Morgunblaðið - 22.02.2020, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 22.02.2020, Blaðsíða 42
42 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 2020 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Lífsfletir nefnist yfirlitssýning á verkum Ásgerðar Búadóttir sem opnuð verður í dag kl. 16 í vestursal Kjarvalsstaða, en í ár eru hundrað ár liðin frá fæðingu hennar. Ásgerður lést árið 2014 og eftir hana liggur merkilegt safn verka enda var hún brautryðjandi á sviði vefjarlistar hér á landi. „Í verkum hennar sameinast aldagamlar aðferðir handverksins og frjáls sköpun nútímamyndlistar,“ segir á vef Listasafns Reykjavíkur sem Kjarvalsstaðir heyra undir en verk sín vann Ásgerður fyrst og fremst með ull og síðar bættust við hrosshár. Hún nam myndlist við Handíða- og myndlistaskólann og síðar Konunglega listaháskólann í Kaupmannahöfn, var þar í málara- deild Wilhelms Lundstrøm. Hún var aftur á móti sjálfmenntuð á sviði vefjarlistar, að frátöldu stuttu kvöld- námskeiði. Titill sýningarinnar vísar í verkið „Sjö lífsfletir“ sem Ásgerður gerði í minningu sjö myndlistarkvenna sem féllu frá á nokkurra ára tímabili. Í því má sjá sjö samtengda fleti og nið- ur úr því og út á gólf liggur borði með fornöfnum kvennanna. Þar stendur Nína (Tryggvadóttir), Barbara (Árnason), Gerður (Helgadóttir), Ás- laug (frá Heygum), Eyborg (Guð- mundsdóttir), Ragnheiður (Jóns- dóttir Ream) og María (Ólafsdóttir). Langt og vandasamt verk Sýningarstjóri Lífsflata er Aldís Arnardóttir listfræðingur og þegar blaðamaður hittir á hana, nokkrum dögum fyrir opnun, er allt á fullu í vestursal Kjarvalsstaða, starfsmenn önnum kafnir við að merkja fyrir verkum og hengja upp. Það þarf engan sérfræðing til að sjá að gríðarmikil vinna liggur í verk- um Ásgerðar. Vefnaðarlist er enda vandasöm og tímafrek og krefst mik- ils skipulags, nákvæmni og ekki síst þolinmæði. „Ég held að það taki mjög langan tíma að vefa svona verk og eftir að hún fór að nota hrosshárin inn í bættist enn við tímann,“ segir Aldís þegar blaðamaður veltir þess- ari hlið listarinnar fyrir sér. Hross- hárin komu til sögunnar hjá Ásgerði á seinni hluta sjöunda áratugarsins og segir Aldís að hugmynd hennar hafi verið að fá meira líf í vefinn og hleypa honum meira upp. –Voru fleiri konur að vinna með ull í vefnaðarlist á sama tíma og Ásgerð- ur? „Nokkrar voru að vinna á undan henni, t.d. Vigdís Kristjánsdóttir og Júlíana Sveinsdóttir, en Júlíana var að mála líka. Sérstaða Ásgerðar var að hún var menntuð í myndlist og notar eingöngu ull í sína myndlist. En svo fóru fleiri og fleiri að gera það og sérstaklega á áttunda áratugnum, þá varð vakning í því,“ svarar Aldís. Hún er spurð að því hvers vegna hún sé sýningarstjóri. „Ólöf Kristín, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, bað mig um að taka þetta verkefni að mér og ég hef verið að sökkva mér ofan í Ásgerði síðustu mánuði,“ segir Aldís og segist bera mjög mikla virð- ingu fyrir Ásgerði sem listamanni. „Ég er búin að fara í gegnum all- an feril hennar og sjá hvernig hún hefur þróast, byrjar í fígúratífu og fer fljótlega að færa sig yfir í óhlutbundið, ab- strakt form með sterkri náttúrutengingu og heldur því í gegn. Hún er alltaf að hugsa um rýmið og gerir mjög fljótt rýjaverk, á sjöunda áratugnum, og er þá líka að hugsa um að vefurinn sé lifandi. Hún er alltaf að reyna á mörk miðilsins, möguleika hans og takmörkun. Svo bætir hún hrosshárinu við þannig að hún er alltaf í þróun og rosalega örugg.“ Nokkurn veginn í tímaröð Á sýningunni er litið yfir feril Ás- gerðar og segir Aldís að verkunum sé stillt upp nokkurn veginn í tíma- röð. „Við byrjum með elstu verkin, þegar hún er að byrja að vefa. Svo kemur tímabil með sléttum vefnaði og rýjavefnaði og svo koma verk þar sem hún er að byrja að nota hross- hárið. Hún byrjar að nota það létt, hafa það laust í og kembt létt yfir og í innsta salnum eru yngstu verkin og þar eru hrosshárin meiri massi, þrí- hyrningar og ferhyrningar, þéttari form,“ segir Aldís. Mörg verkanna á sýningunni eru í einkaeigu og segir Aldís að einhver þeirra hafi verið skráð en að öðrum hafi þurft að leita, hringja og spyrj- ast fyrir. „Það er líka gaman að finna verk og þegar maður er kominn á sporið er manni kannski vísað á eitt- hvað annað,“ segir Aldís og að vel hafi gengið að safna saman verkum fyrir sýninguna. Eigendur verka hafi allir verið fúsir að lána þau. Gullverðlaunahafi Ásgerður var virkur þátttakandi í íslensku og norrænu myndlistarlífi og hlaut gullverðlaun árið 1956 á al- þjóðlegri list- og handverkssýningu í München sem