Morgunblaðið - 11.01.2020, Qupperneq 28
28 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2020
Skólavegur 8, 230 Keflavík
Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is
Mikið endurnýjuð glæsileg 3 herbergja efri hæð í tvíbýli í Keflavík.
Myndir og lýsing á eignasala.is
Jóhannes Ellertsson
Löggiltur fasteignasali – s. 864 9677
Júlíus M Steinþórsson
Löggiltur fasteignasali – s. 899 0555
Verð kr. 32.500.000.-Stærð 82,8 m2
Áhugafólk um nátt-
úruvernd fagnaði þeg-
ar ríkisstjórnin setti
sér markmið um að
stofna þjóðgarð á
miðhálendi Íslands.
Undirbúningur hefur
gengið hratt og vel. Nú
eru komin fram drög
að frumvarpi um þetta
framfaramál. Stjórn
Landverndar styður
heilshugar stofnun hálend-
isþjóðgarðs og telur að það yrði afar
jákvætt skref fyrir íslenska þjóð og
verndun íslenskrar náttúru. En það
þarf að gera nokkrar lagfæringar á
þeirri tillögu að frumvarpi sem fram
er komin.
Rétt er að benda á að reynslan af
þjóðgörðum á Íslandi hefur almennt
verið góð og rannsóknir benda til að
þeir hafi jákvæð áhrif á nærliggjandi
sveitarfélög og þjóðarhag. Þau
sveitarfélög sem hafa reynslu af
samstarfi við þjóðgarð virðast al-
mennt jákvæð gagnvart slíkri starf-
semi, enda hefur þess verið gætt að
hafa samráð og samvinnu þegar
teknar eru stefnumarkandi ákvarð-
anir. Aldrei er þó hægt að gera öll-
um til hæfis í friðlýsingarmálum
frekar en öðrum þjóðþrifamálum.
Allir þurfa að sýna sveigjanleika til
að skapa viðunandi sátt.
Að mati stjórnar Landverndar
eiga markmið þjóðgarðs fyrst og
fremst að vera verndun landslags,
víðerna, náttúru- og menning-
arminja og endurheimt raskaðra
vistkerfa. En einnig nýting þessa
verðmæta náttúruarfs með sjálf-
bærum hætti. „Sjálfbærni“ ber að
hafa að leiðarljósi við hefðbundna
nýtingu, eins og veiðar og sauð-
fjárbeit, innan þjóðgarðs á miðhá-
lendinu. Þá þarf að gæta varfærni
við vegabætur og við gerð mann-
virkja fyrir ferðamenn innan þjóð-
garðs á hálendinu svo þær spilli ekki
landslagsheildum og sannri
hálendisupplifun.
Varhugavert er, svo ekki sé sterk-
ar til orða tekið, að heimila stór-
framkvæmdir eins og
orkuvinnslu innan
þjóðgarðs á hálendi Ís-
lands, enda yrði það
ekki í samræmi við al-
þjóðleg viðmið og sam-
þykktir Alþjóðanátt-
úruverndarsamtak-
anna (IUCN), sem
jafnan hefur verið litið
til við friðlýsingar á Ís-
landi. Manngerð stór-
karlaleg virkj-
unarsvæði við eða á
hálendinu ber að skilgreina sem jað-
arsvæði sem lúta sérstökum reglum
svo starfsemi þar spilli ekki sjálfum
þjóðgarðinum.
Við skipan í stjórn hálendis-
þjóðgarðs er heillavænlegra að hafa
fagþekkingu stjórnarmanna að leið-
arljósi fremur en hagsmunatengsl
þeirra. Þá þarf að gæta jafnræðis
meðal landsmanna við skipan í
stjórn svo hálendisþjóðgarður standi
undir nafni sem sameiginlegur garð-
ur þjóðarinnar.
