Morgunblaðið - 11.01.2020, Blaðsíða 49
ÍÞRÓTTIR 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2020
Enn einu sinni mætast Íslend-
ingar og Danir á stórmóti karla-
landsliða í handbolta þegar
flautað verður til leiks í Malmö í
dag klukkan 17.15 að íslenskum
tíma. Ekki auðveld byrjun fyrir
okkar menn en ekkert verra svo
sem að mæta Dönum í fyrsta
leik fyrst liðið dróst gegn heims-
og ólympíumeisturum á annað
borð.
Um tíma fannst manni eins og
þessi lið gerðu furðu oft jafntefli.
Íslenska liðið var búið að ofdekra
mann með þeim hætti að manni
þótti þau úrslit ekkert spes. Í
dag myndi maður þiggja jafntefli
fyrir hönd íslenska liðsins, þar
sem Danir eru orðnir óþarflega
góðir.
Liðin gerðu jafntefli á EM í
Sviss 2006 og aftur á Ólympíu-
leikunum í Peking tveimur árum
síðar. Í millitíðinni mættust þau í
8-liða úrslitum á HM 2007. Þá
var einnig jafnt eftir venjulegan
leiktíma en eftir tvær framleng-
ingar höfðu Danir betur. Á þess-
um árum og fram til 2010 má
finna fimm vináttulandsleiki
þessara liða þar sem jafntefli
varð niðurstaðan. Við þetta má
auðvitað bæta því að Danir náðu
jafntefli á ótrúlegan hátt gegn Ís-
lendingum í B-keppninni í
Austurríki 1992.
Tíðni jafntefla í leikjum liðanna
er undarlega há en kannski verða
leikir oft jafnir þegar taug er á
milli þjóða og leikmanna. Síð-
ustu árin hafa liðin mæst á stór-
mótum af og til. Þá hafa Danir
haft betur og unnið nokkuð
örugga sigra. Því þarf að breyta.
Ég á þó ekki von á því að sú
verði raunin í dag enda er ís-
lenska liðið enn í uppbygging-
arferli. En ég væri forvitinn að
vita hvernig leikur á milli þessara
þjóða myndi fara eftir tvö til þrjú
ár. Ef ég hefði aðgang að göml-
um gráum DeLorean myndi ég
kanna málið.
BAKVÖRÐUR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
HANDBOLTI
EM karla 2020
B-RIÐILL, Vín:
Tékkland – Austurríki ......................... 29:32
Norður-Makedónía – Úkraína ............ 26:25
Staðan:
Austurríki 1 1 0 0 32:29 2
N-Makedónía 1 1 0 0 26:25 2
Úkraína 1 0 0 1 25:26 0
Tékkland 1 0 0 1 29:32 0
D-RIÐILL, Þrándheimi:
Frakkland – Portúgal .......................... 25:28
Noregur – Bosnía ................................. 32:26
Staðan:
Noregur 1 1 0 0 32:26 2
Portúgal 1 1 0 0 28:25 2
Frakkland 1 0 0 1 25:28 0
Bosnía 1 0 0 1 26:32 0
F-RIÐILL, Gautaborg:
Svíþjóð – Sviss...................................... 34:21
Kristján Andrésson þjálfar Svíþjóð.
Slóvenía – Pólland ................................ 26:23
Staðan:
Svíþjóð 1 1 0 0 34:21 2
Slóvenía 1 1 0 0 26:23 2
Pólland 1 0 0 1 23:26 0
Sviss 1 0 0 1 21:34 0
Grill 66 deild kvenna
Fylkir – Fjölnir..................................... 22:25
Víkingur – HK U .................................. 23:34
Fram U – FH........................................ 28:26
Staðan:
Fram U 12 12 0 0 403:278 24
FH 12 9 1 2 335:266 19
Selfoss 12 8 2 2 280:258 18
Grótta 11 7 1 3 276:255 15
ÍR 11 7 0 4 286:266 14
Valur U 12 6 1 5 323:304 13
ÍBV U 11 4 1 6 275:276 9
Fjölnir 12 4 0 8 287:325 8
Stjarnan U 11 3 1 7 267:309 7
HK U 12 3 1 8 296:349 7
Fylkir 12 3 0 9 236:269 6
Víkingur 12 0 0 12 270:379 0
EM 2020
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Björgvin Páll Gústavsson undirbýr
sig nú fyrir sitt þrettánda stórmót
með íslenska landsliðinu í hand-
knattleik. Markvörðurinn litríki kom
inn í landsliðið, nokkuð óvænt, fyrir
Ólympíuleikana í Peking árið 2008.
Hefur síðan þá haldið stöðu sinni að
mestu. Í það minnsta hefur hann
ekki misst af stórmóti síðan þá ef Ís-
land hefur á annað borð verið þar
með keppnisrétt.
„Ég er ekki sjálfur með þessar
tölur á hreinu og velti því lítið fyrir
mér. Í hvert skipti er nýtt ævintýri.
