Morgunblaðið - 20.01.2020, Page 15

Morgunblaðið - 20.01.2020, Page 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. JANÚAR 2020 Snjóþyngsli Óvissustig vegna snjóflóðahættu er enn í gildi á norðanverðum Vestfjörðum. Allt var á kafi í snjó á Suðureyri við Súgandafjörð fyrir helgina en í gær var hvasst með skúradembum svo snjórinn sjatnaði aðeins. RAX Árið 2010 tóku marg- ir helstu fjölmiðlar heims höndum saman við þá óþekkta vefsíðu, Wikileaks, sem stofnuð var af Julian Assange. Þetta samstarf varð til þess að mikilvægar upplýsingar um stríðs- aðgerðir Bandaríkj- anna og bandamanna þeirra í Írak og Afgan- istan voru afhjúpaðar. Öll stærstu dagblöð heims, frá New York Times til Der Spiegel, frá El País til Le Monde, nýttu sér að- gang að þeim leynilegu gögnum frá bandaríska hernum sem Wikileaks hafði fengið afhent. Þessi skjöl voru flokkuð, rýnd og gerð opinber vegna þess að það var mikilvægt að almenn- ingur væri upplýstur um misgjörðir og voðaverk framin í nafni lýðræðis í kjölfar árásanna á Tvíburaturnana í New York. Í kjölfar birtingar þessara gagna voru hugmyndir um gagnsæi ræddar ítarlega af bæði blaðamönnum og rit- stjórum fjölmiðlanna og af almenn- ingi enda var eðli upplýsinganna slíkt að opin og lýðræðisleg umræða var brýn. Þau gögn sem Wikileaks af- henti fjölmiðlum afhjúpuðu kerfis- bundna notkun pyntinga og annarra stríðsglæpa sem leiddu til dauða tug- þúsunda almennra borgara. Stríðs- rekstur bandamanna kynti undir starfsemi hryðjuverkasamtaka bæði í Írak og Afganistan og enn í dag stafar ógn af hryðjuverkasamtökum sem eiga uppruna sinn í þessum löndum. Í lok árs 2010 út- nefndi franska dag- blaðið Le Monde Julian Assange mann ársins. Nú, nærri tíu árum síðar, er Julian Assange í einangrun í Belmarsh- öryggisfangelsinu í Bretlandi. Bel- marsh-fangelsið er þekkt fyrir að þar eru aðallega vistaðir meint- ir hryðjuverkamenn og hefur verið líkt við „breska útgáfu af Gu- antanamo“. Um sextíu læknar frá ýmsum löndum hafa tekið höndum saman og reynt að vekja athygli yfir- valda og almennings á hrakandi and- legri og líkamlegri heilsu Julian Ass- ange. Þeir óttast að hann kunni að deyja í fangelsinu. Og hver hafa við- brögðin verið? Blaðamenn sem nýttu þær upplýsingar sem Assange og teymi hans veittu þeim aðgang að til þess að birta óteljandi fjölda frétta og blaðagreina sem afhjúpuðu vald- níðslu og stríðsglæpi bandamanna í Írak og Afganistan hafa að mestu þagað um meðferðina á manninum sem gerði þennan fréttaflutning mögulegan. Það er enginn vafi á samhenginu milli stöðu Assange í dag og afhjúp- ana hans. Hann er að deyja í fangelsi vegna þess að hann opinberaði sann- anir um stríðsglæpi. Hann er að deyja í fangelsi vegna þess að hann upplýsti okkur. Það er vægt til orða tekið að segja að örlögin hafi snúist gegn Assange. Skömmu eftir afhjúpanir Wikileaks hóf sænskur saksóknari rannsókn á ásökunum gegn Assange um nauðgun. Þessum ásökunum hefur hann alltaf neitað. Við vitum núna að Bandaríkin stóðu fyrir leynilegri rannsókn á meintum njósnum Julian Assange. Við vitum núna að bandarísk yfirvöld hvöttu bandamenn sína til þess að grípa til aðgerða gegn Assange og Wikileaks. Þess vegna valdi Assange að leita hælis sem pólitískur flótta- maður í sendiráði Ekvador í London til þess að verjast lögsókn og fram- sali til Bandaríkjanna í dulargervi sænskrar handtökuskipunar. Nú er árið 2020 gengið í