Morgunblaðið - 11.01.2020, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 11.01.2020, Qupperneq 31
MINNINGAR 31Messur á morgun MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2020 ✝ Sóley Magnús-dóttir viðskipt- afræðingur fæddist á Akureyri 17. júní 1969. Hún lést á heimili sínu 26. des- ember 2019. Foreldrar henn- ar voru Margrét Halldóra Harðar- dóttir, húsmóðir og fiskvinnslukona frá Akureyri, f. 26. ágúst 1947, d. 18. ágúst 1986, og Magnús Halldórsson sjómaður frá Akranesi, f. 7. desember 1942, d. 18. febrúar 1989. Systkini Sóleyjar eru: Ottó Hörður Guðmundsson, f. 22. nóv- ember 1965, maki Kolbrún Erna Magnúsdóttir, f. 12. maí 1968; Halldór Magnússon, f. 8. apríl 1971; Ása Huldrún Magnúsdóttir, f. 26. nóvember 1978, maki Gunnar Björg- vin Arason, f. 25. september 1981; Kristján Þór Krist- jánsson, f. 7. desem- ber 1985. Sóley eignaðist þrjú börn með fyrr- verandi eiginmanni sínum, Sævari Þor- steinssyni, f. 7. nóvember 1969. Börn Sóleyjar og Sævars eru: Aldís Freyja Sævarsdóttir, f. 10. júní 1996; Sindri Snær Sævars- son, f. 16. september 1999 og Þorsteinn Darri Sævarsson, f. 12. apríl 2001. Útför Sóleyjar fór fram frá Akureyrarkirkju 9. janúar 2020. Elsku Sóley, mín kæra systir sem ég elskaði svo heitt. Það var svo mikið áfall annan í jólum að fá símtal um að þú værir farin, þetta er óbærilegt og ég veit ekki hvernig verður hægt að halda áfram án þín. Þegar við vorum unglingar og Ása systir aðeins barn að aldri kom í ljós hjartalag þitt þegar áföllin dundu yfir okk- ur. Þá varst þú kletturinn fyrir okkur systkinin og varst klettur- inn okkar alla tíð. Ég var heim- alningur á þínu heimili þar sem ég bjó á köflum og alltaf tekið vel á móti mér. Mér leið alltaf svo vel á þínu heimili, þú sýndir mér svo mikinn kærleika og góðmennsku. Heimilið þitt var alltaf svo fallegt og hlýlegt og alltaf fullt af þeim góðu vinum sem þú áttir og reyndust þér svo vel. Þegar Magnús minn fæddist varstu stolt föðursystir og þegar hann stækkaði eyddi hann mörgum góðum stundum hjá þér og leið svo vel hjá þér. Þú leist eftir hon- um eins og hann væri þitt eigið barn og hann elskaði að vera í kringum þig. Þú varst yndisleg mamma og svo stolt af börnunum þínum. Þú bjóst þeim gott heimili og elsk- aðir þau svo mikið og það sem þú varst stolt af þeim. Þau sakna þín svo mikið, elsku Sóley. Alltaf þegar erfiðleikar komu upp í lífi mínu þá varst þú sú manneskja sem ég hringdi í og leitaði til, þú varst alltaf til staðar og hjálpaðir mér ávallt. Ég reyndi að endur- gjalda greiðann síðustu misseri þegar þú gekkst í gegnum erfið veikindi og mikla erfiðleika í lífi þínu. Mér finnst að mér hafi ekki gengið það nógu vel og vildi að ég hefði getað verið meira eins og þú og tekist að hjálpa þér. Mig tekur þetta svo sárt elsku Sóley mín, ég vildi að ég hefði getað hjálpað þér með sama hætti og þú hjálpaðir mér. Við vorum alltaf svo sam- heldin og til staðar hvort fyrir annað. Það var vegna þín, þú varst sterkust af okkur og við leituðum öll til þín. Þú varst svo klár og sterk, fórst í gegnum há- skólanám og kláraðir viðskipta- gráðu samhliða vinnu. Ef ein- hvern vantaði aðstoð með lærdóm var leitað til þín, sérstak- lega með stærðfræði, ef einhvern vantaði aðstoð með skattframtal- ið var leitað til þín, þú varst svo klár og hjálpsöm og alltaf til stað- ar. Ég elska