Morgunblaðið - 20.01.2020, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. JANÚAR 2020
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Skipulagsnefnd Reykhólahrepps
hefur sent drög að framkvæmdaleyfi
til handa Vegagerðinni vegna lagn-
ingar Vestfjarðavegar eftir hinni
svonefndu Teigsskógarleið til um-
sagnar hjá Umhverfisstofnun og
Náttúrufræðistofnun. Nefndin vill
að athugað verði með breytingar á
áfangskiptingu verksins. Taka þarf
afstöðu til athugasemda stofnananna
og ef það tekst í tæka tíð er gert ráð
fyrir því að sveitarstjórn afgreiði
framkvæmdaleyfi á fundi 11. febr-
úar. Vegagerðin stefnir að því að
vera tilbúin með fyrstu útboð í vor
þannig að hægt sé að hefja fram-
kvæmdir við fyrsta áfanga í sumar.
Ekki sammála um áfanga
Lengi hefur verið deilt um leiða-
val fyrir Vestfjarðaveg um Gufu-
dalssveit. Nú er ákveðin leið komin í
gilt skipulag og unnið að útgáfu
framkvæmdaleyfis fyrir þá leið.
Gangi það eftir mun vegurinn fara
yfir Gufufjörð og Djúpafjörð, um
Teigsskóg og loks á brú innarlega í
Þorskafirði. Núverandi vegur er
gamall malarvegur og liggur fyrir
firðina og yfir Ódrjúgsháls og
Hjallaháls þar sem oft er erfið færð.
Nýi vegurinn verður láglendisvegur,
er ódýrari en aðrir kostir en hefur í
för með sér meiri áhrif á umhverfið.
Vegagerðin hefur ekki ákveðið
endanlega áfangaskiptingu verksins
og hvar byrjað verður á fram-
kvæmdum. Erfitt er að gera það
fyrr en úrskurðarnefnd umhverfis-
og auðlindamála hefur fjallað um
hugsanlegar kærur vegna útgáfu
framkvæmdaleyfis og tekið afstöðu
til kröfu um stöðvun framkvæmdar.
Einnig þarf að ljúka samningum við
alla landeigendur eða fá heimild til
eignarnáms þeirra landspildna sem
ekki fást keyptar.
Magnús Valur Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri mannvirkjasviðs
Vegagerðarinnar, segir að verkið sé
fullfjármagnað og ef tekist hefði að
ganga frá öllum hlutum fyrirfram
hefði ekkert verið í vegi þess að
bjóða verkið út í einu lagi.
Eins og staðan er nú má búast
við að nauðsynlegt verði að áfanga-
skipta því. Komi til þess að nauð-
synlegt sé að skipta verkinu í
áfanga segir Magnús Valur að af
praktískum ástæðum sé hugmyndin
að byrja vestan megin. Fyrsti
áfanginn gæti orðið tengingin með
austurströnd Djúpafjarðar að bæn-
um Djúpadal. Hún mun geta nýst
við framkvæmdir við næsta áfanga
sem yrði þveranir á Gufufirði og
Djúpafirði. Með fyrstu tveimur
áföngunum yrði komin leið framhjá
Ódrjúgshálsi sem er mesti far-
artálminn á Vestfjarðavegi en
áfram þyrfti að fara um Hjallaháls.
Þriðji áfangi yrði um Teigsskóg og
inn Þorskafjörð. Þverun Þorska-
fjarðar yrði fjórði og síðasti áfang-
inn. Vegagerðin vill nýta grjót úr
skeringum í þriðja áfanga í grjót-
vörn í Þorskafirði.
Skipulagsnefnd Reykhólahrepps
vill athuga með breytta áfangskipt-
ingu. Tryggvi Harðarson sveitar-
stjóri segir að heimamenn vilji frek-
ar byrja austanmegin. Þverun
Þorskafjarðar skapi mesta stytt-
ingu á vegalengdum á þessari leið.
Segist hann heyra á mörgum að ef
byrjaði verði vestanmegin og nið-
urstaðan yrði sú að vegagerð um
Teigsskóg yrði stöðvuð yrði áfram
að fara um Hjallaháls um alla fram-
tíð.
Nokkrir lausir endar
Ekki hafa náðst samningar við
landeigendur Hallsteinsness og
Grafar en Vegagerðin telur að aðrir
landeigendur séu jákvæðir þótt ekki
hafi verið gengið frá samningum við
þá alla. Ef samningar nást ekki má
búast við að óskað verði eftir heim-
ild til eignarnáms. Hægt er að fara
með það fyrir dómstóla.
Eftir að sveitarfélagið hefur gefið
út framkvæmdaleyfi hefst fjögurra
vikna kærufrestur til kærunefndar
umhverfismála. Aðeins þeir sem
taldir eru eiga hagsmuna að gæta,
svo sem landeigendur, geta kært.
