Morgunblaðið - 20.01.2020, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 20.01.2020, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. JANÚAR 2020 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. LÉLEG RAFHLAÐA? Við skiptum um rafhlöðu samdægurs Bolholti 4, 105 • Reykjavík • S 534 1400 • www.smartfix.is s n j a l l t æ k j a þ j ó n u s t a Skapandi og listrænir krakkar tóku þátt í leir- smiðju á sýningu Safnahússins á Hverfisgötu, Sjónarhorn. Skartaði sýningin röð 10 málverka frá 100 ára tímabili, sem sýndi fjöllin sem um- kringja Reykjavík: Akrafjall, Skarðsheiði, Esju og Skálafell svo fátt eitt sé nefnt. Fengu krakk- arnir innblástur frá verkunum og mótuðu lands- lagið úr leir. Útsýni Safnhússins á efstu hæð skemmdi síðan ekki fyrir, en börnin virtu fjöllin fyrir sér út um þakgluggann á efstu hæð áður en þau hófust handa við listsköpunina. Umsjón með námskeiðinu hafði Guðrún J. Halldórsdóttir. Listsköpun í Safnahúsinu Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Virða fjöllin fyrir sér og skapa list um leið Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Laun forstjóra í íslenskum fyrir- tækjum hækkuðu hlutfallslega um- fram laun annarra starfsmanna á tímabilinu 2002 til 2007 en lækkuðu á árum efnahagshrunsins 2008 og 2009. Launahlutfall forstjóra og ann- arra starfsmanna hefur þó verið svipað frá 2009 til 2018. Vísbending- ar eru um að hlutfallið sé nú að drag- ast saman en forstjórar voru með rúmlega fjórum sinnum hærri laun en aðrir starfsmenn á árunum 2016 til 2018. Þetta kemur fram í niðurstöðum rannsóknar Margrétar Kristínar Indriðadóttur á launahlutfalli for- stjóra og annarra starfsmanna árin 1999 til 2018 í meistararitgerð henn- ar í viðskiptafræði við Háskóla Ís- lands. Byggist rannsóknin á ítarlegu gagnasafni sem nær til starfsmanna og fyrirtækja á Íslandi með 50 starfsmenn eða fleiri og teljast til al- menns vinnumarkaðar. Í niðurstöðum rannsóknarinnar kemur meðal annars fram að þróun launahlutfalls forstjóra og annarra starfsmanna hafi verið með ólíku sniði í stórum fyrirtækjum (með 250 starfsmenn eða fleiri) og fyrirtækj- um sem eru skráð á markað en með- alstórum fyrirtækjum (50 til 249 starfsmenn). Hjá stórum fyrirtækj- um hafi laun forstjóra hækkað að jafnaði um nærri 1% á ári yfir tutt- ugu ára tímabil en hjá fyrirtækjum sem skráð eru á markað hafi laun forstjóra hækkað um tæplega 3% á sama tímabili. Launahlutfall forstjóra virðist einnig hafa dregist saman á síðustu árum, samkvæmt rannsókninni, óháð því hvort horft er til stórra fyrirtækja eða fyrirtækja á markaði. Niðurstöður gefa einnig til kynna að launa- hlutfall forstjóra sé mun hærra er- lendis en á Íslandi. Það á einnig við um árið 2007 þegar launahlutfall for- stjóra náði hámarki hér á landi. Þessar niðurstöður eru ekki sagðar koma á óvart í ljósi þess að stór hluti forstjóralauna í erlendum rannsókn- um er í formi hluta og valréttar- samninga og byggjast á stærstu fyr- irtækjunum á hlutabréfamarkaði. Þá hafi rannsóknir sýnt fram á að launa- hlutfall forstjóra sé hærra í þeim löndum sem eru, meðal annars, með stóran og rótgróinn hlutabréfamark- að sem sé ekki raunveruleikinn hér á landi. Í samtali við Morgunblaðið segir Margrét að mikilvægt sé fyrir fyrir- tæki að gæta þess að launakjör for- stjóra séu í takt við samfélagsleg við- mið. Rannsókn sem Margrét vitnar í í ritgerðinni gefur kynna að fólk vænti þess að forstjóri í stórfyrir- tæki ætti að hafa 4,6 sinnum hærri laun en ósérhæfðir starfsmenn. „Ég tel að það eigi að borga for- stjórum góð laun. Rannsóknir hafa sýnt að forstjórar eru mikilvægir fyrir fyrirtæki og skipta miklu máli fyrir starfsemi þeirra. En á sama tíma er mikilvægt að launakjör for- stjóra séu gegnsæ og ekki óhófleg,“ segir Margrét. Laun forstjóra mikilvæg  Launahlutfall forstjóra