Morgunblaðið - 02.01.2020, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JANÚAR 2020
K
olbrún hefur unnið sem grasalæknir í 26 ár
og rekið Jurtaapótek í 15 ár. Hún hefur
kennt fólki með viðtölum, fyrirlestrum, nám-
skeiðum og bókaskrifum hvernig er að hægt
að hugsa betur um heilsuna.
Hún segir hormónaójafnvægi hjá konum á breyt-
ingaskeiðinu koma fram bæði á líkamlega sem og á and-
lega sviðinu.
„Hormónaójafnvægi er meira ef það er meiri streita.
Að mínu mati skiptir því miklu máli að slaka á og sleppa
kaffi. Líkamleg einkenni hormónójafnvægis kvenna geta
verið hita- og svitakóf, hraður hjartsláttur, slímhúð og
hár þynnist og liðverkir. Andleg einkenni geta verið
svefnleysi, pirringur, depurð og áhugaleysi. Kynorkan
getur aukist.“
Hormónaójafnvægi svipað hjá körlum og konum
Kolbrún segir hormónaójafnvægi hjá körlum svipað
og hjá konum.
„Þeir geta alveg fengið hitakóf eða svefnleysi, man
einmitt eftir hjónum þar sem konan gat ekki sofið og
karlinn var með hitakóf. Kynorkan getur minnkað hjá
þeim og góðkynja blöðruhálskirtilsstækkun getur kom-
ið. Fyrir þá á Jurtaapótekið blöndu sem heitir Askur.“
Kolbrún mælir aftur á móti með jurtablöndunni
Emblu fyrir konur.
„Mjög margar konur hafa notað Emblu og fundið
betri líðan í kjölfarið.Embla er öðruvísi en allt annað
sem er á markaðnum, hún er róandi, vökvalosandi og
örvar kirtlakerfi í meltingu sem gerir allar hinar jurt-
irnar virkari. Svo eru jurtir sem innihalda hormónalík
efni. Þegar við tökum svona jurtir þá erum við að halda í
mýktina lengur, slímhúðin þynnist ekki eins hratt og
það myndast almennt meira jafnvægi í líkamanum.“
Kolbrún mælir einnig með omega 3-olíu til að viðhalda
mýkt og raka.
Þegar kemur að nýjungum á markaði þá segir hún
Hafþyrnisolíuna með omega 7 áhugaverða.
„Hafþyrnisolía með omega 7 endurnærir alla slímhúð
og húð. Eins mæli ég með því að halda mataræðinu
hreinu. Að sleppa öllu hvítu og sneiða hjá unnum kjöt-
vörum. Eins er eftirsóknavert að hafa jafnvægi í hreyf-
ingu og slökun.“
Að halda í frjósemina sem lengst
Þegar kemur að því að halda í frjósemina eins lengi og
hægt er segir Kolbrún að til þess þurfi einstaklingurinn
að hugsa vel um sig.
„Að passa upp á alla grunnþættina sem eru að mínu
mati að anda, drekka vatn, sofa, borða, hreyfa sig og
hugleiða.
Sumir anda bara til að tóra. Við deyjum ef við öndum
ekki. Þegar kemur að vatninu, þá verðum við að muna
að drekka vatn. Líkaminn er 70% vatn og mikilvægt að
skipta því út reglulega. Svefn er mikilvægur og það að
sofa vel nauðsynlegt. Ég mæli með því við fólk að fara
þokkalega snemma að sofa. Að borða reglulega og að
borða hreinan mat er mikilvægt einnig. Fólk ætti að
finna sér hreyfingu eftir skapi og að hugleiða. Síðan
mæli ég með því að nota jurtir sem eru með hormón-
líkum efnum í.“
Málefni er varða kven- og karlorku hafa verið talsvert
í umræðunni að undanförnu og finnst Kolbrúnu það eðli-
legt að ef konur eru meira í kvenorkunni þá hægjum við
á öldrun. „Kvenorkan/yin er kyrr, á meðan karl-
orkan/yang hreyfist. Eitthvað sem hreyfist eyðist hrað-
ar og ef það hreyfist mikið þá eyðist það enn hraðar.