Varðandi mörk þjóðgarðsins ætti
ekkert að vera því til fyrirstöðu að
hann nái til ríkisjarða sem ná inn á
hálendið, en ekki einungis þjóð-
lendna eins og fram kemur í drögum
að frumvarpi. Með þeirri viðbót yrðu
Hraunin, einstakt svæði á austan-
verðu hálendinu, innan marka þjóð-
garðsins.
Stjórn Landverndar styður því
stofnun hálendisþjóðgarðs en mun
beita sér fyrir því að framangreind
sjónarmið nái fram að ganga nú þeg-
ar málið er komið til umfjöllunar á
pólitískum vettvangi.
Hálendisþjóð-
garður til heilla
Eftir Tryggva
Felixson
» Stjórn Landverndar
styður stofnun há-
lendisþjóðgarðs sem
framfaraskref fyrir
þjóðina og náttúruvernd
en telur að lagfæra þurfi
framlagða tillögu.
Tryggvi Felixson
Höfundur er formaður
Landverndar.
Guðjón Ingimundarson fæddist
12. janúar 1915 á Svanshóli í
Kaldrananeshreppi, Strand.
Foreldrar hans voru hjónin
Ingimundur Jónsson, bóndi
þar, og Ólöf Ingimundardóttir.
Guðjón lauk íþróttakennara-
prófi frá Laugarvatni 1937 og
smíðakennaraprófi frá Hand-
íðaskólanum í Reykjavík 1944.
Hann var kennari við Héraðs-
skólann á Laugarvatni 1937-
1941 og kennari við skólana á
Sauðárkróki 1941-1974. Hann
var forstjóri Sundlaugar Sauð-
árkróks og sundkennari 1957-
1986.
Guðjón var bæjarfulltrúi á
Sauðárkróki fyrir Framsókn-
arflokkinn 1950-1974 og forseti
bæjarstjórnar 1966-1970. Hann
var formaður íþróttanefndar
Sauðárkróks 1946-1978, var í
skólanefnd um árabil og for-
maður hennar 1974-1978 og í
fræðsluráði Norðurlands
vestra 1974-1978. Hann sat í
stjórn Ungmennasambands
Skagafjarðar 1942-1973 og þar
af formaður í 29 ár og var vara-
formaður Ungmennafélags Ís-
lands 1965-1983.
Eiginkona Guðjóns var Ingi-
björg Kristjánsdóttir, f. 1922,
d. 2010. Þau eignuðust sjö
börn.
Guðjón lést 15. mars 2004.
Merkir Íslendingar
Guðjón Ingi-
mundarson
Atvinna
Eigi alls fyrir löngu satgreinarhöfundur aðspjalli með nokkrumþekktum meisturum þar
sem rædd var sú ályktun sem einn
varpaði fram að tölvuforritið fræga,
Alpha Zero, hlyti að hafa hjálpað
Magnúsi Carlsen að vinna heims-
meistaratitlana í hraðskák og at-
skák. Það er athyglisvert að viðtal
sem greinarhöfundur rakst á nýlega
virðist styðja þessa skoðun. Þar
kvaðst Magnús oft velta því fyrir
þegar hann sæti að tafli hverju
Alpha Zero myndi leika í hinni eða
þessari stöðunni. Hann sagði enn-
fremur að nútímaskákmenn hlytu að
reyna að bæta árangur sinn með
svipuðum hætti og hann gerir.
Það kann að virðist fráleitt að
halda því fram að hraðskákir með
tímamörkunum 3-2 innihaldi álíka
dýpt og nákvæmni og þegar eigast
við öflugir skákmenn í skákum með
lengri umhugsunartíma. En þegar
lokaskák Norðmannsins í auka-
keppni hraðskákmótsins er skoðuð
má greina áhrif Alpha Zero. Frum-
kvæðið er greinilega mikilvægt að
mati Alpha Zero sem leggur einnig
mikla áherslu á virkni léttu mann-
anna. Magnús kærði sig kollóttan
um tvö peð á drottningarvæng held-
ur kom riddurum sínum þannig fyrir
að hrókar svarts gátu sig hvergi
hrært. Fyrstu 17 leikirnir féllu
þannig:
Heimsmeistaramótið í hraðskák;
Moskvu 2019:
Magnús Carlsen – Hikaru Naka-
mura
Drottningarpeðsleikur – London
1. d4 Rf6 2. Rf3 d5 3. Bf4 c5 4. e3
e6 5. Rbd2 Bd6 6. Bxd6 Dxd6 7.
dxc5 Dxc5 8. c4 dxc4 9. Bxc4 0-0 10.
