Morgunblaðið - 02.01.2020, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 02.01.2020, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JANÚAR 2020 A ðalsteinn er sérfræðingur í kviðarholskurðlækning- um og hefur lagt áherslu á kviðsjáraðgerðir í efri hluta kviðar. Þegar fólk leitar til Landspítala í að- gerðir vegna gallsteina, vélindabakflæðis, kviðslits, krabbameins í vélinda eða maga eða vegna offitu eru líkur á að það hitti hann. Aðalsteinn er einn nokkurra sérfræðinga landsins í efna- skiptaaðgerðum vegna þyngdarvanda fólks. Hann lærði læknis- fræði við Hans-Christian-Albrechts-háskólanum í Kiel í Þýska- landi og fékk almennt lækningaleyfi 2003. Aðalsteinn starfaði sem sérnámslæknir og síðar sérfræðingur í kviðarholsskurðlækningum við Blekingesjukhuset í Svíþjóð í 13 ár. Árin 2011-2015 vann hann jafnframt í hlutastarfi við Sør- landet Sykehus í Arendal í Noregi þar sem hann byggði upp starfsemi um efnaskiptaaðgerðir. Aðalsteinn starfar nú á Land- spítala-háskólasjúkrahúsi í 80% starfshlutfalli og á Klíníkinni Ármúla í 20% starfshlutfalli, þar sem hann sérhæfir sig meðal annars í efnaskiptaaðgerðum – það er magaermiaðgerðum og hjáveituaðgerðum. Mittismál Íslendinga ekki til fyrirmyndar Efnaskiptaaðgerðum fjölgar úti um allan heim og einnig á Ís- landi að sögn Aðalsteins. Tölur um mittismál Íslendinga eru öðr- um þjóðum ekki til eftirbreytni ef marka má rannsóknir. Í raun sker Ísland sig frá hinum norrænu þjóðunum því meira en helm- ingur fullorðinna í landinu er í yfirvigt samkvæmt rannsókn sem unnin var í matvæladeild Tækniháskólans í Danmörku. Rann- sóknin var gerð á árunum 2011 til 2014 og unnin sem samvinnu- verkefni rannsóknarteyma í Svíþjóð, Noregi, Finnlandi og Ís- landi. Niðurstöður um Ísland sýndu að tveir af þremur körlum í landinu eru í yfirvigt og fimmti hver karl og kona í mikilli yfir- vigt. Í Yfirliti heilbrigðismála sem unnin er fyrir OECD löndin fyrir árið 2019 segir ennfremur að hegðunartengdir áhættu- þættir leiða til rúmlega þriðjungs allra dauðsfalla á Íslandi. Áhætta tengd matarvenjum leiddi til rúmlega eins sjötta allra dauðsfalla ársins 2017, sem rekja mátti til of lítillar ávaxta- og grænmetisneyslu en of mikillar neyslu á sykri og salti. „Samkvæmt líkamsþyngdarstuðli (e. BMI) er fólk komið í yfirþyngd þegar BMI er yfir 25. Ef við tökum sem dæmi ein- stakling sem er 175 cm er hann í yfirþyngd ef hann er 77 kg eða þyngri. Ef BMI-stuðullinn fer yfir 30 er um ofþyngd að ræða. Þá er einstaklingur sem er 175 cm orðinn 92 kg eða þyngri. Fari BMI-stuðullinn yfir 35 er um alvarlega ofþyngd að ræða og einstaklingur sem er 175 cm orðinn 107 kg eða meira. Í alvarlegri ofþyngd er hættan á vandamálum tengdum efna- skiptum líkamans orðin mikil og hættan á sykursýki 2 orðin veruleg. Eins eru lífsgæðatengd vandamál eins og kæfisvefn og stoðkerfisverkir orðin algeng.“ Þær viðurkenndu leiðir sem eru í boði fyrir fólk sem er að berjast við vigtina eru að mati Aðalsteins magaermi- og maga- hjáveituaðgerðir. „Hjáveituaðgerðir eru gerðar í ýmsum út- færslum og fer þá maturinn í gegnum vélindað og þaðan niður í miðhluta smágirnis. Magaermin er einfaldari aðgerð og felst í því að minnka mag- ann, en allt að 80-90% magans eru fjarlægð úr líkamanum í þeirri aðgerð.