Morgunblaðið - 22.02.2020, Side 45
MENNING 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 2020
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratug
a
reynsla
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Færeyska tónlistarkonan Eivør
Pálsdóttir kemur fram á tónleikum
Minningarsjóðs Jóns Sefánssonar í
Langholtskirkju í dag kl. 16 og eru
þeir haldnir samhliða annarri út-
hlutun úr sjóðnum sem er ætlað að
styðja ungt fólk sem er að hasla sér
völl á sviði tónlistar og styrkja önn-
ur verkefni sem stjórn sjóðsins met-
ur að falli að hugsjónum Jóns heit-
ins. Aðgangseyrir mun renna
óskiptur í sjóðinn.
Eivør verður ein með gítarinn á
tónleikunum og mun bæði flytja lög
af sólóplötum sínum sem og nokkur
af þeirri tólftu sem er nú í smíðum.
Eivør er einmitt í stúdíói þegar
blaðamaður nær tali af henni,
tveimur dögum fyrir tónleika. „Ég
er bara að vinna í nýju plötunni
minni og klára hana þessa dagana,“
segir Eivør á lýtalausri íslensku, en
hún bjó hér á landi í um fimm ár og
hefur margoft komið hingað eftir
það til tónleikahalds og til að heim-
sækja vini. Jón og Ólöf Kolbrún
Harðardóttir urðu örlagavaldar í
sönglífi Eivarar því Ólöf Kolbrún
kenndi henni söng í Söngskólanum í
Reykjavík og kom Eivör margoft
fram sem einsöngvari með kórum
Langholtskirkju auk þess að vera
fastagestur á Jólasöngvum Kórs
Langholtskirkju, eins og segir á
miðasöluvefnum Tix.is þar sem
kaupa má miða á tónleikana.
Ekki verið sóló lengi
„Ég eignaðist marga góða vini á
Íslandi sem ég hef mikið samband
við ennþá þannig að þetta er alltaf
svolítið eins og að koma heim til
mín, að koma til Íslands,“ segir Ei-
vør. Um Jón heitinn segir hún að
þau hafi verið rosalega góðir vinir
og henni þyki því yndislegt að geta
komið aftur og sungið á minningar-
tónleikum um hann, en Eivør tók
líka þátt í tónleikunum sem haldnir
voru í fyrra. „Ég veit að honum
myndi þykja mjög vænt um þennan
sjóð,“ segir hún um Jón.
–Þú kemur ein fram með gítar-
inn, er langt síðan þú gerðir það síð-
ast?
„Já, ég hef ekki verið mikið að
spila sóló í mörg ár, hef mest verið
að túra með bandinu mínu. Núna
verð ég með mjög „stripped back“
prógramm, bara nakið með gítarinn
og effektana mína. Það er gaman að
skipta stundum og fara í kjarnann
aftur,“ svarar Eivør.
–Hvernig verður prógrammið?
„Ég ætla að spila lög af síðustu
plötunum mínum; Slør, Bridges og
kannski líka Room og svo ætla ég
að taka nokkur ný lög líka í fyrsta
skipti, ég hef aldrei spilað þau á tón-
leikum. Þetta er gott tækifæri til að
prófa þau aðeins.“
Eivør hefur margoft sungið í
Langholtskirkju þar sem hún var í
kórum undir stjórn Jóns og hefur
líka sungið á jólatónleikum og fleiri
tónleikum í kirkjunni. Hún segir
góðan anda í kirkjunni og að hljóm-
burðurinn sé líka góður. „Það er
gott andrúmsloft í henni,“ segir
hún.
Góð tilbreyting
Eivør samdi tónlist við sjónvarps-
þættina The Last Kingdom með
skoska tónskáldinu John Lunn og
hlaut fyrir hana Færeysku
tónlistarverðlaunin í fyrra. Þætt-
irnir eru á Netflix og segir Eivør að
hún hafi samið tónlist við átta þátta-
raðir og að tónlistin hafi líka verið
gefin út sérstaklega í fyrra og þá
m.a. á vínyl. „Það er búið að vera
rosa gaman og allt öðruvísi en það
sem ég hef verið að gera sjálf,“ seg-
ir hún um sjónvarpsþáttatónsmíð-
arnar og er spurð hvort slíkar tón-
smíðar séu orðnar fyrirferðarmeiri í
listrænni sköpun hennar en áður.