Hc1 De7 11. 0-0 b6 12. De2 Bb7 13.
Hfd1 Rbd7 14. Ba6 Rc5 15. Bxb7
Dxb7 16. Re5 Rcd7 17. Df3
Frekar hverdagsleg taflmennska
en það er eins og orðspor Magnúsar
í endatöflum hafi orsakað það að
Nakamura vék drottningunni und-
an. Hann gat jafnað taflið með 17. ...
Dxf3 18. Rdxf3 Rxe5 19. Rxe5 Hfd8
20. Hxd8+ Hxd8 21. Kf1 og nú 21. ...
Re8! – að hætti Karpovs – og svarta
staðan er algerlega skotheld.
17. ... Da6?! 18. Rc6 Kh8 19. Rc4
Dxa2 20. g4 Rc5 21. Rd6
Hann lætur sér í léttu rúmi liggja
þó að svartur geti tínt upp peðin á
drottningarvæng en leggur áherslu
á virkni mannanna.
21. ... Rb3?
Þetta er í raun tapleikurinn. Vél-
arnar telja að svartur geti haldið
jafnvægi með 21. ... Dxb2 en það er
langsótt.
22. Hc2 Da4 23. Hc4 Da6 24. g5
Rd7 25. Hh4 Rbc5
26. Rxf7+
Smá galli á úrvinnslunni en dugar
samt. Hvítur gat mátað með 26.
Hxh7+! Kxh7 27. Dh5+ Kg8 28.
Re7 mát.
26. ... Hxf7 27. Dxf7 De2 28.
Hxd7 Rxd7 29. Dxd7 Hf8 30. Hf4!
- og Nakamura gafst upp.
Skákþing Reykjavíkur hafið
Alls eru 59 keppendur skráðir til
leiks á Skákþingi Reykjavíkur sem
hófst á sunnudaginn. Teflt er tvisvar
í viku, samtals níu umferðir. Stiga-
hæstir eru Guðmundur Kjartans-
son, Davíð Kjartansson, Sigurbjörn
Björnsson og Vignir Vatnar
Stefánsson.
Skákhátíð MótX
Eins og undanfarin ár fer
Skákhátíð MótX, gestamót Hugins
og skákdeildar Breiðabliks, fram í
Stúkunni á Kópavogsvelli. Eru
keppendur 59 talsins og tefla í tveim
riðlum, samtals sjö umferðir. Jóni
Þorvaldssyni hefur eins og áður tek-
ist að fá til leiks marga valinkunna
meistara og má nefna Hjörvar Stein
Grétarsson, Guðmund Kjartansson,
Þröst Þórhallsson, Jón Viktor
Gunnarsson, Björn Þorfinnsson,
Dag Ragnarsson, Davíð Kjart-
ansson, Björgvin Jónsson, Ingvar
Þór Jóhannesson og Vigni Vatnar
Stefánsson.
Alpha Zero aftur
í sviðsljósinu
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Ljósmynd/Pálmi R. Péturs
Fyrsti leikurinn Jón Eggert Hallsson, nýr formaður Hugins, þokar c-peðinu
um tvo reiti fyrir Hjörvar Stein Grétarsson. Mótherji Hjörvars, Halldór
Grétar Einarsson er einn af aðalskipuleggjendum mótsins ásamt Jóni Þor-
valdssyni sem fylgist með.