þig mín kæra systir og mig tekur þetta svo sárt. Elsku Aldís, Sindri og Þorsteinn, ykkar missir er svo mikill. Á sama tíma og þú varst að ganga í gegnum erfið veikindi varstu að ganga í gegnum sáran skilnað sem tók mikið á þig, elsku Sóley mín. Við systkinin vorum svo ná- in og sterk saman með þig sem leiðtoga því þú hélst okkur saman og við leituðum öll ráða hjá þér og nú hef ég fundið svo sterkt hvað mig vantar þig og þarfnast leið- sagnar frá þér. Ég er óendanlega þakklátur fyrir þær stundir sem við áttum saman dagana fyrir andlát þitt og sérstaklega kvöldið áður en þú kvaddir. Við vorum sátt og góðir vinir og þú baðst mig um aðstoð sem var mér gríðarlega mikil- vægt. Mín eina huggun nú er sú að þú sért hjá mömmu og pabba og hafir fundið frið í hjartanu og sért laus við allar þrautir. Ég mun alltaf muna þig og tala um þig við elsku Freyju Sóleyju Magnúsdóttir sonardóttur mína. Ég trúi því að við munum hittast síðar ásamt mömmu og pabba og eiga góðar stundir. Þangað til þá, farðu í friði elsku systir og ég hlakka til að sjá þig aftur. Þinn bróðir Halldór Magnússon. Elsku yndislegi engillinn minn, nú kveð ég þig í síðasta skiptið. Það er svo sorglegt þegar fólk er tekið frá okkur í blóma lífsins, svo sárt að horfa upp á börnin þín þrjú kveðja yndislega móður, systkini sem sjá á eftir systur, ömmu sem horfir á eftir yndis- lega barnabarninu sínu, og alla vinina sem horfa á eftir góðri vin- konu og vini. Ég var svo lánsöm að eignast þig sem frænku og mikla vinkonu í gegnum lífið, við brölluðum margt saman á okkar yngri árum, sumt prenthæft en annað ekki, já við vorum grall- arar. Fyrstu minningarnar eru um hitting hjá Helgu ömmu okk- ar á Akranesi, svo er við heim- sóttum hvor aðra. Þegar við fórum að eignast börnin okkar urðum við mjög samstiga, við fórum saman í sum- arbústaðaferðir með börnin okk- ar, gistum heima hjá hvor ann- arri, spjölluðum oft langtímum saman í síma, lengsta símtalið okkar var 8 klst., eins og heill vinnudagur, við urðum aldrei þreyttar á að spjalla, höfðum svo margt að segja hvor annarri, svo margt sem var bara okkar á milli, elskan mín, við tökum upp þráð- inn er við hittumst á ný. Þegar þú lást inni á lungna- deild og gjörgæslu á LSH heim- sótti ég þig daglega, það var svo skrýtið að sjá þig svona mikið veika, þú opnaðir augun og brost- ir til mín. Þú varst svo máttfarin, þú sagðir ekki orð, ég hélt fast í höndina á þér og við þögðum saman sem gerðist ekki oft á okk- ar lífsleið. Ég sat með þér kvöldið áður en þú fórst aftur norður, þá fyrst áttaði ég mig á hvað þessi sjúkdómur hafði gert yndislegri, uppáhaldsfrænku minni, já hann var búinn að ná henni á sitt vald. Það sem glymur í eyrunum á mér er setningin sem þú sagðir svo oft við mig að þrátt fyrir aldur okkar værum við ekki sloppnar við fjöl- skyldusjúkdóminn sem tekið hef- ur sinn toll hjá okkur. Þegar upp er staðið varð það raunin og tók hann þig frá okkur að lokum. Elskan mín, nú hef ég trú á að þér líði miklu betur, þar sem þú situr ásamt heittelskuðum for- eldrum þínum, ömmu, öfum og öllum hinum sem fóru á undan þér, þú segir þeim vonandi fréttir af okkur, sem syrgjum ykkur hér á jörðu niðri. Ljúfa, góða frænka, ég kveð þig, takk fyrir tryggan góðan vinskap þinn, kveð þig með tregatárum og miklum söknuði, söknuði að heyra ekki rödd þína aftur, sjá þig ekki brosa aftur. Minningarnar um þig lifa um ókomna tíð, þær lifa í börnunum þínum. Börnunum þínum verð ég ávallt stoð í þeirra lífsins ólgusjó. Elsku Aldís Freyja, Sindri Snær, Þorsteinn Darri, Hörður, Halldór, Ása og Sóley, hugur minn er hjá ykkur, guð styðji ykkur og styrki á þessum erfiða tíma. