Morgunblaðið - 11.01.2020, Side 52

Morgunblaðið - 11.01.2020, Side 52
Seinni bylgja íslenska rappsins lemst enn utan í klappir. Hvenær fjarar bylgjan út, eða á slíkt kannski ekki við lengur? TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Reiknað hefur verið út að með-allíftími tónlistarsena erjafnan þrjú ár, oft minna. Með tilheyrandi uppgangi, toppi og svo niðurtúr. Fyrri bylgja íslenska rappsins stóð frá ca. 2000-2003 en sú seinni, sem hófst 2015 með kröftug- um frumburði Gísla Pálma er enn í gangi. Hvað veldur? Ástæðan fyrir því að rappið er enn yfir og allt í kring, meira og minna, er sú að það er ekki hægt að nota senu-hugtakið yfir það með fullnægjandi hætti lengur. Rapp er í dag vinsælasta dægurtónlistarform heims, og að það sé að leggjast í lægð er jafn lík- legt og að rokkið hverfi. Ég veit um margt fólk á mínum aldri sem bíður sárbænandi eftir því að rappið hypji sig og mér þykir því leitt að færa ykkur þessar (hörmungar)fréttir. Á meðan fyrsta bylgjan var til- tölulega eintóna hvað stíl varðar, mikið til strákar að máta sig við er- lendar klíkufyrirmyndir, er fjöl- breytnin þónokkur í seinni bylgj- unni. Hún er líka mun sýnilegri á almennum markaði, sem helst í hendur við þróun erlendis. Árið 2001 hefði það verið óhugsandi að Rottweilerhundar gætu nýtt sér kostunaraðila, fyllt tónleikahallir og runnið svo mjúklega inn í megin- strauminn eins og raunin hefur verið. Flóni, Joey Christ, Aron Can, Emmsjé Gauti, svo ég nefni dæmi, þetta eru listamennirnir sem mynda þá tón- og hljóðmynd sem yngri hlustendur ganga um í. Þeir eiga hringitónana, myndböndin, dag- útvarp (upp að vissu marki) og, sem er tímanna tákn, streymið. Eins og segir, íslenska rappið tekur á sig margar myndir í dag. Stelpurnar (ósýnilegar fyrir fimm- Staða íslensks rapps í dag Séður Herra Hnetusmjör veit upp á hár hvað hann er að gera. tán árum) halda uppi merkjum tilrauna- mennsku og pólitísks boðskapar. Countess Malaise átti t.d. sterka plötu á síðasta ári og sérstaklega Cell7, sem gaf út frábæra plötu sem dansaði á mörkum popps og rapps. Flóni og Joey Christ gáfu út stórar plötur, það form hentar íslenskum röppurum oft illa virðist vera (of mikið af uppfyllingarefni) en báðir áttu sterka smelli. Herra Hnetusmjör, sem er með ólík- indum vinsæll og í einstakri stöðu hérlendis, viðheldur henni en líkt og Emmsjé Gauti er hann naskur markaðsmaður og keyrir sinn feril án þess að blikna; dúndrar út klúbbavænu rappi, hnetusmjöri í krukkum eða jólalagi með Bó og allt rennur þetta eftir sömu línunni ein- hvern veginn. Þegar senur verða stórar líður ekki á löngu þar til útvatnaðar af- urðir láta á sér kræla. Einslags skuggamyndir af því sem er móðins, sjarmalaus tónlist og tómleg. Íslenska rappið er auðvitað engin undantekning og ógrynni af þessum lista- mönnum fylla nú Spotify og aðrar veitur. Ég nefni þá hins vegar ekkert sér- staklega. Ég hafði hins vegar gaman af 24/7 á síð- asta ári, Elli Grill var líka sterkur að vanda og plata Krabba Mane olli því að maður sperrti upp eyrun. Þar er „eitthvað“. KEF Lavík héldu þá áfram ótrúlegri textareið sinni og platan Eyðibýli, með Hauki H, er krúttleg. Samansull af gömlum stíl- um, hljómar á köflum eins og týnt sólóverkefni frá Wu-Tang. Eitt sem ég furða mig á er, hvar er trappið? Trappið er málið í dag og heimakokkaðar útgáfur af þess- ari stefnu, sem á rætur í Atlanta, eru að poppa upp um allan heim. Aron Can ýjaði að þessu, Flóni próf- aði þetta, Yung Nigo drippin‘ er svona næstum því þar, með naum- hyggjulega drafrappinu sínu. En hreinræktað trapp, ég lýsi hér með eftir því. Tek það að lokum fram, reynsl- unni ríkari, að þetta var ekki hugs- að sem upptalningargrein og ef ein- hver rapparinn hváir við lesturinn er það vegna þess að annaðhvort a) gleymdi ég honum, b) mér hugnast hann ekki eða c) hann var óþarfur fyrir þær röksemdir sem ég er að bera á borð, þó að tónlistin hans sé stórkostleg. Pís át! » Þeir (rappararnir)eiga hringitónana, myndböndin, dagútvarp (upp að vissu marki) og, sem er tímanna tákn, streymið. 52 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2020 Fjögur ár voru í gær liðin frá því breski tónlistarmaðurinn David Bowie lést aðeins 69 ára að aldri eftir stutta baráttu við lifrar- krabbamein. Í tilefni dagsins fengu 300 aðdáendur tónlistarmannsins í Bresku geimmiðstöðinni í Leicester að sjá áður ósýnt myndefni með Bowie sem tekið var upp 1998. Í frétt BBC um málið kemur fram að myndefnið, sem spanni um 30 mín- útur, hafi legið óhreyft í geymslu De Montfort-háskólans í Leicester. Martin Richardson, vinur og sam- starfsfélagi Bowies, tók efnið upp til að búa til heilmyndina af Bowie sem fylgdi um 500.000 eintökum af plötunni Hours sem út kom 1999. Á upptökunum, sem klipptar hafa verið saman, má sjá Bowie ganga í átt að myndavélinni og stilla sér upp í ýmsar stellingar. Í vikunni bárust jafnframt fréttir af því að von væri á tveimur nýjum plötum með upptökum Bowies. Samkvæmt frétt The Guardian er annars vegar um að ræða plötuna Is It Any Wonder? sem inniheldur áður óútgefnar upptökur með Bow- ie og hins vegar ChangesBowie- Now sem inniheldur upptökur frá 1996 af æfingu fyrir tónleika Bow- ies í Madison Square Garden í til- efni af 50 ára afmæli tónlistar- mannsins. Ekki liggur fyrir hvaða lög verða á Is It Any Wonder? en fyrsta lagið af plötunni, „The Man Who Sold the World“, fór í spilun 8. janúar, en þann dag hefði Bowie orðið 73 ára hefði hann lifað. Báðar plötur eru gefnar út hjá Parlo- phone Records. Dánarbú Bowies á allar upptökurnar. Í fréttinni kemur fram að stuttu eftir andlát Bowies hafi salan á plötum hans aukist um 5.000% í Bandaríkjunum. Í vikunni sem hann lést seldust 682.000 plötuein- tök og samkvæmt Spotify-streymis- veitunni jókst hlustun á tónlist hans um 2.700% fyrstu klukkutímana eftir andlátsfréttina. Von á tveimur plöt- um með Bowie í ár  Áður ósýnt myndefni opinberað AFP Vinsæll David Bowie árið 1990 að kynna tónleikaferð um heiminn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.