Morgunblaðið - 11.01.2020, Side 36

Morgunblaðið - 11.01.2020, Side 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2020 Vilhjálmur Einarsson 2012, þá á Eyjafjarðarsvæðinu, og gistum úti á Árskógsströnd ásamt fleirum í skjóli Sveins frá Kálfskinni. Vilhjálmur Einarsson var ein- stakt ljúfmenni, frábærlega hjartahlýr og vinur vina sinna. Hæfni hans lá á mörgum sviðum eins og vikið hefur verið að. Gerði, sonum þeirra og öðrum vandamönnum eru hér með sendar einlægar samúðarkveðj- ur. Blessuð sé minning Vil- hjálms Einarssonar. Björn Teitsson. Vilhjálmur Einarsson er allur. Aðrir munu verða til að skrifa um hann sem afreksmann í íþróttum, kennslumálum, upp- eldismálum, félagsmálum og sem listamann og glæsimenni. Ég kenndi undir honum við Menntaskólann á Egilsstöðum, veturinn 1980-1981, félagsfræði, sögu og ensku, er ég var nýkom- inn heim frá mannfræðinámi í Kanada. Nú, um starfsævi síðar, sé ég gleggra, við vinnu mína við umönnun á dvalar- og hjúkrun- arheimili, að hann hefði ekki getað gert allt þetta án þess að vera að eðlisfari sérlegt góð- menni, víðsýnn, umburðarlynd- ur, velviljaður, menntaður og hæfileikaríkur. Ég vil að lokum kveðja hann með dæmigerðum vísum frá mér sem kennara og skáldi. Eru þær opnunarorðin í kvæði sem heitir Bæjarferð frændsystkinanna, og er látið gerast í Grikklandi hinu forna; á gullöld Aþenuborgar. Þar eru heimasæta og ungur hermaður að ræða framtíðar- horfur sínar. Ferst þeim þar svo í byrjun: Létt í spori, sem um vor sentust frændkyn ungu: hún með glettum hafði þor, saman kvæðin sungu. Frækinn kappinn tók til máls: Þetta vil ég sverja: þótt ég falli senn til stáls, minning þín mun verja. Tryggvi V. Líndal. Vilhjálmi Einarssyni var margt og mikið gefið. Hann var afreksmaður í íþróttum og fyrst- ur Íslendinga til að komast á verðlaunapall á Ólympíuleik- unum. Hann málaði myndir og samdi lög á gítarinn sinn. En mestu varðaði þó að hann var búinn flestum þeim kostum sem prýða bestu manneskjur; vand- aður til orðs og æðis, hlýr í við- móti, umhyggjusamur og um- burðarlyndur. Vilhjálm sá ég í fyrsta sinn á haustdögum 1977 þegar ég hóf nám í Héraðsskólanum í Reyk- holti. Hann heilsaði öllum nem- endum skólaársins með handa- bandi og bauð okkur velkomin. Hvorugur okkar vissi þá að hann yrði senn ráðinn fyrsti skólameistari Menntaskólans á Egilsstöðum og að við, 11 nem- endur úr Reykholti, myndum tveimur árum seinna fylgja hon- um þangað og verða í hópi fyrstu stúdentanna sem þar voru brautskráðir. Ég kynntist Vilhjálmi vel á þessum námsárum mínum því ég sat í ýmsum ráðum og nefnd- um sem kölluðu á samskipti við skólameistara. Það var gott að eiga við hann. Tók hann öllum hugmyndum vel og var ævinlega reiðubúinn að styðja nemendur sína til góðra verka, jákvæður og hjálpfús. Vilhjálmur átti mestan þátt í að gera Héraðsskólann í Reyk- holti að virðulegri og vinsælli menntastofnun þar sem mann- gildi voru í hávegum höfð. Það tókst honum með fulltingi góðs starfsfólks. Vilhjálmi var ekki einungis annt um að skólinn menntaði nemendur sína vel heldur skilaði einnig góðum og heilbrigðum einstaklingum út í lífið aftur. Íþróttauppeldi og annað félagsstarf fékk af þess- um sökum mikið vægi. Á föstudögum kallaði skóla- stjóri nemendur og kennara á sal. Þaðan eigum við mörg bestu svipmyndina af Vilhjálmi. Þar situr hann með gítarinn sinn og syngur kvæði Davíðs Stefáns- sonar: Hvaðan komu fuglarnir? við lag eftir sjálfan sig. Hann lék fleiri lög og fékk okkur til að syngja með á milli þess sem hann talaði við okkur um