Morgunblaðið - 11.01.2020, Page 38

Morgunblaðið - 11.01.2020, Page 38
38 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2020 Elsku afi. Það er ekki hægt að segja annað en að þú hafir dekrað mig frá því að ég fæddist. Ég var ekki nema þriggja ára þegar þú gafst mér fyrsta bílinn. Það var gamall Runó sem þú lést mömmu hafa svo hún gæti komið með mig sem oftast til þín í sveitina. Við höfum alltaf verið mjög ná- in og það var alltaf ótrúlega auð- velt að biðja þig um aðstoð og þú varst alltaf til í brasa eitthvað með mér. Hvort sem það var að skutla mér landshorna á milli, koma með mér á góða tónleika eða fara í ferðir upp á fjöll „á gula bílnum“. Við erum búin að fara í ófá ferðalögin saman og ég var ekki orðin eins árs þegar ég fór í þá fyrstu „á gula bílnum“ upp í Laugafell. Ég fékk að sjálfsögðu að vera í bílstjórasætinu hjá þér og horfði út um gluggann mestalla leiðina. Einnig er hægt að telja upp fullt af öðrum ferðum eins og t.d. í Landmannalaugar, Þórs- mörk, Akureyri, Vopnafjörð og alla kvöldrúntana sem við fórum í hreppa Skagafjarðar og þú sagðir mér frá hverjum einasta bæ. Það hefur alltaf verið svo gott að koma til þín, elsku afi, og þú tókst alltaf á móti mér með opnum örmum. Þú varst bóndi af líf og sál, þó svo að þú hættir fyrir nokkrum árum og það er svo margt sem þú hefur kennt mér um búskap sem hefur reynst mér vel síðustu sumur, í skólanum og um ókomna tíð. Takk, elsku afi, fyrir allt. Þú varst frábær ferðafélagi, vinur og enn þá betri fyrirmynd. Þín Guðný Ósk. Elsku afi minn. Ég man ennþá eftir öllum ferð- unum sem þú fórst í með mér og þegar þú varst hress og alltaf til í allt. Þú varst alltaf góður við mig og alla og þú vildir alltaf gera gott úr öllu. Takk fyrir allar góðu minningarnar. Þinn nafni, Ragnar Sveinn. Elsku afi minn. Það var svo skemmtilegt að Ragnar Gunnlaugsson ✝ Ragnar Gunn-laugsson fædd- ist 26. febrúar 1949. Hann lést 30. desember 2019. Útför Ragnars fór fram 10. janúar 2020. fara í ferðalög með þér. Það var gaman að fara í göngutúra með þér, við spjölluð- um um svo skemmti- lega hluti. Takk fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig. Þú reyndir alltaf að gera gott úr öllu. Við pössum Týró vel fyrir þig. Þinn afastrákur, Arnar Logi. Elsku afi. Það er erfitt að finna jafn glaðlyndan og góðan mann eins og þig. Sumar af mínum bestu minningum á ég með þér, eins og þegar ég lifði hjá þér í vellysting- um eftir að ég kláraði grunnskóla. Þú lánaðir mér litla Zetorinn þinn til að komast niður á Eyjar að veiða og eldaðir síðan fyrir mig þvílíkar hátíðarsteikur á hverju kvöldi eftir langan veiðidag. Þetta er án efa ein af eftirminnilegustu vikum lífs míns. Og þegar þú mættir með bjúg- un til mín eftir mjaltir þegar ég var að veiða í Kvíslinni. Ég gleymi aldrei þegar ég sá gamla Gul læð- ast niður Geldingaholtið og þú steigst síðan út úr bílnum með eitt og hálft ískalt bjúga og grænar baunir á disk, þvílík veisla! Það er mér líka alltaf ofarlega í minni þegar ég fór í fjósið með þér á morgnana sem gutti og sat á stigbrettinu á gamla Deutzinum meðan þú gafst kúnum