Morgunblaðið - 21.01.2020, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 21.01.2020, Qupperneq 22
22 | MORGUNBLAÐIÐ Ökuskólinn í Mjódd byggir á margra ára starfsreynslu í öllum greinum ökunáms Veljið stað þar sem fagmennskan er í fararbroddi Ökuskólinn í Mjódd | Þarabakka 3 | 109 Reykjavík | bilprof.is | s. 567 0300 | mjodd@bilprof.is Auk hefðbundins réttindanáms bjóðum við upp á eftirfarandi námskeið: • B-réttindi á íslensku, pólsku og ensku • Námskeið vegna akstursbanns • Meiraprófsnámskeið á íslensku og pólsku • Bifhjólanámskeið • Endurmenntun atvinnubílstjóra • Afleysingarmannanámskeið á leigubíl • Rekstrarleyfisnámskeið leigubíla og fólks- og farmflutninga Skráning á námskeiðin fer fram á vefsíðu okkar www.bilprof.is Næstu meiraprófsnámskeið Endurmenntun atvinnubílstjóra 5. febrúar 2020 kl. 17:30 4. mars 2020 kl. 17:30 1. apríl 2020 kl. 17:30 Námskeið haldin alla laugardaga frá kl. 9:00-16:00 Fyrirtæki geta óskað eftir sérnámskeiði fyrir hópa Endurmenntun á Pólsku (95code) Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Í slenska fyrirtækið RAG hefur vakið verðskuldaða athygli fyr- ir sérútbúnar Mercedes-Benz Sprinter smárútur. Íslensk ferðaþjónustufyrirtæki hafa tekið þessar „Arctic Edition“-rútur í sína þjónustu og þá fjölgar í kaup- endahópnum á meginlandi Evrópu enda þykja rúturnar frá RAG henta vel á stöðum eins og í fjallabyggðum Sviss og Ítalíu þar sem mikil snjó- koma á það til að valda slæmri færð á vegum. Rafn Arnar Guðjónsson er sölu- stjóri RAG, en fyrirtækið hefur í gegnum tíðina sérhæft sig í innflutn- ingi á bifreiðum og vinnuvélum af ýmsum toga og er m.a. umboðsaðili þýska félagsins Fliegl, sem fram- leiðir landbúnaðartæki og vagna fyr- ir efnisflutninga. Árið 2014 komst Rafn í samband við vandaða unga menn sem reka bílabreytingaverk- stæði í Póllandi og tókst með þeim samstarf um að breyta Sprinter-sendibílum í 21 manns smárútur. „Útkoman er rúta sem er hæfilega stór, fjórhjóladrifin og með háu og lágu drifi. Með miklum tilkostnaði og fyrirhöfn hefur okkur síðan tekist að fá öll leyfi og úttektir hjá eftirlits- stofnunum í Póllandi svo að selja má Mercedes-Benz Arctic Edition rút- urnar hvar sem er innan Evrópu,“ útskýrir Rafn, en auk þess að inn- rétta rúturnar í samræmi við ströngustu kröfur hefur pólska verkstæðið líka hækkað Sprinterana og sett undir þá 35 tommu dekk. „Þessar rútur hafa ekki síst verið notaðar í kynnisferðum yfir vetr- armánuðina og henta mjög vel í norðurljósaferðir og Gullna hringinn þegar snjór er á vegum. Þá hafa rút- urnar okkar jafnframt komið í góðar þarfir í skólaakstri.“ Sjálfsagt að hlaða og tengjast Áhugavert er að skoða hvernig farþegar hafa gert æ ríkari kröfur til þæginda og aðbúnaðar um borð í jafnt stórum sem smáum rútum. Rafn segir að RAG hafi verið með þeim fyrstu til að bjóða upp á sæti með innstungum fyrir USB-snúrur en það þyki nánast sjálfsagt í dag að geta hlaðið snjalltækin á leiðinni á milli staða. „Bæði vill fólk geta stungið símanum eða myndavélinni í samband, en eins þykir farþegum æskilegt að rútur bjóði upp á þráð- laust net svo hægt sé að kíkja á sam- félagsmiðla, lesa fréttir og jafnvel horfa á sjónvarpið í símanum. Þá kemur vitaskuld ekkert annað til greina en að farþegarýmið sé hlýtt, þurrt og þægilegt og tvöfalt gler í öllum rúðum. Það að sitja í rútu með móðu á gluggum svo að ekkert sést út heyrir sögunni til.“ Við kaup á rútu segir Rafn að huga þurfi alveg sérstaklega að því að sætin séu þægileg og fótaplássið gott. „Evrópustaðallinn kveður á um að 70 cm séu á milli sæta, og stærð sætanna þarf að taka mið af stærð farþeganna. Þannig getur grannur gestur frá Asíu gert sér að góðu sæti sem væri of þröngt og smátt fyrir hávaxinn og gildvaxinn Ameríkana.“ Rútur sem er víða þörf Greinilegt er að mikill metnaður er í RAG og var fyrirtækið með sýn- ingarbás á Busworld rútu- og strætisvagnasýningunni miklu sem haldin var í Brussel seint í október. Að sögn Rafns var sýningin mikið ævintýri og gaman að sjá hversu vel það gekk að benda gestum á kosti Arctic Edition-rútanna. „Þeir sem komu á básinn hugsuðu margir með sér að svona ökutæki kæmi helst að notum á Íslandi, í Afríku eða jafnvel í hernum, en raunin er að víða í Evr- ópu er að finna ferðamannastaði þar sem þörf er á farartækjum einmitt af þessu tagi, handa mjög kröfu- hörðum ferðalöngum. „Í fjallahér- öðum Sviss, Austurríkis og Þýska- lands hefur vantað annan valkost en að ferja fólk á milli staða í litlum jeppum.“ Lúxusrútur sem ráða við erfiða færð RAG vakti lukku á Busworld-sýningunni í Bruss- el og má reikna með að íslensk-pólskar lúx- usrútur verði á ferðinni hér og þar í Evrópu. Nýútbúinn Arctic Edition lúxus-Sprinter við verkstæðið í Póllandi. Fella má öftustu sætaröðina. Frá sýningarbásnum í Brussel. Kaupendur víða um Evrópu hafa sýnt þessum lúxusrútum áhuga. Á ferðalögum um landið er gott að hafa meira pláss og þægileg sæti. Lýsing, áklæði og ýmis skemmtileg smátriði einkenna RAG-rúturnar. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Rafn Arnar Guðjónsson segir ferðamenn gera kröfu um að geta hlaðið snjalltækin og tengst þráðlausu neti á ferð sinni milli náttúruundra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.