Morgunblaðið - 11.01.2020, Page 46

Morgunblaðið - 11.01.2020, Page 46
46 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2020 60 ára Emilía ólst upp í Reykjavík en býr í Borgarnesi. Hún er verslunar- stjóri ÁTVR í Borgar- nesi. Maki: Gregor Junge, f. 1966, múrari hjá Steypustöðinni. Börn: Sigurður Aðalsteinn Jónsson, f. 1980, Ingi Páll Jónsson, f. 1982, Ívar Erlendsson, f. 1986, Þorsteinn Guð- mundur Erlendsson, f. 1990, og Elías Mar Erlendsson, f. 2002. Barnabörnin eru orðin þrjú. Foreldrar: Ingi Björgvin Þorsteinsson, f. 1925, d. 2008, veghefilsstjóri hjá Vegagerðinni, og Pálína Guðmunds- dóttir, f. 1926, d. 1997, húsmóðir. Þau voru búsett í Reykjavík. Emilía Ingadóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú skalt gefa þér tíma til að íhuga hvað þig langar í á þessu ári. Þú heyrir fréttir af vinum og ýmislegt á eftir að ger- ast tengt þeim. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú þarft að huga að því hvernig þú getur bætt aðstæður þínar. Mundu að aðr- ir reiða sig á þig svo þú skalt takmarka þig við það sem þú getur staðið við. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú þarft á öllu þínu að halda til þess að ljúka við það stóra verkefni sem þú hefur tekið að þér. Reyndu að vera gott foreldri. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Kostnaður vegna bílaviðgerða og tafir á samgöngum hafa reynt á þolin- mæði þína síðasta mánuðinn. Ekki vera tuðarinn á heimilinu. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það er hyggilegt að líta um öxl og læra af reynslunni. Mikil virðing er borin fyrir þér hvar sem þú kemur. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Umburðarlyndi þitt hefur aukist og þú finnur til velvildar í garð samferða- manna þinna. Andlega sinnuð manneskja opnar augu þín. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þótt þú lendir í einhverju mótlæti um skeið máttu ekki láta það á þig fá. Láttu allar óþarfa áhyggjur lönd og leið og ein- beittu þér að augnablikinu. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Að reiða sig á þekktar aðferð- ir og stytta sér leið gerir manni stundum kleift að ná skjótari árangri. Taktu þér góð- an tíma til að taka til og losa þig við drasl. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú stendur frammi fyrir því að vera sammála þeim sem þú síst vildir. Vinnutími þinn er allt of langur. 22. des. - 19. janúar Steingeit Náinn vinur þarfnast aðstoðar þinnar en kann ekki við að biðja um hana þar sem þú hafðir séð örlög hans fyrir. Makinn vill fara sínu fram og gera það sem honum sýnist. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Leitaðu að nýju fólki í liðið þitt. Hugsaðu áður en þú talar og vertu viss um að þú sért ekki að fara úr öskunni í eldinn. 19. feb. - 20. mars Fiskar Gefðu þér tíma til að rétta fjárhag- inn við og finna leiðir til þess að auka inn- komuna. Ekki halda aftur af þér þegar kemur að tilfinningum. skipinu Dronning Alexandrine. „Þetta var fyrsta ferð unglinga- flokks í knattspyrnu sem farin var á erlenda grund. Ferðin var ógleym- anleg og ekki síst fyrir það að árang- urinn var mjög góður og við urðum landi og þjóð til sóma.