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Valdimar Briem) Góða ferð, elsku gullið mitt. Þín frænka og vinkona Dýrleif Ólafsdóttir. Elsku fallega, klára, skemmti- lega ljúfa og sterka vinkona mín Sóley kvaddi okkur nú á jólunum eftir erfið veikindi, eftir sitja söknuðurinn, hugsanirnar og minningarnar sem ylja. Við átt- um samleið um langan tíma, bún- ar að vera vinkonur frá barnæsku og á þeim tíma höfum við átt svo ótal góðar stundir sem hafa skap- að minningar. Ég sakna þín meira en orð fá lýst. Eina huggun mín er sú að þú sért í faðmi for- eldra þinna sem þú saknaðir svo óskaplega. Mig langar að segja svo margt, okkar tími saman var ekki búinn, andlát þitt ekki tímabært. Þú varst besta og elsta vinkona mín, við þurftum sjaldan orð til að skilja hvor aðra. Við áttum svo mörg lífsskeið saman í gleði og sorg. Það feta fáir í þín fótspor hvað varðar elju og þrautseigju og fáir hafa þurft að takast á við jafn krefjandi verkefni og þú og þín fjölskylda. Það var aldrei lognmolla hjá okkur, alltaf fundum við okkur eitthvað að gera, misgáfulegt eins og gengur. Við fórum líka saman ógleymanlegar ferðir inn- an- og utanlands. Á unglingsárum og lengi fram eftir spiluðum við heilu kvöldin og næturnar. Óli og Sævar þoldu sjaldan að spila á móti okkur – sögðu að við svindluðum - en sú var ekki raunin. Við þekktum hvor aðra svo inn og út að við gát- um til að mynda með einu bog- astriki á blað í Pictionary myndað bogabrúna yfir í Vaglaskóg. Eftir slíka frammistöðu neituðu þeir að spila meira við okkur. Elsku Sóley. Ég var og er svo endalaust stolt af afrekum þínum og vegferð, ég er þakklát fyrir að hafa fengið tækifæri til að segja þér það. Eftir standa börnin þín þrjú sem þú varst svo stolt af, þeirra missir er mikill. Elsku Aldís, Sindri, Þorsteinn og systkini, Höddi, Halldór, Ása og aðrir að- standendur, megi allar góðar vættir styrkja ykkur í sorginni. Elsku vinkona, takk fyrir allt og allt. Þín Alda Stefánsdóttir. Sóley Magnúsdóttir AKUREYRARKIRKJA | Guðsþjónsta kl. 11. Prestur er Sindri Geir Óskars- son. Sönghópurinn Synkópa syngur. Organisti er Eyþór Ingi Jónsson. Sunnudagaskóli í Safnaðarheimilinu kl. 11. Umsjón Sonja Kro og Jón Ágúst Eyjólfsson. ÁRBÆJARKIRKJA | Fjölskylduguðs- þjónusta kl. 11. Brúðuleikhús, Bibl- íusaga og söngur. Sr. Petrína Mjöll Jó- hannesdóttir, Ingunn Björk Jónsdóttir djákni og Anna Sigríður Helgadóttir þjóna. Aðalheiður Þorsteinsdóttir leik- ur á flygilinn. Kaffi og spjall eftir stund- ina. ÁSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Séra Sigurður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Sunnudagaskól- inn hefst á ný eftir jóla- og áramótahlé. Jóhanna María Eyjólfsdóttir djákna- kandídat annast samverustund hans ásamt Ingu Steinunni Henningsdóttur. Félagar úr Kór Áskirkju leiða sönginn. Organisti Bjartur Logi Guðnason. Kaffisopi og safi eftir messu. BESSASTAÐAKIRKJA | Fjölskyldu- guðsþjónusta kl. 11. Öll börn á Álfta- nesi fædd árið 2014 eru sérstaklega boðin velkomin. Umsjón með stund- inni hafa