þurrhey, díselbrækjan og hávaðinn í gamla strokknum voru eitthvað svo sjarmerandi. Það koma svo margar góðar minningar upp í hugann þegar ég hugsa til þín. Elsku afi, ég á svo erfitt með að hugsa til þess að eiga aldrei aftur eftir að renna í hlað heima í Hátúni og mæta í hátíðarsteik og spjalla við þig yfir kaffibolla eða hringja í þig í tíma og ótíma til að spjalla um allt og ekkert. Þú varst miklu meira en bara afi fyrir mér, þú varst einn af mín- um bestu vinum. Þú kenndir mér svo margt og þú átt svo stóran hlut í þeim manni sem ég er í dag. Ég á eftir að sakna þín meira en orð fá lýst. Ég kom til þín er kuldinn næddi um kalinn vang, þá breiddir þú á móti mér þitt mjúka fang, og þar varð himinhlýtt og bjart í huga mér, því ég las allan unað heims í augum þér. (Sigurjón Sæmundsson) Ég elska þig afi. Þinn vinur, Ólafur Ragnar Garðarsson (tröllabarnið). Mig langar að minnast Ragn- ars frænda míns í Hátúni með nokkrum orðum, þá leiðir skilur. Hann tókst á við sjúkdóm þann er lagði hann að velli langt fyrir ald- ur fram með æðruleysi og karl- mennsku. Kynni okkar Ragnars hófust nokkuð snemma á hans lífsleið eða árið 1961; þá var hann 12 ára og ég 25 ára. Þá var hann í heimavist hjá mér á hótelinu í Varmahlíð, en þar var barnaskóli Seyluhrepps til húsa í 3 ár. Þar var Ragnar í glöðum og góðum barnahópi úr Seyluhreppi, m.a. frænku sinni Ásdísi á Syðra- Skörðugili, Glaumbæjarbörnum – Arnóri, Ólafi og Margréti og fleiri úr hreppnum. Allt frá því ég man fyrst eftir mér í Brautarholti, þá löngu fyrr, hefur staðið traustur frændgarður í Hátúni, mér og mínu ættfólki til halds og trausts, enda náinn skyldleiki við ætt- menni Ragnars. Ragnar gekk í Bændaskólann á Hólum í tvo vetur og upp úr því gerðist hann stórbóndi í Hátúni og bætti jörðina með ræktun og stórbyggingum; fyrirmyndar stórbóndi, sveit sinni og bænda- stéttinni til sóma alla tíð. Manngæska og náungakær- leikur hefur lengi verið til staðar hjá Hátúnsfólki. Má þar nefna fólk sem fékk að dvelja í skjóli þess til lengri og styttri tíma, t.d. ömmu mína Aðalbjörgu, sem bjó í torfhúsi sunnan við gamla bæinn í Hátúni, í áraraðir eftir að hún varð ekkja, í skjóli hjónanna Steinunnar og Jónasar móður- bróður míns. Þá má nefna sr. Hallgrím Thorlacius, sem dvaldi síðustu æviárin í Hátúni, dó 1944, í skjóli Steinunnar og Gunnlaugs sonar hennar; Hjörleifur Sigfús- son, Marka-Leifi, dvaldi síðustu æviárin í skjóli Ólínu og Gunn- laugs. Ég held að Ragnar hafi tekið náungakærleikann í arf frá for- feðrum sínum í Hátúni – eða var þetta kannski ættarfylgja? Var ekki Jón Ósmann, frændi Ragn- ars, ávallt, allt sitt líf, að hjálpa samferðafólki? Eða Steinunn amma hans, sem bjó í kjallaranum í Hátúni eftir að hún missti Jónas, mann sinn, 1939? Hún var búin að rétta mörgum góðan bita, bæði í Hátúni og síðar í Reykjavík; flutti þangað 1947. Kynntist ég, er þetta rita, hvað kökurnar hennar voru góðar, sem hún gaf mér í nesti heim úr skólanum í Hátúni, þá 10 ára, í hópi barna af Langholtinu sem gengu heim að loknum skóla- degi. Ragnar í Hátúni var einn þeirra góðu manna sem samfélag- ið