Morgunblaðið - 20.01.2020, Blaðsíða 16
16 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. JANÚAR 2020
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið 11-18 virka daga og 11-16 laugardaga. www.alno.is
Þessi skrif eru ætl-
uð sem sjálfshjálp í
leit að listrænni upp-
lifun, efist lesandi um
merkingarbærni í
daglegu lífi. Höfundur
ber ekki ábyrgð á
upplifun hvers og eins
er les textann heldur
setur fram tilvistar-
sýn sem getur opnað
dyr að lífsfyllingu.
Varast skal að tileinka sér tilvist-
arsýnina um of, af hættu við að
missa jarðtengingu og verða sam-
félagslega litin hornauga sökum
furðulegheita og sérlyndis, heldur
skal lesandi fremur nýta sýnina
sem litríka hækju í annars gráum
heimi.
Setjum hina listrænu upplifun
undir smásjá; hún er hreinn andi í
bland við algleymi, og á sér stað í
ferðalagi hvers og eins á milli jafn-
vægis og ójafnvægis, hita og kulda.
Hún er fagurferðisleg uppljómun
og á sér stað í hjámiðjubleðli (e.
pariental lobe) heilans sem skynjar
einnig rýmisgreind, hitanæmi,
sársauka og snertingu.
Fagurferði er túlkun á enska
orðinu aesthetic í þýðingu Guð-
bjargar R. Jóhannesdóttur, og er
það fyrirbæri sem fræðigreinin fag-
urfræði fjallar um. Fagurferði og
fagurferðilegt gildi eru því við-
fangsefni fagurfræðinnar. List-
ræna upplifun má því segja upp-
ljómun eða hita á fagurferðislegu
ferðalagi. Hiti á fagurferðalagi
hvers og eins.
Ekki týna mér. Höldum áfram.
Finnist þér erfitt að verða fyrir
listrænni upplifun eða téðum hita á
þínu fagurferðalagi er gott að líta á
upplifunina út frá eðlislegu sam-
hengi. Sé fagurferðalagið sett í
samhengi skammteðlisfræða, sem
ganga út á að alheim-
urinn hefur enga hlut-
læga tilvist heldur sé
hann háður samhengi
og sambandi rafeinda,
má sjá að enginn er
hitinn á ferðalaginu
nema þú skapir hann
sjálf/ur og setjir í sam-
hengi við umhverfi þitt
með aðgerðum. Þú
ein/n berð ábyrgð á
eigin fagurferðalagi,
hita og listrænni upp-
lifun. Tilvist massa rafeinda í rými
er háð því að þær rekist hver á
aðra. Tilvist þín í rými er háð hita
og árekstrum á þínu fagur-
ferðalagi.
Hitinn er því listin og öll erum
við á ferðalagi. Æskilegt er að gera
sér grein fyrir eigin fagurferði og
vera með skynfærin opin fyrir hit-
anum til að öðlast listræna upp-
lifun. Allir hafa jafnt aðgengi að
listrænni upplifun. Ýmis sam-
félagsleg hjálpartæki eru fyrir
hendi í leitinni að listrænni upp-
lifun, gróðurmoldir sem hlúa að
umönnun og miðlun fagurferðalaga
eins og skapandi greinar, grasrót
og listastofnanir. Finndu hitann á
þínu fagurferðalagi og tendraðu bál
með samruna hans við aðra.
Fagurferðalag
Eftir Ásu
Dýradóttur
Ása Dýradóttir
» Tilvist massa
rafeinda í rými er
háð því að þær rekist
hver á aðra. Tilvist þín
í rými er háð hita og
árekstrum á þínu
fagurferðalagi.
Höfundur er tónhöfundur og
meistaranemi í menningarstjórnun
við Bifröst.
asadyradottir@gmail.com
Þær kynslóðir sem
nú eru að nálgast eft-
irlaun og þær sem
hafa þegar náð þeim
tímamótum að vera á
slíkum launum unnu
þrekvirki í innviða-
uppbyggingu þjóð-
arinnar. Og það án
þess að vera búnar að
finna upp þetta tísku-
orð sem innviða-
uppbygging er.