“ Örn lék síðan með öllum yngri flokkum KR og meistaraflokki KR frá 1958 og varð Íslandsmeistari 4 sinnum árin 1959-1965 og 3 sinnum bikarmeistari árin 1962-1964. Alls lék hann 111 leiki með meistara- flokki KR en hætti því miður að spila aðeins 24 ára. Örn var valinn í landslið Íslands 19 ára gamall og lék 8 landsleiki og skoraði eitt mark gegn Noregi, í leik sem tapaðist 2:1 árið 1959. Ein af fyrstu símsendu myndunum til Ís- lands var þegar hann heilsaði Frið- riki IX. Danakonungi fyrir landsleik Íslands og Danmerkur það sama ár þar sem Danir gerðu jafntefli við Ís- land 1:1. Þetta ár var gullaldar- tímabil KR-inga því þeir unnu mótið með fullu húsi stiga, og það sem meira var, að í landsliðinu þetta ár voru 7 KR-ingar. „Ég gleymi því seint, þegar ég var sóttur til Kaup- mannahafnar, þar sem ég starfaði, til þess að spila leik í Íslandsmótinu fyrir KR 1961, sem skar úr um það „Knattspyrnan var auðvitað núm- er eitt, tvö og þrjú hjá okkur félög- unum. Við æfðum okkur á Fram- nesvellinum frá morgni til kvölds og ekkert annað komst að.“ Örn var einn af þremur fyrstu gulldrengjum knattspyrnuþrauta KSÍ þá 14 ára gamall ásamt vinum sínum þeim Þórólfi Beck og Skúla B. Ólafs. Árið 1954 fór 3. flokkur KR í keppnisferð til Danmerkur með Ö rn Steinsen er fæddur 11. janúar 1940, vestast í Vesturbænum á Sól- vallagötu 55, sem áður hét Sellandsstígur 5. Hann ólst þar upp til 21 árs aldurs. „Í minningunni eru þetta gjöful og yndisleg ár og margs að minnast frá þeim tíma. Aðalleiksvæði okkar fé- laganna var Framnesvöllurinn og Selsvörin og öll óbyggð svæði þar í kring. Ég man sérstaklega vel eftir Pétri Hoffman sem bjó þar með hinni einu sönnu Hunda-Mundu. Hann var fyrir margra sakir alveg einstakur „karakter“ og þjóðþekkt- ur. Eitt sinn fór ég með honum í róð- ur í góðu veðri til að vitja grásleppu- netja. Allt gekk glimrandi vel en ég þorði ekki fyrir mitt litla líf að segja foreldrum mínum frá þessari sjóferð því það hefði kostað sitt. Sumarið 1953 fór ég í sveit að Furubrekku í Staðarsveit, þá 13 ára, og var þar yfir sumarið og þó að mér hafi liðið mjög vel hjá þessum yndis- legu hjónum neitaði ég að fara aftur, aðallega vegna fótboltans.“ Örn lauk prófi frá Gagnfræða- skóla Vesturbæjar og stundaði síðan nám við Íþróttaskólann að Laugar- vatni. Hann vann sem ungur maður við ýmis störf en fór að vinna hjá Flugfélagi Íslands í Kaupmanna- höfn, sem sumarmaður árið 1961 og fékk þar í sig ferðabakteríuna. Hann hóf störf hjá „Lönd og leiðum“ ferðaskrifstofu árið 1962 og síðar hjá Flugfélagi Íslands í Lækjargötu árið 1963, þar sem hann vann við far- miðasölu í 10 ár. Árið 1974 varð hann framkvæmdastjóri hjá Ingólfi í Út- sýn til ársins 1986 þegar hann stofn- aði Ferðaskrifstofuna Sögu ásamt Pétri Björnssyni félaga sínum. Árið 1992 gerðist hann síðan auglýsinga- stjóri hjá Iceland Review en árið 2000 tók hann við starfi fram- kvæmdastjóra KR þar til að starfs- ferlinum lauk árið 2007. Aukastörfin, ef svo skyldi kalla, voru þau, að hann starfaði sem knattspyrnuþjálfari yngri flokka KR, unglingalandsliðs drengja hjá KSÍ í 4 ár, og meistara- flokks karla hjá Þrótti, Fram, Vík- ingi og FH. Í allt voru þetta 18 ár sem hann helgaði sig þjálfun. hvort við yrðum Íslandsmeistarar það sumar. Við unnum lokaleikinn á móti Akurnesingum og þar með mótið. Þetta eru allt frábærar minn- ingar sem gleymast seint.