garð. Ekvador dró til baka pólitískt hæli sem Julian Assange hafði verið veitt í samræmi við ákvæði í Vínarsáttmál- anum. Hann var í kjölfarið handtek- inn í sendiráði Ekvador í London. Sænskir dómstólar felldu niður rann- sókn á málinu gegn honum vegna skorts á sönnunargögnum. Staða Assange er skýr og óhugnanlega lík þeirri stöðu sem hann spáði fyrir um þegar rannsóknin á ásökununum gegn honum hófst. Nú er hann í haldi þannig að hægt sé að afgreiða fram- salsbeiðni Bandaríkjanna vegna meintra brota á lögum um innbrot í tölvur og njósnir. Og hann stendur einn. Sumir fyrrverandi stuðningsmenn Assange gagnrýna hann og ásaka hann um að hafa gengið Rússum á hönd og stutt Trump með því að birta gögn sem stolið var úr tölvum demó- krata í aðdraganda forsetakosning- anna. Það er kaldhæðni örlaganna að Donald Trump er sá sem vill koma lögum yfir Assange. Það er leikbragð stjórnvalda til þess að dreifa athygl- inni frá ásökunum um þátttöku þeirra í samsæri með erlendu ríki. Sjálfur kallaði Donald Trump starf- semi Wikileaks „skammarlega“ árið 2010 og lýsti því yfir að dæma ætti Julian Assange til dauða. Hvað sem mönnum kann að finn- ast um Julian Assange eða mistök sem Wikileaks kann að hafa gert er ljóst að lýðræði okkar og réttarríki stendur á tímamótum í þessu máli. Getum við enn rætt erfið mál á opinn hátt? Getum við varið tjáningarfrelsi og réttindi blaðamanna og uppljóstr- ara? Getum við staðið vörð um mann- réttindi almennt og réttindi eins manns sérstaklega? Í nóvember síðastliðnum lýsti um- boðsmaður Sameinuðu þjóðanna um pyntingar og aðra grimmdarlega, ómannlega eða niðurlægjandi með- ferð eða refsingar, Nils Melzer, yfir áhyggjum sínum af heilsufari Julian Assange. Benti hann á „áframhald- andi hnignun“ heilsu Assange, sem hann taldi vera beina afleiðingu af að- stæðum í fangelsinu, sem væru skýrt brot á sáttmála Sameinuðu þjóðanna gegn pyntingum. Hann telur stöðu Assange vera „ómannlega“ og að hann sé beittur „harðræði sem ógni lífi hans“. Melzer segir enn fremur að „endurtekin og alvarleg brot á rétti Assange til sanngjarnrar máls- meðferðar breskra stjórnvalda“ þýði að sakfelling hans fyrir brot á sam- komulagi um frelsi gegn tryggingu og framsals til Bandaríkjanna sé geð- þóttaákvörðun sem eigi sér enga stoð í lögum. Þrátt fyrir ákall hans til bresku ríkisstjórnarinnar hefur Nils Melzer aldrei verið virtur svars. Án fjölmennra og kröftugra mót- mæla getur þetta erfiða mál einungis endað illa. Því mætti ljúka farsællega í Bret- landi með því að leysa Julian Ass- ange úr haldi en það gæti einnig haldið áfram í Bandaríkjunum. Ef Assange verður framseldur er langt í frá tryggt að mál hans fái sanngjarna meðferð fyrir dómstólum. Breska dagblaðið Guardian flutti fréttir af því að CIA hefði njósnað um Assange á meðan hann dvaldi í sendiráði Ekvador og tekið upp öll samtöl sem hann átti við gesti sem komu til hans í sendiráðið, þar með talið fundi hans með lögfræðingum. Þetta brot á rétti Assange til trún- aðarsamtala við lögfræðinga sína er illur fyrirboði um hugsanleg réttar- höld í Bandaríkjunum, þar sem hann á á hættu fangelsisvist í allt að 175 ár. Fjölmiðlar og almenningur geta ekki lengur litið undan. Maður stend- ur frammi fyrir dauðanum í Belm- arsh-fangelsinu. Og heiður okkar er að deyja með honum. Þessi grein birtist í dag í Le Monde, Aften- posten og Morgunblaðinu. Eftir Evu Joly » Það er enginn vafi á