lífsins gagn og nauðsynjar og kom ýmsum skilaboðum á framfæri. Hann var ekki bara skólastjóri heldur einnig góður prédikari. Ég er, líkt og margir nem- endur Vilhjálms, þakklátur fyrir að hafa kynnst honum og átt með honum samleið um árabil. Ég minnist hans með mikilli virðingu og hlýju. Þar fór vand- aður og góður drengur sem öll- um vildi vel og var fljótur að koma auga á hið besta í hverri manneskju. Íslensk þjóð hefur nú misst einn af sínum bestu sonum. En mestur er þó missir fjölskyld- unnar. Megi allar góðar minn- ingar hugga og styrkja. Vil- hjálmur hefur nú haldið til Sumarlandsins fagra þar sem aldrei bregður himneskri birtu. Héðan fylgja honum allar þær fegurstu hugsanir og hið dýpsta þakklæti sem mannlegur hugur getur tjáð! Eðvarð Ingólfsson. Kveðja frá Samtökum íslenskra ólympíufara Vilhjálmur Einarsson er einn mesti afreksmaður Íslands í frjálsum íþróttum. Íslandsmet Vilhjálms í þrístökki, 16,70 m, sett 1960 stendur enn 60 árum síðar en þá jafnaði Vilhjálmur heimsmetið í þrístökki! Fimm sinnum var Vilhjálmur valinn íþróttamaður ársins! Á Ólympíuleikunum 1956 í Melbourne í Ástralíu gerði Vil- hjálmur sér lítið fyrir og setti ól- ympíumet í þrístökki, 16,26 m, en Brasilíumaðurinn da Silva sló það í sínu síðasta stökki með 16,35 m. Silfurverðlaun Vil- hjálms fylltu okkur Íslendinga miklu stolti 12 árum eftir sjálf- stæði okkar og hvöttu íþrótta- fólk okkar til dáða. Þess skal getið að Vilhjálmur fór til Melbourne án þjálfara síns. Þeir voru bara þrír í hópnum. Ásamt Vilhjálmi fóru spretthlauparinn Hilmar Þorbjörnsson og farar- stjórinn Ólafur Sveinsson. Vil- hjálmur keppti einnig á Ólymp- íuleikunum í Róm 1960 og varð í fimmta sæti með stökkinu 16,37 m. Seinna sama ár kom svo risa- stökk Vilhjáms á Laugardals- vellinum, 16,70 m, sem jafnaði heimsmetið! Ljóst er að Vilhjálmur var með ótrúlegan stökkkraft. Hvernig náði hann þessum stökkkrafti? Var hann með hóp velmenntaðra þjálfara og sjúkra- liða og flotta íþróttaaðstöðu. Ekki er hægt að segja það. Sagt er að kraft sinn hafi hann fengið sem ungur maður í erfiðri bygg- ingarvinnu með því að keyra hjólbörur með blautri steypu all- an daginn og bera þunga sem- entpoka. En að sjálfsögðu æfði hann einnig hlaup, stökk og lyft- ingar. Einn af okkar tugþraut- armönnum, Elías Sveinsson, var spurður af blaðamönnum á Ól- ympíuleikunum 1976 í Montreal hvort Íslendingar styddu ekki vel við sína afreksíþróttarmenn. Hann svaraði kurteislega að svo væri nú ekki en honum væri reddað plássi á togara öðru hvoru! Nú er öldin önnur. Afreks- íþróttafólk okkar fær ekki lík- amsstyrk sinn með erfiðisvinnu á togara, byggingar- eða vega- vinnu! Heldur með þrotlausum styrktar- og tækniæfingum und- ir stjórn hæfra þjálfara. Afreks- fólk okkar í sundi og fimleikum æfir fjóra tíma á dag sex daga vikunnar. Við Íslendingar erum stoltir af íþróttaafrekum Vilhjálms og ættum að minnast hans á veg- legan hátt með því að stuðla að bættri aðstöðu ungs afreksfólks til að stunda íþróttir af krafti og án áhyggja af fjármálum sínum og fjölskyldunnar meðan á keppnisferli þeirra stendur og þegar þau hætta keppni. Von- andi munu einhver þeirra standa á verðlaunapalli á Ólympíuleik- um eins og Vilhjálmur Einars- son og fylla okkur ánægjulegu þjóðarstolti! Íþróttaleiðtoginn Benedikt G. Waage sagði að eitt af mark- miðum íþróttahreyfingarinnar væri að gera drengi að mönnum og menn að góðum drengjum. Vilhjálmur Einarsson var heið- ursmaður og svo sannarlega drengur góður. Vilhjálmur var óumdeildur leiðtogi á sviði