hefur svo mikla þörf fyrir að eiga. Hann tók þátt í og starfaði í ýmsum félögum í sveitinni. Hann var m.a. í áraraðir gjaldkeri í Bún- aðarfélagi Seyluhrepps, var mjög virkur félagi í Lionsklúbbi Skaga- fjarðar, varamaður í hreppsnefnd Seyluhrepps í áraraðir og þá lagði hann Glaumbæjarkirkju og -kirkjugarði til ómælda vinnu í áratugi. Ragnar var mikill áhuga- maður um fornbíla og átti fjöl- marga slíka. Ég vil að lokum þakka þér, Ragnar frændi minn, fyrir mjög góð kynni og traust, svo og sam- starf í ýmsum félögum í sveitinni. Þú varst alltaf tillögugóður og vildir leiða allt til betri vegar; þannig varst þú. Ég og fjölskylda mín vottum Björgu og aðstandendum öllum dýpstu samúð. Minningin lifir um góðan mann. Hafðu þökk fyrir allt, frændi minn. Sigurður Haraldsson. Með þakklæti kveðjum við góð- an vin og frænda í dag. Raggi sá alltaf jákvæðu hliðarnar á öllum málum og glasið hans var alltaf hálffullt en ekki hálftómt sama hvað. Honum var mjög umhugað um samfélagið sem hann bjó í og elskaði sveitina sína og bar hag hennar fyrir brjósti. Hann var góður bóndi og stórhuga í sínum búskap, byggði stórt miðað við þann tíma og ræktaði landið. Þegar við komum í Hátún þá blaut á bak við eyrun hvað kúabú- skap varðar, gerðum við allt eins og Raggi hafði gert og fórum að hans ráðum hvað varðar flest sem tengdist búskapnum. Smátt og smátt fórum við að taka sjálfstæð- ar ákvarðanir og breyta og bæta eins og okkur hugnaðist. Hann var alltaf hvetjandi þótt svo hon- um hafi örugglega ekki alltaf litist á hvað við tókum okkur fyrir hendur. En hann hafði ekki hátt um það við okkur. Hann var ein- staklega hjálpsamur og alltaf til í að aðstoða við öll verkefni. Hann vissi alltaf hvaða verkefni voru fyrirliggjandi í sveitinni og oft fengum við að heyra: „Ég skal taka törn í skítnum“ eða „ég skal slá“ eða „þurfið þið ekki að fara í frí? Ég skal mjólka“. Alltaf var hann boðinn og búinn til að taka til hendinni. „Það er alveg sjálfsagt, ég hef gaman af þessu“ fengum við að heyra þegar við vorum að þakka fyrir okkur. Raggi hafði gaman af gömlum bílum og skemmtilegt á að horfa þegar hann renndi í og úr hlaði þegar hann var að viðra gripina. Hrafni okkar var boðið með á góð- um stundum, 17. júní rúnturinn var ómissandi og háskaferðir á Gul mikið ævintýri. Á gangnadög- um á haustin hafði Raggi það verkefni að fara á vélinni með vagn í fjöllin til að taka upp eft- irlegukindur. Það eru margir sem hafa fengið að sitja í með Ragga á vagninum sér til skemmtunar. Hann var alltaf með heitt kaffi og viskí til að ylja gangnamönnum og voru allir glaðir að hitta Ragga á Hrossastöllunum. Raggi var vel á sig kominn líkamlega og fór í langar gönguferðir niður á Ey- lendið eða upp á tún á hverjum morgni, hundarnir, fyrst Hlunkur og svo Tíró fylgdu með og oft komu þeir félagar við eftir morgungönguna og drukku morgunkaffið með okkur og ræddu heimsmálin eftir gönguna. Það var alltaf notalegt að spjalla við Ragga og hann var þannig þenkjandi að allar hliðar á mál- unum voru ræddar, það var engin einstefna hvað það varðar. Raggi var stoltur af sínu fólki og