Morgunblaðið - 11.01.2020, Side 42

Morgunblaðið - 11.01.2020, Side 42
42 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2020 ✝ AuðurTryggvadóttir fæddist 25. ágúst 1953. Hún lést 26. desember 2019. Foreldrar henn- ar eru Tryggvi Kristjánsson, f. 31. mars 1931, og Guð- rún Bryndís Egg- ertsdóttir, f. 29. apríl 1932. Systkini Auðar eru Sigríður Tryggvadóttir, f. 26. desember 1957, og Tryggvi Tryggvason, f. 31. júlí 1963. Auður giftist Ólafi Sævari Sigurgeirssyni 8. júlí 1974, f. 10. febrúar 1952, d. 2. febrúar 1995. Börn Ólafs og Auðar eru Arnar, f. 2. ágúst 1979, Harpa Rún, f. 4. janúar 1982, og Hlynur, f. 1. febrúar 1988. Arnar á börnin Úlf og Kolku með Ásbjörgu Unu Björnsdóttur, Harpa á börnin Sögu Eiri og Iðu Karitas með James Weston og Hlynur á börn- in Sylvíu Ýri og Theodór Birni með Elínu Ósk Hjartardóttur. Eftirlifandi sam- býlismaður Auðar er Magnús Ketilsson, f. 29. apríl 1951, hann á fyrir tvo syni: Svein Ingiberg, f. 31. október 1970, og Ró- bert Aron, f. 23. maí 1974, og barnabörn Magnúsar eru Elín Helga, Sveinn Fann- ar, Magnús Ingi og Oliver Einar. Auður bjó allt sitt líf í Reykja- vík, meðal annars á Reynimel og Ásenda. Frá árinu 1983 bjó hún í Hæðargarði 4. Auður útskrifaðist úr Fóstur- skólanum árið 1974 og starfaði ávallt við umönnun barna og fjöl- skyldna, á Dalbraut, Vistheimili barna Hraunbergi og við Stuðn- inginn heim á vegum velferð- arsviðs Reykjavíkurborgar. Útför Auðar fór fram 3. janúar 2020 í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Elsku mamma okkar hefur kvatt okkur. Á þessum erfiðu tím- um flæðir yfir okkur þakklæti yfir þeim yndislegu minningum sem við eigum um hana. Mamma var hógvær, gjafmild og hlý kona. Hún átti góða vini og hélt mikilli tryggð við sitt fólk. Hún tók vel á móti fólki með kaffi, meðlæti og væntumþykju. Hún var ávallt til taks þegar vantaði aðstoð. Síðustu árin var hún dug- leg að búa til múslí og hrökkkex sem hún sendi ástvinum. Mamma passaði alltaf upp á að barna- börnin væru fallega klædd. Hún fór ótal verslunarferðir til að græja fatnað og leikföng fyrir barnabörnin. Henni þótti ótrú- lega vænt um að fá að dekra við þau, leyfa þeim að gista hjá sér og láta þeim líða eins og þau væru eina fólkið sem skipti máli í heim- inum. Mamma var vanaföst og ef henni líkaði við eitthvað þá varð það að hefð. Það var til dæmis alltaf lagt fyrir utan Versló þegar leiðin lá í Kringluna því ökukenn- arinn sagði að það væru fín stæði og minna stress að leggja þar. Með árunum mynduðust fallegar hefðir. Hvort sem það var að fara með barnabörnin í klippingu í Mosfellsbæ, búa til sama jólaísinn á hverju ári eða fara með alla á jólaballið. Mamma okkar var sterk kona þó svo að ýmislegt hefði verið lagt á hana í lífinu. Hún stóð alla tíð á sínu og var alltaf til staðar. Hún gerði allt fyrir okkur og sýndi okkur ást sína með ýmsum hætti. Arnar lék sér ungur mikið í stiganum í Hæðargarðinum. Mamma kom eitt sinn heim eftir langan dag og steig á plastkrókó- díl sem hann hafði skilið eftir. Mamma varð sjaldan reið en í þetta skipti tók hún krókódílinn og fleygði honum í vegg svo hann brotnaði. Morguninn eftir var hún búin að laga krókódílinn með stálbolta og á Arnar hann enn. Hún sagði honum þessa sögu mjög oft til þess að biðjast fyrir- gefningar á skapinu í sér, annars hefði hann sjálfsagt verið búinn að gleyma þessu. Hlynur man að hann var vak- inn alla morgna með heitt kakó