markaði upphaf að glæsilegum og áhrifamiklum ferli hennar, að því er fram kemur á vef Listasafns Reykjavíkur. Aldís segir að Ásgerður hafi verið beðin að taka þátt í sýningunni í München og sýnt þar tvö verk frá árinu 1952 sem bæði heita „Stúlka með fugl“. Hlaut Ásgerður verðlaun fyrir bæði verkin á þessari fyrstu al- þjóðlegu sýningu sinni eftir að hún fór að vefa, að sögn Aldísar. Hún sýnir blaðamanni annað verk- anna og fer ekki milli mála að þar er stúlka með fugl. Litirnir eru öllu sterkari en í þeim verkum sem Ás- gerður varð hvað þekktust fyrir en eins og segir í lýsingu á vef safnsins var litanotkun hennar naum og um miðjan sjöunda áratuginn hóf hún að lita band sjálf og bættust þá við blár indígólitur og rauðir, gulrauðir og rauðbrúnir litatónar. Vakning fyrir vefnaði Aldís segir verk Ásgerðar tala inn í samtímann, það sem sé í gangi í dag hjá ungum listamönnum sem séu margir að fást við vefnað, sauma og þráð. Nefnir Aldís sem dæmi Örnu Óttarsdóttur. „Það er svolítil vakning fyrir vefn- aði,“ segir Aldís og bendir á að Ás- gerður hafi líka tvinnað saman gaml- ar og nýrri aðferðir. „Í kringum 1978 fer hún að nota það sem er kallað tenning. Það er aldagömul aðferð þar sem þú ert með á víxl dökkan og ljós- an þráð og þá myndast rendur. Þannig að hún notar mjög gamlar að- ferðir líka og blandar inn í sín verk. Hið gamla og nútímamyndlist sam- einast í verkum hennar.“ Alls hélt Ásgerður 15 einkasýn- ingar á farsælum ferli sínum og tók þátt í um 70 samsýningum bæði hér á landi og víða um heim. Síðasta stóra yfirlitssýningin á verkum hennar var haldin í Listasafni Ís- lands árið 1994 og síðasta einkasýn- ingin í anddyri Hallgrímskirkju árið 2006. Það ár kom einnig út bókin Veftir um ævi hennar og listamanns- feril. Sameinaði hið gamla og hið nýja  Yfirlitssýning á verkum Ásgerðar Búadóttur opnuð á Kjarvalsstöðum  Sýningarstjóri segist bera mikla virðingu fyrir listakonunni sem hafi reynt á mörk miðilsins, möguleika hans og takmörkun Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Bláin Aldís Arnardóttir sýningarstjóri við hlið verksins „Bláin“ eftir Ásgerði Búadóttur, frá árinu 1981. Ásgerður Búadóttir Ný sýning á verkum Kjarvals verður opnuð um leið og sýningin á verkum Ásgerðar og nefnist hún Jóhannes S. Kjarval: Að utan. Sýningarstjóri er Edda Haraldsdóttir. Á sýningunni má sjá verk sem Kjarval vann á ár- unum 1911 til 1928 og eiga sameigin- legt að vera öll gerð utan landstein- anna. Má sjá málverk og teikningar sem sjaldan koma fyrir almennings- sjónir og gefa innsýn í mótunarár Kjarvals og áhrifavalda þessa mikilsvirta málara sem þekktastur er fyrir túlkun sína á íslenskri nátt- úru, eins og segir á vef Listasafns Reykjavíkur. Kjarval stundaði nám í Danmörku og dvaldi um hríð í London, á Ítalíu og í Frakklandi og kynnti sér lykil- verk í alþjóðlegri menningarsögu og nýjustu hræringar í samtímalist, segir á vefnum og að árið 1911 hafi ræst langþráður draumur Kjarvals þegar hann hélt í sína fyrstu för til útlanda, til London. Hafði dvölin þar mikil áhrif á Kjarval og listsköpun hans. Þaðan hélt hann til Kaup- mannahafnar og stundaði nám við Det Tekniske Selskabs Skole og Konunglega listaháskólann. Í Danmörku vann Kjarval mörg af sínum þekktari verkum. Árið 1920 hlaut Kjarval styrk á fjárlögum til Rómarferðar og hélt þangað með eiginkonu sinni og ferð- aðist um Ítalíu. Sneri hann aftur með fjölda verka og þá aðallega vatnslita- og pensilteikningar. Árið 1928 fór Kjarval í langþráða ferð til Frakklands og var með vinnustofu í París og dvaldi einnig í Fontain- bleau-skógi utan við borgina. Vann hann þar röð franskra skógar- mynda. Ári eftir Frakklandsdvölina ákvað Kjarval að leggja fyrir sig ís- lenskt landslag og eru verkin á sýn- ingunni því öll gerð fyrir árið 1929, á fyrri hluta ferils listamannsins, verk sem hann vann í London, Dan- mörku, á Ítalíu og í Frakklandi. Verk sem Kjarval gerði í útlöndum Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Hugsi Jóhannes Sveinsson Kjarval á vinnustofu sinni árið 1968. SVALALOKANIR Svalalokanir frá Glerborg eru nýtískulegar og falla vel að straumum og stefnum nútímahönnunar. Lokunin er auðveld í þrifum þar sem hún opnast inná við. Hægt er að fá brautirnar í hvaða lit sem er. Svalalokun verndar svalirnar fyrir regni, vindi og ryki og eykur hljóðeinangrun og breytir notkun svala í heilsársnotkun. Glerborg Mörkinni 4 108 Reykjavík 565 0000 glerborg@glerborg.is www.glerborg.is 2291árfregalgeps&nupílsrelg,raggulg,relG FÁÐU TILBOÐ ÞÉR AÐ KOSTNAÐAR-LAUSU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.