Morgunblaðið - 20.01.2020, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 20.01.2020, Qupperneq 21
Minningar og andlát Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr að andlátum og útförum. Þar eru birtar andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar sem eru aðgengilegar öllum en auk þess geta áskrifendur lesið minningargreinar á vefnum. Á vefnum er að finna upplýsingar um þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát ber að höndum og aðrar gagnlegar upplýsingar ætlaðar aðstandendum við fráfall ástvina. www.mbl.is/andlát Minningargreinar Hægt er að lesa minningargreinar, skrifa minningargrein ogæviágrip. Þjónustuskrá Listi yfir aðila og fyrirtæki sem aðstoða þegar andlár ber að höndum. Gagnlegar upplýsingar Upplýsingar og gátlisti fyrir aðstandendum við fráfall ástvina Minningarvefur á mbl.is MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. JANÚAR 2020 Gengin er á vit feðra sinna hún Gréta mín eftir erf- ið veikindi. Það tókst vinátta með okkur í Hjúkrunarskóla Ís- lands og bað hún foreldra sína ísfirsku þau Aðalstein og Mörthu fyrir mig, þau áttu eft- ir að vera vinir mínir það sem eftir var ævi. Þau voru mikið sómafólk, hitti þau síðan vet- urinn þann sem ég dvaldi á Ísafirði í námi. Ég bar alltaf mikla virðingu fyrir Grétu, annað var ekki hægt, og oftar en ekki gat ég leitað til hennar með ráðleggingar mér til handa. Það er ómetanlegt að geta lagt á borð efni fyrir aðra sem hafa kjark til að hafa skoðanir, það er ekki alltaf það þægilegasta. Gréta var fæddur leiðtogi, það var engum blöðum um það að fletta, og lét sig ekkert með ákvarðanir sínar, ef svo bar undir, ekki alltaf allir sáttir en hún hugsaði ævinlega um hag stofnunarinnar sem hún veitti lengst af forstöðu. Hún var hjúkrunarforstjóri Reykja- lundar sem tók algerum stakkaskiptum eftir að hún tók við þeirri stofnun, það er ótrú- legt til þess að vita hvað hún Gréta Aðalsteinsdóttir ✝ Gréta Að-alsteinsdóttir fæddist 10. desem- ber 1938. Hún lést 3. janúar 2020. Útför Grétu fór fram í kyrrþey . hafði í gegn þar. Millistjórnendur og eigendur fjár- mála og heil- brigðisráðuneyti, stjórnir Reykja- lundar. Við þessa varð að semja til að koma Reykja- lundi í það horf það sem hann er í nú, sem stofnun á Evrópumæli- kvarða. Gréta var Alþýðuflokks- kona, hún stóð alltaf við bakið á starfsstúlkunum fyrst og fremst en þegar kom að póli- tískum frama fann hún að flokkspólitíkin mundi aldrei eiga við hana og lét svo við búið. Reykjalundur er ekki stærsta málið hennar Grétu, hún var búin að sigra á mörg- um vígstöðvum. Hún lauk námi í Verslunarskólanum til verslunarprófs, það voru tveir bekkir, lærði á orgel heima á Ísafirði, hafði gott tóneyra, og var söngvin. Gréta menntaðist meira en venjulegt var á sjöunda og áttunda áratugnum, menntað- ist í skurðstofuhjúkrun í Há- skólanum í Sterling og áður útskrifaðist hún frá Háskól- anum í Osló sem heilbrigð- isfræðingur og mannauðs- stjóri. Hún giftist Árna Johansen dýralækni, sem sér- menntaði sig í Osló um leið og hún, og aftur við háskólann í Sterling um leið og hún. Árni varð héraðsdýralæknir fyrir Vesturland, með aðsetur á Bíldudal, og Gréta var heilsu- hjúkrunarfræðingur þar, og var gríðarlega mikið að gera í því starfi. Við komum til þeirra í Búðardalinn og við minnumst þeirra stunda með hlýju. Lífsspor Árna var ekki langt, lést á miðju blómatíma- bilinu sínu. Gréta hafði gíf- urlegan áhuga á skógrækt á ákveðnu tímabili, eftir að hún keypti Kvennabrekku nálægt Búðardal, og langaði að gróð- ursetja en ekki vinnst tími til alls, eitthvað er af trjám fyrir vestan sem hún kom til. Gréta var í handbolta í gamla daga, hafði mikið keppnisskap, sem kom fram í mörgu, og óafsakanlegt var að hringja í hana þegar hún sat við íþróttarásirnar. Gréta vissi allt um veðrið og sagði mér að