Kærunefnd getur mælt fyrir um
stöðvun framkvæmda, ef þess er
krafist og efni standa til. Það myndi
fresta öllum framkvæmdum. Ann-
ars getur Vegagerðin hafið fram-
kvæmdir. Magnús segir stefnt að
því að hafa verkið tilbúið til útboðs í
vor, þannig að hægt verði að hefja
framkvæmdir næsta sumar. Ekkert
hafi þó verið ákveðið í því efni og
geti ákvarðanir ráðist af framvind-
unni næstu vikur og mánuði.
Reikna með að hefja
framkvæmdir að vestan
Framkvæmdaleyfi vegna Teigsskógarvegar til umsagnar hjá stofnunum
Dj
úp
ifjö
rð
ur
Gufu-
fjörður
Þor
ska
fjör
ður
Þo
rs
ka
fjö
rð
ur
B
erufjörður
Skálanes
Teigs
skóg
ur
Hja
llah
áls
Gufudalssveit
Grónes
Hallsteinsnes
Ódrjúgs-
háls
Leið Þ-H um
Teigsskóg
Núverandi vegur
Vestfjarðavegur um Gufudalssveit
Loftmyndir ehf.
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
DUCA Model 2959 Rafmagn
L 238 cm Áklæði ct. 83 Verð 699.000,-
L 238 cm Leður ct. 15 Verð 879.000,-
Alþjóðleg bænavika stendur nú yfir
og hér á landi verður dagskrá alla
þessa viku bæði í Reykjavík og á Ak-
ureyri.
Fyrsti viðburður bænavikunnar í
Reykjavík, blessun hafsins, fór fram
í Nauthólsvík á laugardag Athöfnin
var á vegum rússnesku rétttrún-
aðarkirkjunnar á Íslandi. Timur
Zolotoskí, prestur rétttrúnaðar-
kirkjunnar, stýrði athöfninni.
Af öðrum dagskrárliðum má
nefna að á morgun verður málþing í
Íslensku Kristskirkjunni í Fossa-
leyni 14 frá kl. 18 til 21 en þar verður
rætt um samstarf milli trúarbragða í
ljósi heimsmarkmiða Sameinuðu
þjóðanna.
Þá verður farið í bænagöngu kl. 17
næstkomandi laugardag frá kirkju
Óháða safnaðarins í Reykjavík og
leiðir söngfólk frá rússnesku rétt-
trúnaðarkirkjunni söng á göngunni,
sem endar við Fíladelfíu, Hátúni 2,
og þar hefst lokasamvera bænavik-
unnar kl. 18.
Á Akureyri lýkur bænavikunni á
laugardag með málþingi í Gler-
árkirkju frá klukkan 13-15 þar sem
umræðuefnið er ríki, kristin trúfélög
og trúfrelsi.
Morgunblaðið/Guðni Einarsson
Blessun Timur Zolotoskí stýrði at-
höfninni í Nauthólsvík á laugardag.
Hafið blessað
í Nauthólsvík
Alþjóðleg bænavika hófst um helgina
Tvö börn eru alvarlega slösuð og
liggja enn á gjörgæslu eftir umferð-
arslys við Skeiðarársand á föstudag.
Eitt vitni hefur gefið sig fram en lög-
reglan á Suðurlandi hefur óskað eft-
ir frekari vitnum að slysinu. Slysið
varð þegar jeppi og jepplingur rák-
ust saman, en í bílunum voru ferða-
menn frá Suður-Kóreu og Frakk-
landi.
Ekki hafa fengist frekari upplýs-
ingar um líðan barnanna en auk
þeirra var þriðja barnið og einn full-
orðinn flutt á Landspítalann í kjölfar
slyssins.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglu var hvasst og fljúgandi hálka á
slysstað en atvinnubílstjóri sem
mbl.is. ræddi við lét Vegagerðina
vita af „manndrápshálku“ á veginum
fáeinum klukkustundum áður en
slysið varð.
Telur bílstjórinn að hugsanlega
hefði verið hægt að koma í veg fyrir
slysið ef brugðist hefði verið við við-
vörun hans. G. Pétur Matthíasson,
upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar,
sagði í skriflegu svari til Morgun-
blaðsins vegna málsins að Vegagerð-
in réði ekki við að hálkuverja langa
vegkafla í skyndingu og þyrftu veg-
farendur því að vera viðbúnir mis-
munandi aðstæðum vega þegar
keyrt væri í slæmu veðri. Meta
þyrfti ástand vega í samhengi þar
sem upplifun vegfarenda væri mis-
munandi. Farið yrði yfir hvort rétt
hefði verið staðið að verki en hugs-
anlega hefði mátt loka veginum.
Meta þarf
ástandið í
samhengi
Varað við hálkunni
skömmu fyrir slys
Morgunblaðið/Sigurður Gunnarsson
„Manndrápshálka“ Bílstjórinn seg-
ist hafa varað við hálku á svæðinu.