Morgunblaðið - 20.01.2020, Blaðsíða 26
ENGLAND
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Lærisveinar Jürgen Klopp hjá Liv-
erpool unnu sanngjarnan 2:0-sigur á
Manchester United í 23. umferð í
ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í
gærkvöldi. Úrslitin þýða að Liver-
pool hefur unnið öll lið deildarinnar
á leiktíðinni. Liðin skildu jöfn á Old
Trafford í október og eru það einu
tvö stigin sem Liverpool hefur tapað
á tímabilinu. Forskotið á toppnum er
orðið 16 stig og getur orðið 19 stig,
þar sem Liverpool á leik til góða.
Eins og taflan gefur til kynna er Liv-
erpool ekki bara besta lið Englands,
heldur það langbesta. Mörkin hefðu
getað orðið enn fleiri, þótt Liverpool
hafi stundum spilað betur. Það er
allt með Liverpool í liði.
Það er með ólíkindum að Man-
chester United hafi eytt gríðarlega
háum fjárhæðum í leikmenn síðustu
ár og að félagið greiði hærri laun en
flest önnur í Evrópu. Liðið er mjög
langt á eftir þeim bestu, eins og tvö
slæm töp gegn Manchester City og
Liverpool með skömmu millibili
sýna. Ekki batnar ástandið þegar
Marcus Rashford er fjarverandi, en
hann verður frá keppni næstu vik-
urnar vegna meiðsla. Án hans skap-
aði United sér nánast ekkert í gær.
Fullkomin umferð fyrir Klopp
Umferðin gat ekki verið betri fyr-
ir Liverpool og Klopp því öll fjögur
liðin fyrir neðan töpuðu stigum. Eft-
ir fimm sigra í röð þurfti Manchest-
er City að sætta sig við 2:2-jafntefli á
móti Crystal Palace á heimavelli.
City hefur tapað stigum í átta leikj-
um á tímabilinu. Það er allt of mikið
þegar keppinauturinn misstígur sig
alls ekkert. Stigasöfnun City á leik-
tíðinni hefur verið góð og í flestum
tilvikum nægilega góð til að vera í
harðri titilbaráttu. Leicester tapaði
t.a.m. stigum í fimmtán leikjum er
liðið varð meistari árið 2016. Liver-
pool er hins vegar óeðlilega gott og
lætur öll hin liðin líta verr út.
Hinir bjartsýnustu stuðnings-
menn Leicester vonuðust til að sínir
menn myndu veita Liverpool ein-
hvers konar samkeppni um titilinn
og jafnvel fá annað Englandsmeist-
araævintýri, eftir níu sigurleiki í röð
frá október til desember. Leicester
hefur hins vegar tapað tveimur í röð
og fjórum af síðustu sex í deildinni
eftir tap fyrir Burnley í gær. Fram
undan hjá lærisveinum Brendan
Rodgers er barátta um að halda sér í
fjórum efstu sætunum, sem væri
stórgóður árangur.
Þá tapaði Chelsea fyrir Newcastle
á útivelli. Chelsea verður í sömu bar-
áttu og Leicester, en liðið er í fjórða
sæti, sex stigum á eftir Leicester og
fimm stigum á undan Manchester
United. Arsenal gerði jafntefli við
Sheffield United á heimavelli, 1:1, og
Tottenham gerði markalaust jafn-
tefli við Watford. Arsenal hefur að-
eins unnið einn deildarleik af sex
undir stjórn Mikel Arteta og Totten-
ham leikið fjóra leiki í röð án sigurs
undir stjórn José Mourinho. Þeir
vonuðust eftir betri byrjun á ferl-
inum hjá nýjum félögum.
Búnir að
vinna alla
Sextán stiga forskot og leikur til góða
AFP
Markaskorararnir Van Dijk og Salah ánægðir með dagsverkið.
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. JANÚAR 2020
England
West Ham – Everton ............................... 1:1
Gylfi Þór Sigurðsson lék ekki með Ever-
ton vegna meiðsla.
Burnley – Leicester................................. 2:1
Jóhann Berg Guðmundsson lék ekki með
Burnley vegna meiðsla.