sr. Hans, Ástvaldur organisti, Sigrún Ósk og hljómsveitin Lærisvein- ar hans. Kaffi í Holtakoti að stund lok- inni. Sameiginleg guðsþjónusta eldri borg- ara í Garðaprestakalli og Víði- staðasókn í Vídalínskirkju kl. 14. Gafl- arakórinn, organisti er Helga Þórdís Guðmundsdóttir, sr. Bragi Ingibergs- son þjónar fyrir altari. Kirkjukaffi, Garðálfarnir syngja. BÚSTAÐAKIRKJA | Barnastarf kl. 11. Daníel og Sóley Adda leiða stund- ina. Hressing eftir samveruna. Guðs- þjónusta kl. 11. Sr. Eva Björk Valdi- marsdóttir prédikar og þjónar ásamt sóknarpresti og messuþjónum. Org- anisti: Jónas Þórir. Trompetleikari: Gunnar Kristinn Óskarsson. Ein- söngur: Gréta Hergils Valdimarsdóttir, Vox Gospel og Barnakór kirkjunnar syngur undir stjórn Þórdísar Sævars- dóttur. Þetta er útvarpsmessa og því er messutíminn kl. 11 en ekki 14. Heitt á könnunni eftir messu. DIGRANESKIRKJA | Fjöl- skyldumessa kl. 11 í Hjallakirkju. Við syngjum saman og sjáum leikrit. Messan er í umsjá presta Digra- neskirkju og Hjallakirkju ásamt leið- togum barnastarfsins og organisti er Kristján Hrannar. Að messu lokinni verður boðið upp á hádegisverð þar sem við bjóðum ferm- ingarbörn og foreldra velkomin. Messan er sameiginleg fyrir Hjalla- kirkju og Digraneskirkju. DÓMKIRKJA Krists konungs, Landakoti | Messa á sunnud. kl. 8.30 á pólsku, kl. 10.30 á íslensku, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku. Virka daga kl. 18, og má. mi. og fö. kl. 8, lau. kl. 18 er vigilmessa. DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Séra Sveinn Valgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari. Dómkórinn syngur og Kári Þormar er organisti. FELLA- og Hólakirkja | Fjölskyldu- guðsþjónusta kl. 11 í umsjá sr. Jóns Ómars, Mörtu og Ásgeirs. Meðhjálpari er Kristín Ingólfsdóttir. Kaffi og djús eftir stundina. FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnu- dagaskóli kl. 11. Guðsþjónustua kl. 13. Fermingarstarfið hefst að nýju og eru fermingarbörn og foreldrar hvattir til þess að mæta. GLERÁRKIRKJA | Messa og sunnu- dagaskóli kl. 11. Sameiginlegt upphaf í messu. Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar. Kór Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Valmars Väljaots org- anista. Umsjón með sunnudagaskóla: Sunna Kristrún djákni. GRAFARVOGSKIRKJA | Messa kl. 11. Séra Grétar Halldór Gunnarsson þjónar og prédikar. Organisti er Hákon Leifsson og Kór Grafarvogskirkju leiðir söng. Sunnudagaskóli á neðri hæð kirkj- unnar kl. 11. Umsjón hefur Þóra Björg Sigurðardóttir og Hólmfríður Frosta- dóttir. Undirleikari er Stefán Birki- sson. GRAFARVOGUR – kirkjuselið í Spöng | Selmessa kl. 13. Séra Grétar Halldór Gunnarsson prédikar og þjón- ar. Organisti er Hilmar Örn Agnarsson og Vox Populi leiðir söng. GRENSÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Bjarni Gíslason, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar, prédikar í til- efni af 50 ára starfsafmæli Hjálp- arstarfsins. Sr. María G. Ágústsdóttir þjónar ásamt messuhópi og ferming- arfjölskyldum. Organisti er Ásta Har- aldsdóttir og Vox Feminae annast sönginn. Málverk Sigrúnar Sigurð- ardóttur til sölu til styrktar Hjálpar- starfi kirkjunnar, næstsíðasta sýning- arhelgi. Messukaffi. Þriðjudagur: Kyrrðarstund kl. 12. Fimmtudagur: Nú- vitundarstund í kapellu kl. 18.15- 18.45. GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Guðsþjónusta og barnastarf kl. 11. Prestur er Karl V. Matthíasson. Kamm- erkór Mosfellsbæjar syngur undir stjórn Símonar Ívarssonar, organisti er Hrönn Helgadóttir. Barnastarf í Safnaðarheimili í umsjá Péturs Ragn- hildarsonar, Pétur verður í barnastarf- inu. Kirkjuvörður er Lovísa Guðmunds- dóttir, kaffisopi í boði eftir messuna. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Sameigin- legt upphaf. Félagar úr Barbörukórn- um syngja. Organisti er Guðmundur Sigurðsson. Prestur er Þórhildur Ólafs, leiðtogi sunnudagaskólans er Bylgja Dís Gunnarsdóttir, henni til að- stoðar er Jasper. Kaffi og kex í Ljós- broti Strandbergs eftir stundirnar. Miðvikudagur 15. janúar: Morgun- messa kl. 8.15. Léttur morgunverður í Odda safnaðarheimili Strandbergs eft- ir messu. HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Sr. Irma Sjöfn Ósk- arsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mót- ettukór Hallgrímskirkju syngja. Org- anisti er Björn Steinar Sólbergsson. Umsjón barnastarfs: Ragnheiður Bjarnadóttir og Rósa Árnadóttir. Bænastund mánud. kl. 12.15. Fyrir- bænaguðsþjónusta þriðjud. kl. 10.30. Árdegismessa miðvikud. kl. 8. Kyrrð- arstund fimmtud. kl. 12. HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Séra Helga Soffía Konráðsdóttir pré- dikar og þjónar fyrir altari. Kordía, kór Háteigskirkju syngur. Organisti er Kristín Jóhannesdóttir. Samskot dags- ins renna til Hjálparstarfs kirkjunnar. HJALLAKIRKJA Kópavogi | Fjöl- skyldumessa kl. 11. Syngjum saman og sjáum leikrit. Messan er í umsjá presta Digraneskirkju og Hjallakirkju ásamt leiðtogum barnastarfsins, org- anisti er Kristján Hrannar. Að messu lokinni verður boðið upp á hádegisverð þar sem við bjóðum ferm- ingarbörn og foreldra sérstaklega vel- komin til samtals. Messan er sameiginleg fyrir Hjalla- kirkju og Digraneskirkju. HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Samkoma kl. 11. Service. Translation into English. Samkoma á ensku kl. 14. English speaking service. Sam- koma á spænsku kl. 16. Reuniónes en español. Samkoma Fíló+ kl. 20. KEFLAVÍKURKIRKJA | Messa kl. 11, á sama tíma hefst barnastarfið. Séra Fritz Már þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Kór Keflavíkurkirkju leiðir söng undir stjórn Arnórs Vil- bergssonar organista. Helga, Jóhanna og Ingi sjá um sunnudagaskólann. Súpusamfélag er í Kirkjulundi í kjölfar stundarinnar. Miðvikudaginn 15. janúar kl. 12 er kyrrðarstund í Kapellu vonarinnar. Súpa í boði í Kirkjulundi. KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Sigurður Arnarson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogs- kirkju syngur undir stjórn Lenku Má- téová, kantors. Sunnudagaskólinn hefst á ný eftir jólafrí kl. 11 í safn- aðarheimilinu Borgum. Mál dagsins hefst að afloknu jólafríi þriðjudaginn 14. janúar nk. kl. 14.30. LANGHOLTSKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Léttur hádeg- ismatur að messu lokinni. Guðbjörg Jóhannesdóttir sóknarprestur þjónar, Magnús Ragnarsson er organisti og Sönghópurinn Cantoque syngur. LAUGARNESKIRKJA | Fjölskyldu- guðsþjónusta kl. 11 með þátttöku ungleiðtoga úr æskulýðsstarfi kirkj- unnar. Sr. Davíð Þór Jónsson leiðir stundina. Kaffi og samvera í safn- aðarheimilinu á eftir. Miðvikudagur 15.1. kl. 10-12. For- eldrasamvera í