og annarra starfsmanna virðist vera að dragast saman  Laun forstjóra ættu að vera í samræmi við væntingar en ekki „út út kortinu“ Margrét Kristín Indriðadóttir Landlæknir leggur m.a. til að ráð- gjafarfyrirtækið McKinsey & Comp- any verði fengið til að endurtaka út- tekt á Landspítalanum líkt og gert var árið 2016 þegar svipaður ágrein- ingur um fjárþörf og rekstur spít- alans var uppi og er nú. Þetta kemur fram í minnisblaði sem Alma D. Möller landlæknir sendi til Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra í síðustu viku. Segir landlæknir gagnlegt að sjá hvernig mál hafa þróast á síðustu ár- um, hvernig viðbótarfjármagn hefur nýst og hvort fjármögnun spítalans sé í takti við verkefnin. Í minnisblaðinu segir að staðan á bráðamóttöku Landspítalans hafi lít- ið batnað á því ári sem liðið er frá út- tekt sem Embætti landlæknis gerði í desember árið 2018 á bráðamóttöku Landspítala þrátt fyrir að bæði heil- brigðisráðuneytið og Landspítali hafi gripið til fjölda aðgerða til að laga stöðuna. Telur landlæknir ástandið á bráðamóttökunni vera áhyggjuefni. Mikið álag um helgina Mikið álag var á bráðamóttökunni yfir helgina vegna alvarlegra um- ferðarslysa, að sögn Jóns Magnúsar Kristjánssonar, yfirlæknis bráða- lækninga á Landspítala, en tekist hafi að leysa úr því. „Það hefur tekist að rýma til og tryggja pláss fyrir alla þá sem hafa þurft þangað að leita.“ Bílslys varð á Skeiðarársandi á föstudag, um kvöldið höfnuðu þrír piltar í bíl í sjónum við Óseyrar- bryggju í Hafnarfirði og á laugardag voru þrír fluttir á bráðamóttökuna eftir árekstur á Sandgerðisvegi. Tveir piltanna sem lentu í höfninni liggja alvarlega slasaðir á gjörgæslu en sá þriðji liggur á annarri deild og er líðan hans sögð eftir atvikum. Staðan mikið áhyggjuefni  Landlæknir leggur til nýja út- tekt á Landspítala Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Bráðamóttaka Landlæknir telur að grípa þurfi til aðgerða á deildinni. Héraðsdómur Reykjavíkur úr- skurðaði í gær sex manns í gæslu- varðhald vegna gruns um skipu- lagða brotastarfsemi sem snýr að fíkniefnaframleiðslu og peninga- þvætti. Fimm sæta varðhaldi til 31. janúar og einn til 27. janúar. Mennirnir voru handteknir á sól- arhring samhliða umfangsmiklum aðgerðum lögreglu. Ráðist var í húsleitir og hald var lagt á fíkni- efni, vopn og fé. Hald lagt á vopn, fíkniefni og fé „Okkur miðar hraðar áfram en áð- ur og það er ánægjulegt. En það er ekki þannig að komin sé niður- staða, eða að það sjái fyrir endann á þessu máli,“ segir Sonja Ýr Þor- bergsdóttir, formaður BSRB. Samningaviðræður opinberra starfsmanna við ríkið, Reykjavík- urborg og Samband íslenskra sveit- arfélaga fóru fram á föstudag, laugardag og sunnudag. Var þar rætt um styttingu vinnuviku fólks í vaktavinnu. Að sögn Sonju hafa verið lögð fram fyrstu drög sam- komulags og er áætlað að þeir sem sátu fundinn leiti nú til síns bak- lands en komi svo saman að nýju á fimmtudag. „Svo eru mörg stór mál eftir, eins og jöfnun launa, launaþróunartrygging og launalið- ur hjá aðildarfélögum BSRB.“ Ekki niðurstaða enn um styttri vinnuviku Launahlutfall forstjóra og annarra starfsmanna náði lág- marki árið 2001 þegar það var 3,7 sem gefur til kynna að laun forstjóra voru 3,7 sinnum hærri en annarra starfs- manna. Launahlutfallið náði há- marki á árunum fyrir fjár- málahrunið, fór úr 5 árið 2005 í 5,6 árið 2006 og upp í 7 árið 2007. Eftir það fór hlut- fallið aftur lækkandi og var 4,9 árið 2008. Launahlutfallið var nokkuð stöðugt eftir hrun og hélst til að mynda 4,4 á árunum 2012 til 2015. Árin 2016 til 2017 var hlutfallið 4,3 og var orðið 4,2 árið 2018. Launahlutfall forstjóra og annarra starfsmanna var 4,5 að jafnaði á árunum 1999 til 2018. Hámarkinu var náð 2007 SVEIFLUKENND LAUN

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.