elskaði að fá fólkið sitt til sín og fara suður yfir heiðar að heim- sækja þau. Það var happ fyrir Ragga að fá Björgu inn í líf sitt og áttu þau vel saman. Það var mikið áfall fyrir Ragga og alla sem að honum stóðu þegar vágesturinn bankaði upp á fyrir tæpum tveim- ur árum. Raggi barðist hetjulega og ætlaði að sigra enda elskaði hann lífið af öllum mætti og vildi lifa. Björg og fjölskyldan hans öll stóðu eins og klettar við hlið hans í baráttunni en því miður hafði krabbameinið betur. Við í Hátúni vottum fjölskyld- unni allri okkar dýpstu samúð. Það verður tómlegra i Hátúni en minningin um góðan frænda og vin lifir. Gunnlaugur, Helga og fjölskylda. Það var ekki búsældarlegt um að litast í Skagafirði vorið 1968 þegar æskuvinirnir Ragnar í Há- túni og Sigmar í Sólheimum riðu heim frá bændaskólanum á Hól- um, fullir eldmóðs að hefja bú- skap. Svalvindar stóðu af hafísn- um sem náði inn í fjarðarbotn og kalár að baki. En þeir sáu tæki- færi í vaxandi vélvæðingu og tækni landbúnaðarins samfara þekkingu, óbilandi dugnaði og bjartsýni. Þarna var Ragnar í Há- túni fremstur meðal jafningja, reisti nýtt íbúðarhús, eitt stærsta fjós Skagafjarðar þess tíma og gerði Hátún á fáum árum að stór- býli í héraði. Sumarið 1986 réð ég mig sem vinnumann í Hátún og varð þess þá fljótlega áskynja hver galdurinn var. Ræktun, heyöflun, meðferð tækja og um- gengni við skepnur. Allt var Ragga í blóð borið, að snyrti- mennskunni ótalinni og vinnu- hagræðingu, ók t.a.m. öllu heyi fram á fóðurganginn á gamla Deutz löngu áður en liðléttingar komu til sögunnar. Í Hátúni bjó Raggi svo að sínu í áratugi eða allt þar til hann seldi Gulla frænda sínum og Helgu Sjöfn jörðina, sinnti að vísu afleysingum og ákveðnum verkum fyrst á eftir og naut þess að sjá ævistarfið í góð- um höndum. Raggi var einstakur maður á alla lund, sem vissi upp á hár hvernig gott samfélag verður til og hvernig á að viðhalda því. Og þar lagði hann heldur betur sitt lóð á vogarskálarnar. Stofnfélagi í Lionsklúbbi Skagafjarðar og að- aldriffjöður hans sem m.a. varð til þess að klúbburinn fékk Land- græðsluverðlaunin fyrir upp- græðslu á Goðdalafjalli. Sóknar- nefndarformaður Glaumbæjarkirkju þar sem ótald- ar vinnustundir liggja við endur- byggingu kirkju og umhirðu garðs enda einlægur trúmaður, kirkjurækinn og því hringjari um langt árabil. Bílaáhuginn varð svo til þess að hann og Agnar á Mikla- bæ hafa í nokkur ár staðið fyrir hópakstri gamalla bíla á þjóðhá- tíðardaginn undir formerkjum „gömlu nefndarinnar“. Með sama hugarfari og hjálpsemi var Ragn- ar ávallt boðinn og búinn til að- stoðar væri til hans leitað. Vélast- úss með Simma, rúningur með okkur Agnari á Miklabæ, girð- ingavinna og sláttur með Jóa bróður. Ræktaði bæði sál og lík- ama með daglegum gönguferðum, oft í félagsskap Jóns bróður síns og hundanna í Glaumbæjartorf- unni. En margar brekkur urðu líka á leið. Sonarmissir og tveir skilnaðir tóku í og þrátt fyrir að Ragnar væri dulur um margt var æðru- leysi, dagfarsprýði og léttleiki hans útgönguleið ásamt sérstak- lega góðu sambandi við fjölskyld- una, foreldra og