Morgunblaðið - 02.01.2020, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JANÚAR 2020
Metabolic Reykjavík | Stórhöfða 17 | metabolicreykjavik.is
Metabolic Reykjavík
þjálfunarstöð við Gullinbrú
Faglegt Fjölbreytt Skemmtilegt
Æfðu á þínum hraða, á þínu erfiðleikastigi
allra leiða til að léttast. Ég þori að
fullyrða að ég hef prófað alla kúra
sem fyrirfinnast í landinu. Ég próf-
aði danska kúrinn, Herbalife, fjar-
þjálfun og Heilsuborg svo eitthvað
sé nefnt. Lét athuga með skjald-
kirtilinn í mér, fór í Orkuhúsið, til
næringarfræðings og þar fram eftir
götunum. Hjáveituaðgerðin var því
það eina sem ég átti eftir að gera.“
Heldur ung fyrir efnaskiptaaðgerð
Hjördís Bára þykir frekar ung að
aldri fyrir inngrip á þessu sviði en
segir að fjölskyldan hafi stutt við
bakið á henni frá upphafi.
„Þau lögðu sína dagskrá til hliðar
fyrir mig. Enda vildu þau gera allt
til að ég myndi ná upp heilsunni
minni aftur. Það sem ég fór í gegn-
um var að taka ákvörðun hvað ég
vildi segja við vini mína þessu tengt.
Ég ákvað að stíga bara fram í
heiðarleika og að leyna þá ekki
neinu. Ég mæli með því fyrir alla,
enda á ég stóran vinahóp sem hefur
staðið fast við bakið á mér allan tím-
ann. Sem dæmi þá héldum við boð
úti í garði í sumar, þar sem við héld-
um upp á að ég hafði misst 60 kg.
Við vorum með köku og sextíu
blöðrur, kampavín og ræðuhöld svo
dæmi séu tekin. Það hefur gefið
mér mikið að geta haldið upp á alls
konar hluti í þessu ferli. Mamma
hefur gefið mér nýjar flíkur við viss
tilefni og allir eiga hlutdeild í mín-
um bata að þessu leyti. Ég hefði
aldrei getað þetta ein, því vil ég
segja að foreldrar mínir, systir og
fleiri aðilar eiga stóran hlut í þess-
um sigri með mér.“
Varð veik eftir aðgerðina
Hvernig er að fara í hjáveituað-
gerð?
„Ég vildi vita sem minnst um
hvernig aðgerðin var gerð en hafði
undirbúið mig vel fyrir aðgerðina
andlega. Ég reyndi að læra allt um
þennan nýja lífsstíl, enda fer maður
ekki í svona aðgerð nema með höf-
uðið rétt stillt. Ég valdi að fara á
hrökkbrauðskúr, þar sem ég borð-
aði einungis hrökkbrauð og þannig
missti ég tíu kíló. Sjálf aðgerðin
tókst ágætlega hjá Aðalsteini og fór
ég heim eftir hana. Síðan fjórum
dögum eftir aðgerð varð ég fárveik
og þurfti að fara á spítala aftur í
aðra aðgerð. Í tvær vikur eftir að-
gerð má maður einungis drekka. Ég
hins vegar hélt engu niðri eftir fyrri
aðgerðina. Aðalsteinn fyldist vel
með mér allan tímann og þegar ég
hafði samband við hann á sunnudegi
nokkrum dögum eftir fyrri aðgerð-
ina þá komst hann að því að ein af
tengingunum í görnunum hafði
beyglast og því fann vökvinn sér
ekki eðlilega leið eftir meltingarfær-
unum. Það var talsvert áfall að fara
í svona tvær aðgerðir, eins þurfti ég
að vera í níu daga á spítala eftir
seinni aðgerðina. Eftir að þessu var
kippt í lag þá hef ég ekki fundið fyr-
ir neinum óþægindum. Sem betur
fer.“
Hjördís Bára segir að hún hafi
verið mjög heppin með að hafa sér-
fræðing á borð við Aðalstein með
sér í þessu.
„Hann er mikill fagmaður á sínu
sviði og aðgengið að honum var ein-
staklega gott allan tímann.“
Hluti af eftirfylgni eftir hjáveitu-
aðgerð er að hitta næringarfræðing
sem gefur upplýsingar um nauðsyn-
lega hluti sem þarf að hafa í huga
varðandi mataræði, vítamín og
fleira að hennar sögn.