við mig ekki væri hægt að tala um veðrið. Við áttum nokkrar ferðir vestur í Búðardal, þegar veður leyfði, best var sú þegar Aðalsteinn og Martha voru þarna líka, það var notalegur sólarhring- ur, sungið margraddað fram- undir nóttu, eldaður veislu- matur, bleikja. Gréta var stálminnug og lét mig gleyma bílhræðslunni, með því að þylja yfir mér drápur úr Íslendingasögum eða heilu kaflana úr Kiljan, sannkölluð menningarveisla, á leið okkar yfir Bröttubrekk- una. Við Friðbjörn kveðjum með þakklæti í huga, svo sannar- lega, þökkum forsjóninni fyrir að leiða okkur saman, og höf- um kvatt hana í sl. viku með ljóðinu “Í rökkurró hún sef- ur“. Guð geymir hana. Sólveig og Friðbjörn. Í gær kvaddi ég kæra vinkonu mína til margra ára sem lést annan í jólum sl. Andlát hennar kom eins og reiðarslag yfir alla þá sem til þekktu. Við atburði eins og þessa hugleiðum við til- gang lífsins og gerðir forsjón- arinnar sem aldrei eru okkur óskiljanlegri. Því miður, elsku vinkona, gat ekki fylgt þér síð- ustu metrana vegna ófærðar bæði til flugs og lands en var svo lánsöm að geta fylgst með útförinni á netinu. Þökk sé tækninni. Barátta er að baki og lauk með ósigri, en eftir stendur í huga okkar minningin um ynd- islega kjarkaða konu, sem hef- ur kennt okkur það að eigin vandamál verða hjóm eitt og hvetur okkur sem heilsu hafa til að rækta betur okkar eigin garð. Erfitt verður fyrir börnin þrjú og ástvini að fylla tóma- rúmið sem nú tekur við, en ef þinn vilji má nú loksins ráða verða laun þessa góða fólks eilíf minning um hetjuengilinn Sól- eyju Magnúsdóttir, hvatning til okkar allra að elska lífið og vera þakklát fyrir það sem við eigum. Guð styrki okkur öll. Ég trúi því að Sóleyju líði vel Sóley Magnúsdóttir ✝ Sóley Magn-úsdóttir fædd- ist 17. júní 1969. Hún lést 26. desem- ber 2019. Útför Sól- eyjar fór fram 9. janúar 2020. þar sem hún er í dag, í faðmi móður og föður og fleiri látinna ástavina, hún horfir til barna sinna og fylgist með þeim þroskast. Hún sendir þeim andlegan styrk og heldur áfram að vaka yfir þeim í draumum og dag- legu lífi. Hún verð- ur hjá þeim í anda þegar þau útskrifast, finna sér maka og kvænast, hún verður hjá þeim þegar þeim fæðast börn, barna- börnin hennar. Elsku Sóley mín. Ég bjóst ekki við að þurfa að skrifa minningargrein um þig nærri strax og er mér orða vant. Þú varst stórbrotin persóna; opin, hress, einlæg og umfram allt góð vinkona. Við áttum margar og góðar stundir í gegnum tíð- ina þar sem við nutum þess að bralla margt saman. Ég á eftir að sakna þess mikið að geta ekki komið við hjá þér í heim- sókn og átt yndislegar sam- verustundir sem ég mun aldrei gleyma. Okkar æskustundir þegar við lékum okkur á Ak- ureyri á sumarkvöldum á róló, róluðum og sungum hástöfum og allir búnir að fá meira en nóg af gaulinu í okkur, en okk- ur var alveg sama; við vorum í okkar eigin heimi og elskuðum að vera saman. Allar þessar minningar mun ég geyma í hjarta mínu. Þegar þú giftir þig var ég hjá ykkur í viku að hjálpa þér að undirbúa brúðkaupið, það var ógleymanlegt að fá þetta tæki- færi til að vera þér innan handa þegar þú, elsku vinkona, hafðir ekki foreldra þína þér til taks. Svo grét ég svo mikið í brúð- kaupinu að mér var ekki farið standa á sama. Var svo dásam- legt að sjá þig svona hamingju- sama. Ég er lánsöm að hafa kynnst þér og yndislegu börn- unum þínum sem þú elskaðir og dáðir meira en allt. Ég sendi ykkur kæra kveðju, elsku Aldís, Sindri og Þorsteinn, ég votta ykkur innilega samúð elsku hjartans fallegu systkini. Höddi, Halldór og Ása, guð gefi ykkur öllum styrk á þessum erfiðum tímum. Þín æskuvinkona, Klara Björnsdóttir. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vin- samlega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ val- inn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.