Á síðasta stórmóti var ég elsti leik-
maður íslenska liðsins en nú bara
fjórði elsti maður liðsins. Það er
skrítinn staðreynd og viss nostalgía í
því að Alexander [Petersson] sé
kominn aftur í hópinn. Ég vil því
meina að ég yngist með hverju
mótinu. Eftir fimm til sex ár verð ég
aftur orðinn yngstur og farinn að sjá
um boltapokann,“ sagði Björgvin
léttur þegar Morgunblaðið ræddi við
hann í gær en yngstu menn í lands-
liðinu sinna ýmsum verkum eins og
að tína saman boltana. Spurður
hvort hann hafi alltaf jafn mikla
ánægju af landsliðsverkefnum segir
Björgvin svo vera.
„Ég hef það. Síðustu mánuðina
minnkaði ánægjan í handboltanum
yfir höfuð en það tengist meira mín-
um andlegu málum. En maður
brennur alltaf fyrir landsliðið og það
skemmtilegasta sem maður gerir er
að spila fyrir landsliðið. Þegar ég
byrjaði í handbolta 8 ára gamall var
það út af landsliðinu og stórmót-
unum. Ekkert er skemmtilegra en
að klæða sig í búninginn og spila fyr-
ir land og þjóð. Þegar vel gengur er
geggjað að geta glatt fólk heima í
vonda veðrinu.“
Óhætt er að segja að EM byrji
með látum hjá Íslendingum að þessu
sinni því í dag mætast Ísland og
Danmörk í Malmö. Þegar þessar
þjóðir mætast er ávallt eftirvænting
í loftinu og nú bregður svo við að
Danir eru núverandi heims- og ól-
ympíumeistarar.
Fara þarf vel af stað
„Það þarf ansi margt að ganga
upp hjá okkur til að vinna og við
þurfum að eiga toppleik á öllum svið-
um. Þeir eru að leita að hinni heilögu
þrenningu ef svo má segja með því
að vinna EM. Við erum því að fara í
svakaleik og virkilega erfitt verk-
efni,“ sagði Björgvin en fyrsti leikur
á stórmóti er ávallt svolítið sér-
stakur hvað varðar spennustig og
fleira.
„Já, tilhlökkunin er alltaf mikil og
hún byggist smám saman upp. Þeg-
ar landsliðið kemur saman þá er
mikið hugsað um fyrsta leikinn.
Mikilvægt er að fara vel af stað í
svona móti. Hvort sem fyrsti leikur
vinnst eða ekki þá getur góð spila-
mennska gefið fyrirheit um það sem
koma skal. Í þetta skiptið mætum
við besta liði heims í fullri 13 þúsund
manna höll. Þótt þúsund Íslendingar
styðji okkur verður höllin ansi rauð
á morgun enda Danir nánast á
heimavelli í Malmö,“ sagði Björgvin
og vísar þar vitaskuld í hversu stutt
er frá höfuðstaðnum Kaupmanna-
höfn yfir til Malmö. Björgvin leikur
með Skjern í Danmörku og segist
ekki hafa orðið var við annað en að
Danir beri virðingu fyrir Íslend-
ingum á handboltasviðinu enda hafa
þjóðirnar ósjaldan glímt á hand-
boltavellinum í gegnum áratugina.
„Þetta er auðvitað frændþjóð okk-
ar og tengingarnar á milli þessara
liða eru margar. Við höfum oft lent á
móti þeim í keppnum og ofan á það
eru vináttuleikirnir orðnir margir.
Stór hópur mun koma frá Skjern til
að kíkja á mig og Elvar [Örn Jóns-
son]. Ég held að það verði ágætis
bræðrabandalag í stúkunni á milli
Íslendinga og Dana. Vonandi verða
læti í Íslendingum á áhorfendapöll-
unum sem mótvægi við þessa 12
þúsund Dani.
Breiddin mikil hjá Dönum
Spurður um hvort langt sé síðan
íslenski hópurinn fór að kortleggja
danska liðið segir Björgvin að sú
vinna hafi hafist fyrr hjá þjálfara-
teyminu en leikmönnum. Íslensku
leikmennirnir þekki hins vegar þá
dönsku mjög vel.
„Þó nokkuð er síðan þjálfararnir
byrjuðu að skoða þá. Við þekkjum
auðvitað vel til Dana. Þeir eru ekki
með mörg ný nöfn á leikmannalist-
anum og þeir sem eru að koma inn
nýir eru leikmenn sem ég kannast
við frá dönsku deildinni. Ekki þarf
að kynna menn eins og Mikkel Han-
sen sérstaklega fyrir handbolta-
áhugafólki. En einn mesti styrkur
Dana um þessar mundir er hversu
mikla breidd þeir eru með í sínum
leikmannahópi. Morten Olsen hefur
setið mikið á bekknum í undirbún-
ingsleikjum þeirra en hefur verið
einn sá besti í þýsku bundesligunni í
vetur. Þeir eiga því mörg vopn sem
hægt er að grípa til. Vonandi náum
við að finna blöndu sem getur komið
Dönum í vandræði á morgun [í dag].