í rúmið. Sem yngsta barn þá fékk hann yfirleitt alltaf það sem hann langaði í. Mamma bakaði auka- sortir af smákökum, eldaði tví- réttað eða pantaði íþróttaskó frá Egilsstöðum fyrir litla strákinn sinn. Harpa fæddist alvarlega veik og var á spítala sem ungbarn. Mamma neitaði að fara frá henni á spítalanum þó sú væri venjan og á Harpa heilsu sína þrautseigju hennar, ákveðni og staðfestu að þakka. Hún var alltaf tilbúin að gefa ómetanleg ráð yfir kaffibolla. Dætur Hörpu tala um ömmulykt- ina sem dvelur í ljúfum minn- ingum. Mamma kenndi okkur að koma vel fram, taka hlýlega á móti fólki og að vanda okkur. Af henni lærð- um við nákvæmni, stíl, væntum- þykju, þolinmæði, að stóla á okk- ur sjálf en jafnframt að gæta þess að hlúa að okkur. „Það passar enginn upp á þig nema þú sjálf (ur),“ átti hún til að segja þegar við tókum okkur of margt fyrir hendur í einu. Elsku móður okkar erum við ævinlega þakklát fyrir allar sam- verustundirnar, staðfestu hennar og hlýju, leiðandi hönd hennar í gegnum æsku okkar og uppeldi, sorgirnar sem við deildum og góðu tímana sem við áttum saman. Við munum aldrei gleyma þér. Þín börn, Arnar, Harpa Rún og Hlynur. Elsku Auja systir kvaddi 26. desember á afmælisdaginn minn. Undanfarið hef ég rifjað upp margar fallegar minningar um hana sem mér þykir svo vænt um og ég er svo þakklát fyrir að eiga. Ég man svo vel þegar við bjuggum í Karfavoginum og ég var að byrja í skóla. Ég átti að fá gömlu, notuðu skólatöskuna hennar. Hún var alls ekki ánægð með það og vildi að ég fengi nýja skólatösku eins og hún hafði feng- ið þegar hún byrjaði í skólanum. Og hún fór og keypti handa mér nýja skólatösku fyrir peninga sem hún hafði unnið sér inn með pössun. Þessi minning er svo sterk og falleg af því að þetta gladdi mig svo mikið. Ég man ennþá hvernig litla fallega skóla- taskan leit út og ég var svo stolt þegar ég fór í skólann með hana á bakinu. Minnisstæðar eru notalegu stundirnar þegar við bökuðum saman smákökur og konfekt fyrir jólin. Þá hittumst við yfirleitt heima hjá mér og bökuðum sörur, marsípankökur og fleira góðgæti. Að ógleymdum skinkuhornunum sem við lögðum mikinn metnað í og börnin okkar elskuðu. Fyrir þessi jólin ætluðum við líka að hittast og baka skinkuhorn en ekkert varð úr því þar sem heilsa þín leyfði það ekki. Vikuna áður en þú kvaddir nefndir þú við mig að við yrðum að drífa í að baka skinkuhornin áður en þú færir. Þú barðist til síðustu stundar og gafst aldrei upp vonina. Á hverju ári milli jóla og nýárs bauðstu mér og börnunum mín- um á jólaball Frímúrara. Þetta var ein af jólahefðunum okkar. Og mikið skemmtum við við okk- ur alltaf vel. Eftir að börnin okkar uxu úr grasi tókum við barna- börnin okkar með á Frímúrara- ballið. Og núna í desember varstu búin að nefna jólaballið við mig. Minnisstæðar eru einnig allar skemmtilegu sumarbústaðarferð- irnar sem við fórum í með fjöl- skyldur okkar ár eftir ár þar sem börnin okkar nutu þess að vera saman. Barnabörnin þín sex, Úlfur, Kolka, Sylvía, Theodór, Saga og Iða, voru mjög hænd að þér og nutu þess að vera með þér. Þú varst svo góð við þau og alltaf að kaupa eitthvað fallegt handa þeim. Og þeim fannst svo gaman að koma í næturgistingu til þín. Stoltið og ánægjan skein af þér þegar þú talaðir um þau og sýndir mér myndir af þeim. Þú varst líka alltaf svo góð við börnin mín Hafdísi Björk, Jón Árna og Örnu. Og þeim þykir svo vænt um þig og eiga