Morgunblaðið - 11.01.2020, Blaðsíða 51
MENNING 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2020
„Lof mér að falla er virkilega flott
og vel leikin mynd sem smýgur inn
undir húðina,“ skrifar Thomas
Brunstrøm kvikmyndagagnrýnandi
BT og gefur Lof mér að falla, sem
nýverið var frumsýnd í Danmörku,
fimm stjörnur af sex mögulegum.
Brunstrøm hrósar Baldvini Z leik-
stjóra myndarinnar fyrir að reyna
ekki að beita rassvasasálfræði til að
skýra fíkniefnanotkun Magneu.
„Tilviljanir og litlar rangar ákvarð-
anir varða leiðina á botninn.“
Nanna Frank Rasmussen rýnir
Politiken gefur myndinni fjögur
hjörtu af sex mögulegum. „Áhorf-
endur engjast um í sætinu vegna
vanlíðunar. [] Það er erfitt að horfa
á þetta. Fíknaefnanotkun er ekki
falleg og á ekki að lýsa með róm-
antískum hætti. En myndin má
heldur ekki verða ofbeldisfull í
sjálfu sér með ofgnótt atburða á
mörkunum,“ skrifar Rasmussen og
fer lofsamlegum orðum um
frammistöðu Elínar Sifjar Hall-
dórsdóttur í hlutverki Magneu.
„Þetta er grimm og óvægin mynd
um fíkniefnaneyslu ungmenna sem
hristir upp í manni, en hún er næst-
um of yfirþyrmandi til þess að
áhorfendur geti jafnað sig og kunn-
að að meta myndina,“ skrifar Jacob
Wendt Jensen hjá Jyllands-Posten
og gefur þrjár stjörnur.
Mynd sem „smýgur inn undir húðina“
Stilla Úr kvikmyndinni Lof mér að falla.
Dómstóll í París
hefur komist að
þeirri niðurstöðu
að kvikmynda-
leikstjóranum
Luc Besson hefði
verið óheimilt að
reka aðstoðar-
konu sína meðan
hún var í
veikindaleyfi.
Besson og framleiðslufyrirtæki
hans, EuropaCorp, var dæmt til að
greiða konunni ríflega fjórar millj-
ónir íslenskra króna í skaðabætur
og lagakostnað að auki. Konan, sem
hóf störf hjá Besson 2015 og starf-
aði í fjögur ár segir að Besson hafi
komið fram við hana eins og þræl.
Fjórir læknar, þeirra á meðal einn
frá EuropaCorp, mátu hana óvinnu-
færa vegna veikinda. Hún var í
veikindaleyfi í 13 mánuði eftir upp-
sögnina.
Ólögleg uppsögn
í veikindaleyfi
Luc Besson
Tilkynnt hefur verið hvaða tíu leik-
arar eru valin rísandi stjörnur eða
„Shooting Stars“ á alþjóðlegu kvik-
myndahátíðinni í Berlín í ár. Tíma-
ritið Variety birtir nöfnin og meðal
þeirra er eistneski leikarinn Pääru
Oja sem valinn er fyrir frammi-
stöðu sína í kvikmyndinni Mihkel í
leikstjórn Ara Alexanders Ergis
Magnússonar þar sem hann fór með
titilhlutverkið. Myndin fékk ís-
lenska titilinn Undir halastjörnu. Á
hverju ári velur European Film
Promotion (EFP) tíu unga og efni-
lega evrópska leikara sem fá við-
urkenningu á kvikmyndahátíðinni.
Dómnefndin var í ár skipuð Lucy
Bevan frá Bretlandi, Dome Karu-
koski frá Finnlandi, Katarinu Krna-
cova frá Slóvakíu, Vessel Kazakova
frá Búlgaríu og Rudiger Sturm frá
Þýskalandi. Kvikmyndahátíðin í
Berlín verður haldin í 70. sinn 20.
febrúar til 1. mars.
Mikhel Undir halastjörnu.
Pääru Oja rísandi
stjarna í Berlín
ICQC 2020-2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
LOKAKAFLINN Í SKYWALKER SÖGUNNI
F ROM T HE D I R E C TOR OF S K Y FA L L
TILNEFNINGAR TIL
BAFTA VERÐLAUNA9
Arkitektafélag Íslands og Hafnar-
borg standa fyrir málstofu um Guð-
jón Samúelsson arkitekt í Hafnar-
borg, menningarmiðstöð Hafnar-
fjarðar, í dag frá kl. 11 til 13.
