Morgunblaðið - 20.01.2020, Síða 6

Morgunblaðið - 20.01.2020, Síða 6
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Nói Síríus innkallaði um 150 þús- und Síríus súkkulaðiplötur vegna galla en aðeins er vitað um galla í fimm stykkjum. Innköllunin var gerð víðtækari í varúðarskyni. „Við teljum betra að gæta fyllstu var- úðar, viljum ekki að fólk þurfi að upplifa svona galla í súkku- laðinu,“ segir Auðjón Guð- mundsson, fram- kvæmdastjóri markaðs- og sölusviðs Nóa Sí- ríuss. Gallinn er vegna plasts sem fannst í súkkulaðiplötum. Flísast hafði úr súkkulaðimóti inni í vél og fóru flísarnar ofan á súkkulaði- plöturnar rétt áður en súkkulaðið var fullharðnað. Mótin eru litrík þannig að flísarnar sjást vel í bláum eða bleikum lit á neðri hlið þeirra súkkulaðiplatna sem þær rötuðu á. Ekki hættulegar heilsu fólks Auðjón segir að gallinn hafi ekki uppgötvast í ströngu gæðaeftirliti fyrirtækisins. Þannig hafi flísarnar ekki komið í ljós við röntgenskoðun eða málmleit og þær hafi farið fram hjá augum starfsmanna enda snúi gallaða hliðin niður. Tekur hann fram að búið sé að breyta vinnu- brögðum við framleiðsluna. Meðal annars séu vélarnar opnaðar þrisv- ar á dag til að athuga hvort nokkuð sé að. Auðjón segir aðspurður að plast- flísarnar séu ekki taldar hættu- legar heilsu fólks. Eigi að síður séu þær ekki matvæli og Nói Síríus vilji ekki verða þess valdandi að þær rati ofan í fólk. Upphaflega lét neytandi vita um eina gallaða plötu og við víðtæka innköllun hafa alls fimm slík súkku- laðistykki fundist. Auðjón segir að tekist hafi að stöðva meginhluta innkölluðu vörunnar í vöruhúsum verslana og annarra viðskiptavina. Einstaklingum sé einnig gefinn kostur á að skila því sem keypt hef- ur verið, hvort sem plöturnar eru gallaðar eða heilar. Alls voru sex tegundir af Síríus suðusúkkulaði og Síríus rjómasúkkulaði innkallaðar. Galli fannst í fimm plötum af 150 þúsund  Nói Síríus innkallaði sex tegundir af Síríus súkkulaði vegna plastagna Ljósmynd/Aðsend Síríus súkkulaði Aðeins hafa fund- ist fimm gallaðar súkkulaðiplötur. Auðjón Guðmundsson 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. JANÚAR 2020 Kaupendur sem hafa beðið eftir Enox ES100-rafmagnshlaupahjóli frá versluninni Hópkaup frá því fyr- ir jól fá hjólin líklega afhent í vikunni en gámur með 930 hjólum sem kom til landsins á Þorláksmessu hefur verið í geymslu síðan. Skoðun á hjólunum leiddi í ljós að svonefnda CE-merkingu vantaði á stell hjólanna auk þess sem leiðbein- ingar á íslensku fylgdu þeim ekki eins og reglugerð um vélar og tæknilegan búnað gerir ráð fyrir. Vinnueftirlitið setti tímabundið bann á sölu og afhendingu hjólanna á þriðjudaginn í síðustu viku á meðan á rannsókn stofnunarinnar stæði. Guðmundur Magnason, fram- kvæmdastjóri Hópkaupa, staðfestir þetta í samtali við Morgunblaðið. Segir hann að Wedo ehf., sem rekur Hópkaup, og Enox Group, framleið- anda hjólanna, hafi verið tilkynnt að öll öryggis- og vottunaratriði í sam- bandi við hjólin væru fullnægjandi á fundi með Vinnueftirlitinu um málið á föstudaginn. Talið er að mistök hafi orðið til þess að CE-merkingin var ekki sett á hjólið. Þá segir Guð- mundur að Wedo ehf. hafi ekki vitað af reglugerðinni sem gerði ráð fyrir íslenskum leiðbeiningum enda sé hún nýleg. Hafi kaupendum boðist að fá hjólin endurgreidd eða bíða eftir hjólunum og fá auk þess sára- bætur frá framleiðanda. „Sem betur fer var ekkert að hjól- unum sjálfum. Þetta voru einu at- hugasemdirnar sem við fengum. Vinnueftirlitið bauð okkur að bæta úr þessu, merkja hjólin og setja ís- lenskan leiðarvísi í kassana,“ segir Guðmundur. Segir hann að þýðandi hafi þýtt leiðarvísinn um helgina og að hann verði prentaður í dag og tel- ur að líklega verði hægt að afhenda hjólin fyrir vikulok. rosa@mbl.is Rafhlaupahjólin afhent í