Það væri draumur,“ sagði Björgvin
enn fremur við Morgunblaðið.
„Höllin verður ansi rauð“
Íslendingar hefja leik á EM í dag gegn heims- og ólympíumeisturunum
Þrettánda stórmót Björgvins Var elstur í fyrra en er nú sá fjórði elsti
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Reynsla Björgvin Páll Gústavsson er einn af reynslumestu leikmönnum ís-
lenska liðsins en hann er að taka þátt í sínu þrettánda stórmóti með Íslandi.
EM 2020
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Fimm ár eru liðin síðan Íslendingar
og Danir hafa mæst á stórmóti karla
í handknattleik. Það var í Doha í
Katar í janúarmánuði 2015 þegar
liðin áttust við í sextán liða úrslitum
og Danir höfðu betur, 30:25.
Með þeim leik lauk þátttöku ís-
lenska liðsins á mótinu en Danir
héldu áfram og höfnuðu að lokum í
fimmta sæti eftir að hafa fallið
naumlega út gegn Spánverjum í átta
liða úrslitum.
Frá þeim tíma hefur dregið í
sundur með liðunum. Danir hafa
verið nær ósigrandi síðustu ár. Þeir
eru ríkjandi heims- og ólympíu-
meistarar, unnu einmitt síðarnefnda
titilinn undir stjórn Guðmundar
Guðmundssonar árið 2016 og eru
eitt þeirra liða sem eru líklegust til
að fara alla leið á mótinu.
Á meðan hefur Ísland endað í ell-
efta og fjórtánda sæti á tveimur
heimsmeistaramótum og ekki kom-
ist í milliriðil á tveimur Evrópu-
mótum.
Danir hafa því líklega sjaldan eða
aldrei þótt sigurstranglegri í leik
gegn Íslendingum á stórmóti en
fyrir leikinn í Malmö í dag, sem
hefst klukkan 17.15 að íslenskum
tíma.
Þegar flautað verður til leiks
verður viðureign Ungverja og
Rússa, hinna tveggja liðanna í riðl-
inum, nýlokið í sömu höll. Sá leikur
hefur að sjálfsögðu gríðarlegt vægi
en Ísland mætir Rússlandi á mánu-
dag og Ungverjalandi á miðvikudag.
Aðeins tvö liðanna komast áfram í
milliriðil og því verður nánast hvert
einasta mark mikilvægt í öllum sex
viðureignunum þeirra á milli í riðl-
inum.
Ef allt fer eftir bókinni vinna Dan-
ir þægilegan sigur í E-riðlinum en
innbyrðis leikir Íslendinga, Rússa og
Ungverja ráða úrslitum um annað
sætið. Takist hinsvegar íslenska lið-
inu að koma Dönum í opna skjöldu í
dag mun sú staða gjörbreytast. Það
er vel þekkt frá stórmótum að
sterku liðin hiksti í byrjun en séu
síðan illviðráðanleg, rétt eins og
þegar Króatar urðu heimsmeistarar
árið 2003 eftir að hafa tapað fyrir
Argentínu í fyrstu umferðinni.
Þetta er í fimmtánda sinn sem Ís-
land og Danmörk mætast á EM, HM
eða Ólympíuleikum frá árinu 1961
en Danir hafa unnið níu af fjórtán
viðureignum til þessa. Ísland hafði
síðast betur í mótsleik á EM í Aust-
urríki árið 2010, sigraði 27:22 í leik
sem kom liðinu heldur betur á sig-
urbraut og það stóð að lokum uppi
með bronsið. Danir unnu hinsvegar
stórsigra í leikjum þjóðanna á HM
2013 (36:28) og EM 2014 (32:23), auk
áðurnefnds leiks í Katar 2015.
Ísland hefur aðeins unnið Dani
þrisvar í þessum fimmtán móts-
leikjum. Árið 2010, og svo var það
stórsigurinn, 25:16, á HM í Sviss
1986 og 27:22 á HM í Svíþjóð 1993.
Liðin skildu jöfn í tveimur gríð-
arlegum spennuleikjum, 28:28 á EM
2006 í Sviss og 32:32 á Ólympíu-
leikunum í Peking. Þá er ónefndur
magnaður leikur liðanna í átta liða
úrslitum HM í Þýskalandi árið 2007
þegar Danir sigruðu 42:41 eftir
framlengingu og Ísland missti á
grátlegan hátt af sæti í undan-
úrslitum.
Margt hefur breyst á fimm árum
Ólympíu- og heimsmeistarar Dana mæta sigurstranglegir til leiks gegn Íslandi í
Malmö í dag Þrír sigrar Íslands í fjórtán mótsleikjum gegn Danmörku, síðast 2010
Katar Alexander Petersson og Mikkel Hansen í síðustu viðureign Íslands og
Danmerkur á stórmóti árið 2015. Þeir mætast aftur í Malmö í dag.
Morgunblaðið/Golli