„Já, ég er svolítið mikið í því að
semja fyrir ýmislegt og líka sam-
starfi við aðra, er stundum að
syngja á alls konar „soundtracks“
og kvikmyndatónlist,“ svarar hún.
Eivør segist hafa gaman af þess-
ari tilbreytingu og segir hún oft lítið
um orð í þessari listsköpun og meira
af alls konar hljóðum. „Maður tjáir
sig aðeins öðruvísi en þegar maður
er að semja lög,“ segir hún.
Syngur í God of War
–Ertu með einhver sjónvarps- eða
kvikmyndaverkefni á prjónunum?
„Já, ég hef verið að vinna aðeins
að tónlist við teiknimyndaþætti sem
eru ekki komnir enn inn á Netflix
og á hverju ári fer ég til Los Angel-
es og sem með alls konar fólki þar.
En næstu tvö árin ætla ég að reyna
að einbeita mér að nýju plötunni,
það verður mikið túrað með henni.“
Hvað verkefnaval varðar segist
Eivør reyna að taka að sér það sem
henni þyki skemmtilegt. Til dæmis
hafi hún komið að tónlistinni í tölvu-
leiknum God of War, sungið og
trommað en tölvuleikir eru orðnir æ
fyrirferðarmeiri miðill fyrir frum-
samda tónlist. Eivør segir að það
hafi einmitt komið henni á óvart.
„Ég hef aldrei verið mikið í tölvu-
leikjum sjálf, eiginlega ekki neitt,
þannig að ég hafði ekki hugmynd
um hvað þetta er stórt dæmi og vel
gert. Þetta er bara eins og bíó-
mynd,“ segir hún kímin.
Ljósmynd/Shervin Laine
Aftur í kjarnann
Eivør Pálsdóttir heldur sólótónleika í minningu Jóns
Stefánssonar Frumflytur lög af væntanlegri plötu
Íslandsvinur Eivør bjó hér í fimm ár og heldur reglulega tónleika.
Dauðadjúpar sprungur er heiti sýn-
ingarinnar sem ljósmyndarinn Hall-
gerður Hallgrímsdóttir opnar í
sýningarsalnum
Ramskram á
Njálsgötu 49 í
dag, laugardag,
kl. 17.
Hallgerður
lauk BA-gráðu í
myndlist í Glas-
gow árið 2011 og
meistaragráðu
við Valand aka-
demíið í Gauta-
borg í fyrra. Um
hið persónulega verk sem hún sýnir
skrifar Hallgerður:
„Verkið kom til þegar frum-
burður okkar kom andvana í heim-
inn og allt breyttist. Margar mynd-
anna man ég ekki eftir að hafa tekið.
Sumar tók ég þegar ég vissi ekki
hvað annað ég ætti af mér að gera.
Mánuðina eftir áfallið söfnuðust
áteknar filmurnar upp. Ég eigraði
um hverfið, við hjónin fórum í bíl-
túra og myndavélin var bara þarna,
eitthvað til að gera, fela sig á bak
við, tæki sem fylgdi lógík og reglum.
Einn daginn tók ég síðan eftir filmu-
hrauknum í ísskápnum. Eftir það
bættust myndir við safnið með með-
vitaðri hætti.
Verkið Dauðadjúpar sprungur á
sér rætur í hjartasorg ljósmynd-
arans, myndavélin fangar það sem
brýst um í undirmeðvitundinni.
Myndirnar sýna þannig bæði það
sem á þeim er og með hvaða augum
á það er horft. Sumar marglaga og
táknrænar, aðrar einfaldar og auð-
lesnar en allar eru þær hjúpaðar við-
kvæmni og fjarlægð.
Í sýningarrýminu er hula dregin
fyrir sjónu áhorfandans. Bleik tjöld-
in skapa hlýlegt andrúmsloft og
stýra um leið ferðalagi gestanna um
rýmið, liturinn og efniskenndin vísa
bæði til heimilisins og kvenleikans.“
Ljósmynd/Hallgerður Hallgrímsdóttir
Persónulegt Eitt myndverka Hallgerðar, ljósmynd tekin eftir áfall.