“ Aðalsteinn segir magabandsaðgerðir lítið sem ekkert notaðar enda sýni rannsóknir að sú leið virki ekki til lengdar. Félag fag- fólks um offitu mæli jafnframt gegn þeim og mikilvægt að al- menningur sé upplýstur um það. Efnaskiptaaðgerðir kosta rúma milljón hjá Klíníkinni Þar sem Aðalsteinn starfar bæði á Landspítalanum og í Klíníkinni þekkir hann muninn á undirbúningi fyrir efnaskipta- aðgerðir á þessum tveimur stöðum. „Þeim einstaklingum sem fara í þessar aðgerðir á vegum Sjúkratrygginga Íslands er gert að fara á undirbúningsnám- skeið á Reykjalundi og/eða Heilsuborg. Sjúkratryggingar greiða þá að mestu fyrir undirbúning, skurðaðgerð og eftirfylgni. Fólk getur líka leitað til einkaaðila á borð við Klíníkina. Þrátt fyrir að öll skilyrði Sjúkratrygginga Íslands fyrir aðgerð séu uppfyllt (BMI þarf í flestum tilvikum að vera 40 eða hærra til að Sjúkratryggingar taki þátt í aðgerðarkostnaði) þarf einstakling- urinn samt sem áður að greiða stærstan hluta aðgerðarinnar. Efnaskiptaaðgerð kostar um 1,2 milljónir íslenskra króna.“ Aðalsteinn segir að það sé fleira í þessu samhengi sem áhuga- vert er að skoða. „Tökum sem dæmi mæðgur sem leituðu til mín. Báðar höfðu fengið aðgerð samþykkta af Sjúkratryggingum. Vegna langs biðtíma á Landspítala valdi dóttirin að fara í aðgerð erlendis sem Sjúkratryggingar greiddu að fullu. Móðirin treysti sér ekki til að fara sömu leið og valdi að fara í aðgerð á Klíníkinni og þurfti að greiða aðgerðina sjálf. Þetta er mismunun sem ætti ekki að sjást á Íslandi og þekkist ekki í Noregi og Svíþjóð svo dæmi séu tekin. Sum stéttarfélög skilja þó hversu miklir hagsmunir þetta eru fyrir einstaklinga og greiða hluta aðgerðarinnar.“ Konur í meirihluta í efnaskiptaaðgerðum Aðalsteinn segir það áhugaverða staðreynd að stærstur hluti sjúklinga sem fara í efnaskiptaaðgerð er konur þótt fleiri karl- menn séu hins vegar í ofþyngd. „Ástæðan fyrir þessu gæti verið sú að konur huga mögulega Morgunblaðið/Kristinn Magnússon „Vinsældir hjáveitu- aðgerða aldrei verið meiri“ Aðalsteinn Arnarson var hræddur við nálar á menntaskólaárum sínum en starfar nú sem skurðlæknir og sérhæfir sig í efnaskiptaaðgerðum. Fólk virðist öðlast nýtt líf eftir slíkar aðgerðir en þær eru ekki með öllu hættulausar. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Aðalsteinn er skurð- læknir sem sérhæfir sig í efnaskiptaaðgerðum. 15-25% afsláttur Nicotinell getur hjálpað þér áleiðis! Nikótíntyggjó, munnsogstöflur eða nikótínplástur. Viltu draga úr reykingum eða hætta alveg? Fæst í öllum verslunum Lyfju. Gildir til 31. janúar 2020. Nicotinell Mint/Fruit/Lakrids/IceMint/Spearmint lyfjatyggigúmmí, Nicotinell Mint munnsogstöflur, Nicotinell forðaplástur. Inniheldur nikótín. Til meðferðar á tóbaks- fíkn. Til notkunar í munnhol, til notkunar á húð. Má ekki nota handa börnum yngri en 18 ára. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. 20% afslát tur 15% afslát tur 25% afslát tur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.