Morgunblaðið - 21.01.2020, Page 6
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Í
grunninn eru flestir bílar nokk-
uð svipaðir. Fjögur hjól, gír-
skipting, sæti, gluggar, búkur
og vél, knúin af jarðefnaelds-
neyti, vetni eða rafmagni, eða blöndu
af fleiru en einu. Lúxusbílar eru auð-
vitað oftast skörinni hærri en aðrir
bílar, enda meira í þá lagt, en svo eru
það bílar sem eru á svipuðu verði og
þessir venjulegu en eru dálítið sér-
viskulegir í útliti. Það mætti næstum
kalla þá hugmyndabíla, þar sem
hönnuðir virðast hafa fengið frítt spil
við að gera eitthvað aðeins öðruvísi.
Þetta á við um bíla eins og Citroen
Cactus, og svo bílinn sem ég reynslu-
ók á dögunum, Toyota CH-R með hy-
brid-vél, þ.e. vél sem notar bæði jarð-
efnaeldsneyti og rafmagnsmótor,
sem hlaðinn er á ferð. Eins og með
flesta hybrid-bíla er auðvitað hægt að
breyta honum í hreinan rafbíl með
EV-stillingunni, á meðan rafmagnið
dugar, en þá tekur bensínvélin aftur
við.
Minnir á framtíðarökutæki
Að ytra útliti vekur bíllinn með
manni ýmis hugrenningatengsl.
Hann minnir mann stundum á bryn-
varinn bíl eða flugvél sem ekki sést á
ratsjá, en einnig á framtíðarökutæki
sem maður sér í bíómyndunum, jafn-
vel úr Transformers-kvikmyndum.
Bílinn hentar þeim sem hafa gaman
af að vekja aðeins athygli úti á vegi,
án þess að vera endilega allt of flipp-
aður.
Toyota CH-R er tiltölulega nýr bíll.
Hann var fyrst kynntur til sögunnar í
heimalandinu Japan í desember árið
2016, en sala í Evrópu hófst árið 2017.
CH-R stendur fyrir Compact High
Rider, eða hár hlaðbakur í lauslegri
íslenskri snörun. Þannig er bíllinn í
raun ekki smájeppi, og ekki venjuleg-
ur fólksbíll, heldur einhvers staðar
þar á milli.
Þessi nýjasta útgáfa bílsins er að-
eins breytt frá fyrri árgerð, einkum
að framan og aftan. Sjá má breyt-
ingar í t.d. grilli, ljósum og spoiler að
aftan. Óþjálfað auga myndi kannski
ekki taka eftir þessum breytingum í
fljótheitum, en aðrir eru sneggri til.
Hurðarhúnn ofarlega
Eitt sem vekur strax athygli á ytra
byrði er staðsetning hurðarhúnsins á
afturhurðunum, en hann er mjög of-
arlega á þessum bíl, sem þýðir að
yngstu meðlimir fjölskyldunnar
myndu eiga erfitt með að opna bílinn.
En kannski er fjölskyldufólk ekki
endilega aðalmarkhópur bílsins.
Bíllinn er afturhallandi, og því eru
gluggar í afturhurðum frekar litlir,
ásamt því að vera skyggðir. Sömu-
leiðs er útsýni um afturglugga ekkert
frábært.
Maður er orðinn frekar góðu vanur
síðustu misseri, en mjög algengt er
orðið að afturhlerar séu með raf-
magnsopnun og -lokun. Því er ekki
fyrir að fara hér, en í staðinn býður
Toyota manni upp á sérlega gott grip
neðst á hurðinni sem hægt er að
grípa í til að skella hleranum aftur.
Skottið er fremur lítið, en það helg-
ast meðal annars af því að hefðbundin
rafhlaða bílsins er undir skottgólfinu.
Bíllinn hentar því ekki vel til lang-
ferða með mikinn farangur. Til sitt-
hvorrar hliðar í skotti eru geymslu-
hólf. Vinstra megin er opið hólf og
hægra megin lokað. Þarna má koma
fyrir hlutum sem gott er að láta fylgja
bílnum, eins og bóni, tuskum, rúðu-
sköfum eða því um líku. Snagar eru
einnig í boði, fyrir töskur eða inn-
kaupapoka, og hankar eru í gólfi sem
hægt er að reyra niður dót með.
Aftursætispláss kom á óvart
Þegar ég fór að huga að því að setj-
ast aftur í bílinn og bregða mér í hlut-
verk aftursætisfarþega var það í
sjálfu sér ekkert tilhlökkunarefni, því
utan frá séð virðist sem plássið sé
frekar lítið fyrir fullorðinn karlmann.
Plássið kom þó aðeins á óvart, þótt
auðvitað sé fótaplássið ekki mikið. Ég
gat þó rétt vel úr hálsinum og rak mig
ekki upp undir. Í hurðum er fínasti
glasahaldari en enginn slíkur er í
miðjunni, eins og stundum er þegar
hægt er að fella niður einingar innan
úr miðjusæti.
Aftursætisfarþegar geta líka,
ásamt því að leggja frá sér drykk í
glasahaldarana, sett blöð eða dót í
litla vasa aftan á framsætunum.
Það sem vakti mesta hrifningu
þegar fram í bílinn var komið, eftir
prufusetu aftur í, var innréttingin
sjálf. Háglansandi plastefni í miðju og
í hurðum, sem gefur bílnum ákveðinn
glæsileika. Og til að toppa það hefur
Toyota látið blátt ljós inn í allt saman,
sem gerir þetta enn glæsilegra þegar
degi tekur að halla og birtu að bregða
úti.
Þá er hnúðurinn á gírstönginni silf-
urlitaður og skínandi fínn.
Í miðjunni er pláss fyrir tvo drykki,
og í öðru statífinu er falskur botn sem
hægt er að taka úr ef maður er með
stærri hitabrúsa sem þarf að leggja
frá sér.
Sætin sjálf eru sérlega þægileg og
sportleg og grípa þétt um mann með-
an á akstri stendur. Í raun fer mjög
Bíllinn lætur vel að stjórn og staðsetning upplýsingakerfisins er góð. Tveggja lítra Hybrid-bensínvél er í bílnum og skilar sínu ágætlega.
Morgunblaðið/Eggert
5
Kósí hjá krökkunum Toyota CH-R sker sig úr hvaðútlit varðar og plássið aftur í
er meira en virðist í fyrstu.
6 | MORGUNBLAÐIÐ
» 2,0 l tvinn-bensínvél
» 184 hö / 190 Nm
» CVT sjálfskipting
» 0-100 km/klst á 8,2 sek.
» Framdrif
» 18", álfelgur
» 95 g/km NEDC 119 WLTP í
blönduðum akstri
» 4,0 l NEDC 5,2 l WLTP í blönd-
uðum akstri
» Eigin þyngd 1.485 kg
» Farangursrými 358 l til 1.102 l
» Verð frá 5.540.000 kr
Toyota C-HR
Hybrid
Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is
Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995
Fljót, örugg og persónuleg þjónusta
Allar almennar bílaviðgerðir