Watford – Tottenham .............................. 0:0
Arsenal – Sheffield United ...................... 1:1
Brighton – Aston Villa ............................. 1:1
Manchester City – Cr. Palace ................. 2:2
Norwich – Bournemouth ......................... 1:0
Southampton – Wolves ............................ 2:3
Newcastle – Chelsea ................................ 1:0
Liverpool – Manchester United.............. 2:0
Staðan:
Liverpool 22 21 1 0 52:14 64
Manch. City 23 15 3 5 64:27 48
Leicester 23 14 3 6 48:23 45
Chelsea 23 12 3 8 39:30 39
Manch. Utd 23 9 7 7 36:27 34
Wolves 23 8 10 5 34:30 34
Sheffield Utd 23 8 9 6 25:22 33
Tottenham 23 8 7 8 36:31 31
Crystal Palace 23 7 9 7 22:26 30
Arsenal 23 6 11 6 30:32 29
Everton 23 8 5 10 26:33 29
Newcastle 23 8 5 10 22:34 29
Southampton 23 8 4 11 29:42 28
Burnley 23 8 3 12 26:38 27
Brighton 23 6 7 10 26:31 25
West Ham 22 6 5 11 26:34 23
Watford 23 5 8 10 20:34 23
Aston Villa 23 6 4 13 29:44 22
Bournemouth 23 5 5 13 20:36 20
Norwich 23 4 5 14 23:45 17
Þýskaland
Augsburg – Dortmund............................ 3:5
Alfreð Finnbogason lék ekki með Augs-
burg vegna meiðsla.
Grikkland
AEK Aþena – Larissa.............................. 3:0
Ögmundur Kristinsson lék allan leikinn í
marki Larissa.
PAOK – Asteras Tripolis........................ 3:1
Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn
með PAOK.
Belgía
Oostende – Waasland-Beveren.............. 0:1
Ari Freyr Skúlason lék allan leikinn með
Oostende.
Portúgal
Benfica – Ovarense ................................. 6:0
Cloé Lacasse skoraði tvö mörk fyrir
Benfica og lagði upp eitt.
EM karla 2020
MILLIRIÐILL I, Vín:
Hvíta-Rússland – Tékkland ................ 28:25
Spánn – Austurríki............................... 30:26
Króatía – Þýskaland............................. 25:24
Staðan:
Spánn 3 3 0 0 94:77 6
Króatía 3 3 0 0 83:70 6
Þýskaland 3 1 0 2 81:81 2
Austurríki 3 1 0 2 81:86 2
Hvíta-Rússland 3 1 0 2 74:87 2
Tékkland 3 0 0 3 79:91 0
MILLIRIÐILL II, Malmö:
Portúgal – Ísland.................................. 25:28
Slóvenía – Ungverjaland ..................... 28:29
Noregur – Svíþjóð ................................ 23:20
Staðan:
Noregur 3 3 0 0 93:77 6
Ungverjaland 3 2 0 1 82:82 4
Slóvenía 3 2 0 1 79:75 4
Ísland 3 1 0 2 73:79 2
Portúgal 3 1 0 2 88:87 2
Svíþjóð 3 0 0 3 64:79 0
Olísdeild kvenna
Valur – KA/Þór..................................... 32:16
Stjarnan – Fram................................... 25:32
Haukar – ÍBV ....................................... 22:22
HK – Afturelding ................................. 33:22
Staðan:
Fram 12 11 0 1 377:252 22
Valur 12 9 1 2 331:244 19
Stjarnan 12 6 3 3 299:273 15
HK 12 5 2 5 326:329 12
Haukar 12 4 2 6 258:293 10
KA/Þór 12 5 0 7 282:339 10
ÍBV 12 3 2 7 260:296 8
Afturelding 12 0 0 12 227:334 0
Þýskaland
Neckarsulmer – Metzingen................ 28:31
Birna Berg Haraldsdóttir skoraði 4
mörk fyrir Neckarsulmer.
Danmörk
Esbjerg – Holsterbro .......................... 37:27
Rut Jónsdóttir skoraði 2 fyrir Esbjerg.
Geysisbikar kvenna
8-liða úrslit:
Valur – Breiðablik ................................ 89:59
Haukar – Grindavík ............................. 81:54
Keflavík – KR ....................................... 60:82
England
Newcastle – Leicester ........................ 61:63
Sara Rún Hinriksdóttir skoraði 27 stig
fyrir Leicester og tók 6 fráköst.
Danmörk
Bikarkeppni, undanúrslit:
Næstved – Horsens.............................. 78:86
Finnur F. Stefánsson, þjálfar Horsens.
Sundkappinn Anton Sveinn McKee
hafnaði vann tvívegis til silfur-
verðlauna á móti í Bandaríkjunum
um helgina. Í gær varð Anton ann-
ar í 200 metra bringusundi á Tyr
Pro Swim Series-mótinu sem fram
fór í Knoxville í Tennessee-ríki.
Anton kom í mark á tímanum
2:11,34 en hans besti tími í grein-
inni er 2:10,32.
Anton varð einnig annar í 100
metra bringusundi á mótinu á
föstudag á tímanum 1:00,65. Anton
er nú á heimleið til að keppa á
Reykjavíkurleikunum.