börn. Eftir að þau Björg rugluðu reytum tók við nýr kafli þar sem þau nutu félagsskap- arins, bæði menningarlega sinn- uð, sóttu skemmtanir og viðburði innan héraðs og utan, ferðuðust erlendis og um firði og fjöll í góð- um félagsskap, eins og sköpuð hvort fyrir annað. Það var svo margt sem Ragnar stóð fyrir og svo margt ógert þegar kallið kom. Að kynnast Ragnari og öllu hinu góða fólki í kringum hann hefur staðið með mér til dagsins í dag og mun gera áfram. Hann kunni að hrósa, hvetja og laða fram það besta í hverjum og einum. Elsku Björg, Finna, Valli, Ragna og fjölskyldur. Megi minn- ingin um gegnheilan sómamann lifa og sefa. Gunnar Rögnvaldsson. Mánudaginn 30. desember síð- astliðinn bárust okkur þær sorg- arfregnir að frændi okkar, Ragn- ar Gunnlaugsson, fyrrverandi bóndi í Hátúni, Skagafirði, væri látinn. Þessi fregn kom okkur ekki á óvart þar sem Raggi, eins og hann var kallaður meðal vina Angantýr Einars- son, elskulegur móð- urbróðir minn, er nú fallinn frá. Hann hafði háð erfiða baráttu við park- insonsjúkdóminn síðustu árin og bar þess greinileg merki þar sem nokkuð mikið var af honum dregið síðustu ár. Síðustu fundir okkar voru síðastliðið sumar á dvalar- heimilinu Hlíð á Akureyri. Honum lá lágt rómur, var smár og hokinn og átti erfitt með gang. Það er harla einkennilegt ævikvöld manns sem var svo kraftmikill og öflugur í öllu því sem hann tók sér Angantýr Einarsson ✝ AngantýrEinarsson fæddist 28. apríl 1938. Hann lést 24. desember 2019. Útför Angantýs var gerð 6. janúar 2020. fyrir hendur alla tíð. Fyrst og fremst átti ég saman við Agga að sælda í æsku minni þegar ég dvaldi löngum í sumarvist á Raufar- höfn eða í Holti í Þistilfirði þar sem við tókum um nokk- urra ára skeið tölu- verðan þátt í sauð- burði og stundum heyskap. Þá fórum við þrír saman ég, Aggi og sonur hans Ásgrímur og dvöldum saman yfir háanna- tímann. Að hafa átt svona mann að fyrirmynd er ómetanlegt. Hann var einstaklega réttsýnn og í minningunni er hann alltaf glað- legur og brosandi. Hann var tón- og listelskur, leikinn á píanó og harmonikku og gott ef ekki gítar. Hann var góður skák- og bridds- maður og ekki man ég eftir því að hafa hitt hraðlæsari mann. Ég á minningu um að hafa horft í undr- un á hann með bók í hendi og flett blaðsíðunum eins og á þeim stæðu ekki meira en 5-10 setningar. Hann var afburðagreindur og næmur á umhverfi sitt. Hann bar virðingu fyrir öllu lifandi og tók hlutina hæfilega alvarlega eins og er sómamanna siður. Sterkasta minning mín af hon- um er þó þegar hann kom í Holt til að vera með mér þegar fregnir bárust af andláti móður minnar fyrir vel rúmlega 30 árum. Hann hafði beðið eftir símtalinu en ég hafði vaknað snemma og stokkið til og svarað. Þegar ég hafði áttað mig á fregnunum tók hann mig í fangið og huggaði. Orðin sem hann sagði komu frá manni sem hafði einstakt hjartalag og djúpan mannskilning og gerðu þessa stund bærilega í minningu minni. Kannski þess vegna græt ég and- lát Angantýs Einarssonar sárar en ég hef vana til. Hann mun alltaf eiga sérstakan stað í hjarta mínu. Þór Steinarsson. Þegar