safnaðarheimilinu. Fimmtudagur 16.1. kl. 12. Sameig- inleg kyrrðarstund Laugarnes- og Ás- sókna í Áskirkju. Opið hús á eftir. Hásalurinn Hátúni 10 kl. 4. Helgi- stund með sr. Davíð Þór Jónssyni. LÁGAFELLSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11, sr. Ragnheiður Jónsdóttir þjón- ar fyrir altari. Aðalbjörg Egilsdóttir, líf- fræðingur og fulltrúi unga fólksins á loftslagsráðstefnunni í Madríd, heldur ræðu. Kirkjukór Lágafellssóknar syng- ur og leiðir söng undir stjórn Þórðar Sigurðarsonar organista. Kirkjuvörður er Bryndís Böðvarsdóttir. Sunnudagaskóli kl. 13 í umsjá Berg- lindar Hönnudóttur og Þórðar Sigurð- arsonar. Sjá www.lagafellskirkja.is LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnu- dagaskóli kl. 11. Messa kl. 20. Kór Lindakirkju syngur undir stjórn Óskars Einarssonar. Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson þjónar. NESKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti er Steingrímur Þórhallsson. Prestur er Skúli S. Ólafsson. Söngur og gleði í sunnudagaskólanum. Um- sjón Margrét Heba Atladóttir, Gunnar Th. Guðnason, Árni Þór Þórsson og Ari Agnarsson. Samfélag og kaffisopi eft- ir messu á Torginu. NJARÐVÍKURKIRKJA Innri- Njarðvík | Kvöldsamvera kl. 20. Gestafyrirlesari. ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Messa sunnudag kl. 14. Fjölskyldumessa, tónlist við hæfi unga fólksins og barnanna. Séra Pétur Þorsteinsson þjónar, Kristján Hrannar stjórnar hljómlist og kór. Barnastarf og maul eftir messu. Messugutti er Petra Jóns- dóttir og Ólafur Kristjánsson mun taka vel á móti kirkjugestum. SALT kristið samfélag | Sameig- inlegar samkomur Salts og SÍK kl. 17 alla sunnudaga í Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58-60. Barnastarf. Túlkað á ensku. SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta kl. 11. Jóhanna Elísa og Erla Björg leiða stundina. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Jón Ómar Gunnarsson prédikar, Kór Seljakirkju leiðir söng. Organisti er Tómas Guðni Eggertsson. SELTJARNARNESKIRKJA | Fræðslumorgunn kl. 10. Kristján 10. og dagbækur hans. Borgþór V. Kjærnested, leiðsögumaður og túlkur, talar. Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11. Hljómsveitin Sóló kemur í heim- sókn og leikur í athöfninni. Sóknar- prestur þjónar. Organisti kirkjunnar leikur á orgelið. Leiðtogar sjá um sunnudagaskólann. Félagar úr Kammerkór Seltjarneskirkju leiða al- mennan safnaðarsöng. Kaffiveitingar eftir athöfn í safnaðarheimilinu. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa sunnudag kl. 11. Sr. Egill Hall- grímsson annast prestsþjónustuna. Organisti er Jón Bjarnason. VÍDALÍNSKIRKJA | Sunnudaga- skólahátíð kl. 11. Leikkonurnar Ást- hildur Úa Sigurðardóttir, Berglind Halla Elíasdóttir og Steinunn Arin- bjarnardóttir flytja leikritið Vitringarnir snúa aftur heim eftir Matthildi Bjarna- dóttur. Barnakórar Vídalínskirkju syngja. Sameiginleg messa Víðistaða- sóknar og Garðaprestakalls kl. 14. Sr. Bragi Ingibergsson prédikar og sr. Hans Guðberg Alfreðsson, sr. Henning Emil Magnússon og Margrét Gunn- arsdóttir djákni þjóna. Gaflakórinn. Kaffi í safnaðarheimilinu. Garðálfarnir syngja. Orð dagsins: Þegar Jesús var tólf ára. (Lúk. 2) Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Reykjahlíðarkirkja.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.