Morgunblaðið - 02.01.2020, Page 12

Morgunblaðið - 02.01.2020, Page 12
N ú ert þú forfallin íþrótta- manneskja, gengur á fjöll og hreyfir þig mikið. Hvaðan kemur þessi áhugi? „Ég byrjaði að labba á fjöll fyrir tæp- um átta árum og féll strax fyrir því. Ég hef alltaf stundað einhverja hreyfingu en æfi meira í dag en ég gerði áður. Ég var svo heppin að fara til Nepal með Tindum Travel í október 2017 þar sem frábær hópur kvenna gekk í grunn- búðir Annapurna. Ferðin var algjör- lega stórkostleg enda magnað að ganga í þessu stórbrotna umhverfi Himalaya- fjallanna og það má eiginlega segja að ég hafi orðið ástfangin af Nepal og fjallafegurðinni þar í þessari ferð. Ári seinna fór ég svo aftur til Nepal ásamt góðum vinkonum þar sem við ákváðum að uppfylla drauminn um að ganga í grunnbúðir Everest. Sú ganga var alls ekki síðri þrátt fyrir að ferðin hafi feng- ið óvæntan endi, en að ganga í þessu umhverfi er tilfinning sem maður getur ekki lýst. Rétt fyrir brottför náði ég mér í flensuskít sem ég var að berjast við fyrstu dagana í Kathmandu, höf- uðborg Nepal, en ákvað samt sem áður að fara í gönguna. Fyrstu dagarnir voru nokkuð krefjandi þar sem ég var mjög slöpp og með mikinn hósta, hor og beinverki. Á fjórða göngudegi var ég svo komin með hita en þar sem súrefn- ismettunin var mjög góð ákvað ég að halda áfram. Næstu dagar á eftir voru ansi krefjandi en ég lét það ekki stoppa mig af því súrefnismettunin var góð, það sem ég hins vegar vissi ekki var að ég var komin með sýkingu í lungna- berkjurnar og með mikið lyfjaofnæmi sem gerði það að verkum að líkaminn var að ströggla. Að morgni áttunda göngudags, sama dag og hópurinn gekk í grunnbúðir Everest, krassaði líkaminn og ég var alveg örmagna. Ég átti erfitt með svefn nóttina áður og fann fyrir miklum verkjum og áttaði mig á því að það var eitthvað að gerast. Ég var samt alveg á því að klára göng- una og vinkona mín ætlaði svo að fylgja mér niður þegar við hefðum náð þeim áfanga. En þegar það kom í ljós að súr- efnismettunin hjá mér var búin að falla gríðarlega og ég var orðin hættulega lág þá var ekkert annað í stöðunni en að kalla eftir þyrlu og koma mér undir læknishendur. Ég var komin með bráða háfjallaveiki, lungnabjúg og háan hita svo ég var orðin ansi þreklaus og lasin þegar ég var loksins flutt niður með þyrlunni. Ég lá á spítala í Kat- hmandu í fimm daga sem var upplifun út af fyrir sig en þessi reynsla hefur kennt mér mjög margt. Í kjölfar þess- ara veikinda gat ég ekki hreyft mig í þrjá mánuði, ég var alveg þreklaus og átti erfitt með að halda út heilan dag þar sem orkan var bara búin. Einfaldir hlutir eins og að fara út í búð eða jafn- vel labba upp þrjár tröppur voru mér um megn í þó nokkurn tíma. Þetta breytti algjörlega hugarfari mínu til hreyfingar og í dag þakka ég fyrir það dag hvern að hafa heilsu til að hreyfa mig. Heilsan er svo sannarlega það dýrmætasta sem við eigum og mik- ilvægt að hlúa vel að henni,“ segir Bára Mjöll. Ferðin til Nepal kenndi Báru Mjöll að meta heilsuna Bára Mjöll er mikill fjallagarpur og labbar til dæmis með Haraldi Erni Ólafssyni í Fjallafélaginu. Bára Mjöll Þórðardóttir hreyfir sig yfirleitt fjórum sinnum í viku. Hún segist hafa lært að meta heils- una upp á nýtt þegar hún veiktist alvarlega í gönguferð í Nepal. Síðan í haust hefur hún verið á Infra Power-námskeiði hjá Önnu Eiríksdóttur í Hreyfingu og segist sjaldan hafa séð meiri árangur. Marta María Jónasdóttir | mm@mbl.is  SJÁ SÍÐU 14 12 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JANÚAR 2020 NÁTTÚRULEG HRÁEFNI • ENGIN AUKAEFNI ENGINN VIÐBÆTTUR SYKUR • TREFJARÍKT Það er fátt betra en að anda að sér súrefni á fjöllum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.