Morgunblaðið - 21.01.2020, Side 20

Morgunblaðið - 21.01.2020, Side 20
20 | MORGUNBLAÐIÐ Námskeið sem gefa réttindi um gjörvalla Evrópu Öll ökuréttindi - Öll vinnuvélaréttindi Klettagörðum 11 (ET-húsinu) - 104 Reykjavík - Símar 588 4500, 822 4502 - www.meiraprof.is - rektorinn@gmail.com Skjót leið til starfsmenntunar Skapaðu þér þitt eigið góðæri www.meiraprof.is Reki ehf Höfðabakka 9 110 Reykjavík Sími: 562 2950 Fax: 562 3760 E-mail: kristinn@reki.is Vefsíða: www.reki.is REKI EHF ER STOLTUR UMBOÐSAÐILI DONALDSON Á ÍSLANDI. EIGUM HVERS KYNS SÍUR FYRIR TÆKI Í LANDBÚNAÐI Á LAGER. 2013 2018 Bílaframleiðendur eru að fikra sig meir og meir inn í þróun og smíði rafbíla. Þegar á nýhöfnu árinu ligg- ur fyrir að nýjungar munu bætast í rafbílaflóruna. Hér á eftir eru nefnd sex ný rafbílamódel sem vert verður að fylgjast með á árinu. Fyrsti hreini rafbíll Ford, Must- ang Mach-E, hefur komið inn á markaðinn með látum. Kaupendur standa í biðröðum eftir honum. Þeir hafa að mestu leyti pantað lang- drægustu útgáfuna. Forvitnilegt verður að sjá hvaða dóma Mustang Mach-E fær þegar hann kemur á götuna síðar á árinu. Aston Martin Rapide E þótti efni- legur og lofa góðu þegar hann var kynntur til sögunnar. Síðustu dag- ana virðist hins vegar sem Aston Margin hafi hætt við framleiðslu hans, a.m.k. í bili, vegna fjárhags- örðugleika fyrirtækisins. Þetta hef- ur ekki verið endanlega staðfest en samt virðist sem bíða þurfi eitthvað lengur eftir rafbíl frá Aston Martin. Til stóð að framleiða einungis 155 eintök af Rapide E. Það er mikil áskorun fyrir bílsmiðinn annálaða að framleiða rafbíl sem hæfir James Bond. Polestar 1 tengiltvinnbíllinn, af- sprengi Volvo, hefur þegar sett mark sitt á rafbílamarkaðinn. Hermt er að ný útgáfa hreins rafbíls sé í pípunum, Polestar 2. Kemur í ljós síðar á árinu hvort sá bíll verði ekki minni að getu. Verði hann verðlagður hagstæðar þykja líkur á að hann fá ekki lakari viðtökur. Fyrsti hreini rafbíll Volvo verður byggður á borgarjepplingnum XC40 og hefur hlotið nafnið XC40 Recharge. Fróðlegt verður að sjá hvernig hann kemur út í sölu í sam- anburði við bíla Volvo með sprengi- vél. Tesla Model Y er mikilvægur bíll fyrir kaliforníska bílsmiðinn. Búist er við að fyrstu eintökin verði af- hent kaupendum í byrjun febrúar, eftir um hálfan mánuð. Model 3 átti í miklum örðugleikum til að byrja með en hefur síðan öðlast feikna- vinsældir. Spurning er hvaða áhrif Model Y hefur á sölu forvera síns. Loks skal nefna Porsche Taycan sem hefur hlotið mjög góðar við- tökur í útgáfunni Mission E frá því hann kom á markað í vetur. Spurn- ingin verður hvaða framförum Porsche nær með rafaflrás sinni. Mun hún valda straumhvörfum í rafbílavæðingunni? agas@mbl.is Vegna fjárhagsörðugleika Aston Martin eru allar líkur á að ekkert verði af smíði rafbílsins Rapid-E, sem væntanlegur var á götuna í ár. Rafbílar til að gefa gaum 2020 Hálfþrítugur Þjóðverji hefur verið dreginn fyrir rétt fyrir skemmd- arverk á vel á annað þúsund bílum. Gerði raðvandali þessi það að iðju sinni að rispa yfirbyggingu bíla. Er hann ákærður fyrir að skemma þannig 642 bíla og gerð er krafa um 930.000 evrur – jafnvirði um 125 milljóna króna – í bætur vegna viðgerða á bílunum. Talið er að bílarnir sem mað- urinn skemmdi séu allt að 1.700 talsins og