samhenginu milli stöðu Assange í dag og afhjúpana hans. Hann er að deyja í fangelsi vegna þess að hann opinberaði sannanir um stríðsglæpi. Eva Joly Höfundur er starfandi lögfræðingur í París og prófessor við Háskólann í Ósló. Hún var þingmaður franskra Græningja á þingi Evrópusambands- ins 2009-2019 og rannsóknardómari í París 1981-2002. Dauðinn í Belmarsh-fangelsinu Í síðustu viku var kynnt áætlun um eflingu starfsemi stofnana á landsbyggðinni sem heyra undir mig sem sjávarútvegs- og land- búnaðarráðherra. Unnið hefur verið að gerð áætl- unarinnar frá því í haust að mínu frumkvæði en hún var útfærð í sam- ráði við forstöðumenn þeirra stofnana sem átakið nær til, þ.e. Fiskistofu, Hafrannsóknastofn- unar og Matvælastofnunar og að hluta Matís ohf. Þetta mun vera í fyrsta skipti sem slík áætlun er unnin og fjármögnuð með þessum hætti. Áætlunin er viðbragð við þeirri sjálfsögðu kröfu að opinberum störf- um sé dreift með sem jöfnustum hætti um allt land. Þrátt fyrir reglulega um- ræðu í þessa veru undanfarin ár sýna m.a. tölur frá Byggðastofnun að fjöldi opinberra starfa er ekki í samræmi við íbúafjölda og þar hallar á landsbyggð- ina. Stefna ríkisstjórnarinnar er að snúa þessari þróun við og hafa bæði forsætisráðherra og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra boðað aðgerð- ir í þá veru. Fjármögnuð á þessu ári Grunnmarkmið áætlunarinnar er að fjölga starfsmönnum stofnana á lands- byggðinni sem heyra undir ráðu- neytið. Til að ná þessu markmiði mun ráðuneytið ráðstafa 50 milljónum króna af verkefnafé ráðuneytisins til þessa verkefnis á árinu 2020. Fram- gangur áætlunarinnar er því í for- gangi í ráðuneytinu. Sett hafa verið fram tölusett mark- mið um fjölgun árin 2021, 2023 og 2025. Með þessu er ekki verið að fjölga starfsmönnum þessara stofn- ana, heldur verður þessi fjölgun á landsbyggðinni framkvæmd með sam- eiginlegum áherslubreytingum ráðu- neytisins og stofnana. Þannig munu stofn- anirnar bjóða starfs- mönnum sínum upp á aukinn sveigjanleika varðandi val á starfsstöð. Störf sem ekki eru stað- bundin verða að jafnaði auglýst með valmöguleika um staðsetningu á fleiri en einni starfsstöð að gættum markmiðum um eflingu starfsstöðva á landsbyggðinni. Þá munu bæði Hafrannsóknastofn- un og Matvælastofnun á næstu þrem- ur árum ráða í nýjar stöður tengdar fiskeldi annaðhvort á Austurlandi eða á Vestfjörðum. Loks má nefna að stofnanirnar munu leitast við að ná fram hagræði í rekstri með því að hafa starfsstöðvar í sama húsnæði. Til hagsbóta fyrir samfélagið allt Sérstökum stýrihóp ráðuneytisins og forstöðumanna stofnana hefur ver- ið falið að tryggja framkvæmd áætl- unarinnar og verður árangur hennar metinn árlega. Ég bind vonir við að af- rakstur þessa verði til þess að efla þjónustu hins opinbera á landsbyggð- inni og stuðla að jafnari dreifingu op- inberra starfa um allt land. Um leið er ég sannfærður um að áætlunin er til þess fallin að stuðla að fjölbreyttara og öflugra atvinnulífi á landsbyggð- inni. Slíkt er ekki einungis til hags- bóta fyrir landsbyggðina heldur sam- félagið allt. Starfsemi stofnana á landsbyggðinni efld Eftir Kristján Þór Júlíusson Kristján Þór Júlíusson » „Áætlunin er viðbragð við þeirri sjálfsögðu kröfu að opinberum störfum sé dreift með sem jöfnustum hætti um allt land.“ Höfundur er sjávarútvegs- og landbún- aðarráðherra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.