Það er nánast sama hvar drepið
er niður fæti í því sem okkur þyk-
ir svo sjálfsagt í dag. Sjúkrahús
um land allt sem við kjósum nú að
kalla heilbrigðisstofnanir, þróun
íslensks iðnaðar, vegasamgöngur
yfir fjöll og firði, vatnsveitu, hita-
veitu og græna orkuframleiðslu.
Mörg af þessum framfaraskref-
um voru stigin af framsýnu fólki
með mikinn metnað fyrir land og
þjóð. Sjálfboðavinna var ekki
óþekkt í kringum sumar þessara
framkvæmda, samanber ófá hand-
tök sjálfboðaliða við byggingu
sjúkrahúsa. Á þessum áratugum
framfara í íslensku þjóðlífi höfðu
menn skilning á því hve miklu
máli skipti fyrir komandi kyn-
slóðir að grunnþættir samfélags-
ins yrðu að vera samvinnuverk-
efni. Skipulagt, framkvæmt, byggt
og rekið á samfélagslegum for-
sendum, landsmönnum öllum til
heilla. Því aðeins með samtaka-
mætti væri gerlegt fyrir litla þjóð
í stóru landi að byggja slíka inn-
viði hringinn í kringum landið.
Þetta var á þeim tímum sem vilji
var til þess að Ísland allt væri bú-
setuvalkostur fyrir ungt og stór-
huga fólk.
Árið 1904 var fyrsta vatnsafls-
virkjunin sett upp á Íslandi við
Lækinn í Hafnarfirði sem þá varð
fyrsta raflýsta þorpið á Íslandi
(0,009 MW)
1908 var heitu vatni í fyrsta
sinn veitt í lokaðri rás í hús hér á
landi. Árið 1915 var uppsett afl
smárafstöðva á Íslandi komið í 370
kW. Margar þeirra voru heima-
smíðaðar. Árið 1921 var Elliðaár-
stöðin (um 1 MW) gangsett og
seinna stækkuð. Og árið 1930 voru
fyrstu holur eftir heitu vatni bor-
aðar í nágrenni þvottalauganna í
Laugardal og vatnið leitt í sund-
laug, skóla, spítala og 60 íbúðar-
hús í austurhluta Reykjavíkur.
Fleiri þéttbýlisstaðir fylgdu á eft-
ir.
Af þessu leiddi m.a.
notkun rafljósa úti
sem inni og þóttu
mikil nýjung þar sem
þau komu í stað
kerta, steinolíulampa
og gasljósa og gerðu
þar með skammdegið
bærilegra. Í fisk-
vinnslu og öðrum iðn-
aði varð raforkan
bylting. Og aukinn
kraftur færðist í
þessa undirstöðuat-
vinnuvegi Íslendinga.
Nú var frumkvöðlastarf fram-
sýnna manna farið að hafa veldis-
áhrif og þróunin komin á flug.
1953 var fyrsta virkjun sem náði
að 10 MW, Írafossvirkjun við Sog-
ið, gangsett. Tvær aðrar Sogs-
stöðvar risu og byggðar voru
virkjanir við Laxá í Þingeyjar-
sýslu.
Næsta stóra framfaraskref var
ef til vill 1970 þegar var hafist
handa við að virkja jarðgufu til
raforkuvinnslu með gufuhverflum.
Fyrstu virkjanirnar voru við
Bjarnarflag í Mývatnssveit og
Kröflu en fljótlega bættist orku-
verið í Svartsengi við. Þróunin
hefur svo haldið áfram allt til
dagsins í dag og eru Íslendingar í
fararbroddi hvað viðkemur fram-
leiðslu á grænni orku. Öfundsverð
staða í alþjóðlegu samhengi. Svip-
aða sögu er að segja af uppbygg-
ingu heilbrigðiskerfisins og sam-
göngukerfisins. Þar ríkti hinn
sameiginlegi skilningur dráttarkl-
ára íslensks samfélags hvort held-
ur sem var á hinum pólitíska víg-
velli eða í einkageiranum. Að
þessar grunnstoðir væru vörður til
bjartari tíma og öllum, jafnt
verkafólki sem og atvinnurek-
endum, mundi nýtast slík innviða-
fjárfesting í margar kynslóðir.