Mikið stress þýðir mikil hreyfing og meiri eyðing.“
Þegar kemur að því að hægja á öldrun þá eru leið-
irnar til þess fjölmargar að mati Kolbrúnar.
„Við getum notað jurtir til að örva líkamsstarfsemina.
Eins og Gripnir sem örvar kirtlakerfi í meltingu og er
örverudrepandi. Heimdallur örvar öll líkamskerfi. Eins
eru olíur mjög mikilvægar og mæli ég þá með hörfræ-
olíu eða hampolíu. Ég mæli svo með því að borða ekki of
stíflumyndandi (fyrir allar rásir í líkama) mat eins og
mjólkurvörur,
hveiti, egg, sykur
og þar fram eftir
götunum.“
Kolbrún er með
kenningu um
öldrun.
„Ég tel að nei-
kvæðar örverur,
bakteríur, vírusar,
sveppir og sníkju-
dýr éti okkur upp
meira og meira eftir því sem við verðum eldri og ef við
endum ofan í moldinni þá klára pöddurnar okkur alveg
þar. Því er mjög mikilvægt að halda bakteríuflórunni í
jafnvægi og nota jafnvel eitthvað sem er örverudrepandi
öðru hvoru eins og Fönn eða Freyr sem eru olíublöndur
sem eru örverudrepandi.“
Jurtablöndur geta unnið gegn vægu þunglyndi
Þegar kemur að jurtablöndum til að létta lundina þá
mælir Kolbrún með Glöðum.
„Glaður er mjög góður við vægu þunglyndi. Svo má
ekki gleyma D-vítamíninu og omega 3 (hörfræolíu).“
Hvað er gott að gera á nýju ári? „Á nýju ári er gott að
nota eftirtaldar jurtablöndur til að taka til í líkamanum
eftir jólasukkið: Suttungamjöð til að hreinsa blóðið.
Örvar nýrun og lifur til að hreinsa eitur og úrgangsefni
úr líkamanum. Vaðgelmir er jurtablanda sem hreinsar
ristil og úrgang sem er þar. Fönn mundi svo passa vel
með þeim blöndum.“
Hvað er besta heilsuráð sem þú hefur fengið sjálf?
„Besta heilsuráð sem ég veit er að staldra við/hægja á
og nota skynfærin betur, þegar við erum á hlaupum þá
finnum við ekki lykt, sjáum ekki eins vel. En þegar við
stöldrum við þá sjáum við betur, heyrum betur og finn-
um jafnvel lykt líka betur. Þetta er næring sem við
þurfum.
Að staldra við úti í náttúrunni og nota skynfærin er
bara það besta.“
Hvaða námskeið eru á döfinni hjá þér á nýju ári?
„Við verðum með tvö ný námskeið eftir áramótin.
Þau heita: Frumefni í jafnvægi. Þar er farið yfir frum-
efnin jörð/vatn/eld og loft. Á námskeiðinu verður farið
yfir hvað hægt er að gera til að koma frumefnunum í
jafnvægi. Stress er loft og við búum í loftlandi, það eyðir
jörðinni okkar. Hitt námskeiðið er:
Viðgerðarmataræði fyrir fólk með bólgur. Þar verður
farið yfir hreint mataræði og hvernig á að gera við bakt-
eríuflóruna.“
Breytinga-
skeiðið tekið
með trompi
Kolbrún Björnsdóttir grasalæknir er með
ráð undir rifi hverju þegar kemur að horm-
ónaójafnvægi. Hún segir hormónaó-
jafnvægi hjá báðum kynjum á breyt-
ingaskeiðinu koma fram bæði á líkamlega
sem og á andlega sviðinu.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Kolbrún Björnsdóttir grasalæknir segir að sé gott að nota jurtablöndur til að taka til í líkamanum eftir jólasukkið.
„Besta heilsuráð sem ég veit er
að staldra við/hægja á og nota
skynfærin betur, þegar við erum
á hlaupum þá finnum við ekki
lykt, sjáum ekki eins vel. En
þegar við stöldrum við þá sjáum
við betur, heyrum betur og finn-
um jafnvel lykt líka betur.“