Fjallað verður um Guðjón, verk
hans skoðuð og metin af fimm þátt-
takendum sem kynnst hafa bygg-
ingarlist hans í störfum sínum á
ýmsum sviðum, að því er segir í til-
kynningu. Í Hafnarborg hefur stað-
ið yfir sýning á verkum Guðjóns
sem lýkur á morgun.
Frummælendur á málstofunni
verða arkitektarnir Guðni Valberg,
Sigurður Einarsson, Sigríður
Magnúsdóttir, Sigríður Björk Jóns-
dóttir, byggingarlistsagnfræðingur
og skipulagsfræðingur, og Pétur H.
Ármannsson, arkitekt og annar
sýningarstjóri sýningarinnar.
Fundarstjóri verður Ágústa Kristó-
fersdóttir, forstöðumaður Hafnar-
borgar og hinn sýningarstjóri sýn-
ingarinnar. Í lok málstofunnar
verða umræður milli frummælenda
og gesta sem Ágústa mun stýra.
„Guðjón Samúelsson er án efa
einn áhrifamesti arkitekt landsins
og eru verk hans fyrir löngu orðin
kennileiti um landið allt. Guðjón lék
einnig lykilhlutverk í skipulagi höf-
uðborgarinnar og þar af leiðandi
nútímavæðingu hennar. Hinn 20.
apríl næstkomandi verða liðin 100
ár frá því að Guðjón Samúelsson
tók við starfi húsameistara ríkisins.
Réttu ári fyrr lauk hann háskóla-
námi í arkitektúr, fyrstur Íslend-
inga,“ segir í tilkynningu frá Hafn-
arborg og að í tilefni síðustu
sýningarhelgarinnar verði einnig
boðið upp á leiðsagnir um sýn-
inguna með sýningarstjórum. Hún
fer fram í dag og á morgun kl. 14.
Málstofa og leiðsagnir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sýningarstjórar Pétur H. Ármannsson arkitekt og Ágústa Kristófersdóttir,
forstöðumaður Hafnarborgar. Þau munu veita leiðsagnir og taka þátt í mál-
stofu um Guðjón í Hafnarborg í dag. Sýningunni lýkur eftir helgi.
Flæði er heiti samsýningar kvenna
sem allar hafa tengingu við Borgar-
fjörð og verður opnuð kl. 13 í Safna-
húsi Borgarfjarðar í Borgarnesi. Er
það fyrsta samsýning hópsins sem
einnig kallar sig Flæði en í honum
eru átta konur sem hittast reglulega
og mála saman. Allar hafa þær lært í
Myndlistarskóla Kópavogs hjá De-
rek Mundell og einnig sótt önnur
námskeið hér á landi og erlendis.
„Hópurinn hefur heillast af vatns-
litum og töfrum þeirra þegar litur
og vatn flæða saman. Vatnslitir eru
krefjandi miðill sem erfitt er að
stjórna en glíman við þá leiðir mann
að endalausum möguleikum. Efni
sýningarinnar er, eins og heiti henn-
ar gefur til kynna, flæði vatns, lita
og myndefnis,“ segir í tilkynningu.
Sýnendur eru Fríða Björg Eðvarðs-
dóttir, Guðrún Steinþórsdóttir, Rósa
Traustadóttir, Sesselja Jónsdóttir,
Sigríður Ásgeirsdóttir, Svanheiður
Ingimundardóttir, Þorbjörg Krist-
insdóttir og Þóra Mínerva Hreið-
arsdóttir.
Eftir opnunardaginn er sýningin
opin alla virka daga frá kl. 13 til 18
og um helgar samkvæmt sam-
komulagi sem þá verður auglýst sér-
staklega. Hún stendur til 18. febr-
úar.
Flæði vatns, lita og myndefnis
Hópurinn Konurnar átta sem opna sýn-
ingu saman í Safnahúsi Borgarfjarðar.
Uppistandshóp-
arnir VHS,
Fyndnustu mínar
og grínistinn
Jakob Birgis
koma saman í
Tjarnarbíói í
kvöld kl. 20 og
verða með uppi-
stand. Munu
uppistandararnir
prufukeyra nýtt
gamanefni á gestum. VHS er skip-
aður Villa Neto, Stefáni Ingvari
Vigfússyni og Hákoni Erni Helga-
syni. Fyndnustu mínar er skipaður
Lóu Björk Björnsdóttur, Rebeccu
Lord Scott og Salvöru Gullbrá Þór-
arinsdóttur. Jakob Birgis gerði það
gott í fyrra með uppistandi og sýnir
um þessar mundir Allt í gangi í
Tjarnarbíói með Jóhanni Alfreð.
Nýtt ár og nýtt
grín í Tjarnarbíói
Jakob
Birgisson