Morgunblaðið - 02.01.2020, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 02.01.2020, Blaðsíða 14
Hún segir að það sé eitthvað alveg sérstakt við það að ganga á fjöll, hreyfa sig utandyra og drekka nátt- úruna í sig. Svo ekki sé talað um allt súrefnið sem hægt er að anda að sér. „Ég hef kynnst mörgum af mínum bestu vinkonum í gegnum fjallabrölt- ið og erum við duglegar að koma okk- ur í alls konar ævintýri. Maður getur labbað sama fjallið oft og mörgum sinnum og upplifunin verið mjög mis- munandi í hvert skipti. Svo erum við svo heppin að hér á landi er endalaust úrval af fjöllum til að ganga á. Fjall- ganga er líka eins og góður sál- fræðitími. Prófið það bara ef þið trúið mér ekki. Maður kemur alltaf bros- andi heim. Annars finnst mér dásamlegt að geta stundað hreyfingu utandyra hvort sem það eru fjallgöngur, skíða- iðkun, hjólreiðar eða utanvegahlaup. Það jafnast bara ekkert á við úti- veruna,“ segir hún. Þegar Bára Mjöll er spurð út í sína hreyfingarrútínu segir hún að hún hreyfi sig að lágmarki fjórum sinnum í viku. „Stundum hreyfi ég mig kannski átta sinnum yfir vikuna en stundum þrisvar, allt eftir því hvernig mér líð- ur hverju sinni. En ég hvíli óhikað ef ég finn að líkaminn kallar á meiri hvíld. Ég fer í Hreyfingu að jafnaði 3-4 sinnum í viku og reyni að labba að lágmarki á eitt stykki fjall og fara á eina hlaupaæfingu svo ég nái að halda mér við á öllum vígstöðvum. Ef ég hreyfi mig ekki í tvo daga er líkaminn farinn að öskra á hreyfingu sem mér finnst frábært – það heldur mér svo sannarlega við efnið. Vinkonur mínar eru líka duglegar að hreyfa sig og það hjálpar líka, við hreyfum okkur mjög mikið saman en GAMAN SAMAN er okkar mottó. Ég er líka að labba með Fjallafélaginu, sem bræðurnir Har- aldur og Örvar halda úti, en það eru skipulagðar göngur í hverjum mánuði og svo er ég í hlaupahópi sem kallar sig Skynsemin ræður með frábærum konum sem hlaupa úti í náttúrunni sér til skemmtunar.“ Þú hefur stundað Infra Power síð- an í haust. Hvað er það við þessa tíma sem þú kannt að meta? „Ég hef farið á mörg námskeið í Hreyfingu hjá Önnu Eiríks en hún er uppáhaldsþjálfarinn minn. Hún byrj- aði með Infra Power-námskeiðin í haust og ég hreinlega varð að prófa. Ég vissi að þetta væru krefjandi tímar sem mér fannst spennandi en þeir eru kenndir í 34° heitum sal þar sem meðal annars er unnið með ket- ilbjöllur, lóð og nuddrúllur. Þessir tímar eru búnir að fara fram úr öllum væntingum en ég hef aldrei tekið jafn mikið á því eða fengið jafn mikið út úr neinum tímum. Maður er hreinlega á fullu allan tímann og svitinn bók- staflega lekur af manni. Svo er hóp- urinn sem hefur verið að mæta alveg frábær og eiginlega magnað hvað það er mikil stemning í tímunum, það mætti halda að við værum öll búin að vera að æfa saman í mörg ár. Ég hreinlega elska þessa tíma,“ segir hún. Bára Mjöll segir að Infra Power- tímarnir hjá Önnu Eiríks hafi gert mikið fyrir hana. „Það er alltaf gaman að setja sér markmið og geta fylgst með árangr- inum mánuð fyrir mánuð. Ég finn að tímarnir hjálpa mér varðandi, úthald, þol og styrk en ég fann strax mikinn mun á nokkrum vikum. Svo líður mér svo vel á líkama og sál eftir tímana sem er auðvitað aðalmálið.