svo fallegar og góðar minningar um þig. Þú varst mikill fagurkeri og hafðir gaman af því að kaupa þér falleg föt og hafa fallega hluti í kringum þig. Heimilið þitt var svo fallegt og hlýlegt. Og þú varst alltaf með puttann á púlsinum hvað var í tísku. Auja tókst á við erfið veikindi af æðruleysi og reisn og við sem fylgdumst með henni heyja bar- áttu við krabbameinið dáðumst að þeim styrk og þeim baráttuanda sem hún hafði yfir að búa. Elsku systir, ég þakka þér fyr- ir allar góðu samverustundirnar okkar og það er svo sárt að þurfa að kveðja þig og sjá þig aldrei aft- ur. Guð geymi þig, elsku Auja mín. Þín systir, Sigríður (Sirrý). Mig langar að minnast systur minnar Auðar Tryggvadóttur sem andaðist að morgni 26. des- ember 2019 eftir erfiða en hetju- lega baráttu við illvígan sjúkdóm. Auður var í blóma lífsins þegar sjúkdómurinn gerði vart við sig og það er erfitt að horfa upp á manneskju heyja baráttu við slík- an sjúkdóm. Hún tókst á við sjúk- dóminn af miklu hugrekki, æðru- leysi og viljastyrk. Auja eins og hún var kölluð hafði alltaf verið mjög hraust og reglusöm, stund- að líkamsrækt af kappi og hugsað vel um sig. En það er ekki spurt að því þegar kallið kemur. Auja var elst okkar systkina. Hún flutti tiltölulega snemma úr foreldrahúsum eftir að hún kynntist Óla manninum sínum. Hún útskrifaðist frá Fósturskóla Íslands árið 1974 og eignaðist börnin sín þrjú, þau Arnar, Hörpu og Hlyn. Hún lifði fyrir börnin sín og barnabörnin sem voru gullin hennar. Ekki má gleyma hundunum sem skipuðu síðar stóran sess í lífi hennar. Auja starfaði lengst af hjá fé- lagsþjónustu Reykjavíkurborgar við úrlausn flókinna og erfiðra vandamála sem reyndu oft á þol- inmæðina. Þar nýttust hæfileikar Auju sem voru manngæska og náungakærleikur Auja var glæsileg kona og bjó yfir mikilli reisn. Hún hafði mörg áhugamál og maður kom aldrei að tómum kofunum hjá henni þegar tískan var annars vegar. Hennar áhugamál voru fjölskyldan, lík- amsrækt og útivera auk tískunn- ar. Auja var traustur vinur sem gott var að leita til. Hún var sam- viskusöm og hreinskilin. Hún tal- aði um hlutina beint frá hjartanu, umbúðalaust. Það var alltaf hægt að treysta Auju. Það var alltaf stutt í gleðina og húmorinn hjá henni en samt var hún líka við- kvæm. Hún mátti ekkert aumt sjá og hafði ríka réttlætiskennd. Hún gat verið ákveðin með sterkar skoðanir og henni varð ekki auð- veldlega snúið þegar hún hafði tekið ákvörðun. Það var alltaf svo gott að heim- sækja Auju. Hún var alltaf tilbúin að ræða öll heimsins vandamál og gefa góð ráð. Hún tók alltaf vel á móti manni með opnum örmum. Eftir fráfall Óla, sem var henni mikill harmur, gisti ég stundum í Hæðargarðinum. Þar fjölgaði samverustundunum okkar og við ræddum mikið saman. Þá upplifði ég það hversu mikið gæðablóð hún systir mín var. Auja kynntist síðar Magnúsi , sem reyndist henni stoð og stytta síðar í lífinu. Ég kveð systur mína með mikl- um söknuði en minningin um góða manneskju lifir áfram. Auja verður alltaf með okkur. Ég færi Arnari, Hörpu, Hlyn og Magga mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Kveðja, Tryggvi bróðir. Elsku Auja mágkona mín. 18. desember sl. fannst mér líf- ið óréttlátt og sérstaklega vegna ástands þíns. Ég var hálftóm í hjartanu og hjartað mitt var ósköp lítið við þá tilhugsun að vera hugsanlega að kveðja þig í hinsta sinn þar sem ég var að fara utan um jólin. Þú sýndir mér hvað