okkur berst andláts- fregn vinar eða samferðamanns um jól eða áramót er því líkast að lifendur skynji næmari hlustum en endranær þau orð Predikarans að „allt hefur sinn tíma“. Svo fór mér þegar Bergþóra, systir Angantýs Einarssonar sem nú er ein eftir fimm systkina sem ég kynntist fyrst og átti samleið með á æskudögum og löngum síð- an með ýmsum hætti, hringdi til mín og sagði mér lát hans aðfara- nótt aðfangadags. Við Óttar bróðir þeirra vorum aldavinir og höfðum fylgst að alla okkar skólagöngu í barnaskóla á Akureyri til stúdentsprófs í MA 1961. Því kynntist ég snemma heimili systkinanna og foreldra þeirra, heiðurshjónanna Einars og Guðrúnar, í barnaskólanum þar sem Einar varð húsvörður 1947. Yngst barnanna voru Hildi- gunnur og Einar Kristján en Kristján afi þeirra var einnig heimilismaður í horninu hjá þeim. Til Akureyrar höfðu hjónin flust með eldri börnin þrjú eftir níu ára búskap á Hermundarfelli og Hagalandi í Þistilfirði. Engum duldist að þar voru átthagar þeirra allra, „sveitin ljúfa í austur- átt“. Og henni og nágrannabyggð- um Norður-Þingeyjarsýslu áttu þeir bræður eftir að helga drjúgan skerf tíma síns og og starfskrafta í fósturlaun á fullorðinsárum. Bragur mennta og menningar ríkti á nýja heimilinu og hafði mótandi uppeldisáhrif. Húsbónd- inn var skáld og rithöfundur, söngur og tónlist voru í hávegum höfð, stökur látnar fjúka og síst af verri endanum. Harmónikuspil létti lund og í pólitískum um- ræðum lá róttækni í loftinu en lagðist þó aldrei yfir sem farg, því húmorblandin náðargáfa og létt- leiki virtist ættarfylgja flestra þar á bæ. Minningar sækja að þegar ég hugsa til þeirra ára sem ég var þar tíðastur gestur og get naumast nefnt annan elstu bræðranna án þess að geta hins. Skaplyndi þeirra var þó ólíkt. Angantýr virt- ist ungur ganga að hverju verk- efni af brennandi óþolinmæði, með eld í augum. Óttar var íhug- ulli, hæglátari, mjúkmótaðri. Fyrsti vetur okkar í MA var síðasti vetur Angantýs þar. Hann var skarpur námsmaður og lauk kennaraprófi 1962. Eftir það varð kennsla og skólastjórn aðalstarf hans á heimaslóðum í Norður- Þingeyjarsýslu auk fjölþættra trúnaðarstarfa í stjórn- og fé- lagsmálum, sýslu- og sveitar- stjórnarmálum. Óttar gerði kennslu og skólastjórn einnig að ævistarfi en víðar um land og sum börn beggja hafa fetað sömu slóð um starfsval. Ótalin eru þó enn ýmis áhugamál og störf Angantýs því hann var líka orgel- og harm- ónikuleikari, trillukarl á Raufar- höfn, grenjaskytta á Langanesi. Saman unnum við að vatnsveitu- lögn í Hlíðarfjalli eitt sumar og vorum samtímis í síld á Raufar- höfn, hann í verksmiðjunni, ég á plani. Og ég man hann með tónkvísl á lofti eitt vorkvöld í árabát á blæ- lygnum Eyjafirði með sól í fjarð- armynni þegar tekið var háa c-ið! Það er einstök æskuminning. Svo liðu árin, fundum fækkaði. Ég frétti af heilsubresti Angantýs og vissi að hann var ekki sami eld- huginn og forðum, skuggar sestir að og ástríðuloginn daufari. Þá er hvíldin góð. Ástvinum hans öllum sendum við Steinunn samúðarkveðjur. Hjörtur Pálsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.