“ Það þýðir víst lítið að æfa og æfa ef mataræðið er í steik. Þegar Bára Mjöll er spurð út í sitt mataræði seg- ist hún borða frekar heilsusamlegan mat. „Ég borða að öllu jöfnu nokkuð heilsusamlegan mat, þótt ég leyfi mér alveg sykur og sætindi inn á milli. Ég finn að mataræðið hefur áhrif á líðan og afköst og þess vegna legg ég mikið upp úr því að 80% af því sem fer inn fyrir mínar varir á degi hverjum sé í hollari kantinum. Ég borða í raun allt en hef minnkað kjötneyslu töluvert. Ég er að vinna í því núna að borða meira til að hjálpa mér við vöðvaupp- byggingu. Ég finn þó að ég þarf að taka svefninn fastari tökum en ætli svefninn leiki ekki eitt stærsta hlut- verkið þegar kemur að heilsunni?“ Hvað drífur þig áfram í lífinu? „Ég er þakklát fyrir að vera heil- brigð og hafa tækifæri til að gera alla þá skemmtilegu hluti sem lífið hefur upp á að bjóða. Ég á þrjú yndisleg börn sem gefa mér mjög mikið og hef auk þess verið svo heppin að í kring- um mig hefur raðast alveg hreint yndislegt fólk í gegnum lífið sem ég er einstaklega þakklát fyrir. Ég er mikil félagsvera og elska að vera í kringum allt þetta góða fólk sem er endalaust tilbúið að taka þátt í vit- leysunni sem mér dettur í hug og styðja mig í því sem ég tek mér fyrir hendur. Annars skiptir hugarfarið öllu máli en við erum lykillinn að okk- ar eigin hamingju!“ Hvert verður helsta heilsutrendið 2020 og hvað ætlar þú að gera á nýja árinu sem þú hefur ekki gert fyrr? „Það er svo auðvelt að ýta hreyf- ingu til hliðar af því það er svo mikið að gera, ég hef svo sannarlega gert það sjálf. Aðalmálið er að taka ákvörðun um að byrja og setja sér raunhæf markmið. Til dæmis að taka frá tíma tvisvar í viku til að hreyfa sig, það skiptir ekki máli hvernig að- almálið að hver finni hreyfingu við hæfi og velji eitthvað sem þeim finnst skemmtilegt. Þeim er alltaf að fjölga sem stunda hreyfingu utandyra s.s. fjallgöngur, gönguskíði, fjallaskíði og ut- anvegahlaup og ég er nokkuð viss um að það verði áfram mikil aukning í þess konar hreyfingu árið 2020. Ann- ars hugsa ég að núvitund og hug- leiðsla komi enn sterkari inn hjá fólki á nýju ári. Fólk er alltaf að verða meðvitaðra um áhrif núvitundar á andlega og líkamlega líðan svo ég spái því að það verði trend ársins 2020. Ég er að skoða alls konar spenn- andi hluti sem mig langar að gera á nýju ári. Ég er búin að festa göngu- skíðaferð í Landmannalaugar í góðra kvenna hópi – og hlakka mikið til. Mig langar líka að fara á fjallaskíði en það hefur verið draumur í nokkur ár. Annars snýst þetta um að njóta og gera hluti sem gleðja og það ætla ég mér svo sannarlega að gera.“ Hvergi er betra að fá góð- ar hugmyndir en á fjöllum. Bára Mjöll veiktist alvarlega þegar hún heimsótti Nepal í annað sinn. Eftir þá ferð fór hún að hugsa öðruvísi um heilsuna. 14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JANÚAR 2020 Við hjálpum fólki að breyta mataræði og taka úr því fíknivalda og síðan heila undirliggjandi tilfinningaleg og andleg vandamál sem matarfíknin hefur valdið! Nú í byrjun nýs árs bjóðum við uppá þrjá kosti: 1. 5 vikna Nýtt líf námskeiðið fyrir byrjendur og endurkomufólk sem hefst 4. janúar 2020. 2. 10 daga meðferðarnámskeið með Dr. Toverud í meðferð sem tekur á huglæga, tilfinningalega og andlega þætti vandans, sem hefst 24. janúar 2020. 3. Möguleika á að taka þessi námskeið sa FRÁ MATARFÍKNIMIÐSTÖÐINNI Esther Helga Guðmundsdóttir MSc. og Dr. Guttorm Toverud Matarfíkn er líffræðilegur sjúkdómur sem veldur tilfinningalegu, huglægu og andlegu ójafnvægi. man. Síðumúla 33, 108, Reykjavík, esther@mfm.is / 699-2676, www.matarfikn.is Endilega kíkið á síðuna okkar og skoðið dagskrána!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.