þú varst búin að gera heimilið þitt fallegt enda mikil smekkmann- eskja. En mikið varstu þreytt. Ég vildi ekki að þú sæir mig gráta og þess vegna ákvað ég að skrifa þessar örfáu línur til þín núna. Vonandi getur þú lesið þær hvar sem þú ert. Þú ert búin að vera mér sem systir og við höfum hleg- ið saman og grátið saman og gert skemmtilega hluti saman. Þú hef- ur alltaf verið mér traust og alltaf gat ég leitað til þín. Við kynnt- umst eiginlega ekki fyrr en Óli bróðir dó. Þá fór ég að umgangast þig meira enda ég orðin eldri og þroskaðri og traustari manneskju var ekki að finna. Þú hefur alltaf verið mér svo góð og yndisleg og ég mun geyma þær minningar að eilífu. Þú ert sterkasta kona sem ég þekki og ég er svo stolt af þér að taka veikindum þínum með æðruleysi og um tíma með smá von. En við veljum ekki lífið okk- ar eða hvernig og hvenær við kveðjum þessa jarðvist en ég hélt alltaf í vonina. Okkur er bara út- hlutað þessu eina lífi og vitum aldrei hvað morgundagurinn ber í skauti sér. Þú ert búin að vera yndisleg mamma barnanna þinna og þrátt fyrir sviplegan missi Óla stóðst þú alltaf bein í baki. Ég er stolt af þér fyrir það. Börnin þín sýna það sem fyrir þeim var haft. Öll yndisleg með tölu. Ég mun svo sannarlega umvefja þau fyrir þig og hugsa vel um þau og verða barnabörnum þínum besta amma Lóa frænka sem til er í heiminum og halda minningu þinni á lofti. Ég segi bara góða ferð, takk fyrir allt og allt og ég bið að heilsa öll- um í ljósinu. Ég veit að vel var tekið á móti þér og ímynda mér að nú hlaupir þú um berfætt á græn- um grundum með Óla þér við hlið. Elska þig að eilífu. Lífið lætur okkur gráta, brosa og minnast. Tárin þorna, brosin geta minnkað en minningar lifa að eilífu Loks beygði þreytan þína dáð, Hið þýða fjör og augnaráð; Sú þraut var hörð – en hljóður nú Í hinsta draumi brosir þú. (Jóhannes úr Kötlum) Knúzzzzz inn í ljósið til þín frá mér, Lóunni þinni. Elsku Arnar, Hlynur, Harpa Rún, Magnús og aðrir ættingjar, ég votta ykkur mína dýpstu sam- úð og ekki má gleyma fjórfætling- unum Kolu og Pílu sem syrgja „mömmu“ sína. Hinsta kveðja, Sigrún Lóa Sigurgeirsdóttir. Elsku besta frænka mín. Eins og ég sagði þér á Þorláks- messu get ég ekki lýst því hvað ég er leið yfir því að þessi barátta hafi farið svona. Ég tók þátt í henni með þér frá upphafi og þú varst ótrúleg. Dugleg, jákvæð, glöð og þakklát fyrir allt þitt. Við fórum saman til Berlínar í að- ventuferð desember 2016 stuttu eftir að þú greindist og ég hefði aldrei getað trúað því að þetta færi svona. Þú hefur alltaf verið stór hluti af lífi mínu og stutt mig hvað mest þegar ég hef gengið í gegnum erfiðleika og því reyndi ég eins og ég gat að styðja þig. Við töluðum oft um hvað við vær- um heppnar með hvor aðra því það er ekki algengt að vera í svona nánu sambandi við móður- systur sína alla tíð. Ég vil þakka þér fyrir að vera mér alltaf svona góð. Fyrir öll góðu ráðin varðandi börnin mín. Fyrir að vera svona góð við börnin mín. Fyrir allar ut- anlandsferðirnar. Fyrir öll kaffi- húsin. Fyrir að þola að sitja með gargandi Sigríði Sól aftur í alla leið upp í Kjós í sumar. Fyrir öll jólaböllin. Fyrir alla tímana með mér í Hreyfingu. Fyrir að koma mér af stað í Hreyfingu. Fyrir að passa Sigríði Sól svo ég kæmist að hreyfa mig. Fyrir að pakka mér inn á kvöldin í Hæðargarði þegar ég var lítil. Og síðast en ekki síst fyrir allt múslíið sem ég náði aldrei að