýli þessarar heimsálfu og sumarhitinn slær upp undir 50°C. Bandaríkin sem hrörnandi risaveldi Þeir sem til skamms tíma bundu vonir við að Bandaríkin héldu áfram sessi sínum sem forysturíki Vesturlanda hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum. Fram- ganga Trumps sem for- seta á sér æ færri for- mælendur Evrópu- megin hafsins og það áður en dró til síðustu tíðinda gagnvart Íran. Margt leggst hér á sömu sveif: Við- skiptastríð og hótanir í allar áttir út frá þröngum hagsmunum Bandaríkj- anna, einhliða uppsögn á kjarnorku- samningi risaveldanna og gegnd- arlaus hergagnaframleiðsla þar sem Bandaríkin bera uppi um 60% af vopnasölu á heimsvísu. Andstaðan gegn Parísarsamkomulaginu í lofts- lagsmálum bætir síðan ekki úr skák. Spurninguna um horfur og úrslit for- setakosninganna vestra 3. nóv. næst- komandi mun eðlilega bera hátt í umræðu næstu mánaða, ekki síður fyrir þá sök að demókratar hafa enn ekki gengið frá mótframbjóðanda sín megin. Þar er valið enn opið milli þingmannanna Elizabeth Warren sem stendur á sjötugu, Bernies Sanders 78 ára svo og Joes Bidens 77 ára og fyrrverandi varaforseta í tvö kjörtímabil 2009-2017. Keppinaut- urinn Trump verður 74 ára á kom- andi sumri og því er það mikið öld- ungalið sem hér mun leiða saman hesta sína. – Mat fréttaritara Der Spiegel vestra, Rolands Nelles (Vid- eoanalyse 6. jan. 2020), er að með vanhugsaðri fljótfærnisaðgerð sinni hafi Trump náð að sameina Írana að baki klerkastjórninni í Teheran og birtist hann nú sem stríðshaukur á sama tíma og kjósendur vestra sýni styrjaldarrekstri engan áhuga. Loftslagsglíman á tímamótum Skorturinn á vilja til samstöðu ríkja á COP-25 í Madrid í desember sl. reyndist afdrifaríkur. Samstaða um leikreglur ríkja heims er úrslita- atriði ætli menn að fylgja leiðsögn Parísarsamkomulagsins frá 2015. Sú glíma flyst nú yfir á COP-26, þ.e. næsta ársfund aðildarríkja loftslags- samningsins í Glasgow undir lok 2020. Enn eru það sömu ríkin og þau sem síst skyldi sem rjúfa samstöð- una með Bandaríkin í fararbroddi, studd m.a. af stjórnvöldum í Ástralíu og Brasilíu. Ríki heims eiga sam- kvæmt samningsdrögum að skila inn fyrir COP-26-fundinn bindandi markmiðum um samdrátt í losun. Hvert ár sem skilar ónógum sam- drætti veldur afar dýrkeyptri töf. Þannig áætlar Umhverfisstofnun SÞ að til að stöðva sig af við 1,5°C hlýn- un þurfi árlega að draga sem svarar 7,6% úr losun gróðurhúsalofts. Hvert ár án uppfylltra slíkra mark- miða hækkar þröskuldinn sem fram undan er og vísar á allsherjar óförn- uð mannkyns. Ástandið í Ástralíu þessa dagana er aðeins vísbending um það sem gerast mun á heimsvísu í tíð núlifandi kynslóða verði ekki við brugðist nú þegar. Innlendar raddir í ársbyrjun Það er góð regla að ætla forystu- mönnum stjórnmálaflokka að gera grein fyrir sér og stefnu flokka sinna við hver áramót. Talsmenn ríkis- stjórnarflokkanna halda því eðlilega til haga sem áunnist hefur, nú þegar kjörtímabil er vel hálfnað. Í aðal- atriðum hefur stjórninni tekist að fylgja eftir fyrirheitum í stjórnar- sáttmála sínum og stuðla að samn- ingum á vinnumarkaði þótt ekki sé þar allt í höfn. Einbeitt forysta og lagni Katrínar Jakobsdóttur sem forsætisráðherra hefur skipt miklu jafnt inn á við og út á við og þrátt fyr- ir tímabundna ágjöf hefur flokkur Vinstri-grænna styrkst með Guð- mund Inga Guðbrandsson sem um- hverfisráðherra og nú varaformann. Eindregnar áherslur formanns Framsóknarflokksins um loftslags- málin sem stærsta verkefni samtím- ans eru jafnframt á réttum stað og að stjórnmálin þurfi að varða leiðina að settu marki. Við allt annan tón kveður hjá formanni Miðflokksins í áramótagrein (Mbl. 31. des. 2019, s. 25) þar sem hann hafnar í senn niðurstöðum alþjóðavísindasam- félagsins og Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál og brýna þörf aðgerða, og veitist jafnframt með grófum hætti að Grétu Thunberg fyrir þá vakningaröldu meðal ungs fólks sem hún hefur átt þátt í að leysa úr læð- ingi. Ólíklegt er að málflutningur af þessu tagi eigi hljómgrunn hér- lendis. Maður og náttúra órofa heild Úr grafalvarlegri stöðu sem mannkynið hefur komið sér í verður ekki leyst nema með gerbreyttri nálgun gagnvart móður náttúru. Forsendan er að viðurkenna augljós takmörk okkar sem hluta af heild og breyta búskaparháttum til samræm- is við það. Þessi staða hefur blasað við sjáendum í heilan mannsaldur án þess við væri brugðist. Tækniþróun ein og sér breytir ekki þessari stöðu. Því þarf umhverfisvernd ásamt bar- áttu fyrir jöfnuði og heimsfriði nú og á næstu árum að verða mál mála hér- lendis sem og á heimsvísu. Eftir Hjörleif Guttormsson »Úr grafalvarlegri stöðu sem mann- kynið hefur komið sér í verður ekki leyst nema með gerbreyttri nálgun okkar gagnvart móður náttúru. Hjörleifur Guttormsson Höfundur er náttúrufræðingur. Örlagaglíma mannkyns á nýbyrjuðum áratug

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.