Morgunblaðið - 22.02.2020, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 2020
Um er að ræða 390,5 fm stálgrindarhús sem byggt var árið 1986, ásamt 94,2 fm sam-
byggðri íbúð sem einnig var byggð árið 1986 og 28 fiskeldiskerjum sem eru 20 rúmmetrar
hvert. Húsið er klætt að utan með bárujárni, bárujárn er einnig á þaki. Gólfplata er steypt
og hitalögn er í allri plötunni. Anddyri og kaffistofa eru flísalögð. Í kaffistofunni er eldri
innrétting. Eldissalurinn er með 30 kerjum sem eru 2 rúmmetrar hvert. Innaf eldissalnum
er klaksalur með 18 sjö bakka rennum. Búið er að setja tvo yfirbyggða gáma utan við
klaksalinn og er þar einnig klakaðstaða. Verkstæði er í enda hússins. Húsið er upphitað
með affalli hitaveitunnar á svæðinu.
Lóðin er 60.000 fm leigulóð. Á lóðinni standa tvö dæluhús byggð 1986 sem eru 7,8 fm
hvort auk rafstöðvarhúss sem er 14,4 fm byggt árið 1987. Rafstöðin er nýleg og er um
60-70 kw. Tilboð óskast.
Hallgrímur Óskarsson | Löggiltur fasteignasali | Fasteignasala Lögmanna Suðurlandi ehf.
802 Selfoss | sími 480 2902 | halli@log.is | www.log.is
LÖGMENN SUÐURLANDI
Fiskeldisstöð í fullum rekstri
Fiskeldisstöðin Laugar í Rangárþingi ytra
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Sáttasemjari á næsta leik
Hjúkrunarfræðingar og ríkið Stytting vinnutíma og launaliður eru óleyst mál
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Við þurfum að þoka kjaraviðræðunum áfram og
teljum að eins og staðan er nú sé rétt að ríkissátta-
semjari taki við,“ segir Guðbjörg Pálsdóttir, for-
maður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, í sam-
tali við Morgunblaðið.
Á vettvangi félagsins var í gær ákveðið að vísa
kjaradeilu félagsins við samninganefnd ríkisins fyr-
ir hönd fjármálaráðherra til ríkissáttasemjara. Mið-
lægur samningur þessara aðila byggist á gerðar-
dómi sem rann úr gildi fyrir ellefu mánuðum.
Hjúkrunarfræðingar hafa fundað reglulega með
fulltrúum ríkisins nú í tæplega eitt ár en talsvert
ber enn í milli.
„Við erum komin nokkuð
áleiðis með að ræða vaktavinnu-
mál, en stytting vinnutímans og
launaliðurinn er enn óleystur.
Samtal við samninganefndina
hefur staðið í marga mánuði og
nú á sáttasemjari næsta leik,“
segir Guðbjörg.
Næsti samningafundur verð-
ur boðaður af ríkissáttasemjara.
Tímasetning liggur ekki fyrir.
Fjölmörg mál eru nú í vinnslu
hjá ríkisáttasemjara. Á mánudag er þar fundur í
deilu Sjúkraliðafélags Íslands og ríkisins sem og
vegna óleystra mála Sameykis gagnvart annars
vegar ISAVIA og hins vegar Reykjavíkurborg.
Guðbjörg
Pálsdóttir
Morgunblaðið/Eggert
Aðgerð Landspítalinn er fjölmennasti vinnu-
staður hjúkrunarfræðinga á landinu öllu.
Hert er nú á þunga aðgerða hjá
Eflingu – stéttarfélagi en fé-
lagsmenn sem starfa hjá einkarekn-
um skólum og hjá sveitarfélögum
öðrum en Reykjavíkurborg greiða
atkvæði í næstu viku um ótíma-
bundin verkföll. Gert er ráð fyrir að
verkföllin hefjist mánudaginn 9.
mars og taka þau til á fimmta
hundrað manns í Eflingu.
Rúmlega 270 félagsmenn Efling-
ar starfa undir samningi við Sam-
band íslenskra sveitarfélaga. Þar á í
hlut ófaglært fólk sem starfar hjá
Kópavogsbæ og Seljarnarnesbæ og
sinnir umönnun, viðhaldi gatna og
fleiru slíku. Samninganefnd Efling-
ar segir viðræður við þennan við-
semjanda árangurslausar og eftir
fund hjá ríkissáttasemjara í gær
var samþykkt að stefna á verkfall.
