Morgunblaðið - 02.01.2020, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JANÚAR 2020
Nánari upplýsingar á www.heilsusetur.is og í síma 896-9653.
Svæðameðferðarskóli Þórgunnu
Ungbarnanudd
Hómópatía
Baknuddnámskeið
Yngjandi andlitsnudd og
indverskt höfuðnudd.
Nám - Námskeið - Einkatímar
E
inkennið sem stundum er kallað
harmslegill, brostið hjarta eða
takotsubo, fær nafn sitt frá jap-
önsku kolkrabbagildrunni vegna
þess að útlit hjartaslegilsins í
slagbilinu þykir minna á lögun gildrunnar.
Brostið hjarta er oftast afturkræft og
segir Karl heilkennið áhugavert fyrir
margra hluta sakir.
„Þetta heilkenni sem var nánast óþekkt
fyrir tveimur áratugum virðist leggjast að
mestu á konur [90%].“
Karl segir 30 50 einstaklinga greinast
með heilkennið hjá þeim á ári á Landspít-
alanum.
„Það sem einkennir þá sem koma með
þetta heilkenni á spítalann er að það líkist
byrjun á hjartaáfalli, oftast með sárum
brjóstverkjum. Á hjartalínuriti eru teikn
um kransæðastíflu og oftast hækka efni í
blóði sem benda til þess sama. Þegar krans-
æðar eru skoðaðar í hjartaþræðingu sjást
hins vegar engar marktækar þrengingar og
þá er ljóst að ekki er um kransæðastíflu að
ræða. Við ómskoðun á hjarta sést einkenn-
andi svæðisbundin útbungun á vinstri slegli
sem líta má á sem tímabundna hjartabilun.
Oft hefur áfall, streita eða slys orðið í lífi
fólksins skömmu fyrir veikindin og þá virð-
ist hjartað bregðast við streitunni á þann
hátt að það blæs út á þessu afmarkaða
svæði í vinstra hluta hjartans. Einkennin
standa vanalega yfir í þrjá til fimm daga og
síðan gengur það aftur og flestir jafna sig
að fullu.“
Margt áhugavert þegar kemur að ástinni
Karl segir almennnt viðurkennt af vís-
indasamfélaginu í dag að andlegt álag geti
orsakað líkamleg einkenni hjá fólki á borð
við hjartsláttartruflanir, háþrýsting og
Ástarsorg og streita geta
haft alvarlega afleiðingar
Morgunblaðið/Eggert
Ljósmynd/Unsplash
Karl Andersen, hjartalæknir á Landspítala, segir broken heart syndrome (jap. takotsubo)
merkilegt fyrirbæri sem hafi ekki verið í textabókum lækna fyrir tuttugu árum.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Ástarsorg, streita og slys
geta valdið brostnu hjarta.
Karl Andersen, hjartalæknir
á Landspítalanum, segir
brostið hjarta eða takotsubo
áhugavert fyrir margar sakir.