vikunni  Skortur á CE-merkingu talin mistök Morgunblaðið/Hari Vinsælt Margir bíða enn eftir raf- hlaupahjólum frá því fyrir jól.Glerborg Mörkinni 4 108 Reykjavík 565 0000 glerborg@glerborg.is www.glerborg.is 2291árfregalgeps&nupílsrelg,raggulg,relG FÁÐU TILBOÐ ÞÉR AÐ KOSTNAÐAR- LAUSU Ertu að byggja eða þarf að endurnýja gamla glerið? Það skiptir miklu máli að velja einangrunargler sem reynist vel við íslenskar aðstæður. Fáið tilboð hjá Glerborg í Mörkinni 4 eða á heimasíðunni okkar WWW.GLERBORG.IS Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Á nýliðnu ári endurgreiddi Endur- vinnslan hf. um 2,5 milljarða fyrir drykkjarvöruumbúðir til viðskipta- vina, en skilagjaldið er 16 krónur á einingu. Ef miðað er við skilagjald eins og það er núna þá hefur Endur- vinnslan endurgreitt um 41 milljarð þau 30 ár sem fyrirtækið hefur safnað flöskum og dósum. Helgi Lárusson, framkvæmda- stjóri Endurvinnslunnar, segir að mest sé um skil frá einstaklingum, en íþróttafélög, björgunarsveitir og góð- gerðarfélög séu einnig dugleg við söfnun. Alls var skilað um 157 milljón flöskum og dósum 2019, sem er meira en nokkru sinni áður. Hlutfallið af umbúðum sem fóru á markað í fyrra gæti verið nálægt 85%, en endanlegar upplýsingar liggja ekki fyrir. „Skil hafa aukist frá fyrra ári, þeg- ar þau voru um 83%, en þau mættu samt vera meiri,“ segir Helgi. „ Allir neytendur ættu að hafa það að mark- miði að skila öllum skilaskyldum drykkjarumbúðum. Umhverfislegur ávinningur er augljós og einnig fjár- hagslegur.“ Ál og plast í endurvinnslu Helgi segir að allar drykkjarum- búðir úr áli og plasti fari í endur- vinnslu og áldós verði þannig að nýrri áldós á 60 dögum. Við það sparist mikil orka og ekki síður hráefni sem sé langt frá því að vera óendanleg auðlind. Í auknum mæli séu plast- flöskur endurunnar í nýja plastflösku, rPET, og segir Helgi að stórir fram- leiðendur eins og Coke og Pepsi ein- beiti sér að því að þeirra plastumbúðir séu úr endurunnu plasti. „Ástæðan er fyrst og fremst sú að það er mjög umhverfisvænt og gerir slíkar umbúðir þær umhverfisvæn- ustu út frá kolefnisspori. Að auki sparast í hverju tonni af plastflöskum 1,8 tonn af olíu. Vandamálið í dag er að ekki fæst nægjanlega mikið af plastdrykkjarumbúðum og áldósum til að framleiða allar þær endurunnu plastflöskur og dósir sem menn vilja framleiða,“ segir Helgi. Umhverfismál eru Helga hugleikin og bendir hann á að ávinningur þess að endurvinna 85% umbúða sem skil- að er nemi kolefnisjöfnun á við sjö milljón tré á ári. Orkusparnaður þess að endurvinna áldósir nemi orkuþörf um 12 þúsund meðalstórra heimila á ári. „Skilakerfið var þó ekki síst stofnað til að koma í veg fyrir að flöskur og dósir enduðu sem drasl í náttúrunni og telja verður að vel hafi tekist til í þeim málum,“ segir Helgi. Skil á drykkjarumbúðum til endurvinnslu 1989-2019* 2,5 milljarðar kr. voru endurgreiddir til viðskiptavina árið 2019* 41 milljarð kr. hefur Endurvinnslan hf. endurgreitt sl. 30 ár ef miðað er við skilagjald eins og það er í dag 157 milljón drykkjar- umbúðum var skilað til endurvinnslu árið 2019* eða alls 2.553 milljónir frá árinu 1989 Ávinningur þess að endurvinna 85% umbúða sem skilað er nemur kolefnisjöfnun á við 7.000.000 tré á ári 41 ma.kr. *Tölur fyrir 2019 eru áætlaðar '89 '90 '91 '92 '93 '94 '95 '96 '97 '98 '99 '00 '01 '02 '03 '04 '05 '06 '07 '08 '09 '10 '11 '12 '13 '14 '15 '16 '17 '18 '19 1989: 35 milljón umbúðir. 17 milljón skilað, eða 47% 1999: 79 milljón umbúðir. 65 milljón skilað, eða 83% 2019: 185 milljón umbúðir. 157 milljón skilað, eða 85% Heimild: Endurvinnslan hf. 2009: 119 milljón umbúðir. 100 milljón skilað, eða 84% Um 157 milljón dósum og flöskum skilað 2019  41 milljarður á 30 árum  Ávinningur af endurvinnslu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.