Á verðlaunapalli
í Tennessee
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Siilfur Anton Sveinn McKee er í
hörkuformi á nýju ári.
Hlaupakonan Guðbjörg Jóna
Bjarnadóttir jafnaði eigið aldurs-
flokkamet í 200 metra hlaupi á
Stórmóti ÍR í gær er hún hljóp á
24,05 sekúndum. Kom hún í mark
tæplega sekúndu á undan Þórdísi
Evu Steinsdóttur sem varð önnur.
Tíminn sem Guðbjörg hljóp á er
jöfnun á Íslandsmeti í flokki 20 til
22 ára innanhúss, en Guðbjörg
hljóp á nákvæmlega sama tíma 27.
janúar í fyrra. Silja Úlfarsdóttir á
Íslandsmet fullorðinna en hljóp á
23,79 sekúndum í Bandaríkjunum
árið 2004. bjarnih@mbl.is
Guðbjörg Jóna
jafnaði eigið met
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Metjöfnun Guðbjörg kemur fyrst
í mark í Laugardalnum í gær.
Fram er með þriggja stiga forskot á
toppi Olís-deildar kvenna í hand-
knattleik eftir góðan útisigur á
Stjörnunni, 32:25, á laugardag.
Stjarnan er í 3. sætinu og er nú sjö
stigum á eftir Fram. Íslands- og
bikarmeistarar Vals eru í 2. sætinu
fjórum stigum á undan Stjörnunni.
Eftir jafnan fyrri hálfleik í
Garðabæ tók topplið Framara á rás.
Staðan var 15:13 í hléinu, gestunum
í vil. Framarar skoruðu svo fyrstu
þrjú mörkin í síðari hálfleik og litu
ekki til baka í öruggum sigri. Ragn-
heiður Júlíusdóttir var markahæst
Framara með átta mörk en Stein-
unn Björnsdóttir og Karen Knúts-
dóttir skoruðu fimm mörk hvor.
Hanna Guðrún Stefánsdóttir skor-
aði átta mörk fyrir Stjörnuna.
HK er í 4. sæti eftir tíu marka sig-
ur á botnliði Aftureldingar, 33:23.
Sigríður Hauksdóttir og Jóhanna
Margrét Sigurðardóttir skoruðu
báðar átta mörk fyrir HK.
Haukar og ÍBV gerðu jafntefli
22:22 á Ásvöllum og Valur burstaði
KA/Þór 32:16. sport@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Í Garðabæ Karen Tinna Demian sækir en Hildur Þorgeirs er til varnar.
Góður útisigur
hjá toppliði Fram
KR, Valur og Haukar tryggðu sér í
gær sæti í undanúrslitum Geysis-
bikars kvenna í körfuknattleik.
KR vann afar sannfærandi 82:60-
sigur á Keflavík á útivelli í stórleik
8-liða úrslitanna. KR skoraði 20
fyrstu stigin og átti Keflavík aldrei
möguleika eftir það.
Hildur Björg Kjartansdóttir átti
mjög góðan leik fyrir KR og skor-
aði 23 stig á meðan Danielle Ro-
driguez gerði 17. Daniela Wallen
skoraði 12 stig fyrir Keflavík og
Þóranna Kika Hodge-Carr 12 stig.
Bikarmeistarar Vals unnu sann-
færandi 89:59-sigur á Breiðbliki á
heimavelli. Eftir jafnan fyrri hálf-
leik voru Valskonur miklu sterkari
í seinni hálfleiknum og sérstaklega
í fjórða leikhluta, en hann vann
Valur 34:12.
Dagbjört Dögg Karlsdóttir og
Helena Sverrisdóttir skoruðu 23
stig hvor fyrir Val, eins og Danni
Williams fyrir Breiðablik.
Haukar áttu ekki í neinum vand-
ræðum með að vinna Grindavík á
heimavelli, 81:54. Staðan í hálfleik
var 50:22 og voru Grindvíkingar
ekki líklegir til að jafna í seinni
hálfleik.
Þóra Kristín Jónsdóttir skoraði
24 stig fyrir Hauka og Lovísa Björt
Henningsdóttir gerði 17 stig. Bríet
Sif Hinriksdóttir skoraði 13 fyrir
Grindavík að þessu sinni.
Þrjú úrvalsdeildarlið eru þar af
leiðandi komin í úrslitahelgina í
Laugardalshöllinni.
Í kvöld skýrist hvort það verður
úrvalsdeildarlið Skallagríms eða 1.
deildar lið ÍR sem fylgir þeim þang-
að. Þau mætast á heimavelli ÍR í
Seljaskóla. johanningi@mbl.is
KR skoraði fyrstu
20 stigin í Keflavík
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Útisigur KR-ingar höfðu betur í
baráttunni í Keflavík í gær.