Rúmlega 240 félagsmenn Efling-
ar starfa hjá einkareknum skólum
sem eiga aðild að Samtökum sjálf-
stæðra skóla. Tillaga um verkfalls-
boðun þeirra var lögð fram að höfðu
samráði við trúnaðarmenn. Um yrði
að ræða samúðarverkfall með verk-
falli Eflingarfélaga hjá Reykjavík-
urborg. Atkvæðagreiðslur um verk-
fallsboðanir hefjast á hádegi nk.
þriðjudag og standa til hádegis
laugardaginn 29. febrúar. „Efling-
arfélagar sem vinna á sambæri-
legum kjörum og borgarstarfsmenn
hafa lýst eindreginni samstöðu og
stuðningi við aðgerðir okkar,“ sagði
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður
Eflingar, í yfirlýsingu. sbs@mbl.is
Efling stefnir á frekari
verkfallsagerðir á næstunni
Kópavogur, Seltjarnarnes og einkareknir skólar í deiglu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Verkföll Efling hefur boðað aðgerð-
ir í fleiri skólum á næstunni.
Rannveig Rist,
forstjóri Rio
Tinto í Straums-
vík, mun fara í
veikindaleyfi í
komandi viku og
fram á næsta
haust. Það gerir
hún að ráði
hjartalæknis. Ný-
lega sneri hún
aftur úr veik-
indaleyfi sem hófst undir lok síðasta
árs. Er nú talið að hún þurfi lengri
tíma en áður var áætlað til að ná
fullri heilsu.
Að tillögu Rannveigar hefur Sig-
urður Þór Ásgeirsson, fjármálastjóri
félagsins, tekið við starfi forstjóra
tímabundið. Við starfi hans tekur
Guðdís Helga Jörgensdóttir, stað-
gengill fjármálastjóra. Rannveig
hefur verið forstjóri álversins í
Straumsvík frá árinu 1997.
Stígur til
hliðar hjá
Rio Tinto
Rannveig
Rist
Rannveig í veik-
indaleyfi til hausts
Maður um þrítugt var í Landsrétti í
gær dæmdur til fimm mánaða fang-
elsisvistar vegna fjögurra brota
sinna á árunum 2017 og 2018. Eitt
var að ráðast í lok nóvember 2017 að
fjögurra ára dreng, sem sat í aft-
ursæti kyrrstæðrar bifreiðar á
gatnamótum Snorrabrautar og
Laugavegar í Reykjavík, og kýla
hann í andlitið svo blæddi úr.
Hvorki drengurinn litli né móðir
hans, sem var við stýrið á bílnum,
þekktu nokkuð til árásarmannsins
sem bar fyrir sig minnisleysi vegna
áfengis- og fíkniefnaneyslu og neit-
aði því sök fyrir dómi. Verknaður
hans þótti þó sannaður, en við hand-
töku streittist maðurinn mjög hart á
móti þegar lögregluna bar að.
Önnur brot mannsins, sem hann
var dæmdur fyrir í gær, lúta að brot-
um gegn valdstjórninni, það er árás-
um á lögregluþjóna bæði í fyrr-
greindu atviki við Snorrabraut og
við skemmtistað í Breiðholti. Einnig
kom til dóms að maðurinn var með
amfetamín, kókaín og kannabis í fór-
um sínum á umræddu tímabili þegar
lögreglan þurfti að hafa af honum af-
skiptin sem fyrr greinir frá.
Dæmdur fyrir
líkamsárás
gegn barni
Litríkar liljur og margt fleira fallegt úr flórunni
er eftirsótt nú þegar konudagurinn nálgast.
„Svo eru margir líka spenntir fyrir rósunum og
sumir kaupa stóra vendi og stundum fylgir
súkkulaði með,“ segir Sigríður Gunnarsdóttir í
blómabúðinni 18 rauðum rósum við Hamraborg í
Kópavogi. Þar var Sigurrós Hymer að útbúa fal-
legan vönd í gær sem einhver herrann mun
kaupa til að gleðja ástina sína. sbs@mbl.is
Rauðar rósir og súkkulaði til viðbótar
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Konudagurinn er á morgun og karlarnir gerast blómálfar