Morgunblaðið - 11.01.2020, Qupperneq 56
HEYRNARSTÖ‹IN
Kringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is
Hlustaðu
á hjartað þitt
Beltone Trust
™
Beltone Trust™ heyrnartækin
gera þér kleift að heyra jafn-
vel minnstu smáatriði – sem
stundum reynast þau mikil-
vægustu. Við hjá Heyrnarstöðinni leggjum
allan okkar metnað í að veita góða þjónustu
og bjóða upp á hágæða heyrnartæki. Komdu
í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnar-
tæki lánuð til reynslu.
Þórunn Bára
Björnsdóttir
opnar sýn-
inguna Surtsey
– Mávaból í
Menningarhús-
inu Hofi í dag.
Þórunn vinnur
með náttúru-
skynjun og er
umhugað um samband manns við
náttúru og telur að listin hafi hlut-
verki að gegna við að hvetja fólk til
að umgangast náttúruna af hugul-
semi og virðingu. Verkunum í Hofi
er ætlað að lyfta upp tilvist smárra
en mikilvægra plantna úr vistkerf-
inu svo sem fléttum og mosum og
einnig þeim íslensku plöntum sem
hafa náð að festa rætur á hrjóstr-
ugu landi og við þekkjum og okkur
þykir vænt um.
Opnar sýningu í Hofi
LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 11. DAGUR ÁRSINS 2020
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.150 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Ísland mætir Danmörku í fyrsta leik
liðanna á Evrópumóti karla í hand-
knattleik í Malmö klukkan 17.15 í
dag en þetta er fyrsta viðureign
þjóðanna á stórmóti frá árinu 2015.
Björgvin Páll Gústavsson landsliðs-
markvörður er á leið á sitt þrett-
ánda stórmót með landsliðinu og
segir að íslenska liðið þurfi að eiga
toppleik á öllum sviðum til að geta
unnið Dani. »49
Þurfum að eiga topp-
leik á öllum sviðum
Mikael Lind heldur tónleika í
Mengi í kvöld kl. 21. Lind hefur
gefið út fjölda platna með til-
raunakenndri sveimtónlist og í
fyrra samdi hann tónlist með
fiðluleikaranum og tónskáldinu
Hoshiko Yamane úr hljómsveitinni
Tangerine Dream og kom hún út á
plötunni Spaces in Between. Þeirri
útgáfu verður fagnað í kvöld og
mun Mikael koma einn fram en
fiðluleikur Yamane verða settur í
„granular“ hljóð-
gervla og
klipptur í
sundur. Einnig
verður sýnd
vídeólist eftir
Rakel Jóns-
dóttur með
dansi eftir Bergþóru
Einarsdóttur.
Fagnar útgáfu í Mengi
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Sérsveitin, stuðningsmannahópur
íslenska landsliðsins í handbolta, er
mætt til Malmö í Svíþjóð og gefur
tóninn á leik Íslands og Danmerkur í
Evrópukeppninni í dag. „Stemning-
in er gríðarleg, við erum brött og já-
kvæð, tökum Pollýönnu á þetta og
þetta reddast,“ segir Benjamín Árni
Hallbjörnsson, gjarnan kallaður
Benni bongó. Hann er talsmaður
hópsins og fyrrverandi formaður
Tólfunnar, stuðningsmannahóps
landsliðsins í fótbolta.
Sveitin var stofnuð 2018 og fór á
fyrsta stórmótið fyrir ári. Tíu manns
fóru til Þýskalands og ellefu eru í
hópnum núna. „Við öðluðumst smá
reynslu á HM í München og erum
spennt,“ segir Benni. Hann bætir við
að fjöldi Íslendinga verði á leikjum
liðsins, sennilega um 1.000 manns,
og þeir verði að sjálfsögðu í Sér-
sveitinni. „Allir stuðningsmenn ís-
lenska landsliðsins eru í Sérsveitinni
á leikdag,“ leggur hann áherslu á.
Planið er að fylgja landsliðinu eft-
ir í riðlakeppninni og sjá svo til. „Ég
hef fulla trú á því að liðið fari áfram í
milliriðil og gangi því vel þar getur
vel verið að við gerum okkur ferð á
leik um sæti,“ segir Benni. „Aðal-
atriðið er að njóta leikjanna í riðla-
keppninni og styðja vel við bakið á
strákunum í þessum erfiðu leikjum.“
Hann bætir við að Danir séu með
eitt besta lið í heimi. Mikill meiri-
hluti áhorfenda á leiknum í dag verði
á þeirra bandi og því þurfi Sérsveitin
að láta vel í sér heyra til þess að
stuðningurinn skili sér inn á völlinn.
Benni bendir á að liðið sé í mótun
og því hengi menn ekki haus þó að
eitthvað klikki. „Við erum að byggja
til framtíðar og það þýðir ekki að
henda sér í neikvæðni ef úrslitin eru
ekki góð því við verðum að trúa á
þessa gæja. Sérsveitin fer í alla leiki
til þess að vinna og á góðum degi
getum við unnið hvaða lið sem er,
jafnvel Dani, þó að alveg megi búast
við tapi. En ég vil vinna leikina á
móti Rússum og Ungverjum með
þremur mörkum.“
Helsta áhugamálið
Nokkrir liðsmenn Sérsveitarinnar
vinna hjá Húsasmiðjunni sem styrk-
ir hana til fararinnar. Einar Sveins-
son er fararstjóri nokkurra annarra
starfsmanna fyrirtækisins í Malmö.
Hann hefur lengi tengst handbolt-
anum, lék lengi með Þrótti, var dóm-
ari um árabil og hefur verið eftirlits-
maður HSÍ undanfarin ár.
Einar hefur farið á mörg stórmót
og er hokinn af handboltareynslu.
„Ég fór fyrst á HM í Árósum 1978,
var á svörtu dögunum í Danmörku,“
rifjar hann upp. Síðan fylgdi hann
Sigurði, bróður sínum, á HM í Sviss
1986 og í B-keppnina í Frakklandi
1989. Hann var svo á EM í Þránd-
heimi 2008 og HM í München í fyrra.
„Handbolti hefur verið mitt helsta
áhugamál síðan ég var unglingur og
umhverfið hefur alltaf verið
skemmtilegt,“ segir hann. Bætir við
að B-keppnin 1989 hafi verið
skemmtilegust og hann eigi von á
mikilli gleði nú. „Ég hef tröllatrú á
liðinu en riðillinn er ótrúlega erfiður.
Samt hef ég trú á að við förum upp
úr riðlinum og sigrum jafnvel Dan-
ina.“
Sérsveitin hitar upp á veitinga-
staðnum Paddy’s í Malmö frá klukk-
an 12 í dag og þar verður meðal ann-
ars boðið upp á andlitsmálningu.
Hægt er að fylgjast með gangi mála
á samfélagsmiðlum (sersveitin.is,
sersveitinstudningssveit á fésbók-
inni og sersveitin_official á in-
stagram).
Sérsveitin Starfsmenn Húsasmiðjunnar í sveitinni hituðu upp fyrir ferðina. Fremst frá vinstri eru Einar Sveinsson,
fararstjóri annarra starfsmanna, Árni Stefánsson forstjóri og Finnur Guðmundsson, framkvæmdastjóri fagsölu-
sviðs. Benjamín Árni Hallgrímsson, Benni bongó, er með húfu, fyrir miðri mynd.
Sérsveitin gefur tóninn
Stuðningsmenn bjartsýnir fyrir EM í handbolta