Í hjartasorg
ljósmyndarans
Dauðadjúpar sprungur í Ramskram
Hallgerður
Hallgrímsdóttir
Í Bogasal Þjóðminjasafns Íslands
verður í dag kl. 16 opnuð sýningin
Saga úr jörðu – Hofstaðir í Mý-
vatnssveit.
„Á Hofstöðum í Mývatnssveit er
merkileg minjaheild sem spannar
allt frá víkingaöld fram til okkar
daga. Þar hafa farið fram fornleifa-
rannsóknir, þær fyrstu í byrjun 20.
aldar en viðamestar hafa þær verið
seinustu þrjá áratugi. Grafin var
upp gríðarstór veisluskáli frá vík-
ingaöld sem er eitt stærsta mann-
virki sem rannsakað hefur verið á
Íslandi. Þá var grafinn upp kirkju-
garður á Hofstöðum sem í hvíldu
heilar fjölskyldur. Beinin veita
gagnlegar og áhugaverðar upplýs-
ingar um líf fólks,“ segir í tilkynn-
ingu um sýninguna og að mörg
hundruð manns hafa komið að
rannsóknum á Hofstöðum og víðar í
Mývatnssveit og afraksturinn megi
sjá í ritinu Hofstaðir, fjölmörgum
fræðigreinum, skýrslum og nem-
endaritgerðum. Markmið sýning-
arinnar er að kynna það margþætta
ferli sem fornleifarannsókn er, seg-
ir í tilkynningu og að á sýningunni
sé leitast við að svara spurningum
er varða landið og nýtingu þess,
miðstöðina Hofstaði, daglegt líf,
mataræði, fjölskylduna, miðaldir til
20. aldar og rannsóknasögu Hof-
staða.
Saga úr jörðu í Bogasal Þjóðminjasafns
Ljósmynd/Þjóðminjasafnið
Kona Endurgerð andlits byggð á höfuð-
kúpu konu sem fannst í kirkjugarðinum á
Hofstöðum í Mývatnssveit (c. 950-1300).
Sjónvarps-
þáttaröðin Ráð-
herrann verður
frumsýnd á há-
tíðinni Series
Mania í Lille í
Frakklandi, en
hún hefst 20.
mars og lýkur
átta dögum sið-
ar. Hátíðin er til-
einkuð sjón-
varpsþáttaröðum og er sú stærsta
sinnar tegundar í heiminum, skv.
tilkynningu. Ráðherrann verður
tekin til sýninga á RÚV í haust, en í
henni fer Ólafur Darri með hlut-
verk nýkjörins forsætisráðherra Ís-
lands sem glímir við geðhvarfasýki.
Ráðherrann er ekki eina verk-
efnið á Series Mania sem Sagafilm
á þátt í, en samframleiðsluverk-
efnin Ísalög og Cold Courage voru
einnig valin á hátíðina.
Ráðherrann frum-
sýndur í Lille
Ólafur Darri Ólafs-
son í Ráðherranum
Kómedíuleikhúsið verður með opið
hús á morgun, sunnudag, frá kl.
14.01 til 14.59, í nýjum bækistöðv-
um sínum á leikhúseyrinni á Vest-
fjörðum, Þingeyri, nánar tiltekið
Vallargötu 3. Þar hefur verið sett
upp leiklistarmiðstöð undir starf-
semina, staður til að vinna, skapa
og hugsa, eins og því er lýst í til-
kynningu. Tvö leikrit hafa verið
æfð í miðstöðinni og hefjast æfing-
ar á því þriðja á næstu dögum og
hafa nemendur grunnskólans einn-
ig komið á grímunámskeið. Boðið
verður upp á Þingeyrarsnittur,
kaffi og gos og sagt verður frá
Leiklistarmiðstöðinni og þeim æv-
intýrum sem fram undan eru. Allir
eru velkomnir og aldrei að vita
nema gestir geti fengið að setja upp
grímu í tilefni dagsins, eins og segir
í tilkynningu.
Leiklistarmiðstöð með opið hús