“ Örn hefur hlotið gullmerki KR ásamt gullmerki með lárviðarsveig og Stjörnu KR. Hann hefur einnig hlotið gullmerki ÍBR, KSÍ og KÞÍ. Hann er einn af stofnendum Knatt- spyrnuþjálfarafélags Íslands 1970 og Golfklúbbsins Odds í Urriðalandi. Hann hefur setið í stjórn hinna ýmsu deilda KR, verið formaður hús- stjórnar KR 1996-2003, í stjórn Kynnisferða og Félags ísl. ferða- skrifstofa og formaður hússtjórnar húsfélagsins Sléttuvegur 19,21 og 23 frá 2007 og fram á þennan dag. Hann hefur starfað fyrir Oddfellow- regluna frá árinu 1977 og verið í stjórn sinnar stúku. Einnig var hann einn af stofnendum Arnarklúbbsins 1992 sem er enn starfræktur og með eigin kennitölu. Helztu áhugamál Arnar í dag eru sund, golf, ferðalög og stór- fjölskyldan. Fjölskylda Eiginkona Arnar er Erna Guðrún Franklín, f. 31.5. 1941, fv. fjármála- stjóri. Foreldrar hennar voru hjónin Stefán Benjamín Franklín, f. 23.3. 1907, 2.4. 1970, útgerðarmaður og Guðrún Sigríður Guðmundsdóttir Franklín, f. 4.12. 1912, d. 12.4. 2008, hjúkrunarkona. Börn Arnar og Ernu eru: 1) Arna Katrín Steinsen, f. 27.12. 1962, íþróttakennari, maki: Magnús Páls- son, f. 17.5. 1964, íþróttakennari og tölvunarfræðingur. Börn: Örn Rún- ar, f. 1990, nemi í íþróttafræðum í HR, Andri, f. 1992, þjónustustjóri hjá DK og Erna Guðrún, f. 1997, nemi í viðskiptafræði í HR. 2) Stefán Þór, f. 9.3. 1967, viðskipta- og mark- aðsfræðingur, er með meistaragráðu í lögum og viðskiptum Evrópusam- bandsins frá Viðskiptaháskólanum í Árósum, maki: Edda Björk Guð- mundsdóttir, f. 2.5. 1967, MBA. Börn: Saga, f. 9.4. 1988, flugfreyja, maki: Hans Kristjánsson arkitekt, börn þeirra Magdalena Björk, f. 2012, og Móeiður María, f. 2018, Örn Steinsen, fyrrverandi framkvæmdastjóri KR – 80 ára Fjölskyldan Frá vinstri: Stefán Þór, Anna Guðrún, afmælisbarnið Örn, eiginkonan Erna, Arna Katrín og Brynja Dögg. Minningar sem gleymast seint Landsleikur Örn heilsar Friðriki IX. Danakonungi fyrir leik. 40 ára Anna Hera er Reykvíkingur, ólst upp í Breiðholti en býr í Einholti. Hún er með BS-gráðu í stærðfræði frá HÍ og MS-gráðu í hagnýtri stærðfræði frá DTU í Kaupmanna- höfn. Hún er stærðfræðikennari í Verzl- unarskóla Íslands og sjálfstætt starfandi danskennari og í Kramhúsinu. Maki: Pawel Bartoszek, f. 1980, stærð- fræðingur og borgarfulltrúi. Börn: Ágúst Bartoszek, f. 2008, og Ólafur Jan Bartoszek, f. 2012. Foreldrar: Jóhanna Fjóla Ólafsdóttir, f. 1941, tónlistarkennari og leiklistarkenn- ari, búsett í Rvík, og Björn Karlsson, f. 1950, d. 2017, kennari og leikari, síðast áfengisfulltrúi. Anna Hera Björnsdóttir Til hamingju með daginn Grindavík 10 Ósk Matthíasdóttir fæddist 16. apríl 2019 kl. 10.48. Hún vó 3.080 g og var 49 cm löng. For- eldrar hennar eru Gerður Rún Ólafs- dóttir og Matthías Örn Friðriksson. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.