„Eftir aðgerð sem þessa þarf
maður að passa sig að borða mikið
prótein. Þar sem maður getur borð-
að minna en aðrir verður maður að
huga vel að öllum næringarefnum í
matnum. Síðan þarf ég að taka vít-
amín það sem eftir er ævinnar. Ég
fer í blóðprufur reglulega til að
fylgjast með gildunum í blóðinu.
Margir vigta ofan í sig mat eftir að-
gerð en ég hef einsett mér að borða
hollan mat og borða sem dæmi mjög
lítinn sykur þar sem ég þoli hann
ekki lengur. Bríet næringar-
fræðingur í Klíníkinni er frábær
fagmaður og er ég búin að fara í
þrjú skipti í eftirfylgni þangað frá
aðgerð.“
Ertu búin að ná þyngdinni sem
þú vilt vera í?
„Þó að þyngdin skipti að sjálf-
sögðu máli er hún samt ekki aðal-
atriðið í þessu hjá mér. Líkaminn á
mér er allur annar eftir aðgerðina,
ég fer í leikfimi reglulega og hreyfi
mig úti. Það er hins vegar andleg
líðan mín sem hefur tekið mestum
breytingum. Ég er eins og á bleiku
skýi í dag.“
Hvernig lýsir þú muninum á and-
legri líðan?
„Mér líður vel öllum stundum, í
raun gæti ég ekki ímyndað mér lífið
betra. Ég er með mun betra sjálfs-
traust og mér líður vel alla daga. Ég
byrjaði aftur í skóla eftir aðgerðina
og mér hefur aldrei gengið jafn vel í
skóla og núna. Ég byrjaði að syngja
í gospelkór Jóns Vídalíns, sem er
eitthvað sem ég hefði aldrei þorað
að gera áður. Það sjá allir að mér
líður betur. Ég lifi heilbrigðu og
eðlilegu lífi í dag og finnst ekkert
erfitt lengur við lífið. Það er ekkert
að stoppa mig í dag, enda talsverður
munur að vera 72 kg léttari en áður.
Það er eins og að losna við eina per-
sónu af bakinu.“
Hvernig sérðu framtíðina fyrir
þér?
„Ég útskrifast sem félagsliði
næsta sumar og það sem mig langar
að gera í framtíðinni er að hjálpa
fólki sem þarf á mér að halda. Að
starfa með gömlu fólki og börnum
er einstakt. Við sem störfum með
öldruðum gerum okkar allra besta
alla daga.“
Hjördís Bára segir umræður í
samfélaginu um aðbúnað gamla
fólksins okkar stundum á villi-
götum.
„Ég vil hvetja alla þá sem hafa
skoðanir á umönnun eldra fólks að
kynna sér hvað er verið að gera fyr-
ir fólkið okkar, t.d. á Hrafnistu í
Hafnarfirði. Við bjóðum upp á alls-
konar afþreyingu fyrir skjólstæð-
inga okkar og gerum okkar besta.
Ég er í nánum vináttutengslum við
mörg þeirra. Ég gef þeim af minni
visku og þau gefa mér af sinni. Það
er varla til kærleiksríkara fólk að
styðja við mann en gamla fólkið.
Mörg þeirra eru mikið ein, og þar
sem ég kem úr stórri fjölskyldu,
umvafin ást og kærleika, langar mig
að gefa þeim svolítið af því áfram.
Það er mín köllun í lífinu. Að sjálf-
sögðu mætti alltaf setja meira fjár-
magn í málefni gamals fólks og
barna, þá gæti fleira fólk unnið þau
fjölmörgu störf sem þarf að inna að
hendi fyrir þau.“
Er það hluti af þeim breytingum
sem þú vilt sjá í framtíðinni?
„Já, ég vona að fólk hætti að
kvarta yfir kerfinu og byrji bara að
láta verkin tala. Að setja meiri pen-
inga inn í heilbrigðiskerfið væri góð
byrjun. Það er til margt gott fólk
sem starfar í því fagi sem ég er í.
Starfið er ekki auðvelt, hvorki lík-
amlega né andlega. En það gefur
manni þúsundfalt til baka. Ég vona
að fleiri aðilar sjái einnig hag sinn í
að vinna með fólki sem þarf aðstoð í
lífinu. Við vinnum með góðu fólki og
stuðningurinn og hrósið frá þeim er
eitt af því sem hefur haft mikil áhrif
á líf mitt að undanförnu. Það má
ekki gleymast.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hjördísi Báru eru mál-
efni aldraðra hugleikin.
„Mér líður
vel öllum
stundum, í
raun gæti ég
ekki ímynd-
að mér lífið
betra. Ég er
með mun
betra sjálfs-
traust og
mér líður
vel alla
daga.“