íþrótta- og skólamála. Við í Samtökum íslenskra ól- ympíufara kveðjum félaga okkar Vilhjálm Einarsson með virð- ingu og vottum eiginkonu hans Gerði Unndórsdóttur og sonum þeirra hjóna; Rúnari, Einari, Garðari, Hjálmari og Sigmari svo og fjölskyldum þeirra og vin- um okkar innilegustu samúð. Minningin um ólympíufarann og afreksmanninn Vilhjálm Einars- son lifir! Jón Hjaltalín Magnússon. Það er skrýtið að hugsa til þess að fyrir fáum vikum sat ég hjá afa að skrifa niður lögin hans en nú sé hann horfinn. Það var alltaf gaman að vera með afa og fylgjast með því sem hann gerði og ævintýralegt að koma í hús afa og ömmu í Út- garði 2 á Egilsstöðum, inni á milli trjánna sem þau ræktuðu sjálf, með kjallarann með risa- stóra heita pottinum beint á ál- faklöppinni og hömrunum fyrir ofan húsið. Afi gaf sig að okkur barnabörnunum og talaði mikið við okkur, lék, söng og spann sögur. Bollurnar hans voru líka ljúffengar. Afi málaði mikið og það var fastur liður að prófa að mála hjá honum. Hann vildi sýna mér al- vörutækni, enda hafði hann lært af Kjarval og í háskóla. Afi var mjög listfengur og spilaði líka á gítar og samdi lög við mörg ljóð. Hann var rómantískur í hugsun og hafði smekk fyrir list sem dró fram fegurð náttúrunnar og til- finningar og kjör mannanna. Hann hafði líka djúpa ást á land- inu sem sést á myndefni hans og ljóðavali. Hann hreykti sér aldrei af listinni, en fyrir honum átti hún að auðga daglegt líf og hvetja til dáða. Hann flutti lög sín, eða, eins og hann hugsaði það e.t.v. frekar, ljóð skáldanna, og andi skáldsins var þá fluttur inn í stofuna eins og fjöllin á veggina. Lögin eru mörg þekkt í fjöl- skyldunni og hafa oft verið sung- in á mannamótum. Amma söng stundum með afa, t.d. lagið Uppi á brekkubrún við texta afa. Und- anfarið hef ég skráð lög afa eftir honum, sum kunnugleg, önnur óflutt. Því miður náðist ekki að klára verkið áður en afi dó, en afi var feginn að ná að rifja upp með mér lög sem annars hefðu gleymst. Við afi fórum saman í sund, í bústaðinn sem afi byggði við Skrugguvatn og að Haugatjörn- um að veiða með augu fyrir beitu! Afi var nýtinn, brenndi t.d. mjólkurfernur í arninum og lét það ekki á sig fá þótt matur væri gamall og ókræsilegur og virtist ekki hljóta illt af heldur. Bústaðurinn á Skrugguvatni var einfaldur í sniðum, enda hefur afa fundist þar vera lúxus hjá því sem var í kofanum hjá Kjar- val forðum. Eitt sinn fórum við að kaupa bíl og ég fann Mitsubishi L300 útbúinn sem húsbíl, mjög spenn- andi að mér fannst. Afi var efins en sannfærðist þar sem ég sótti það fast og keypti bílinn! Ég undrast að afi hafi látið mig ráða þessu, en bíllinn reyndist vel. Það var dýrmætur tími þegar við afi gistum í Hveragerði er hann hélt sýningu í Eden sum- arið 1998 og sváfum í tjaldvagn- inum, sem afi hafði notað til að flytja málverkin að heiman. Fyr- ir svefninn var afi auðvitað tilbú- inn með langa loftnetssnúru til að ná heimsfréttum á stuttbylgj- unni, sem hann sofnaði gjarnan við. Hann fylgdist vel með heimsmálum og hafði oft áhyggj- ur af þeim. Afi lét sig okkur varða, þótti vænt um sitt fólk, land og þjóð og heiminn sinn og sýndi það með umhyggju fyrir fjölskyld- unni og ötulu starfi í þágu sam- félagsins, einkum uppbyggingu ungmenna. Fyrir allar þær yndislegu stundir sem ég hef átt með afa þakka ég Guði og bið að minning afa vaki meðal okkar sem þekkt- um hann og barna okkar og að við megum um síðir hitta hann aftur og syngja með honum í ei- lífðarríkinu. Kristján Rúnarsson. Villi Einars frændi hefur ver- ið