læra að gera alveg eins og þú. Þú varst einstök og ég mun sakna þín meira en orð fá lýst. Ég kveð þig með bæninni sem þú kenndir mér og lofa að vera dugleg að kalla fólkið okkar saman. Kristur minn ég kalla á þig, komdu að rúmi mínu. Gæskuríkur geymdu mig Guð í faðmi þínum. (Höf. ók.) Þín, Hafdís. Elsku pæjufrænka mín, mikið er skrítið að þú sért ekki hjá okk- ur lengur. Ég finn samt fyrir þér á hverjum degi og hugsa alltaf til þín. Sérstaklega þegar ég er að fá mér hafragraut og í ræktinni. Þú varst alltaf svo góð við mig og alla. Þú varst gullmoli og hugs- aðir svo vel um fólkið þitt og sama hvernig heilsan var alltaf sendir þú mann heim með eitthvað góm- sætt. Og allar múslísendingarnar til Noregs, mikið mun ég sakna þeirra. Mér þykir mjög vænt um allar ferðirnar til Spánar með þér og mér fannst þú alltaf svo mikil pæja. Takk fyrir að vera alltaf svona góð við mig og fjölskylduna mína. Við munum sakna þín og hugsa hlýtt til þín á hverjum degi. Arna Jónsdóttir. Í bliki tára blessum minning þína, hún björt við okkur alla tíð mun skína. Rödd þín, ástin, brosið hlýja og bjarta mun bústað eiga innst í okkar hjarta. (GJM) Svo sannarlega var brosið hennar Auðar hlýtt og bjart og henni fylgdi alltaf birta og ylur. Hún hafði einstaklega ljúft og gott viðmót. Kynni okkar hófust þegar við urðum nágrannakonur og með börn á svipuðum aldri fyrir tæp- um fjórum áratugum. Við þessar tvær fjölskyldur vorum mikið saman og áttum yndislegar og gefandi stundir í matarboðum og við leik og störf. Svo kom reiðarslagið, Óli mað- ur Auðar féll skyndilega frá og við tók mjög sársaukafullt og erfitt tímabil. Auður vann alla sína starfsævi hjá Reykjavíkurborg við umönn- un barna sem áttu erfitt upp- dráttar og tókst henni það ein- staklega vel enda góðhjörtuð, barngóð og samviskusöm. Auður vinkona mín hugsaði vel um sjálfa sig, var í leikfimi á hverjum degi, vandaði mataræði sitt og leit alltaf vel út og var glæsileg og smart. Auður var ein- staklega gjafmild og naut ég svo sannarlega góðs af því. Hún föndraði mikið og bakaði og þessu Auður Tryggvadóttir Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlýhug, samúð og vináttu vegna andláts elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengaföður og afa, GUNNARS SIGURÐSSONAR löggilds endurskoðanda. Guðný Leósdóttir Margrét Gunnarsdóttir Guðrún Gunnarsdóttir Sigurður Gunnar Sveinsson Þóra Gunnarsdóttir Matthías Einarsson Hildur Gunnarsdóttir Héðinn Friðjónsson Gunnar Atli, Signý, Einar Gunnar, Kristín María, Andri Þór, Högni og Elín Guðný Útför ástkærs föður okkar, stjúpföður, tengdaföður og afa, PÉTURS SVEINBJARNARSONAR, verður gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 24. janúar klukkan 13. Guðm. Ármann Pétursson Birna Ásbjörnsdóttir Auðbjörg Helga Guðmundsd. Embla Líf Guðmundsdóttir Nói Sær Guðmundsson Eggert Pétursson Malin Svensson Freyja C. Eggertsdóttir Einar Pétur Lars Eggertsson Friðrik Örn Hjaltested Úlfhildur L. Friðriksdóttir Skorri Ísleifur Friðriksson Óli Rafn Jónsson Valgerður Magnúsdóttir Edda Sól Óladóttir Atli Þór Ólason Elsku systir mín og frænka okkar, SIGRÍÐUR HELGA SIGURÐARDÓTTIR skólaritari, verður jarðsungin frá Borgarneskirkju mánudaginn 13. janúar klukkan 14. Sigþrúður Sigurðardóttir Sigurður Halldórsson Erla Helga Sveinbjörnsdóttir Brynjúlfur Halldórsson Gunnar Jóhannesson Elín Eir Jóhannesdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.