Sem þær og hafa gert. Á undra-
skömmum tíma hafa Íslendingar
risið upp úr örbirgð og skipað sér
meðal fremstu þjóða hvað
framþróun varðar. Og er nú svo
komið að litið er til Íslendinga af
öðrum þjóðum hvað varðar sam-
félagslega uppbyggingu. Við sem
þjóð gátum farið í þessa vegferð á
grundvelli sjálfstæðis þjóðarinnar.
Við vorum á þessum uppgangs-
tímum frjáls til orða og athafna.
Við gátum nýtt hugvit og landkosti
okkar þjóðinni til framfara, án er-
lends boðvalds og afskipta. Þá gilti
einu hvort um var að ræða upp-
byggingu orkukerfisins, fræðslu-
mála, heilbrigðismála eða sjálft
þorskastríðið. Íslendingar voru
meðvitaðir um gildi og mikilvægi
þess að vera sjálfráðir um eigin lög
og athafnir. Að þessu búum við
enn, þökk sé þeim kynslóðum sem
höfðu kjark til að berjast fyrir
þessu frelsi landsins.
Arfaslök frammistaða
En hvernig þökkum við sem nú
höldum um veldissprotann þessum
baráttuglöðu kynslóðum fyrir þau
forréttindi sem þær hafa fært okk-
ur? Því miður verður að segjast að
þakkirnar eru rýrar í roðinu. Ekki
aðeins svíkjum við þessa Íslend-
inga um mannsæmandi framfærslu
á efri árum, sem hafði þó verið lof-
að að væri ein af grunnstoðum
hins íslenska velferðarríkis, heldur
döðrum við einnig við að einka-
væða grunnþarfir þessa sama hóps
og leggjumst nánast flöt fyrir er-
lendu boðvaldi. Sem birtist m.a. í
arfaslakri frammistöðu okkar hvað
viðkemur hagsmunagæslu fyrir
þjóðina í sameiginlegu EES-
nefndinni.
Svarið við yfirskrift grein-
arinnar er: Já, ég held að við ætt-
um að skammast okkar fyrir fram-
komu okkar við eldri kynslóðir
samfélagsins og afrek þeirra.
Við sem þjóð verðum að sækja
kjark og þor til þeirra kynslóða
sem færðu okkur eitt mesta vel-
ferðarríki sögunnar. Þar gildir að-
eins grjóthörð hagsmunagæsla í
erlendu samstarfi og samningum.
Því að þó að við getum verið stolt
af fortíðarafrekum munu þau, eins
góð og þau eru, ekki tryggja Ís-
lendingum áframhaldandi yfirráð
yfir auðlindum sínum ef okkur
brestur kjark til að feta í fótspor
eldri kynslóða. Og hér er þó
ónefnd sú vá sem kann að leynast
fyrir litla þjóð í stórfelldum upp-
kaupum auðmanna á íslensku
landi. Það er efni í aðra grein.
Það gefur nefnilega ei dvergnum
gildi manns þó Golíat sé afi hans!
Ættum við að
skammast okkar?
Eftir Þorgrím
Sigmundsson
»Ekki aðeins svíkjum
við þessa Íslendinga
um mannsæmandi
framfærslu á efri árum
… heldur döðrum við
einnig við að einkavæða
grunnþarfir þessa
sama hóps.
Þorgrímur
Sigmundsson
Höfundur er varaþingmaður
Miðflokksins.
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn
grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn
í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu
notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar-
hringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma
569-1100 frá kl. 8-18.
Fasteignir
Bílar