í lífi mínu frá því ég man eftir mér. Ég var fjögurra ára þegar hann heimsótti frænku sína og okkur pabba á Njálsgötuna, ný- kominn frá Melbourne. Hávax- inn og bjartur færði þjóðhetjan litlu fjölskyldunni minjagrip – bláan ólympíuöskubakka sem fylgdi búslóðinni lengi og ég stúderaði af kostgæfni. Svo leið tíminn. Leiðir okkar Villa lágu þétt saman næstu árin; á Egils- stöðum, í sumarbúðum hans í Hveragerði og Reykholti. Frændi minn treysti mér fyrir stóru hlutverki í kynningar- kvikmynd sinni um sumarbúð- irnar, sem var meira að segja sýnd í Tjarnarbíói. Það var á Egilsstöðum sem Villi varð minn fyrsti vinnuveit- andi, þegar hann réð okkur Baldur frænda okkar sem hjól- böruekla fyrir sand í rörasteypu sem Villi stýrði. Við frændur, þá sjö og átta ára, vorum í akkorði og fengum 25 aura á hverjar börur, sem okkur þótti töluverð uppgrip. Það var alltaf kraftur í lofti þar sem Villi var og hann og Gerður höfðu mikil og langvar- andi áhrif á ungan frænda. Ófá- ar heimsóknir í fallega húsið á Egilsstöðum, þar sem bæði var rætt og sungið, ylja mér enn um hjartaræturnar. Ein heimsóknin skar sig þó frá hinum. Hinn íslenski Þursa- flokkur var á hljómleikaferðalagi í febrúarmánuði 1982. Á Egils- stöðum bættust í hópinn Ágúst Guðmundsson kvikmyndaleik- stjóri og undirritaður, til að skeggræða gerð kvikmyndar í burðarliðnum. Veður voru vá- lynd og ófært á tónleikabæinn Seyðisfjörð þennan dag. Ákveðið var að aka rakleiðis um Fagra- dal og svo ströndina, suður í Hornafjörð, í Skógaskóla og svo til Reykjavíkur. Skyndilega varð ljóst að enginn kassagítar var með í för. Ég fór beint til Villa og Gerðar og falaði heimilisgít- arinn í nokkra daga og svo flygi hann austur aftur. Villi var ekki heima og Gerður fól mér gít- arinn, sem alla jafna var óspart notaður á heimilinu. Þetta hefðu ekki allir gert. Það skipti engum togum að um leið og rútan rann úr hlaði var tekið til óspilltra málanna að gera atlögu að tónlist fyrir kvik- myndina sem til stóð að gera á sumri komanda. Ég greip gítar frænda míns í fang um leið og ákveðið var að semja lag og texta um franskar kartöflur og kokteilsósu. Til að gera langa sögu stutta slitnaði strengur í gítarnum þegar ekið var framhjá Rauðavatni þremur dögum síð- ar. Villagítarinn skilaði einum fimm eða sex lögum sem urðu hluti af tónlistarhryggstykki Með allt á hreinu. Það síðasta var samið á Mýrdalssandi og heitir Slá í gegn. Takk Gerður og Villi! Þessi lög hefðu ekki orðið til eins og þau urðu, nema fyrir gít- arinn góða sem mér var treyst fyrir þennan svala febrúardag. Við Ásta Kristrún hittum Villa og Gerði á síðasta vori í Hvera- gerði þegar sonur þeirra Garðar Vilhjálmsson kom þangað á tón- leika hjá okkur. Eins og alltaf urðu fagnaðar- fundir og við minntumst upphafs skólunar minnar hjá honum sem var einmitt í Hveragerði. Á tón- leikunum söng ég „Vorið kemur, heimur hlýnar hjartað mitt“ fyr- ir minn góða frænda og grunaði ekki að ég ætti eftir að syngja það fyrir hann síðasta sinn í Hallgrímskirkju. Valgeir Guðjónsson. Það er sérkennilegt að missa föður sinn. Sorgin er mikil. En sorg við missi á öldruðum föður getur ekki verið slæm. Maður syrgir af því maður saknar. Og maður saknar aðeins þeirra sem reynst hafa manni vel. „Það já- kvæða við að missa sinn föður er að maður gerir það bara einu sinni gæskur.