heildartjón eigenda 2,3 milljónir evra. Sannanir þóttu ekki nægar vegna um eitt þúsund bíla og því ekki ákært fyrir þá. Eftir að hafa fengið fjölda kvart- ana yfir rispum á bílum skipaði lögreglan sérstakan hóp til að rannsaka málið. Að endingu hafði hún erindi sem erfiði þegar risp- arinn var staðinn að verki og góm- aður aprílmorgun einn árið 2018. Leiddi árvökul húsmóðir lögregl- una á sporið. Sagðist hún hafa heyrt undarlegan hávaða utan við hús sitt og er hún gægðist út hefði þar verið maður sem gekk á hvern bílinn á fætur öðrum og rispaði þá með beittu áhaldi. Maðurinn stundaði þessa iðju á þriggja mánaða tímabili snemma árs 2018, aðallega í borgunum Veitshöchheim, Schweinfurt og Würzburg. Dómsmálinu er ólokið og óljóst hvers konar refsingu maðurinn geti átt yfir höfði sér, finni dóm- stóllinn hann sekan. Víst þykir að það verður honum þungt í skauti þurfi hann að bæta eigendum bílanna tjónið. agas@mbl.is Raðrispari fyrir dóm fyrir að skemma bíla Illa útleikin vélarhlíf sem orðið hefur fyrir barðinu á rispara. Litagleði fyrirfinnst ekki á bresk- um vegum ef marka má liti bíla sem þar komu nýir á götuna í fyrra. Voru þrír af hverjum fimm í sauðalitunum; gráu, hvítu og svörtu. Efstur á lista er grái liturinn en þann lit völdu 23% ökumanna á bíla sína árið 2019, að sögn breska bílgreinasambandsins (SMMT). Árið áður var grái lit- urinn einnig algengastur en það var í fyrsta sinn sem hann kom út á toppnum. Samantektin sýnir að svarti lit- urinn var næstalgengastur, eða á 20% bíla, og hvíti liturinn í þriðja sæti, á 18% bíla. Bláir bílar urðu í fjórða sæti með 17% hlutdeild og rauður í fimmta sæti, eða á tíunda hverj- um bíl. Eini nýi liturinn á lista yfir þá tíu algengustu er sá guli sem ruddi ljósbrúnum úr tíunda sæt- inu. Silfurlitur varð í sjötta sæti, appelsínugulur í sjöunda, grænn í áttunda og bronslitur í níunda sæti. Óvinsælustu bílalitirnir í fyrra voru dumbrauður, rjómagulur og bleikur. Hlutdeild þeirra í heild- inni var innan við eitt prósent. Sá litur sem jókst mest í fyrra frá 2018 var turkíslitur, eða 29,3%. Ekki er hægt að yfirfæra heildarlitavalið á einstök lönd breska konungdæmisins. Þannig völdu bæði Skotar og íbúar Erm- arsundseyjanna hvíta litinn núm- er eitt. Þá réðst valið nokkuð eft- ir bílagerðum. Svarti liturinn var til að mynda algengastur á for- stjórabílum og lúxusbílum. Kaup- endur smábíla og bíla sem losuðu enga mengun í útblæstri höfðu tilhneigingu til að kaupa hvíta bíla. agas@mbl.is Sauðalitirnir einkennandi í Bretlandi Flestir kaupendur nýrra bíla völdu á þá gráan lit í fyrra. Hið sama gerðu þeir 2018. Í fyrsta sinn í sögu sinni afhenti sænski bílsmiðurinn Volvo meira en 700.000 bíla á einu og sama almanaksárinu. Fyrirtækið segir að sérdeilis mikil eftirspurn hafi verið eftir jeppunum XC40, XC60 og XC90. Langmest seldist af XC60 eða 204.965 bílar. Af hinum 705.452 afhentu bílum 2019 voru 45.933 tengiltvinnbílar sem er 23% aukning frá árinu 2018. „Takmark okkar er að feta áfram sömu jákvæðu brautina 2020 en þá bætast fleiri tengil- tvinnbílar í bílaframboð Volvo,“ segir forstjórinn Håkan Samuels- son í tilkynningu. agas@mbl.is Tæplega þriðji hver seldur Volvo árið 2019 var af gerðinni XC60. Volvo aldrei söluhærri

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.