“ Eitthvað þessu líkt hefði pabbi sagt mér nú til huggunar. Pabbi var einstaklega ráðagóður og sá tvær hliðar á flestu. Ráðagóður án þess að vera ráðríkur. Þegar ég kom í heiminn var pabbi 39 ára skólastjóri, hættur í keppnisíþróttum rúmum áratug fyrr og ekki man ég eftir pabba oft í íþróttagalla. Þrátt fyrir glæstan íþróttaferil og að hafa sjálfur gengið menntaveginn var ekki lagt að mér að feta í þau fótspor. Manni voru lagðar lífsregl- urnar á mjög svo almennum nót- um. Þessi skilyrðislausa ást og væntumþykja pabba er ein mín verðmætasta gjöf. Myndlist var pabba hugleikin og eftir hann liggja falleg verk. Hann lék á gítar og samdi lög, og þá aðallega við þekkt ljóð annarra en hann skilur einnig eftir sig ágætar vísur. Í allmörg ár upp úr 1980 sá hann um fast- an viðtalsþátt í Ríkisútvarpinu, „Úr Austfjarðaþokunni“. Hann skrifaði nokkrar bækur og gaf m.a. út „Silfurmanninn“ sem er eigin saga af íþróttaferlinum. Og einhvern veginn tókst honum að baka heimsins bestu heilhveiti- bollur án þess að fara eftir upp- skrift. Eftir stendur minning sonar um listmálara, bakara o.fl., fremur en minning um íþrótta- hetju. Í seinni tíð er sterkasta minningin hve mikla natni hann sýndi sonum mínum. Fáa hef ég hitt sem eru jafn vel inni í heimsmálum líðandi stundar og pabbi var. Hann nálgaðist álita- og hitamál af mikilli yfirvegun. „Það eru tvær hliðar á öllum málum gæskur,“ sagði hann gjarnan þegar ég varð uppvís að sleggjudómum. Pabbi var maður rökhyggju, hann leitaði að kjarna máls og niðurstaðan sjaldnast kippt og skorin. Árið 1954 heldur pabbi til náms í Dartmouth College í New Hampshire-ríki í Banda- ríkjunum, þá tvítugur að aldri, og lauk þaðan BA-prófi í lista- sögu tveimur árum síðar. Þessi ár voru tími umróts í Bandaríkj- unum; pólitískar ofsóknir McCarthyismans í hámarki og aðskilnaðarstefnu kynþáttanna framfylgt af hörku. Það var ekki fyrr en hin síðari ár að ég fór að velta því fyrir mér að hve miklu leyti lífssýn pabba hefði mótast af námsárum hans í Bandaríkjunum. Pabbi jánkaði því nýverið að námsárin ytra hefðu mótað hans sýn á til- veruna, en bætti við að keppn- isferðirnar sem fylgdu í kjölfar- ið, m.a. til A-Evrópu á tímum kalda stríðsins, hefðu einnig haft áhrif á hann. Þegar Bandaríkin bar á góma nefndi hann stund- um að þar væri það besta í heimi að finna á mörgum sviðum, en einnig margt af því versta. Pabbi var víðsýnn og stökk ekki á vagn síbyljunnar. Pabbi var trúaður maður á sinn hátt. Mikið langar mig að trúa á líf eftir dauðann. Ég veit hvað rökhyggjan segir elsku pabbi minn, en mundu að fátt er klippt og skorið gæskur. Mig styrk í stríði nauða, æ styrk þú mig í dauða. Þitt lífsins ljósið bjarta þá ljómi’ í mínu hjarta. (Páll Jónsson) Hjálmar Vilhjálmsson. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, EINAR MARTEINN ÞÓRÐARSON, sjómaður frá Reykjavík, lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi 4. janúar. Útförin fer fram frá Fella- og Hólakirkju 15. janúar klukkan 15. Helga Sigurðardóttir Brynjar Einir Einarsson Rakel Ósk Hafsteinsdóttir Sigurður Þór Einarsson Sigríður Söebeck Viðarsdóttir Einar Örn Einarsson Birna Dögg Björnsdóttir Sara Björk Einarsdóttir Edvard Börkur Óttharsson Rakel Ýr Einarsdóttir Kolbeinn Kárason og afabörn Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir, sonur og afi, ÖRN FRIÐRIK CLAUSEN, lést mánudaginn 6. janúar á Hrafnistu í Reykjavík. Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 17. janúar klukkan 13. Þeim sem vildu minnast hans er bent á MS-félag Íslands. Helga Theodórsdóttir Þóra Björg Clausen Bjarnólfur Lárusson Ragnar Örn Clausen Þórhildur Ásmundsdóttir Þóra Hallgrímsson Björgólfur Guðmundsson og barnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.